Alþýðublaðið - 16.03.1978, Blaðsíða 3
assr Miðvikudagur 15. marz 1978
3
Ný teiknimyndabók kemur út
Sigga Vigga og tilveran
Alþýðubladið spjallar við Gísla J. Ástþórsson
„Sigga Vigga varð
raunar til i fyrsta
þorskastriðinu, 1958, en
sjálfur tók ég við
ritstjórn Alþýðublaðs-
ins fyrsta dag þess
striðs,”, sagði Gisli J
Ástþórsson i viðtali við
Alþýðublaðið i gær,
þegar við höfðum tal af
honum vegna útkomu
nýrrar bókar hans,
með teiknisögum af
Siggu Viggu,
sem
blaðalesendum er vel
kunn.
„1 upphafi var Sigga Vigga
raunar bara litil hnáta,”, sagöi
Gisli enn, og blaöama&ur
miirntist þegar frægrar
teikningarhansaf smástelpunni
meö naglaspýtuna fyrir aftan
bak, sem stungiö haföi hinn
enska aömirál i sitjandann.
„Times stal raunar þeirri
mynd,” sagöi Gisli, ,,og uppfrá
þvi hef ég ekki haft vonda
samvizku af aö stela Ur öörum
blööum! ”.
Bókin um Siggu Viggu er
mjög smekklega og vel ilt gefin
af BókaUtgáfunni BROS sf. og i
nótu, sem Utgefandi lét fylgja
kynningareintaki, segir aö þetta
sé i fyrsta skipti, sem
myndasagnabók meö islenzkum
persónum komi hér út. Þvi fer
þó alls f jarri aö þetta sé i fyrsta
sinn sem Gisli J. Astþórsson
kemur fram meö bók. Almenna
bókafélagiö gaf út eftir hann
„Uglur og páfagauka,”, hér á
árunum, og ennfremur „Hlýjar
hjartarætur” og „Brauöiö og
ástin.” Einnig gaf Ægisútgáfan
út „Einfaldur og tvöfaldur” og
enn hefur hann samiö
barnabókina „Isafold fer i sild”
Þegar bla&ama&ur minntist á
hiö eftirminnilega
sjón varpsleikrit Gfsla,
„Einleikur á ritvél,”, skýröi
Gisli frá þvi aö i vor væri von á
nýju sjónvarpsleikriti frá sinni
hendi, sem nú væri ööru sinni til
vinnslu erlendis, þar sem hér
ræddi um litfilmu, sem ekki yröi
fullgerö hérlendis.
Gisli sagöist fyrst hafa séö
þessa nýju bók sina i gær, og
þætti honum Utgefendur hafa
staöiö vel aö verki og skal undir
þaö tekiö. Veröi bókarinnar er 1
hóf stillt, hún kostar a&eins 1200
kr. eöa sem svarar andviröi
þriggja sigarettupakka, eins og
i kynningarnótu segir.
Alþýöublaöiö sendir Gísla
hamingjuóskir meö bók hans og
þökk fyrir vist Viggu hér á blaö-
inu og óskum viö þeim báöum
bezta gengis.
AM
Þökk sé
Vinahjálp
Fyrir hönd Heyrnleys-
ingjaskólans, nemenda
hans, starfsfólks og ann-
arra sem annt er um
velferð heyrnskertra
nemenda skólans, vil ég
undirritaður,, votta
Félaginu Vinahjálp inni-
legt þakklæti fyrir hina
stórhöfðinglegu gjöf til
Heyrnleysingjaskólans,
en hún er a.m.k. milljón
kr. viðri.
Gjöf félagsins að þessu sinni er
vönduð kvikmyndasýningarvél,
sem bætti úr brýnni þörf, og
hljómtæki, sem gera þaö
mögulegt aö veita nemendunum
miklu fullkomnari rythmic—
kennslu en hægt hefir veriö til
þessa og meiri heyrnarþjálfun,
einnig tækjasett sem saman-
stendur af þráðlausum
hljóðnemasendi, tveimur viö-
tækjum, tengitæki fyrir audiolup
og hleðslutæki fyrir búnaöinn.
Þetta er ekki i fyrsta sinni sem
Félagiö Vinahjálp sýnir hug sinn
til skólans, 1970 gaf það
skólanum 50Ó.000 þús. kr. til
kaupaá akustiskum tækjum, sem
hafa veriö notuö siöan og komiö
aö góðum notum.
Ég vil endurtaka innilegustu
þakkir okkar allra og árna Félag-
inu Vinahjálp allra heilla.
