Alþýðublaðið - 22.04.1978, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 22.04.1978, Blaðsíða 7
6 Laugardagur 22apríl 1978 Laugardagur 22apríl 1978 7 Þannig litur fiskurinn út, sem sex islenzk skip munu hefja veiðar á á næstunni við Færeyjar. Algengasta stærð hans er 30—40 sentimetrar og hann verður sjaldnast stærri en 50 sentimetrar Fáein orð um kol- munnann — fiskinn, sem íslenzk skip ætla ad fara að veiða Fiskiönaðurinn i Norður- Evrópu/ sem farinn er að kenna töluvert á hráefnis- skorti/ hefur á siðustu ár- um beint hráefnisleit sinni mjög að ýmsum óvanaleg- um fisktegundum. Ein af þessum nýju fisktegundum er kolmunninn. Líffræð- ingar álíta/ að i Norður Atlantshafinu séu 8—10 milljónir tonna af kol- munna. Hann hrygnir snemma vors, mars—mai, á svæðinu NV af Bretlandseyjum. Á þeim tima er liklega auðveldast að veiða hann, en 1 milljón tonna mætti senni- lega veiða að skaðlausu. Veiðitæknin er enn ekki komin i viðunandi horf, að þvi er virðist. Flotvarpa er veiðarfærið sem mest er notað, en oftast er fiskur- inn á meira en 200 faðma dýpi. Það er aftur á móti algengt vandamál, að pokinn rifnar, vegna þess að hann bókstaflega skýst upp i loftið, þegar sundmagi fisksins þenst út, er þrýstingur vatnsins minnkar. Það er talið, að sumrin og snemma vetrar, sé kolmunna- stofninn dreifður um N-Atlants- hafið milli Noregs og Islands. Hann kemur lika stundum upp að ströndum beggja landanna, og þar má auðveldlega veiða hann i venjulega botnvörpu. Verksmiðju togarar Rússa veiða hann i vaxandi mæli i NA-Atlantshafi og viðar, td. við Færeyjar, en eins og kemur fram i frétt i blaðinu i dag, búast sex islenzkir bátar nú til veiða á þeim miðum. Kolmunninn er af þorskfiska- ættinni, náskyldur lýsunni. Algengast er, að hann sé 30 cm á lengd og 120—150 g á þyngd. Einstaklingai yfir 40 cro á lengd og 400—500 g á þyngd, hafa samt sem áður veiðst. Kolmunninn er alveg ágætis matfiskur. 1 Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins hafa verið gerðar ýmis konar matreiðslutilraunir á kolmunna. Ha-nn var soðinn, steiktur, djúpsteiktur, búnar til bollur úr kolmunnahakki og alltaf þóttu þessir réttir góðir, litið lak- ari en sams konar réttir úr ýsu og þorski. Norðmenn og Englendingar hafa komist að sömu niðurstöðu. Norðmenn segja einn höfuðkost- inn við kolmunnahold, vera bindihæfni þess, þegar búnar eru til hinar hefðbundnu skandina- visku fiskibollur. Brezkir ,,fish and chips” kaupmenn, segja að kolmunnaflök séu alveg prýðileg i þeirra vörur. Stærð kolmunna1 flakanna, þau eru vanalega 45—60 g að þyngd, er sögð heppileg i þessum tilgangi. Vélavinnsla Það, hvað kolmunninn er litill, hefur þótt galli hvað snertir framleiðslukostnað, og margir fiskframleiðendur, hafa látið hugfallast þess vegna. Það er augljóst, að nota verður vélar til þess að hausa kolmunnann og slægja hann, og ef með þarf að flaka hann. A.m.k. tveir evrópsk- ir framleiðendur fiskvinnsluvéla, hafa náð umtalsverðum árangri i þvi að breyta vélum sinum, svo að hægt er að nota þær i þessum tilgangi. Af framansögðu