Alþýðublaðið - 15.02.1978, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 15.02.1978, Blaðsíða 12
alþýðu- blaóíó (Jtgefandi Alþýöuflokkurinn MIÐVIKUDAGUR Ritstjorn Alþyöublaösnms er aö Siöumiila 11, simi 81866. Auglýsingadeild blaösins er aö Hverfisgötu 10, simi 14906 — Askriftarslmi 14900. FEBRUAR 1978 Idnaðarráðuneytið: „Kröflunefnd hafdi ekki óeðlileg af- skipti af vélakaupum” — „ásakanir um að nefndin hafi reynt að hafa áhrif á vélakaup, hafa ekki við neitt að styðjast” I gær barst blaðinu eftir- farandi yfirlýsing frá Iðnaðarráðuneytinu Tæknilegir ráðunautar Kröflu- nefndar, þ.e. Rogers Eigineeringi San Francisco og Verkfræöistofa Siguröar Thoroddsen h.f. i Reykjavik, sendu útboðsbréf vegna aflvéla Kröfluvirkjunar til 9 vélaframleiðenda 2. desember 1974. Raðunautarnir sáu um gerð útboðslýsingar og forval á hæfum vélaframleiðendum, sem fengu gögnin. 1 lok janúar 1975 skýrðu ráðu- nautar Kröflunefndar nefndinni frá þvi, að tilboð japönsku fyrir- tækjanna Toshiba og Mitsubishi væru að þeirra mati hagstæðust, og óskuðu þeir eftir heimild til þess að kveðja fulltrúa þessara fyrirtækja til Islands til samn- inga. Fulltrúar beggja þessara fyrir- tækja komu til Islands og áttu viðræður við ráðunauta nefndar- innar. Þann 7. febrúar 1975 var Kröflunefnd afhent skrifleg um- sögn ráðgjafanna þess efnis, að þeir teldu tilboð Mitsubishi vera hagstæðara og mæltu þeir með þvi að gengið yrði til samninga við það fyrirtæki. Kröflunefnd fól þá þrem öðrum ráðgjafafyrirtækjum, þ.e. Ver- kfræðistofu Guðmundar og Krist- jáns s.f., Baldurs Lindal og Jó- hanns Indriðasonar að fara yfir tilboðsgögn Mitsubishi og Tos- hiba og bera þau saman.Komust þeir aðilar einnig aö þeirri niður- stöðu, þ.e. að tilboð Mitsubishi væri hagstæðara. Samþykkti Kröflunefnd siðan einróma að hlýta ráðum hinna tæknilegu ráðunauta og ganga til samninga við fyrirtækið Mitsubishi. Það er þvi ljóst að ásakanir um að Kröflunefnd hafi haft óeðlileg afskipti af vélakaupum eða reynt að hafa áhrif á val framleiöenda hafa ekki við neitt að styðjast. Yf irvinnubann hjá blaðamönnum Þóitiallur hélt velli íhaldið i stjórn Starfs- mannafélags Reykjavikur- borgar hélt velli i stjórnar- kosningum þar á sunnudag og mánudag. I kosningum áttust við frambjóðendur á lista upp- stillingarnefndar með Þórhall Halldórsson, formanns St. Rv. i broddi fylkingar, og hins vegar „stjórnarandstaðan” sem kom fram undir nafninu „Ný hreyfing”. Þórhallur Halldórsson hlaut 796atkvæði i formannssæti, en Gunngeir Pétursson frá Nýrri hreyfingu 600 atkvæði. Guö- mundur Eiriksson hlaut 1185 atkvæði, Eyþór Fannberg 836, Arndis Þórðardóttir 811, Ingi- björg M. Jónsdóttir 783 og Ingibjörg Agnarsdóttir 758. Af framboðslista Nýrrar hreyf- ingar hlaut Helgi Eggertsson 681 atkv., Anna K. Júliussen 605, Jónas Engilbertsson 539 og Þorgerður Hlöðversdóttir 528. Enginn fulltrúi Nýrrar hreyfingar náði kosningu i stjórn St. Rv. —ARH Stjórn Blaðamannafélags Is- lands boðaði i gær yfirvinnubann hjá félagsmönnum B1 og tók yfir- vinnubannið gildi frá og með mið- nætti siðast liðna nótt. Yfirvinnu- bannið gildir þar til boðað verk- fall blaðamanna kemur til fram- í lok loðnuvertíðar i ár er von á dönsku verk- smiðjuskipi hingað til lands, á vegum Rann- sóknarstofnunar fisk- iðnaðarins. Verksmiðju- skipi þessu er ætlað að framleiða skepnufóður kvæmda aðfararnótt næst kom- andi föstudags 17. febrúar. Næsti fundur blaðamanna og blaðaútgefenda hefur verið boð- aður hjá sáttasemjara rikisins klukkan 15 i dag. úr magurri loðnu, sem yfirleitt veiðist i lok ver- tiðarinnar. Rikisstjórn Islands veitti Rann- sóknarstofnun sjávarútvegsins heimild til leigutökunnar um miðjan janúarmánuð. Samningar þar að lútandi voru siöan undir- Frh. á 10. siðu — GEK Fóðurbætis- framleiðsla úr loðnu Útflutningur idnvarnings jökst um 6% á síðasta ári — mesta aukningin í lagmetisiðnaði Útflutningur iðnvarn- ings jókst verulega á síð- asta ári frá því sem var ár- ið áður. Heildarútflutn- ingur iðnvarnings jókst á árinu um 6% frá árinu 