Alþýðublaðið - 28.10.1977, Page 10

Alþýðublaðið - 28.10.1977, Page 10
Föstudagur 28. október 1977 alþMu-. blaoló SKEMMTANIR — SKEMMTANIR HÓTEL LOFTLEIÐIR Cafeteria, veitingasalur meö sjálfsafgreiðslu opin alla daga. HÓTEL LOFTLEIÐIR Blómasalur, opinn alla daga vikunnar. HÓTEL SAGA Grilliö opið alla daga. Mfmisbar og Astrabar, opið alla daga nema miðvikudaga. Simi 20890. INGÓLFS CAFÉ við Hverfisgötu. — Gömlu og nýju dansarnir. Simi 12826. SKEMMTANIR — SKEMMTANIR Ingólfs-Café Gömlu dansarnir í kvöld kl. 9 Hljómsveit Garðars Jóhannessonar. Söngvari Björn Þorgeirsson. Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Simi 12826. Fjölbrautaskólinn Brautarholti Skrifstofuaðstoð óskast að skólanum i 2 mánuði og er um 1/2 dags starf að ræða. Upplýsingar gefur Rögnvaldur Sæmunds- son, aðstoðarskólameistari i sima 75600 eða i skólanum á skrifstofutima. Skólameistari. Styrkur til háskólanáms í Svíþjóð Sænsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram I löndum sem aðild eiga að Evrópuráðinu tiu styrki til háskólanáms i Svíþjóö háskólaárið 1978-79. — Ekki er vitaö fyrirfram hvort einhver þessara styrkja muni koma I hlut íslend- inga. — Styrkir þcssir eru eingöngu ætlaöir til framhalds- náms við háskóla. Styrkfjárhæðin er 1.725 sænskar krónur á mánuöi i niu mánuði en til greina kemur I einstaka til- vikum aðstyrkur verði veittur tilallt að þriggja ára. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi áður en styrk- timabil hefst. Umsóknir um styrki þessa skulu sendar til: Svenska Institutet, P.O. Box 7072, S-103 82 Stockholm, Sverige, fyrir 28. febrúar 1978 Menntamálaráðuneytið, 26. október 1977. Sfí Reykjavíkurborg W — úthlutun Auglýst er eftir umsóknum byggingar- meistara og/eða byggingarfélags um út- hlutun fjölbýlishúsalóðarinnar Flyðru- grandi 8, 8a, 8b og 8c. Ætlazt er til, að byggt sé skv. þegar samþykktum byggingarnefndarteikningum, sem liggja frammi til skoðunar hjá byggingarfull- trúa Reykjavikurborgar, Skúlatúni 2, 2. hæð. Allar nánari upplýsingar s.s. um áfallinn kostnað vegna jarðvegsvinnu, hönnunar o.fl. veitir skrifstofustjóri borgarverk- fræðings. Umsóknarfrestur er til 10. nóv. n.k. Borgarstjórinn i Reykjavik. Dagbókin 5 til hefur rikið borið 50% af kostnaði við hljómsveitina, borgarsjóður Reykjavikur 21,4% og Rikisútvarpið 28,6%. Samkvæmt hinu nýja frumvarpi mun rikissjóður bera 37% kostnaöar, Rikisútvarp 28%, Þjóðleikhús 10% og borgarsjóð- ur Reykjavikur og bæjarsjóðir Hafnarf jarðar, Kópavogs, Garðabæjar, og Seltjarnarness munu siðan skipta þeim 25% sem eftir eru á milli sin. Mál þetta hefur valdið nokkr- um deilum. Til dæmis hefur komiö i ljós að ekkert hefur ver- ið rætt við forsjármenn þeirra sveitarfélaga sem nú koma inn i dæmið i fyrsta skipti hvort þeir séu tilkippilegir i leikinn. Umræður um mál þetta hafa snúizt upp i almennar menningarmálaumþenkingar. Þingmenn utan af landi hafa skyndilega rumskað i stólum sinum. Ýmsir af J)ingmönnum dreif- býlisins hafa bent á að litið sam- ræmi sé i menningarstuðningi rikisins. Sinfóniuhljómsveitin þjóni þröngum hlustendahópi hér á höfuðborgarsvæðinu, en á sama tima leggi fólk út á landi á sig mikið erfiði og óþægindi til að geta lagt stund á menningar- starfsemi sem blómstrar viða um land styrkjalaust. Þetta má kallast nokkurt hugrekki af umræddum þingmönnum. 1 þessum umræðum urðu þeir svo hjartanlega sammála Jónas Arnason og Karvel Pálmason að Karvel táraðistundir ræðu þess fyrrnefnda að eigin sögn. Hefur tilfinningahiti i þingsölum ekki lengi komizt svo hátt upp. Hvað ætíar Albert sér að gera? Alþýðublaðið segir frá þvi i gær að Albert Guðmundsson, borgarfulltrúi og alþingismaður Sjálfstæðisflokksins hafi á fundi i fyrradag gefið þá yfirlýsingu að hann hyggðist ekki bjóða sig fram fyrir flokkinn i næstu kosningum. Albert á gifurlega mikið persónufylgi og kæmist að öllum likindum á þing utan flokka. Albert hefur þó ekkert viljað láta eftir sér hafa um fyrirætlanir sinar, en tvimæla- laust