Alþýðublaðið - 21.12.1977, Blaðsíða 2
Miðvikudagur 21. desember 1977;
Innanlandsflugið
lá niðri í gær
— vegna veðurs — Flugfraktin
fór sjóleiðis til Vestfjarða
Innanlandsflugið gekk heldur
brösuglega á landinu i gær.
Þannig féll allt flug niður hjá
Vængjum, en þar hefur flugið
gengið illa vegna veðurs siðustu
þrjá daga. Sama var uppi á ten-
ingnum hjá Flugfélagi tslands I
gær, — ekkert flogið innanlands.
Hjá Vængjum fékk Alþýðublað-
ið þær upplýsingar i gær, að fallið
hefðu niður 12 ferðir til 8 staða
þann dag vegna veðursins. Um
150 manns biðu þá eftir ferð frá
Reykjavik, og taldi sá sem við
ræddum við hjá Vængjum, að
svipaður fjöldi myndi biða úti á
landi eftir ferð til Reykiavikur,
enda hefðu vélarnar yfirleitt ver-
ið fullar báðar leiðir undanfaran
daga.
1 fyrradag komust vélar
Vængja hins vegar tvisvar til
Siglufjarðar og einu sinni til
Hvammstanga og Hólmavfkur,
en Vestf jarðakjálkinn hefur verið
höfuðverkur félagins undanfarna
daga og algerlega ófært þangað.
1 gærkvöld voru áætlaðar þrjár
ferðir með vörur til Sauðárkróks
og tvær til Bfldudals, Stykkis-
hólms og Rifs, en þegar blaðið
hafði samband við Vængi var
fyrirsjáanlegt að ekkert yrði af
þeim ferðum fremur en farþega-
flutningunum.
Flugleiðir sendi
fraktina sjóleiðis
— Þetta er svakalegt, sagði
Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi
Flugleiða, þegar Alþýðublaðið
spurði hann, hvernig innanlands-
flugið gengi. — Hér hefur ekkert
verið flogið innanlands og verður
áreiðanlega ekki úr þessu á flesta
staðina.
Annars sagði Sveinn, að aðal-
höfuðverkur þeirra Flugleiða-
manna undanfarna daga hefði
verið fraktflugið til Vestfjarða.
Astandið i þeim málum hefur
verið það sama og i farþegaflug-
inu, — ekkert hægt að fljúga. Þar
af leiðandi urðu Flugleiðir að
gripa til þess neyðarúrræðis að
senda flugfraktina sjóleiðis i gær.
Allar bókanir, sem tafizt höfðu
af veðurfarsástæðum, kláruðust i
fyrradag hjá Flugfélaginu, nema
til Vestfjarða, en farþegar til ísa-
fjarðar, Patreksf jarðar og
Þingeyrar hafa ekki komizt
vestur um nokkurt skeið.
Sveinn hafði engar handbærar
tölur um, hversu margir farþegar
biðu flugs i Reykjavik og úti á
landi, en sagði að þeir skiptu
örugglega hundruðum, og flestir
væru það Vestfirðingar.
Þá sagði Sveinn, að flug frá
Keflavikurflugvelli hefði tafizt
nokkra stund i gærmorgun, vegna
skafrennings og hálku. En siðan
hefði allt gengið meðeðlilegum
hætti þar syðra og hætt hefði ver-
ið við að láta vélarnar frá
Ameriku og Evrópu yfirfljúga,
eins og fyrirfram hafði verið gert
ráð fyrir.
áfSStm. TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
K^KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a Simi Ira skiptibofói 28155
FÖT
meö vesti
hönnuð af Colin Porter
Þórshöfn á Langanesi:
Viðgerð hafin að
nýju á Fonti ÞH
- en leyndarmál hver útvegaði
fé til þess
Viögerð er nú hafin á ný
á Fonti ÞH 225, togara Út-
gerðarfélags Þórshafnar.
