Alþýðublaðið - 06.10.1977, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 06.10.1977, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 208. TBL. — 1977- 58. ÁRG. i. •. I Ef bladið berst ekki kvartid til Alþýdubladsins f síma (91) 14900 Ef til verkfalls BSRB kemur: Enginn ellilff- evrir greiddurl Þegar og ef til verkfalls opinberra starfsmanna kemur 11. þessa mánaðar, munu hátt á annað þúsund manns starfa á undan- þágum við öryggismál og heilsugæzlu. Slíkt má raunar teljast eðlilegt# miðað við aðstæður og varla , unnt annað en að verða við beiðnum um slik- ar undanþágur. En einn er sá hópur i þjóhfélag- inu sem hefur algerlega oröið út- undan i niðurröðun þessara undanþága. Ellilifeyrisþegar munu ekki fá greiddan ellilífeyri sinn þennnan mánuð, og mun þá mála sannast að þar sé hópur sem sannarlega er ekki ofsæll af þvi sem hann fær til lifsviður- væris mánaðarlega. Þegar Alþýðublaðið kannaði það i gær, hvort undanþágur yrðu veittar til að greiða ellilifeyris- þegum lifeyri sinn 15. þessa mán- aðar, en þá er greiðsludagur, kom i ljós, að ekkert haföi verið hugs- að fyrir þörfum þessa hóps. Hjá Tryggingastofnun ríkisins feng- ust þau svör að um þessar greiðslur væri ekkert vitað, — það hefði ekki verið tekið fyrir. Flokkast ekki undir heilsu- gæzlu eða öryggismál — Það veröur, eftir þvi sem bezt er vitað ekkert um slikar greiðslur aö ræða, sagði Helgi V. Jónsson formaður Kjaradeilu- nefndar, þegar hann var inntur eftir þvi i gær, hvort ellilifeyrir yrði greiddur út. Kjaradeilunefnd ákvarðaði sem kunnugt er þær undanþágur sem verða frá verk- Bryggjan á Bakkafiröi. Myndin er frá árinu 1970 og var þá unnið aö lengingu bryggjunnar. 1 gærmorgun lestaöi Suöurlandiö þarna 1180 pakka af saltfiski sem fara munu á Grikklandsmarkaö. Eru þaö 55- 60 tonn, eöa um þriggja vikna framleiösla (Jtvers h/f. Saltfisktjónið á Bakkaf irði meira — en áætlað hafði verið UTVER h/f heitir tveggja ára gamalt fisk- verkunar f yrirtæki á Bakkaf irði og komst það i sviðsljósið fyrir nokkrum vikum, þegar í Ijós kom að koparmengað salt hafði stórskemmt mikið magn af saltfiski hjá fyrirtækinu. Þó (Itver sé litið fyrirtæki á landsvisu, þá er það stórfyrir- tæki á Bakkafiröi og hefur 15-20 manns i vinnu yfir sumarmán- uðina . Til samanburðar má geta þess að ibúar á Bakkafirði eru aðeins um 60 talsins. Bjartmar Pétursson, fram- kvæmdastjóri (Jtvers, sagði við AB i gær, að tjónið af völdum mengaða saltsins hafi verið talsvert meira en ætlað var i fyrstu. Strax voru tekin frá 45 tonn af saltfiski, sem orðinn var gulur af völdum koparsins, og þvi óhæfur til útflutnings. Var reynt að þvo allan fiskinn og unnu um 25 manns i hálfan mánuð við þvottinn. Hafði baðið þær afleiöingar i för með sér, aö gulnunin i fiskinum stöövaðist alveg, en minnkaði ekki. Tals- vert bættist þá við af útflutn- ingshæfum fiski og gizkaði Bjartmar á að heildarmagn hans væri nú orðið 60-70 tonn. Er þar um aö ræöa nálægt helm- inginn af þeim fiski sem kominn var i salt á þeim tima eða um hálfs mánaðar framleiðslu. Bjartmar kvaðst ekki getað á þessari stundu gizkað á tjónið af völdum þessa, en ljóst væri að það