Alþýðublaðið - 27.01.1978, Side 2
2
Föstudagur 27. janúar 1978. s&r
Kópavogur:
Frambjóðendur í prófkjöri Alþýðuflokks-
ins vegna bæjarstjórnarkosningaœS—:
Hér fer á eftir kynn-
ing á frambjóðendum
Alþýðuflokksins til
bæjarstjórnarkosninga
i Kópavogi.
Prófkjörið fer fram
dagana 28. og 29. janú-
ar 1978 . Kosið verður í
Hamraborg 1., annarri
hæð.
Þeir sem taka þátt i
prófkjörinu eru: Einar
L. Siguroddsson, Guð-
mundur Oddsson.Pálmi
Steingrimsson, Rann-
veig Guðmundsdóttir.
og Steingrimur Stein-
grimsson.
Einar L. Siguroddsson er fædd-
ur 2. nóvember 1944, sonurhjón-
anna Fanneyjar Einarsdóttur
Long og Sigurodds Magnússon-
ar rafverktaka. Hann lauk prófi
frá Kennaraskóla tslands 1965.
Hann hefur frá þeim tima kennt
við Digranesskólann, utan
þriggja ára er hann gengdi
stöðu skólastjóra við Barna- og
unglingaskóla Vopnafjarðar.
Frá 1974 hefur hann verið yfir-
kennari við Digranesskólann.
Allt frá 15 ára aldri hefur
hann á sumrin unnið i bygg-
ingarvinnu, aðallega sem
járnamaður, m.a. við virkj-
unarframkvæmdir við Sigöldu.
Einar hefur allt frá námsár-
unum tekið virkan þátt i félags-
störfum. M.a. þrivegis verið i
forsvari kennarasamtakanna í
Kópavogi og formaður Kenn-
arasambands Austurlands
1972-1973. Hann situr nú i launa-
málanefnd Félags skólastjóra
og yfirkennara.
Hann hefur ávallt fylgt Al-
þýðuflokknum að málum og set-
ið flokksþing. Undanfarin 3 ár
hefur hann verið ritari i stjórn
Alþýöuflokksfélagsins i Kópa-
vogi.
Einar Long er kvæntur Sól-
veigu Helgu Jónasdóttur teikni-
kennara og eiga þau tvær dætur.
Guðmundur Oddsson er fæddur
22. april 1943 i Neskaupstað og
ólst þar tpp og heimúisfastur
þar til ársins 1960. Hann er son-
ur hjónanna Odds A. Sigurjóns-
sonar fyrrverandi skólastjóra,
og Magneu Bergvinsdóttur.
Hann stundaði nám fyrst i Nes-
kaupstað og tók þar landspróf,
en lauk siðan stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri.
Arið 1967 lauk Guðmundur BA
prófi frá Háskóla Islands. Arið
1960 f lutti f jölskyldan i Kópavog
þar sem Oddur gerist skóla-
stjóri Gagnfræðaskólans i
Kópavogi, sem siðar var nefnd-
ur Vighólaskóli. Allan námstim-
ann i Háskólanum stundaði
Guðmundur kennslustörf i
Kópavogi og hefur gert það sið-
an. Haustið 1974 var hann settur
yfirkennari við Vighólaskóla.
Allt frá 15 áraaldrihefur Guð-
mundur stundað sjóinn á sumr-
in, fyrstá sildveiðum, siðan tog-
veiðum,netum og siðast á hand-
færum. Hann hefur tekið virkan
þátt i ýmiskonar félagsstarf-
semi, sat i stjórn FUJ i Kópa-
vogi nokkur ár, formaður blak-
deildar Breiðabliks frá stoftiun,
sat i stjórn Blaksambands ís-
lands i tvö ár og er nú i vara-
stjórn sambandsins, ofl. ofl.
Guðmundur er kvæntur Sól-
eyju Stefánsdóttur og eiga þau
þrjár dætur.
Pálmi Steingrimssoner fædd-
ur á Blönduósi 22. júni 1934 son-
Blönduóshrepps.
Pálmi er giftur Brynhildi Sig-
tryggsdóttur og eiga þau 4 börn.
Heimili þeirra er að Hávegi 15 i
Kópavogi.
Pálmi hóf störf hjá Vegagerð
rikisins að loknu unglingaprófi
og starfaði þar á vinnuvélum og
kenndi einnig á þær. Til Kópa-
vogs fluttist hann 1959 og hefur
starfað þar siðan við ýmsar
framkvæmdir og verk-smiðju-
störf. Pálmi hefur skrifað
margar greinar i blöð um
bæjarmál.
Rannveig Guðmundsdóttir er
fædd á Isafirði 15. september
1940, dóttir hjónanna, Sigurjónu
Jónasdóttur og Guðmundar Kr.
Guðmundssonar, skipstjóra.
