Alþýðublaðið - 27.01.1978, Page 3
SjBmT' Föstudagur 27. janúar 1978.
3
Að austan, norðan og vestan
Hafnarfram-
kvæmdir
á Bfldudal
Er haft var samband
vestur á firði við Jakob
Kristinsson, Fisk-
vinnslunni Bildudal hf.
á Bildudal sagði hann
flesta þar i þorpinu
hafa atvinnu. íbúar
þorpsins eru nú nálægt
350 manns og er at-
vinna þeirra flestra
tengd sjávarútvegi á
einhvem hátt. Unnið
hefur verið að stækkun
hafnarinnar frá þvi i
haust og er verkið langt
komið. Þegar því er
lokið verðiu' höfnin góð.
Framhald á bls. 10
Blönduósbúar
fjölbýlishús
Einar Þorláksson
s veitarstj óri á
Blönduósi hvað þá
Blönduósbúa einnig
standa i framkvæmd-
um, en að sjálfsögðu
eru það ekki hafnar-
framkvæmdir, útgerð
hefur jafnan verið lítil
frá þeim stað. A
Blönduósi hefur nú ver-
ið byggt fjögurra hæða
fjölbýlishús og er það
fyrsta sinnar tegundar.
Húsið er byggt á veg-
um hreppsins. Ekki
sagði Einar þó þá
vænta neinnar gífur-
legrar fjölgunar i þorp-
inu en ibúafjöldinn er
nú rúmlega 800 manns.
íbúafjöldinn hefði verið
fremur jafn á siðustu
árum.
Flestir vinnandi manna á
Blönduósi starfa annaðhvort á
vegum Kaupfélags Hún-
vetninga eöa Trésmiðjunnar
Fróða hf. Einar sagði nær ekk-
ertatvinnuleysif þorpinu og að-
eins tvær konur á atvinnuleysis-
skrá.
Fremur risjótt tið hefur verið
á Blönduósi eins og viða annars-
staðar á landinu.
Nýlega var tekin i notkun
hitaveita á; staðnum og hefur
framkvæmdum viö hana verið
aðljúka. Blönduósbúar ættu þvi
ekki að þurfa að kviða risjóttri
tið jafnvel þótt oliuskortur yrði.
Sjósókn liggur niöri á Borgarfirdi
Þá er haft var samband
við Magnús Þorsteinsson
oddvita á Borgarfirði
eystra, sagði hann sjó-
sókn liggja niðri nú yfir
veturinn og því töluvert
atvinnuleysi. íbúar í
Borgarfjarðarhreppi eru
nú um 240 en um heim-
ingur þeirra hefur at-
vinnu af sjávarútvegi,
hinn hlutinn starfar að
landbúnaði.
Gerðir eru út frá Borgarfirði,
þá er vertið stendur yfir, 4 tiu
tonna bátar og um 20 smábátar
3-4 tonn. Vertið þeirra Borgfirð-
inga stendur frá april og fram i
októver, nóvember, mest er
veitt af grásleppu. Hafnarfram-
kvæmdir hafa verið talsverðar
á staðnum undanfarin ár og er
nú verið að byggja þar garð
ætlaðan hafskipum. Borg-
firðingar fengu um 42 milljónir
króna til hafnarframkvæmd-
anna á sl. ári en stór hluti þess
fjármagns fór til greiðslna
skulda er safnast höfðu við
fyrri framkvæmdir.
Nýlega var lokið lagningu hol-
ræsa i þorpinu en það hefur
dregizt nokkuð á langinn vegna
þess hve dreifð byggðin er.
Fjögur ný einbýlishús eru nú i
byggingu og bendir þaö til nokk-
urs uppgangs. En á árunum
1956-1970 var t.d. ekkert hús
byggt á Borgarfirði, enda hafa
Borgfirðingar ekki farið i var-
hluta af fólksflóttanum, en á
siðariárum hefuribúum fækkað
úr 350 og niður i 240.
Samgöngur hafa löngum
veriðhöfuðverkur Borgfirðinga,
vegir stundum lokaðir um tima
á vetrum og veður oft hamlað
skipum að leggjast að bryggju.
