Alþýðublaðið - 21.12.1977, Blaðsíða 12
alþýðu-
blaðið
Ctgcfandi Alþýðuflokkurinn MIÐVIKUDAGU.R
Ritstjórn Alþýðublaðsins er að Slðumúla XX, slmi 81866. Auglýsingadeild blaðsins er að
XXverfisgötu XO, sími 14906 — Askriftarsimi 14900. 21. DESEMBER 1977
Orugg og nýtískuleg
kven- og
karlmannsúr
á mjög hagstæðu
verði.
Kynnið yður
GENEVE
Atkvæðagreiðsia um
fjárlagafrumvarpið í dag
Benzfnskattur og nýtt skyldusparnaðarákvæði um hámarkstekjur
Þriðju umræðu um
f járlögin mun Ijúka i dag,
en um breytingartillögur
og frumvarpið sjálft
verða greidd atkvæði í
fyrramálið. Þá verður
fundum þingsins frestað
fram yfir hátíðar.
Þær breytingartillögur,
sem mest kveður að eru
sem kunnugt er fram-
lenging á 18% vörugjaldi,
sem á að vega 7 milljarða
á móti þeim 14 milljörð-
um, sem nú er vitað að
fjárlögin fara fram úr
sjálfum sér. i blaðinu í
gær var sagt frá gagnrýni
Gylfa Þ. Gislasonar á
breytingu á almanna-
tryggingarlögunum, sem
gerir ráð fyrir að sjúkra-
tryggingargjald hækki úr
1 i 2% en sú hækkun á að
færa ríkissjóði 1900 mill-
jónir króna.
Þá hefur rikisstjórnin aflað
sér lánsf járheimildar, sem
nemur tuttugu milljörðum og er
þar innifalin ný sparnaðar-
skylda af hámarkstekjum.
Þá hefur verið samþykkt að
leggja 7 króna og fimmtiu aura
gjald á benzin, vegna útgjalda-
aukningar til vegamála.
Aörar breytingatillögur
Á þingskjali nr. 274 má lita
breytingartillögur ýmislegs
efnis, sem athygli vekja. Þar á
meðal er sú, að til Grensás-
deildar Borgarspitala verður
veitt 20 milljónum og framlag til
lifeyrissjóðs starfsmanna
stjórnmálaflokka hækkar i 2.5
milljónir, en var ráðgert 1.5
milljón. Þá má nefna að endur-
greitt verði aðflutningsgjald og
söluskattur af efni til disil-
stöðvar, aðveitustöðvar og
orkuflutningsveitu fyrir Vest-
mannaeyjakaupstað.
Samið verði um bætur
vegna tjóns af völdum
fisksjúkdóma
Meðal nýrra liða i þingskjal-
inu má finna tillögu um að festa
kaup á veggmyndum i vinnu-
stofu Jóhannesar S. Kjarvals,
listmálara að Austurstræti 12 og
að nauðsynleg lán verði tekin i
þvi skyni.
Samið verði um og bætt tjón
vegna fisksjúkdóma og lán út-
veguð i þvi skyni, en það atriði
hefur verið aðkallandi, sem
kunnugt er, vegna nýliðinna at-
burða að Laxalóni.
Þá kemur fram að ætlunin er
að selja sendiherra bústaðinn i
New York og verja söluandvirð-
inu til kaupa á nýjum bústað og
taka i þvi skyni lán til tiu ára að
upphæð 210.000 bandarikjadala.
Mun mörgum þykja þessi upp-
hæð i riflegra lagi.
Flóabátar og vöru-
flutningar
Flóabátarnir eru mun dýrari i
rekstri en flesta mundi óra fyrir
og i sundurliðun, sem sam-
Framhald á bls. 10
Styrkið þá sem
minnst mega sín
eflið fjársöfnun Mæðrastyrksnefndar
Svo sem sagt var frá í
Alþýðublaðinu i gær,
stendur jólasöfnun Mæðra-
styrksnef ndar nú sem
hæst. Hátt á þriðja hundr-
að umsóknir hafa þegar
borizt. I þessum hópi eru
bæði einstæðar eldri konur
sem eiga við örðugleika að
etja, bæði fjárhagslega
örðugleika og sjúkdóma
ýmiss konar. Einnig eru
fjölmargar einstæðar
mæður með mörg börn á
framfæri.
Á blaðamannaf undi,
sem Mæðrastyrksnefnd
hélt í gær kom fram, að
velmeguniná Islandi hefur
greinilega gleymt mörg-
um. Rekinn hefur verið
töluverður áróður fyrir því
að enginn fátækt sé til á
Islandi. Sá áróður er ekki
aliskostar réttur. Starfs-
fólkið hjá Mæðrastyrks-
nef nd hefur komizt að því í
gegnum starf sitt.
