Alþýðublaðið - 27.01.1978, Side 9

Alþýðublaðið - 27.01.1978, Side 9
{SSm Föstudagur 27. janúar 1978. 9 FMcksstarf44 Auglýsing um prófkjör á Akranesi. Ákveðiðhefurveriðaðefna til prófkjörs um skipan f jögurra efstu sætanna á lista Alþýðu- flokksins á Akranesi við bæjarstjórnar- kosningarnar í vor. Prófkjörsdagar verða auglýstir síðar. Framboðsfrestur er til 12. febrúar n.k. iFrambjóðandi getur boðið sig fram i eitt eða ‘f leiri þessara sæta. Hann þarf að vera 20 ára eða eldri, eiga lögheimili á Akranesi, hafa a.m.k. 15 meðmælendur, 18 ára eða eldri, sem eru f lokksbundnir í Alþýðuf lokksfélögunum á Akranesi. Framboðum skal skilað til Jóhannesar Jónssonar, Garðabraut 8, Akranesi, fyrir kl. 24.00 sunnudaginn 12. febrúar 1978. Allar nánari upplýsingar um pro'fkjörið gefa Jóhannes Jónsson í s. 1285, Rannveig Edda Hálfdánardóttir s. 1306 og Önundur Jónsson í s. 2268. Stjórn Fulltrúaráðs Alþýöuf lokksfélaganna á Akranesi Keflavík Prófkjör um skipan 6 efstu sæta á iista Alþýðuflokksins til bæjarstjórnarkosninga í Keflavík á sumri komanda fer fram laugar- daginn 28. jan. og sunnudaginn 29. jan. næst- komandi. Kjörf undur verður f rá klukkan 14.00 til 20.00 báða dagana. Kjörstaður verður að Hafnargötu 57 (Skrif- stofu Hráðfrystihúss Ölafs Lárussonar, suðurdyr). Atkvæðisrétt hafa allir Keflvíkingar 18 ára og eldri, sem ekki eru f lokksbundnir í öðrum stjórnmálaf lokkum. Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla vegna próf- kjörs til bæjarstjórnarkosninga í Keflavík hefst mánudaginn 23. þessa mánaðar hjá for- manni kjörstjórnar, Guðleifi Sigurjónssyni, Þverholti 9, Keflavík. Niðurstaða prófkjörsins um 6 efstu sæti er bindandi. Keflavik 20. janúar 1978 Kjörstjórnin FUJ i Hafnarfirði Opið hús kl. 20 á þriðjudagskvöldum í Alþýðu- húsinu í Hafnarfirði. Ungt áhugafólk hvatt til að mæta. Isafjörður Prófkjör á vegum Alþýðuflokksfélags Isa- fjarðar vegna bæjarstjórnarkosninga í ísa- f jarðarkaupstað 1978. 1) Prófkjör fyrir væntanlegar bæjarstjórnar- kosningar fer fram sunnudaginn 26. febrúar n.k. 2) Framboðsfrestur rennur út þriðjudaginn 14. febrúar. 3) Kosið verður um 1. 2. og 3. sæti framboðs- listans. 4) Kjörgengi til framboðs i prófkjörið hefur hver sá sem fullnægir kjörgengisákvæðum laga um kosningar til sveitarstjórnar og hefur auk þess meðmæli minnst 10 flokks- félaga. 5) Framboðum ber að skila til formanns félagsins eða annarra stjórnarmanna. 6) Niðurstöður próf kjörs eru bindandi hljóti sá frambjóðandi sem kjörinn er minnst 20 af hundraði af kjörfylgi Alþýðuflokksins við síðustu sambærilegar kosningar eða hafi aðeins eitt framboð borist. 7) Öllum, sem orðnir eru 18 ára á kjördegi, eiga lögheimili í sveitarfélaginu og ekki eru f lokksbundnir í öðrum stjórnmálaf lokkum er heimil þátttaka i prófkjörinu. 8) Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla fer fram dagana 19. — 25. febr. að báðum dögum meðtöldum. Þeir, sem taka vilja þátt í utankjörstaðaratkvæðagreiðslu hafi sam- band við Karitas Pálsdóttur, Hjallavegi 5. i stjórn Alþýðuflokksfélags isafjarðar Gestur Halldórsson formaður Jens Hjörleifsson Sigurður J. Jóhannsson Karitas Pálsdóttir Snorri Hermannsson Utvarp 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Ve&urfregnir og frettir. Tilkynningar. Viö vinnuna: 14.30 Mibdegissagan: „Maður uppi á þaki” eftir Maj Sjö- wall og Per Wahlöö.