1976. Útfiutningur áls og álmelmis jókst um 7%, en útflutningur iðnvarnings annars en áls jókst um 6%. Langmesta aukningin, bæöi i magni og verðmæti, varð á afurð- um lagmetisiðnaðar. (Jtflutning- ur hans tvöfaldaðistiverðmæti úr 599 milljónum i 1206 milljónir. (Jt- fluttar lagmetisvörur voru jafn- framt 76% meiri en árið áður, fóru úr 963 tonnum i 1702 tonn. Langstærsta útflutningsgreinin er eftir sem áður ullariðnaður, en útflutningsverðmæti útfluttra uli- arvara var á siðasta ári 3441 milljón króna, á móti 2050 milljónum árið áöur. (Jtflutningur skinnavara drógst saman og kisilgúrútflutningur einnig af skiljanlegum ástæðum. Hornafjörður: „Loðnan farin að jz. ekki láta Þá er Þorsteinn Gislason, Fiskimjöls- verksmiðjunni hf. ós- landi, Höfn i Homa- firði, var spurður loðnufregna kvað hann loðnuna ekki vera fama að iáta sjá sig enn. Yfirleitt hefði loðnan verið úti fyrir Hornafirði um mánað- armótin janú- ar—febrúar. Þorsteinn áleit aö sá mikli floti fiskiskipa er nú væri á veiö- um á toðnumiðum, fjölmennari en endranær, tefði fyrir loðnu- göngunni suður fyrir land. FráHöfnróanú8bátará linu, hafa þeir veitt um 745 tonn i 125 róðrum, 1 bátur er ð netum og 3 á trolli. Þeir hafa veitt um 455 tonn. Aflahæstu bátar eru Hvanney með 181 tonn og Gissur Hviti með 180. Tiðin hefur verið fremur stirð f vetur og það hamlað nokkuð veiðum. Þórshöfn: Dregur úr atvinnuleysi Vegna fréttar frá Fé- lagsmálaráðuneytinu um atvinnuleysi meðal lands- manna þar sem fram kom að tala atvínnu- lausra reyndist hvað hæst á Þórshöfn á Langanesi hafði blaðam. AB sam- band við skrifstofu sveit- arstjóra á Þórshöfn i gær. Samkvæmt upplýsingum skrif stof unnar mun nokkuð hafa dregið úr at- vinnuleysi á staðnum síð- ustu dagana. Um mánað- armótin voru 50 skráðir atvinnuiausir, um ára- mótin 63. Orsaka atvinnuleysins mun vera og hafa verið að leita til lé- legrar afkomu fiskibáta, en veð- ur hefur mjög hamlað veiöum i vetur. Atvinnuleysi hefur þvi verið mikið annaö slagiö þá er engin fiskvinnsla átti sér stað vegna hráefnisskorts. Nærri má geta að hálft hundrað atvinnu- lausra er mikill fjöldi i 400—500 manna þorpi sem Þórshöfn. Frá Þórshöfn róa nú þrir bát- ar, eru tveir þeirra á linu og hef- ur þeim gengiö sæmilega viö veiðiskapinn þá er gefið hefur á sjó, sá þriðji er netabátur og hefur þeim ekki gengiö jafnvel við veiðarnar og hinum. Atvinnuleysið f Keflavfk: „Einn víta- hringur” — segir Karl Steinar Að sögn Karls Stein- ars Guðnasonar for- manns Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla- vlkur og nágr. munu nú um 50 manns atvinnu- lausir þar i bær. At- vinnuleysi þetta á ræð- ur sínar að rekja til ié- legra aflabragða og slæmrar fjárhagslegr- ar afkomu fiskvinnslu- húsa. A annað þúsund manns þ.e. tslendingar munu nú starfa á Keflavikurflugvelli, yfirleitt hefur fólk leitaö þangaö fyrir sér um atvinnu þá er um at- vinnuleysi hefur verið aö ræða i Keflavik.en nú mun hafa verið tekið fyrir allar ráöningar á Keflavikurflugvelli aö sögn Karls Steinars. Fólk það sem er á atvinnuleysisskrá er þvl statt i einskonar vitahring þá er þaö getur ekki leitað fyrir sér á Keflavikurflugvelli sem fyrr. Sjö fiskvinnslufyrirtæki munu hafa lagt upp laupana í Keflavik og Njarðvik. Hjá þeim fyrir- tækjum sem enn eru starfrækt i Keflavik og nágr., er aöeins unniðmeðhálfum afköstum um þessar mundir þ.e. hætt er kl. 5 ádaginn. Karl sagði þau laun er mönnum áskotnuðust á þessum vinnutima ekki nægja þeim til framfæris. Auk þess sem ekki væri um að ræða hvetjandi launakerfi þ.e. bónus hjá fisk- vinnslufyrirtækjunum, en þá gæti munað allt að helmingi hvað upphæð tekna næmi miðað við nú, þegar unnið er á lág- markslaunum. Sakir skuldabirða viökomandi fyrirtækja hafa tveir togara Keflvikinga og Njarðvikinga þegar verið seldir og mun einn I sölu, alls hafa togararnir veriö 5 að tölu. Karl sagði stafa ógn af sölu þessarra mikilvirku at- vinnutækja sem væru i raun þau einu er bæru sig sæmilega hvað sjávarútveg snerti.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.