Alþýðublaðið - 27.01.1978, Page 12

Alþýðublaðið - 27.01.1978, Page 12
alþýöu- blaðið Útgefandi Alþýöuflokkurinn Ritstjórn Alþýöublaösnins er að Siðumúla 11, simi 81866. Augiýsingadeild blaðsins er að Hverfisgötu 10, simi 14906 — Áskriftarsimi 14900. FÖSTUD AGUR 27.JANÚAR 1978 Fyrsti áfangi nýja útvarpshússins tiibúinn til útbods: FRAMKVÆMDIR HEFJIST SÍÐAR Á ÞESSU ÁRI — 300 milljónir í húsbyggingarsjódi Senn má vænta að menn sjái stórvirk jarð- vinnslutæki taka til starfa á horni Háaleitis- brautar og Bústaða- vegar, þar sem senn verður hafizt handa við byggingu hins nýja út- varpshtíss. Alþýðublaðiðáttii gær tal af Birgi Thorlacius, ráðuney tisstjóra í menntamálaráðuneyti og spurði hve miðaði byggingu nýja hússins, en sem alþjóð er kunn- ugt hefur útvarpið búið við þröng skilyrði i húsi rannsóknastofnana sjávarútvegsins um árabil. Birgir sagði að um þessar mundir væru til 300 milljónir í byggingarsjóði og fyrsti áfangi framkvæmdarinnar tilbúinn til útboðs. Enn fremur lægju fyrir langt komnar teikningar og drög að framhaldsframkvæmdum. Hann sagði að ráöherra legöi áherzlu á að framkvæmdir yröu hafnar nú á þessu ári og aö um þessar mundir væru þeir Andrés Björnsson, útvarpsstjóri, Þór- arinn Þórarinsson, formaður út- varpsráðs og HörðurBjarnason, húsameistari rikisins á ferð i þvi landi. I þessu nýja húsi i austur- hluta nýja miðbæjarins verður fyrst og fremst aðstaða hljóð- varpsins, en fyrir þörfum sjón- varps er ekki enn séð til fram- búðar, þótt nokkra aðstööu megi ætla að það muni hafa i nýbygg- ingunni. AM smurostarnir í borðöskjunum veizlukostur til daglegrar ney zlu Næringarefni í lOOg af smurosti Kolvetni (þar af Kalsíum 500 mg) Hitaeiningar 230 Stúlkan á myndinni er að framleiða tónverk á hluta af „hljóöfæri” nokkru allmiklu, sem nemendur I Nýlistadeild Myndlistar og handfða- skólans hafa komiö fyrir i Gallerí Súm. Hljóðfæriö samanstendur af ýmsum málmhlutum og glerhlutum, svo sem flöskum, málmplötum, grindum, ristum, trésögum og fleiru, sem hengt er i loft eða á veggi. Mun það teljast ásláttarhljóðfæri, ef að likum lætur. Hljóðfærið er þó aðeins hluti sýningar, eða hverju nafni sem þaö kann að nefnast, sem nemendur Nýiistadeildar hafa efnt til og bjóöa sérstak-. lega til úrtaki gagnfræðaskóianemenda, þótt auðvitað séu allir vel- komnir. Sýningin er að þvi til sérstæð að gestum gefst kostur á þvf að taka þátt i henni, skapa sýninguna með einhverjum gjörðum i listformum, sem likast til teljast nýstárleg i meira lagi. (AB-mynd ATA) -hv Ráðizt inn í 6 íbúðir í Lundi: íslendingur bar- inn og stunginn islenzkur piltur særðist i Lundi síðast liðið föstu- dagskvöld, þegar tveir menn réðust inn í sex ibúðir í fjölbýlishúsa- hverfi, þar sem náms- menn búa. islendingurinn var barinn í höfuðið og stunginn með hnífi. Tveir liggja i sjúkrahúsi eftir árásina. Það voru Sviar undir áhrifum eiturlyfja, sem réðust inn i sex ibúðir, brutu allt og brömluðu i leit að peningum. Þeir skáru i sundur simaliriur, brutu sjónvprpstæki, húsgögn og fleira. Sviarnir hringdu dyrabjöllum og báðu um að fá að hringja. Þegar þeir voru komnir inn ógnuðu þeir húsráðendum með hnifum, og ef þeir sýndu mót- þróa réðust þeir á þá. Arásarmennirnir hafa nú verið handteknir. Talið er full- vist, að þeir hafi veriö undir áhrifum sterkra eiturlyfjá, þegar þeir frömdu verknaðinn. Þeir sem særðust munu ekki hættulega meiddir. Eftirlaun þingmanna: Skilyrði fyrir eftirlaunum er 65 ára aldur Þingmenn sem |áta af þingmennsku af ýmsum orsökum fara ekki sam- stundis á rífandi eftirlaun, einsog margir halda. Sam- kvæmt lögum frá árinu 1965 getur þingmaður sem er yngri en 65 ára því aðeins komist á eftirlaun að hann sé 75% öryrki. Að öðru leyti eru reglur um eftirlaun á þá lund að menn sem setið hafa á þingi í tvö kjörtímabil eða 6-10 ár fá 35% af launum. Menn sem setið hafa á þingi i þrjú kjör- tímabil eða 10-15 ár fá helming launa, eftir 15-20 ára þingsetu fá þeir 55% launa og eftir 20-25 ára þingsetu 60%. Ef þingmaöur situr i meira en 25 ár, fær hann 1% eftirlauna- hækkun fyrir hvert ár sem er • fram yfir, en þó aldrei yfir 70%. Ennfremur er kveðið á um það i lögunum að makar fái 50% af launum þingmanns. . Varðandi ráðherraeftirlaun eru einnig lög frá 1964 og eru þau i grundvallaratriðum eins og lög um eftirlaun þingmanna. Menn skulu vera a.m.k. 65 ára til að njóta eftirlauna og reglan um 75% örorku gildir einnig um ráöherra. Eftir 5-8 ár i stárfi fá fyrrum ráö- herrar 40% launa og eftir 8-12 ára starf 60%. Eftir þaö fær viðkom- andi 2% hækkun á ári, en þó ekki hærra hlutfall en 70% af launum. Þingmaður sem jafnframt hefur gegnt ráðherraembætti hlýtur óskert eftirlaun fyrir hvort starfið um sig og er þannig á tvö- földum eftirlaunum.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.