setur þetta nokkurt strik i reikningsdæmi forystumanna Sjálfstæðisflokksins. Qengissig 1 upp i tæplega tuttugu og f jóra af hundraði sem er gagnvart sviss- neska frankanum. Gagnvart átta af þeim sextán gjaldmiðlum, sem taldir eru hér, hefur gengissigið verið yfir tiu af hundraði þessa sex mánuði, eða yfir tuttugu af hundraði á árs- grundvelli. Væri þvi ekki úr vegi að álykta sem svo, að sigið jafn- gildi um tiu prósent gengisfell- ingu, eða tuttugu prósent gengis- fellingu á ársgrundvelli. Þvi er ljóst, að þeirri rikis- stjórn, er nú er nokkuð hrósað fyrir að fella ekki gengi krónunn- ar, hefur tekizt að ná vel gengis- fellingameðaltali undanfarinna áratuga. Henni hefur tekizt að halda þeirri stefnu er rikisstjórn- ir undanfarinna áratuga hafa helzta rekið gagnvart gjaldmiðli okkar, það er að rýra hann sem mest.______________________ Albert_________________1_ hann vill, og nú vill hannfyrsta sætiö I borgarstjórnarkosning- unum og þar með borgarstjóra- embættið. Um þetta hefur slag- urinn staðið”, sagði viökom- andi. Aðrir eru þeirra skoðunar, að Albert kunni að fara leið hins danska Glistrups, þótt ekki sé mikill skyldleiki með skoöunum þeirra tveggja. Enginn vafi er þó á þvi, að Albert á miklu fylgi að fagna og næði auöveldlega kjöri utanflokka. Hann er sjálf- stæður i skoðunum, lætur engan segja sér fyrir verkum og htíur reynst mörgum litilmagnanum stoö og stytta I erfiöleikum. Fljótlega kemur i ljós hvað Albert ætlar sér, en þangað til biða margir með öndina i háls- inum. Félagsvist Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur verður i Iðnó (uppi) nk. laugardag kl. 2 e.hd. Góð verðlaun. — Mætið vel og stund- vislega. Skemmtinefndin Ljósmyndarar Viljum kaupa ljósmyndir af skipum félagsins og frá starfsemi þess. — Enn- fremur góð eintök af dagatölum félagsins fyrir 1931. H.F. Eimskipafélag íslands. fH Útboð Tilboð óskast I sivalar bryggjuhlifar úr gúmmi (Cylind- rical rubber fenders) fyrir Reykjavikurhöfn. Ctboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3, R. Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 23. nóv- ember n.k. kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 Húsvörður Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra, óskar að ráða húsvörð við ibúðarálmu Sjálfs- bjargarhússins Hátúni 12, Reykjavik. Ráðgert er að húsvörðurinn hefji störf um næstu áramót. Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf og meömæl- um, sendist fyrir 7. nóvember n.k. mérkt Sjálfsbjargar- húsið, húsvarzla, R. 5 pósthólf 5147 Reykjavik. Styrkur til háskólanáms eða rannsóknastarfa í Bretlandi Breska sendiráðið í Reykjavik hefur tjáð islenskura stjórnvöldum að The British Council bjóði fram styrk handa Islendingi til náms eða rannsóknastarfa við há- skóla eða aðra visindastofnun I Bretlandi háskólaárið 1978-79. Gcrt er ráð fyrir að styrkurinn nægi fyrir fargjöld- um til og frá Bretlandi, kennslugjöldum, fæði og húsnæöi, auk styrks til bókakaupa. t Umsækjendur skulu hafa lokiö háskólaprofi og aö öðru jöfnu vera á aidrinum 25-30 ára. Umsóknir um styrk þennan skulu hafa borist mennta- málaráðunej tinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 10. des- ember n.k. — Tilskilin eyðublöð, ásamt upplýsingum um nauðsynleg fy lgigögn, má fá I ráöuneytinu og einnig i breska sendiráðinu, Laufásvegi 49, Reykjavlk. Menntamálaráðuneytið, 26. október 1977. Laus staða ritara samgöngumálanefndar Norðurlandaráðs Staða ritara samgöngumálanefndar Norðurlandaráðs er laus frá 1. des. n.k. Sérþekking á starfssviði nefndarinnar og góð kunnátta i einu Norðurlandamáli er nauðsynleg. Laun nú um 86 þús. sænskar kr. og staðaruppbót nú um 21 þús. sænskar kr. á ári. Búseta i Stokkhólmi áskilin. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf, sendist Islandsdeild Norðurlandaráðs, alþingishúsinu fyrir 5. nóv. n.k. Forsætisnefnd ráðsins tekur ákvörðun um ráðningu. íslandsdeild Norðurlandaráðs

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.