Alþýðublaðið - 28.10.1977, Qupperneq 3
blaoið Föstudagur 28. október 1977
Tannlæknafélag íslands 50 ára:
Fyrsta vísi að tannminja-
safni komið á fót
Fyrsta vísi að
/,tannminja"safni hefur
verið komið á fót á veg-
um Tannlæknaf élags
Islands. Þetta kom fram
á fundi sem haldinn var
með fréttamönnum í gær
i tilefni af þvf að þann 30.
október næstkomandi
verður Tannlæknafélag
islands 50 ára. Félagið
stofnuðu tannlæknarnir
Brynjúlfur Björnsson,
Hallur Hallsson og Thyra
Loftsson, 30. okt. 1927.
Frumkvöðull að stofnun
Tannlæknafélagsins var
Brynjúlfur og samdi hann
fyrstu lög þess og siðareglur.
Hann samdi og frumdrög að
lögum um tannlækningar, en
fyrstu lög um það efni eru frá
árinu 1929.
Tilgangur félagsstofnunar-
innar var i fyrsta lagi aö vera
stéttar- og hagsmunafélag fyrir
tannlækna og i ööru lagi aö
auövelda félagsmönnum, að
fylgjast með nýjungum á sviði
tannlækninga og viðhalda þekk-
ingu þeirra. Þá hefur félagið i
auknum mæli beitt sér fyrir
fræðslu fyrir almenning. Má i
þvi sambandi nefna að i tilefni
af afmæli félagsins verða flutt 7
fræðsluerindi en siðasta erindiö
verður flutt i desember.
1 Tannlæknaféíagi Islands eru
nú 167 félagar og þar af eru um
150 starfandi hér á landi. Lang-
flestir þessara tannlækna eru
búsettir i Reykjavik, eða rúm-
lega 100, en það mun hins vegar
færast i vöxt að nýliðar i stétt-
inni setjist að á landsbyggðinni.
Ýmislegt verður gert til að
minnast afmælis félagsins. 1
gærkvöldi var haldinn hátiöar-
fundur i félagsheimili
tannlækna að Siðumúla 35, aö
viðstöddum heilbrigöismála-
ráðherra, borgarstjóra og
borgarlækni. 1 dag föstudag
heldur prófessor Harald Löe
fyrirlestur um tannvegsfræði. Á
morgun laugardag halda 5
islenzkir fyrirlesarar erindi i
hinum ýmsu greinum
tannlæknisfræðinnar, en að
kvöldi þess dags veröur siðan
afmælishátið að Hótel Loft-
leiðum. —GEK
rrBjórmáléd”
enn í þingsali:
Nú vill
Sólnes
þjóðarat-
greiðslu
Búast má við þvi að enn á ný
færist lif i umræöu manna um
áfengt öl eöa bjórinn margumtal-
aöa, þar sem oddviti stuönings-
manna hans á Alþingi, Jón Q. Sól-
nes.hefurenn lagt fram tillögu til
þingsályktunar um bjórmáliö.
Jón G. Sólnes flutti sem kunnugt
er tillögu á siöasta þingi, sem
gerði ráð fyrir aö núgildandi
áfengislögum yröi breytt á þann
veg,aö framleiösla ogsala áfengs
öls yröi heimiluö. örlög frum-
varpsþessa urðuþau, að þaö dag-
aði uppi i nefnd og þar með i þing-
inu og „reyndi þvi aldrei á hvort
þingvilji væri fyrir þvi að leyfa
framleiðslu og sölu áfengs öls eöa
ekki”, segir Sólnes i greinargerð
með nýju tillögunni.
En nýja tillagan er þó frá-
brugðin hinni fyrri, á þann veg,
að þar er lagt til að við næstu
alþingiskosningar fari fram
þjóðaratkvæðagreiösla um hvort
heimila skuli framleiðsliu ogsölu
áfengs öls f landinu. Þátttaka i
atkvæðagreiöslu þessari skal
heimil öllum sem náö hafa 18 ára
aldri þegar atkvæðagreiöslan fer
fram.