Viðgerðá togaranum hefur
legið niðri um mánaðar-
skeið vegna fjárskorts út-
gerðarinnar. Eins og fram
hefur komið í Alþýðublað-
inu hef ur verið þrýst á um
að Síldarverksmiðjur rík-
isins keyptu síldarvinnsl-
una á Þórshöfn, til að f jár-
magna viðgerð og byrjun-
arrekstur togarans, eftir
að viðgerð hefur farið
fram, og sagði Bjarni Að-
algeirsson sveitarstjóri á
Þórshöfn, að sala síldar-
vinnslunnar væri algjört
lífsnauðsynjamál fyrir
sveitarfélagið.
Hins vegar sagði Bjarni i sam-
tali við Alþýðublaðið i gær, að
engin ákvörðun hefði verið tekin
um kaupin á siðasta stjórnarfundi
SR, eins og ætlað hafði verið. Hins
vegar væri búið að leysa vanda
þeirra Þórshafnarbúa um skeið,
með þvi að útvega fé til að ljúka
viðgerð á togaranum. Aftur á
móti var Bjarni ófáanlegur til að
upplýsa hvaðan þeir peningar
hefðu komið.
Þegar Bjarni var að þvi spurð-
ur, hvenær ákvörðun um kaup
Sildarverksmiðjanna á sildar-
vinnslunni i Þórshöfn yrði tekin,
hvaðst hann ekkert um það vita.
Ekki væri einu sinni vist að slik
kaúp yrðu tekin þar fyrir aftur. —
Það er vissulega ákveðnum
þrýstingi beitt á SR i þessu máli,
sagði hann, — en stjórnin hefur
ákvörðunarvald i málinu. Að visu
væri hægt að bera fram frumvarp
á þingi um slik kaup, en ekki vissi
hann um að slikt stæði til.
Bjarni sagði að hljóðið væri
nokkuð betra i Þórshafnarbúum
nú, þegar búið væri að útvega fé
til að ljúka viðgerð á Fonti. Hálfs-
mánaðarvinna væri eftir við þá
viðgerð, og yrðu Þórshafnarbúar
að vona að hægt yrði að gera skip-
ið út á veiðar, eftir að henni lyki.
— hm
Áætlunin
Úter komin bókin „Áætl-
unin" eftir sovétzka skák-
manninn Romanovskij.
Bók þessi hef ur lengi verið
kölluð Biblía sovézka skák-
mannsins.
Á bókakápu segir meðal
annars:
Hið fræðilega ferli
tefldrar skákar er fram-
kallað af framtakssemi og
djúpsæi skákbaráttunnar,
dirfsku og rólyndi, vogun
og staðfestu, hugmynda-
auðgi og nákvæmum út-
reikningum og umbreytist
þannig á skapandi hátt í
listaverk.
Útgefandi bókarinnar, Timarit-
ið Skák, hefur ákveðið, að gefa
skilvisum áskrifendum timarits-
ins þessa bók i jólagjöf. Þetta er
þriðja árið, sem timaritið hefur
gefið áskrifendum sínum bók um
áramótin, árið ’75 var það bók
Tals: Hvernig ég varð heims-
meistari og i fyrra var það Skáld-
skapur á skákborðinu eftir Guð-
mund Arnlaugsson. Bækur þessar
eru allar áritaðar og tölusettar.
BRÚIN
l.«m Þ<-i«(i«Ugvr 3C. l, tbl.
Akuinraingar ag Borgnesingar ....
Eignast
nýjan
skuttogara
Nytt aðalskipuing fyrir Borgarnes
Áætlað að Bomnesinírar
Forslfta hins nýja blafts Framsóknarfélags Borgarness.
Nýtt blað í
Borgarnesi
Himnesk brú
I ga=. segir Tíminn frá
að nú sé hafin útgáfa á
nýju blaði í Borgarnesi.
Naf nið gæti bent til að hér
væri á ferð rit trúarlegs
eðlis, þ.e. brú á „veginum
til lífsins," eða yfir
„móðuna miklu." Nánari
athugun leiðir hins vegar
i Ijós að hér er átt við svo
jarðneska framkvæmd,
sem „Péturskirkju"
Halldórs E. eða Borgar-
f jarðarbrúna.Mörgum
mun þó þykja ekki alveg
illa til fallið að færa
mannvirkið á þennan hátt
í nýjan og æðri skilning,
því hver veit hvert leið-
sögn Halldórs kann að
leiða vegamál landsins
um siðir, — kannske beint
i himininn inn?"