R.vik. 14.3. ’78
Brandur Jónsson
skólastjóri
ENDURSKINS-
MERKI ERU
NAUÐSYNLEC
FYRIR ALLA
UMFERÐARRÁÐ
Ert þú félagi f Rauóa krossinúm? >
Dejldir félagsins 7 ' ’
eru umland allt! {
RAUÐI KRÖSS tSLANDS
Tönn tímans og nefndanna vinnur sitt hljóðláta verk
Grjótaþorpiö, Hall-
ærisplanið og Torfan
Fá tiðindi eru af
áætlunum um framtið
Grjótaþorps, að sögn
Hilmars Ólafssonar hjá
Þróunarstofnun
Reykjavikurborgar, en
blaðið átti stutt samtal
við hann i gær.
Hilmar sagöi aö eftir aö hin
itarlega skýrzla og úttekt Nönnu
Hermannsson um mannvirki i
Grjótaþorpinu var lögö fram,
heröi veriö haldinn einn fundur
um máliö i skipulagsnefnd og
væri annar fundur fyrirhugaður
eftir páska.
Af „Hallærisplansráöagerö-
um” væri þaö hins vegar aö
segja, aöeftir samþykkt nývirkja
á því svæöi, væri máliö komiö i
hendur borgarverkfræöings, sem
um þaö mundi fjalla i samráöi viö
vinnuhóp eignaraðiia. Um
Bernhöftstorfuna er og allt hljótt
um þessar mundir, svo segja má
að timans tönn vinni sitt verk i
feysknum viöum gamalla
mannvirkja borgarinnar og
tilheyrandi nefndum og ráöum,
sem yfir þessum málum drottna.
AM
Herstöðvaandstæðingar effna til
fundahalda víðsvegar um landið
Samtök herstöðvaand- efna til funda viðsvegar gangi að kynna málstað
stæðinga munu á næstunni um land allt, i þeim til- samtakanna og starfsemi.
„Atvinnurekendur
beri eigin kreppu”
Baráttufundur 8.
m ar z - h r e y f in g a r i n n a r i
Tjarnarbúö aö kvöldi 8. marz
samþykkti eftirfarandi
yfirlýsingu um kjaramálin:
„Baráttufundur 8.
marz-hreyfingarinnar mótmælir
nýsettum lögum um efna-
hagsráöstafanir. Lögin eru aöför
að samningsrétti vinnandi fólks
og sjálfstæöi verkalýösfélaganna
jafnframt þvi sem þau hafa i för
meö sér gifurlega
kjarasker&ingu. Meö þessum
lögum hefur auövaldið enn einu
sinni velt byröum kreppu sinnar á
verkafólk.
Viö mótmælum einnig
starfsaöferöum
verka lýösforystunnar i
baráttunni gegn lögunum.
Skipulagning móta&geröa hefur
fariö fram bak viö luktar dyr,
ákvöröun um verkfall fyrstu tvo
daga þessa mána&ar var tekin af
fáum forystumönnum. Launafólk
hefur engin tök haft á að
skipuleggja eigin baráttu. Aö
auki baröist forysta
verkalýöshreyfingarinnar gegn
samstööu alþýðutólks meö þvi að
tefla einstaklingnum gegn
verkalýðssamtökunum og gera
þátttöku I verkfallinu frjálsa.
„Samstaöan” 1. og 2. marz
reyndist samstaöa fárra
forystumannaen ekki samstaða
alþýöu manna.
Baráttufundur 8.
marz-hreyfinarinnar itrekar:
1. Atvinnurekendur beri byröar
eigin kreppu!
2. Berjumst gegn
stéttasamvinnustefnunni —
gerum verkalýösfélögin a&
baráttutækjum!”
Erindrekar miðnefndar
herstöðvaandstæðinga
munu mæta á fundina. Þá
mun og ýmislegt verða til
skemmtunar.
Samtökin hvetja fylgismenn
um allt land til aö fylgjast meö
því, hvenær fundir veröa i
nágrenni þeirra, en þeir veröa
auglýstir á hverjum staö fyrir sig
og i blööum jafnskjótt og ákvarö-
anir hafa veriö teknar um þá.
í'undarhöld hafa þegar veriö boö-
uö i Keflavik, laugardaginn 18.
marzn.k. áNeskaupstaö 19. marz
og 30. marz i Mývatnssveit.
Frekari upplýsingar um fund-
ina veitir skrifstofa Samtakanna
Tryggvagötu 10, milli 1 og 5, en
þar er simi 17966. Þar mega þeir
er hreppt hafa vinninga i
happdrætti Herstöðvaandstæö-
inga vitja þeirra, en frestur til
sliks rennur út 25. marz n.k.