Flutningsmaður segir i
greinargerð, að ekki sé óeðlilegt
aö leitað sé eftir þvi aö fá vitn-
eskju um hver sé hinn raunveru-
legi þjóðarvilji i jafnumdeildu
máli og hérerfjallað um Auðveld
leiö og kannski sú marktækasta
sé að mati flm. að láta fara fram
þjóðaratkvæöagreiðslu um máliö.
Og þar sem almennar þingkosn-
ingar séu á næsta leyti sé sjálf-
sagt aö nota það tækifæri sem
þannig bjóöist. Flm. telur sjálf-
sagt að miöa þáttöku i atkvæöa-
greiðslunni við 18 ára aldur og
segist þannig vilja leggja áherzlu
á þá skoðun sina aö ákvöröun um
framleiðslu og sölu áfengs öls sé
ekki siður mál ungu kynslóðar-
innar en hinnar eldri, og þvi ekki
nema eölilegt að unga fólkiö fái
aö láta i ljós álit sitt á málinu.
—ARH
Óperumyndin Fidelio í Nýja Bíói
Leonora, dulbúin sem Fidelio
(Annja Silja, t.v.), og fanga-
vörðurinn Rocco (Ernst Wiem-
ann), ásamt dóttur hans (Lucia
Popp),
Félagið Germania og Tónleika-
nefnd Háskólans hefja nú aftur
sýningar á þýzkum óperukvik-
myndum. Þessar myndir eru all-
ar gerðar af norður-þýzka sjón-
varpinu og Hambórgaróperunni
undir stjórn Rolf Liebermann.
Myndirnar veröa sýndar I Nýja
Bió á laugardögum og er aðgang-
ur ókeypis og öllum heimill.
Fyrsta óperan sem sýnd veröur
er Fidelio eftir Beethoven. Ópera
þessi fjallar um ástina og frelsið
og segir frá hinni trygglyndu
Leonoru sem dulbýst sem
unglingspilturinn Fidelio til þess
að leysa mann sinn Florestan úr
fangelsi.
Þekktir söngvarar eru I cSlum
hlutverkum. Meö hlutverk Flor-
estans fer Bandarikjamaðurinn
Richard Cassilly og þýzka söng-
konan Anja Silja syngur Leonoru.
Þau hafa sungið þessi hlutverk
viða, m.a. i Covent Garden. Hinn
þekkti bassasögnvari, Theo
Adam, fer með hlutverk hins
harölynda fangelsisstjóra, Don
Pizarro, oglandihans, Hans Sotin
er pon Fernando, ráðherra.
Lucia Popp, ein kunnasta söng-
kona Þjóðverja, er i hlutverki
Marzelline, dóttur fangavaröar
Kvikmynd þessi var sýnd i
sjónvarpinu á páskadag, 6. april
1969, en eflaust hafa margir
áhuga á aö sjá hana aftur I litum.
Þess má einnig geta, að þegar
Þorsteinn Hannesson, tónlistar-
stjóri Rikisútvarpsins, var fast-
ráðinn við Covent Garden óper-
una, söng hann oft hlutverk Flor-
estans.
Sýningin hefst kl. 14, en slðar i
vetur, er áformaö að sýna Töfra-
flautuna (3. (3. des.), Keisara og
smið (28. jan.) og Wozzeck (18.
marz)
Tilboð
óskast i nokkrar fólksbifreiðar, jeppa-
bifreiðar og i nokkrar ógangfærar bif-
reiðar er verða sýndar að Grensásvegi 9,
þriðjudaginn 1. nóvember kl. 12-3.
Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl.
5.
SALA VARNALIÐSEIGNA
\
á gamla verðinu
Hangiframpartar
kr. 768.— pr. kg.
Hangilæri kr. 979.— pr. kg.
29.10.77
KIWANISHREYFINGIN Á ÍSLANDI
Gleymum
ekki
geðsjúkum