HUn ólst upp á ísafirði og lauk
landsprófi frá Gagnfræðaskóla
Isafjarðar áriö 1956. Siðan
starfaði Rannveig hjá Lands-
Eramhald á bls. 10
Einar L. Siguroddsson
Guðmundur Oddsson
Pálmi Steingrfmsson
Rannveig Guðmundsddttir Steingrimur Steingrimsson
Hafnarfjörður:
Guðni Kristjánsson
Jón Bergsson
Lárus Guðjónsson
Prófkjör Alþýðuf lokksins i
Hafnarfirði til bæjarstjórnar-
kosninga.
Prófkjör um skipan 4 efstu
sæta á lista Alþýöuflokksins til
bæjarst jórnarkosninga i
Hafnarfirði á komandi sumri,
fer fram laugardaginn 28.
janúar og sunnudaginn 29.
janúar næst komandi. A laugar-
dag verður kjörfundur frá
klukkan 14 til 20 og á sunnudag
frá klukkan 14 til 22.
Frambjóðendur, er gefa kost
á sér i neðangreind sæti, eru
þessir:
Grétar Þorleifsson, Arnar-
hrauni 13 i 2.-3. og 4.
Guðni Kristjánsson, Lauf-
vangi 2 i 1.-2. og 3.
Guðriður Eliasdóttir,
Miðvangi 33 i 2.-3. og 4.
Hörður Zóphaniasson, Tjarn-
arbraut 13 i 1. og 2.
Jón Bergsson, Kelduhvammi
27 i 1.-2. og 3.
Lárus Guðjónsson, Breið-
vangi 11, i 2. og 3.
Kjörstaður verður i Alþýðu-
húsinu i Hafnarfirði.
Atkvæðisrétt hafa allir ibúar
Hafnarfjarðar, 18 ára og eldri,
sem ekki eru flokksbundnir i
öðrum stjórnmálaflokkum.
Grétar Þorleifsson er fæddur
12. sept 1944 'i Hafnarfirði.
Hann lauk gagnfræöaprófi frá
Flensboragrskóla 1960, og tók
sveinspróf i húsgagnasmiði árið
1966. HUsasmiðanámi lauk
Grétar svo tveim árum siðar.
Grétar hefur starfað sem
skrifstofustjóri Félags bygg-
ingariðnaðarmanna i Hafnar-
firði siðan 1969 og jafnframt
verið formaður þess félags frá
sama tima. Hann hefur starfað
mikið að málum verkalýðs-
hreyfingarinnar bæöi að
samningamálum og innan
hreyfingarinnar.
Grétar hefur starfað i Alþýðu-
flokknum frá unglingsárum og
hefur átt sæti i stjórn flokks-
félagsins i Hafnarfirði undan-
gengin fjögur ár. Hann hefur
verið varamaður i bæjarstjórn
siðasta kjörtimabil og setið
nokkra bæjarstjórnarfundi sem
slikur.
Grétar er kvæntur Grétu Arn-
grfmsdóttur og eiga þau hjón
fjögur börn, tvo drengi og tvær
stúlkur.
Guöni Kristjánsson er fæddur
27. ágúst 1937. Hann er sonur
hjónanna Kristjáns ö.
Guðmundssonar verkamanns
og Laufeyjar Sigfinnsdóttur.
Guðni er fæddur og uppalinn i
Hafnarfirði og lauk gagnfræða-
prófi frá Flensborgarskóla 1954.
Réöist til Bæjarsjóðs Hafnar-
fjarðar, Ahaldahúss 1960 og
hefur starfað þar siðan. Kosinn i
stjórn V.M.F. Hlifar 1971 sem
meðst jórnandi, gjaldkeri
1972—1975. Varaformaður frá
1976. A sasti i fulltrúaráði verka-
lýðsfélaganna i Hafnarfirði, sit-
ur i stjórn Lifeyrissjóðs Hlifar
og Framtiðarinnar og i stjórn
Sjúkrasjóðs Hlifar. Fulltrúi á
þremur seinustu ASÍ-þingum. A
sæti i stjórn Alþýðuflokksfélags
Hafnarfjarðar.
Kona Guðna er Rannveig
Kjærnested, og eiga þau tvo
syni.
Guöriður Eliasdöttirer fædd á
Akranesi 23.4.1922 og ólst þar
upp. Foreldrar: Elias Nielsson,
verkamaður og Klara Sigurðar-
dóttir. Guðriður fluttist til
Hafnarfjarðar árið 1945 og hefur
búið hér siðan.
Guðriður hefur tekið mikinn
þátt i starfsemi verkalýðs-
hreyfingarinnar. Hún var kosin
i stjórn Verkakvennafélagsins
Framtiðarinnar árið 1948 og
hefur setið i stjórninni siðan og
verið formaður félagsins frá
1967. Guðriður hefur setið mörg
þing Alþýðusambands tslands.
Hún var varamaður i miðstjórn
Alþýðusambandsins iátta ár, en
Framhald á bls. 10
Grétar Þorleifsson
Frambjódendur í prófkjöri Alþýóuflokks
ins vegna bæjarstjórnarkosninga