mætti þó verða ljóst að kolmunninn gæti orðið ein af allra þýðingarmestu fisk- tegundum Norður-Atlantshafsins. Enn er mjög óljóst með markaðinn og kolmunnamarn- ingur verður sennilega aldrei álitinn jafngóður ýsu- eða þorsk- marningi. Liturinn mun verða dekkri og geymsluþolið virðist vera minna. Þó má benda á það hve Alaska ufsinn hefur náð fótfestu á ameriska markaðnum. Það virðist sem sagt vera rúm fyrir fiskafurðir, sem ekki eru hefðbundnar á þessum markaði, þrátt fyrir það, að litið sé á þær, sem verri að gæðum. Vegna skorts á þorski, mun verða leitað aö einhverju, sem komið getur i staðinn og þar getur koimunninn gegnt þýðingarmiklu hlutverki. Það tekur alltaf nokkurn tima fyrir fiskverzlun heimsins, að móttaka nýjar fisktegundir, og svo mun sjálfsagt verða um kolmunnaafurðir. En rétt er að hafa það i huga, að ýmissa breyt- inga er að vænta á ýmsum algengustu hefðbundnu fisk- tegundum á næstu árum. (Lauslega eftir Tæknitiðindum Rannsóknarstofnunar Fiskiðnaðarins) Hér sést þaðsvæði, sem telja má heimkynni kolmunnans. A þessari mynd sést veiðisvæðið, sem isl. skipin stefna nú á. Fiskurinn gýtur fyrir vestan Hebridseyjar og þar hefja skipin viðureignina við hann, sem veiðarnar stunda. Þau elta hann svo norður fyrir Fær- eyjar. Finnst þér sniðugt fyrir ein- stæða foreldra að búa svona 1 sambýli? — Já það getur verið það en þarf ekki að vera það. Maður er þá ekki eins bundinn yfir barninu t.d. á kvöldin. Annars er ég nú voðalega heimakær og fer litið. Geta yfirvöld létt eitthvað undir með einstæðum foreldrum? — Eflaust, annars höfum viö náttúrulega viss forréttindi t.d. i sambandi við dagvistarmálin. En þaö er kannski ekki mikið meira. Það eru auðvitað margir sem eru illa settir en það fer lika svolitið eftir barnafjölda. Svo er maður i þannig aðstöðu, t.d. ef krakkinn er veikur að geta ekki mætt i vinnu og svoleiðis. Hvað um félag einstæðra for- cldra? — Það er auðvitað hægt aö vinna fyrir sér þó maður sé einn, en það kemur náttúrulega niður á börnunum þvi maður veröur svo litið heima. Heldurðu að það sé erfiðara fyrir konu en karlmann? — Konur geta alveg unnið fyrir sér eins og karlmenn en það kem- ur bara svolitið öðruvisi út þvi vinnan sem þeim býðst er miklu ver launuð. Hvað finnst þér um kjör ein- stæðra foreldra? — Það er ekkert sérstakt gert fyrir einstæða foreldra. Það þyrfti að reyna að hjálpa þeim til að kaupa sér ibúð. Ég held að það sé algerlega vonlaust fyrir konu, þó hún sé ekki með nema eitt barn, að kaupa sér ibúð. Hvað um Félag einstæðra for- tveimur sonum sinum, þeir eru 9 og 5 ára. Hann er trésmiöur, býr i eigin ibúð, og á þvi ekki við hús- næðisvandamál þau að striða, sem sifellt hrjá flesta einstæða foreldra. Yngri strákurinn er á dagheimili, en sá eldri á öruggt athvarf hjá ömmu sinni sem býr á hæðinni fyrir ofan þá og hleypur undir bagga ef eitthvað er. Blaða- maður og ljósmyndari litu inn hjá Gisla eitt kvöldið og spurði hann, hvað honum þætti um kjör ein- stæðra foreldra. — Aðstaðah er auðvitað mis- jöfn, og fer eftir menntun og