Ólafur Jónsson byrjar lestur þýðingar sinnar. 15.00 Mi&degistónleikar. Bernard Goldberg, Theo Salzman og Harry Franklin leika Trió i F-dúr fyrir flautu, selló og pianó eftir Jan Ladislav Dusik. Heinz Holliger og félagar úr hljómsveit Rikisóperunnar i Dresden leika Konsert 1 G-dúr fyrir óbó og strengja- sveit eftir Georg Philipp Telemann, Vittorio Negri stjórnar. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popp. 17.30 Gtvarpssaga barnanna: „Upp á lif og dau&a” eftir Ragnar Þorsteinsson. Björg Arnadóttir les (3). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Söguþáttur Umsjónar- menn: BroddiBroddasonog Gi'sli AgUst Gunnlaugsson. 1 þættinum verður rætt um sögukennslu á grunnskóla- og framhaldsskólastigi. 20.05 Tónleikar Sinfónlu- hljómsveitar Islands i Háskólabióikvöldiö áður, — fyrri hluti. Stjórnandi: Steuart Bedford frá Bretlandi Einieikari: Arve Tellefsen frá Noregi a. „Brottnámið úr kvennabúr- inu”, óperuforleikur eftir Wolfgang Amadeus Mozart. b. Fiðlukonsert i D-dúr op. 61 eftir Ludwig van Beet- hoven. — Jón Múh kynnir 21.05 Gestagluggi Hulda Valtýsdóttir stjórnar þætti um listir og menningarmál. 21.55 Kvöldsagan: „Sagan af Dibs litla” eftir Virginiu M. Alexine Þórir Guðbergsson les þýðingu sina (5). 22.20 Lestur Passiusáima (4) Dalla Þóröardóttir stud. theol. les. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Áfangar Umsjónarmenn: Ásmundur Jónsson og Guöni Rúnar Agnarsson. 23.40 Fréttir. Dagskrárlok. Sjónvarp 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Prúöu leikararnir (L) Gestur i þessum þætti er leikkonan Madeline Kahn. Þýðandi Þrándur Thoroddsen. 21.00 Kastijós (L) Þáttur um innlend málefni. Umsjónar- maður Sigrún Stefánsdóttir. 22.00 Hver fyrir sig og guö gegn öllum. (Jeder fur sich und Gott gegen alle) Þýsk biómynd frá árinu 1974. Höfundur handrits og leik- stjóri Werner Herzog. Aðalhlutverk Bruno S., Walter Ladengast og Brigitte Mira. Ariö 1828 fannst ungur maður á torgi i Nurnberg. Hann gat hvorki talað né gengiö, en hélt á bréfi,þarsem sagöi aö hon- um heföi verið haldið föngn- um i' kjallara alla ævi, án þess að hann hefði haft hug- mynd um heiminn fyrir ut- an. Hann gat sagt eina setn- ingu: „Mig langar að verða riddari eins og faöir minn var — og skrifað nafn sitt, Kaspar Hauser. Höfundur myndarinnar, Werner Herzog, hefur látið svo um- mælt, að Kaspar Hauser sé „eini maðurinn, sem vit- aðer til að „fæðst” hafifull- orðinn. Hann hélt sig vera einan i heiminum og leit á hlekkina sem eölilegan lfk- amshluta”. Þýðandi Vetur- liði Guðnason. 23.45 Dagskrárlok spékoppurinn Hvað mundum við annars gera elskan ef við hefðum ekki sjónvarp- ið. Hér fáið þér 50 krónur tii baka. Ég hef þvi miður enga skiptimynt á mér. Ég hef það á tiifinningunni að sá nýi eigi eftir að valda ein- hverjum vandræðum.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.