Alþýðublaðið - 28.10.1977, Síða 1
FOSTUDAGUR 28. OKTÓBER
Ritstjórn
Alþýdubladsins
er í Sídumúla 11 —
Sfmi (91)81866
[ Gengissigid heffur sitt ad segja:
)
Bifreiðar hækka um
14.000 kr. á viku
Vegna gengissigs
islenzku krónunnar hefur
verð á bifreiðum farið
hækkandi undanfanar
vikur# sem nemur allt að
hálfum af hundraði á
viku# eða sem svarar um
tuttugu og sex af hundr-
aði á ársgrundvelli.
Þetta þýðir að bifreið,
sem i dag kostar tvær
milljónir króna, kostar á
föstudaginn í næstu viku
tvær milljónir og tíu þús-
und, eftir mánuð tvær
milljónir og f jörutíu þús-
und og i árslok tvær
milljónir og eitt hundrað
þúsund, eða því sem næst.
Alþýðublaðið hafði i gær sam-
band við nokkur bifreiðaumboð
i Reykjavik og spurðist fyrir um
þær verðhækkanir, sem orðið
hafa siðustu sex mánuði.
í ljós kom aö mestar hækkan-
ir hafa orðið á þýzkum bifreið-
um, þá japönskum og svo
bandariskum.
Hér verða á eftir rakin nokkur
dæmi.
Þýzkaland:
Opel bifreið, sem i april kost-
aði tvær og hálfa milljón króna,
kostar nú þrjár milljónir og eitt
hundrað þúsund. Hækkun 24%.
BMW bifreið, sem kostaði
2.311.000.00 krónur fyrir mánuð-
um, kostar nú 2.750.000.00.
Hækkun 19%.
VW-Golf bifreið, sem kostaði
2.039.000.00 kostar nú
2.360.000.00. Hækkun 15.7%
Audi bifreið, sem kostaði
2.880.000.00 kostar nú
3.350.000.00. Hækkun 16.3%.
A þessum tima hefur islenzka
krónan sigið gagnvart v-þýska
markinu um 14.3%.
Japan:
Gagnvart japanska Yeninu
hefur krónan lækkað um 20.5%.
Mazda bifreið, sem fyrir sex
mánuðum kostaði 2.040.000.00
krónur, kostar nú 2.420.00.00.
Hækkun 18.6%.
Datsun bifreið, sem kostaöi
1.670.000.00 kostar nú
1.930.000.00. Hækkun 15.5%. Viö-
mælandi blaðamanns hjá Dats-
un-umboðinu tók sérstaklega
fram að þetta verð miðaðist við
bil á götuna.
Bandarikin:
Chevrolet Nova bifreið, sem
kostaði 3.300.000.00 krónur,
kostar nú 3.600.000.00. Hækkun
9.1%, sem mun vera meðaltals-
hækkun á bandariskum bifreið-
um, enda hefur krónan sigið um
nákvæmlega sömu prósentu
gagnvart bandariska dollaran-
um.
Sviþjóð:
Volvo bifreið, sem fyrir sex
mánuðum kostaði 2.950.000.00
krónur, kostar nú 3.100.000.00.
Hækkun er 5.1%, en sænska
krónan er annar af tveim gjald-
miðlum, sem islenzka krónan
hefur hækkað gagnvart á á
þessu sex mánaða timabili. Sú
hækkun stafar af gengisfellingu
sænsku krónunnar, en undan-
farið hefur islenska krónan unn-
ið mismuninn vel upp.
Hjá Saab-umboðinu lágu ekki
fyrir glöggar upplýsingar um
þetta sex mánaða timabil, það
WMiMliMfMIMIUNáUBIÍ WmSk
Þessa skemmtilegu mynd tók Ijósmyndari blaðsins ATA er einn starfsmanna Slippsins var að fara
frá borði togarans Rauðanúps sem er þar 1 dráttarbrautinni.
„Hann vill verða
borgarstjóri!”
— segir flokksbróðir Alberts Guðmundssonar
Frétt Alþýðublaðsins
i gær um ummæli Al-
berts Guðmundssonar,
þingmanns og borgar-
fulltrúa, á fundi með
kaupmönnum i fýrra-
dag, þar sem hann
kvaðst ekki ætla að
gefa kost á sér i fram-
boð, hefur vakið mikla
athygli. Vísir og Dag-
blaðið höfðu það eftir
Albert i gær, að hann
vildi ekkert um málið
segja, og sama svar
fékk Alþýðublaðið frá
þingmanninum.
Menn velta því nú fyrir sér
hvaö liggja kunni til grundvall-
ar ummæla Alberts. Ýmsir
kunningjar hans segja, að hon-
um geti ekki verið alvara meö
þessu, enda ,,fær hann ekki að
hætta”, eins og einn orðaöi þaö.
Andstæöingar Alberts i póli-
tikinni segja, að hann hafi sett
þetta á sviö til að fá af staö
fjöldahreyfingu sértilstuðnings.
„Hann ætlar sér borgarstjóra-
embættið” sagði einn af and-
stæöingum Alberts i Sjálfstæð-
isflokknum i gær. „Hann er
vanur þvi að fá fram það sem
Framhald á bls. 10
er ekki upplýsingar, sem við-
mælandi blaðamanns taldi gefa
glögga mynd af áhrifum gengis-
sigs. Þar blandast inn i verð-
breytingar frá hendi verksmiðj-
anna, sem ollu þvi að Saab var
ódýrari i ágúst en i april þetta
ár.