væri mjög mikið og til- finnanlegt hjá svo smáu fyrir- tæki. — Við munum reyna að þurrka fiskinn á einhvern hátt og koma honum i verð,en það Framhald á bls. 10 falli, ef til verkfalls opinberra starfsmanna kemur. — Var ekkert fjallað um þetta mál i nefndinni? — Nei, við höfum enga heimild til siks. Við eigum að taka ákvarðanir, en þær verða að snerta heilsugæzlu eða öryggis- vörzlusvið. Og útborgun ellilif- eyris snertirþau svið ekki frekar en útborgun launa. Ellilifeyrir verður örugglega ekki greiddur. Undanþága hjá Reykja- vikurborg Sveinn Ragnarsson felags- málastjóri ReykjavikurbQrgar skýröi blaðinu frá þvi i gær, að undanþága hefði fengizt fyrir 4-5 starfsmenn til að starfa 1-2 daga i viku, ef til verkfalls kemur. Þeir starfsmenn eiga að sinna hugsan- legri afgreiðslu skjólstæöinga borgarinnar. —hm Allsherjar- atkvæda- greidsla BSRB: 9 af hverjum iu myddu kallinu Niu af hverjum tiu fé-j lögum í Bandalagi starfs- manna ríkis og bæja# sem á annað borð greiddu atkvæði/ hlýddu kalli forystu sinnar og greiddu atkvæði gegn sáttatillögu til lausnar kjaradeilu opinberra starfsmanna og ríkisins. Kjörsókn i allsherjarat- kvæðagreiðslunni var mjög góð/ eða um 90%, og þegar atkvæði rikis- starfsmanna/ að undan- skildum utankjörstaðar- atkvæöum, höfðu verið talin, höfðu 6628 sagt nei/ eða um 90.6%/ og 687 já/ eða 9.4%. Auðir seðlar voru 84/ ógildir 6. Talningu atkvæða i kosningu hinna ýmsu starfsmannafélaga viðs vegar um land lauk sið- degis i gær og urðu heildarúr- slitin þau að 3521 greiddi at- kvæði af 4013 sem voru á kjör- skrá. Já sögðu 356, en 3109 sögðu nei, auðir seölar voru 47, ógildir 9. 89.7% félaga höfnuöu þvi til- lögunni, en 10.3% greiddu henni atkvæði. Stjórnir fjögurra sveitarféiaga höfnuöu sáttatil- lögunni: Vestmannaeyjar, Hveragerði, Garðabær og Sel- tjarnarnes, en ekki var tekin af- staða til þess i bæjarstjórn Akraness. — ARH Verjendur hafa orðið: Krafizt sýknu yfir Kristjáni V Vidarssyni Munnlegur málflutningur i Geirfinns- og Guömundarmál- um sem hófst i Sakadómi Reykjavikur siðast liðinn mánudag, var fram haldið i gærdag. Um hádegið i gær lauk Bragi Steinarsson vararikissak- sóknari sóknarræöu sinni sem hann hóf að flytja á mánudag. Að loknum málflutningi sækj- anda tóku verjendur hinna ákærðu til viö að flytja varnar- ræður sinar. Fyrstur verjenda tók til máls Páll Arnór Pálsson hdl. verjandi Kristjáns Viðars Viðarssonar og lauk hann við að flytja fyrri varnarræðu sina i gær. Gerði hann i varnarræðunni kröfu til þess aö Kristján Viðar Viðarsson yrði sýknaður af ákæru um aö hafa tekið þátt i aö ráða þeim Guömundi Einars- syni og Geirfinni bana, en til vara krafðistx hann vægustu refsingar. Búist er við að málflutningi i þessum viöamiklu sakamáum ljúki á morgun, föstudag og að þá verði málið lagt i dóm. Eru jafnvel bundnar vonir við aö dómur verði kveöinn upp fyrir áramót. Dómforseti er Gunnlaugur Briem, sakadómari, en meö- dómendur þeir Haraldur Henrýsson, sakadómari og Ar- mann Kristinsson, sakadómari. — GEK Vegagerdin, vörubílstjörar, vinnuvélaeigendur — Sjá viðtöl og bréf á baksíðu

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.