Þó svo fjárráð Mæðrastyrks-
nefndar séu ekki mikil, getur
nefndin leyst eitthvað úr vand-
ræðum allra, sem til hennar
leita^ Þessi aðstoð nefndarinnar
er þó engin lausn á vandamálun-
um, heldur aðallega hugsuð
þannig, að þiggjendur geti gert
sér smá dagamun um jólin.
Fjárráð Mæðrastyrksnefndar
fer eftir þvi, hvað þú, lesandi góð-
ur, leggur af mörkum. Fjáröflun
nefndarinnar byggist svo til ein-
gönguá framlögum fyrirtækja og
einstaklinga. Séu undirtektir al-
mennings góðar, verður meira til
skiptanna.
Þú, sem ert aflögufær, getur
lagt þitt af mörkum til að gera
einhverjum jólin gleðilegri.
Mundu, að þú ert ekki einn i
heiminum. 1 næsta nágrenni viö
þig er e.t.v. fjölskylda, sem allt
að þvi sveltur um jólin, um leið og
þú eyst á diskinn i þriðja sinn og
losar um beltið.
Með þvi að styrkja Mæðra-
styrksnefndina getur þú e.t.v.
- fært gleði inn á eitthvert heimili
yfir jólin.
Söfnun nefndarinnar hefur far-
ið fram meðal fyrirtækja og
stofnana og hafa söfnunarlistar
verið sendir út. Einnig getur fólk
komið með framlög á skrifstofu
Mæðrastyrksnefndar að Njáls-
götu 3. Einnig er fatnaður vel
þeginn, sérstaklega barnafatnað-
ur. Allir þeir, sem geta séð af góð-
um og hreinum barnafatnaði
(sérstaklega skjól- og hlifðarfatn-
aði), og þeir eru margir, gerið vel
i að koma honum á skrifstofu
nefndarinnar, sem mun ráöstafa
honum til þurfandi barna i borg-
inni.
Stöðvið jólainnkaupin i smá-
stund og hugleiðið málið. Það eru
margir ómettir munnar á Islandi.
Það eru margir, sem þurfa meira
á þeim peningum að halda, sem
þú ert um það bil að eyða i gjafir
og mat. Láttu eitthvað af hendi
rakna við þá sem minnst eiga og
leiddu smá gleði og hamingju inn
á eitthvert heimilið þessi jól.
A 1 A
Aldls Benediktsdóttir, formaður nefndarinnar, Jóhanna Stefáns-
dóttir, varaformaður, og Guðlaug Runóifsdóttir, gjaldkeri.
(Mynd: —HV)
Verður
vitnið
sótt
til
— fyrir að
breyta
eiðsvörnum
framburði?
Svo sem fram kom í
gær, hafnaði sakadómur
Reykjavíkur síðari
framburði vitnisins Sig-
urðar óttars Hreins-
sonar, sem á sinum tíma
viðurkenndi að hafa ek-
ið sendiferðabifreið í
Dráttarbrautina í
Keflavík kvöldið sem
Geirfinni Einarssyni
var ráðinn bani. Sem
kunnugt er dró Sigurður
þennan fyrri framburö
sinn til baka ekki alls
fyrir löngu og taldi hann
tilkominn með þvingun-
um og hótunum um
gæzluvarðhald af hálfu
lögreglumanna.
t kjölfar niðurstöðu saka-
dóms hafði blaðið samband
við vararikissaksóknara
Braga Steinarsson og innti
hann eftir þvi hvort höfðað
yrði mál á hendur Sigurði
Citari vegna hins breytta
framburðar.
Sagði Bragi að á þessu stigi
væri ekki hægt að fullyrða
neitt um það, en bætti þvi við
að mál Sigurðar væri til af-
greiðslu hjá embætti rikissak-
sóknara. Sagði hann jafn-
framt að sú afstaða sem saka-
dómur hefði tekið, að hafna al-
farið siðari framburði Sigurð-
ar, gæfi óneitanlega visbend-
ingu um hvert stefndi.
—GEK
JAFNTEFLI
I gærkvöldi fór fram i
Laugardalshöllinni lands-
leikur íslendinga og Ung-
verja. Leikurinn var geysi-
spennandi og lyktaði hon-
um með jafntefli 24 mörk
gegn 24.
Þegar aðeins tvær sekúndur
voru til leiksloka höfðu Ungverjar
eins marks forystu, en Bjarni
Guðmundsson, Val, jafnaði á sið-
ustu sekúndu.
t leikhléi var einnig jafntefli 12
mörk gegn 12. Landsleikurinn
þótti vel leikinn af beggja hálfu og
dómararnir sem voru vestur-
þýzkir þóttu standa sig vel.
— GEK