Hins vegar fengust þar þær
upplýsingar, að 78 módel af
Saab 99, hefði þann 24. ágúst
siðastliðinn kostað 3.075.000.00'
krónur, en átta vikum siöar, það
er 24. október, 3.190.000.00.
Þessi verðhækkun er um 3.7%,
eða nálægt 11% miðað viö sömu
þróun i sex mánuði.
Hækkunin vegna gengissigs-
ins er i þessu tilviki rúmlega
fjórtán þúsund krónur á viku
hverri.
Gagnvart sænsku krónunni
hefur islenzka krónan hækkað
um 0.8% siðustu sex mánuði.
Af öðrum bifreiðategundum
má geta þess, að Scoda-bifreið,
sem fyrir sex mánuðum kostaði
960.000.00 krónur, kostar nú
1.043.000.00, hefur hækkað um
8.6%, og Renault-bifreið, sem
kostaöi 1.818.000.00 fyrir sex
mánuðum, kostar nú
2.400.000.00, hefur hækkað um
33%, sem raunar er mesta
hækkun, er blaðið fann i gær
dæmi um. —hv
(
„Krónurýrnunarstefnunni”
fylgt fast:
)
20% á þessu ári?
Islenzka krónan er enn á
niðurleið, hraðri niöurleið, þvi
undanfarna sex mánuði hefur
hún sigið sem nemur niu af
hundraði gagnvart Bandarikja-
dollar, fimm til sex og hálfan af
hundraði gagnvart gjaldmiðlum
annarra Norðurlanda, og um
eða yfir tiu af hundraöi gagn-
vart gjaldmiðlum flestra ann-
arra Evrópurikja.
Hér fer á eftir samanburöar-
tafla, er sýnir gildi islenzku
krónunnar gagnvart öðrum
gjaldmiðlum, annars vegar
hinn 26. april á þessu ári, hins
vegar i fyrra dag, þann 16. októ-
ber.
Má af þessari töflu draga
nokkrar ályktanir um orsakir
þess að rikisstjórninni hefur
„tekizt að komast hjá þvi að
fella gengi islenzku krónunn-
ar”.
Af þessari töflu má sjá, að
„gengissig” hefur ekki sömu
áhrif á gjaldmiðil okkar og
„gengisfelling”, eða „gengis-
breyting”. Engu að siður er
greinilegt, að þótt islenzka
krónan hafi hlutfallslega hækkað
i verögildi miðað viö gjaldmiöla
tveggja annarra þjóöa, það er
sænsku krónuna og pesetann, þá
er „sigið” frá fimm af hundraði,
Framhald á bls. 10
27. april 1977. 27. október 1977 sig
1 Bandarikjadollar 192.80 210.30 9.0%
1 Sterlingspund 331.45 374.00 12.8%
lOOdanskar krónur 3223.45 3435.00 6.5%
lOOnorskar krónur 3646.60 3828.90 4.9%
lOOsænskarkrónur 4430.40 4393.60 + 0.8%
lOOfinnsk mörk 4758.10 5067.50 6.5%
100 franskir frankar 3885.90 4338.10 11.6%
lOObelgiskir fr. 532.60 596.40 11.9%
lOOsvissn. frankar 7608.50 9418.70 23.8%
100 gyllini 7823.10 8651.10 10.6%
100 v-þýsk morx 8132.10 9295.80 14.3%
lOOlirur 21.76 23.90 9.8%
100 Austur. Sch. 1144.25 1304.60 14.0%
100 escudos 498.20 517.10 3.8%
100 pesetar 280.50 251.40 + 10.3%
100 yen 69.30 83.55 20.56%
Bensínlítrinn í 130
kr. í lok næsta árs?
— Mér sýnist óhjákvæmilegt að
velta fyrir sér þeim möguleika,
aö fólk dragi saman notkun bif-
reiöa á næsta ári vegna mikilla
hækkanaá bensini, sagði Ingólfur
Jónsson, alþm., meðal annars i
ræðu á Alþingi i gær. Var þá til
umræðu tillaga um uppbyggingu
vegakerfis i snjóþungum héruð-
um og i sambandi viö þaö drap
Ingólfur Jónsson stuttlega á tekj-
ur rikisins af bifreiöum og bif-
reiðanotkun.
Þingmaðurinn benti á aö I f jár-
lagafrumvarpinu væri gert ráð
fyrir að bensingjald hækkaði um
15 krónur, sem þýddi 19-20 kr.
hækkun á útsöluveröi bensins. Aö
auki mætti gera ráð fyrir gengis-
sigi krónunnar, og væri því engin
fjarstæða að ætla aö siðari hluta
árs 1978 kostaöi bensínlftrinn til
neytenda allt að 130 krónur. —
Þaö má alveg gera ráð fyrir aö
fólk reyniaönota bensiniöminna,
vegna þessa og er þvi óvist að
rikissjóöur hafi eins miklar tekj-
ur af benslnsölu og ætlaö er i f jár-
lögum, sagði Ingólfur Jónsson.
—ARH