En nú er flogið sex sinnum i
viku milli Borgarfjarðar og
Egilsstaða þannig að sam-
göngur eru nú i all góðu horfi.
Veður hefur verið gott nú i
vetur nema hvað að i nóvember
brá svo við að hafnarmannvirki
skemmdust i óveðri. Við
skemmdirnar mun verða gert
þá er vorar með framlögum úr
hafnarbótasjóði. Borgfirðingar
munu þá með hækkandi sól
vakna úr vetrardvala og hefja
að nýju sjósókn af fullum krafti.
Þingsályktunartillaga Benedikts Gröndal
Sjómenn haf i aðgang
ad kvikmyndum
— og upptökum með sjónvarpsefni til útlána
Maris Liepa i hlutverki Crassusar i myndinni um Spartacus.
.r?
„Spartacus’
í Austurbæjarbíói á morgun
Benedikt Gröndal
(AF) hefur lagt fram til-
lögu til þingsályktunar
um velfarnað sjómanna
á siglingu og i erlendum
höfnum. Tillagan
hljóðar þannig:
»Alþingi ályktar að fela rikis-
stjórninni að skipa þriggja
manna nefnd til að gera tillögur
um ráðstafanir til að auka vel-
farnað islenzkra sjómanna á
siglingu i erlendum höfnum.
Nefnin skal sérstaklega athuga
eftirtalin atriði:
1) Hvernig tryggja megi, að i
islenzkum skipum verði ekki
aðeins sjónvarp, heldur og
myndsegulbandstæki.
2) Hvernig unnt verði að láta
festa á segulbönd islenzkt efni,
þar á meðal sjónvarpsdag-
skrár, og lánaböndin tilskipa.
3) Hvort Island getur með þvi að
gerast aðili að norrænum eða
alþjóðlegum samtökum tryggt
sjómönnum þjónustu, þ.á.m.
lán á kvikmyndum og segul-
böndum, i erlendum höfnum.
Nefndin skal skipuð þannig, að
Sjómannasamband Islands til-
nefni einn mann, Farmanna- og
fiskimannasamband Islands
annan, en hinn þriðji sé skipaður
af ráðherra án tilnefningar.”
Nánri grein verður gerð fyrir
tillögunni þegar hún kemur til
umræðu á þingi, en samkvæmt
þvi sem segir i greinargerð er til-
lagan lögð fram til að reyna að
stuðla að þvi aö sjómenn geti
Frh. á 10. siðu
Fyrirspurn
um holl-
ustuhætti
Benedikt Gröndal
(AF) hefur lagt fram á
þingi fyrirspurn til heil-
brigðisráðherra um
hollustuhætti i sildar- og
fiskimjölsverksmiðjum.
Fyrirspurnin er á þessa
leið:
,,1) Hafa verið gerðar fullnægj-
andi rannsóknir á hollustu-
háttum i sildar- og fiskimjöls-
verksmiðjum, svo sem
hættum starfeliðs af hávaða,
rykmyndun og varhuga-
verðum efnasamböndum,
almennum óþrifnaði og ólykt?
2) Hefur heilbrigðisráðuneytið
sett reglur um mengunar-
mörk og önnur skilyrði, sem
þessar verksmiðjur verði að
uppfylla til að fá starfsleyfi?
3) Hafa allar þær verksmiöjur,
sem starfað hafa siðustu ár og
nú starfa, m.a. aö loðnu-
bræðslu, uppfyllt þau skilyrði
og fengið starfsleyfi með eðli-
legum hætti?”
Á morgun, laugar-
daginn 28. janúar gang-
ast samtökin MÍR fyrir
sýningu á kvikmyndinni
Spartacus i Austur-
bæjarbíói kl. 15.00.
Spartacus er litkvikmynd, gerð
árið 1975 eftir samnefndum
ballett Arams Khatsattúrjans.
Með eitt helzta hlutverkið i mynd-
inni fer dansarinn Maris Liepa,
sem starfaði hér i Þjóðleikhúsinu
á siðasta ári.
Aðgangur að sýningunni er
ókeypis og öllum heimill.
Skiphóll, Strandgötu 1, simi 52502.
Skútan, Hafnarfirði, simi 51810.