störfum. Sumar einstæðar mæður i illa launuðum störfum eru ef- laust illa settar. Starfsgetan er náttúrulega minni hjá einstæðum foreldrum en öðrum, barnanna vegna. Þórdís ólafsdóttir Þórdis ólafsdóttir býr ásamt tveimur börnum sinum tiu og fjögurra ára, i einu herbergi hér i bænum. Hana vantar húsnæði og sem stendur getur hún ekki unnið af heilsufarsástæðum. Þórdis b.jó úti á landi, flutti til Reykjavikur i desember s.l. en á ekki lögheim- illi i borginni. Af þeim ástæðum hefur verið m jög erfitt fyrir hana aö fá nokkra aðstoð frá bæjaryfir- völdum. Vinnan sem hún getur fengið er illa launuð, vegna þess að hún hefur enga menntun en til þess að mennta sig þarf peninga eins og flestum mun vera kunn- ugt. Þórdis, heldur þú að ein mann- eskja geti séð fyrir fjölskyldu i daS? Frh. á 10. siöu „...yfirleitt eru einstæðir foreldrar alltaf að flytja Harðnandi lifsbarátfa Það verður æ erf iðara að framfleyta sér/ hér á þessu landi. Það er þó mis- jafnlega erfitt, því ekki fá allir jafn stóran bita af þjóðarkökunni. Erfiðust eru kjörin hjá verkafólki og í verkamannaf jölskyldu er þaö engan veginn nóg að aðeinseinn meðlimur vinní fyrir öllum hinum, bæði hjónin neyðast til að vinna og börnunum er komið i gæslu ef það er þá hægt, annars verða þau að sjá um sig sjálf. Einstæðir foreldrar hafa hér nokkra sérstöðu, þeir þurfa bæði að vinna fyrir fjölskyldu sinni sem er heils dags verk og vel það, og ala upp börnin sin sem er í rauninni heils dags verk líka á meðan þau eru litil. Fari það síðan saman að einstætt foreldri er einnig verkamaður eða kona, er hætt við að lífs- baráttan verði ansi hörð og lítill tími af lögu til að sinna börnunum. Sífelldir flutningar Ofan á þetta tvennt, að vera einstætt foreldri og verkamðaur, bætist i mörgum tilvikum, að við- komandi er lika leigjandi. Skv. könnun sem Jóhanna Kristjóns- dóttir gerði árið 1975, má ætla að um 40% einstæðra foreldra, séu leigjendur. Er það ekkert sæld- arbrauð, hvorki fyrir foreldrana eða börnin að standa i flutningum árlega. Sérstaklega bagalegt er það fyrir börn sem farin eru að ganga i skóla og eignast sina fé- laga þar. Stór hluti tekna þessa tólks ier þvi i barnagæslu, leigusalinn tek- ur væntanlega vænan skerf og það sem eftir verður er það litið að varla verður skrimt af þvi. Misjöfn aðstaða Að visu veröa ekki allir ein- stæðir foreldrar dregnir undir sama hatt! Það eru til-þeir ein- stæðu foreldrar sem hafa góöa menntun, há laun og búa i eigin húsnæði. Jafnvel er það til i dæm- inu með einstæða foreldra að þeir eigi fjársterka að sem geta að- stoðað þá á margvislegan hátt. Trúlega eru einstæðir feður yfir- leitt betur settir en einstæðar mæður. Konurnar hafa almennt minni menntun og fá þar af leið- andi lika minná kaup. Og þvi minni peningar sem eru i budd- unni, þvi minni eru möguleikar til mannsæmandi lifs. Einstæðir foreldrar for- gangshópur Yfirleitt eiga allir einstæðir for- eldrar kost á dagheimilisvist fyr- ir börn sin og hafa þar forgang en' biðtiminn getur orðið allt að einu ári. En dagarnir verða oft langir hjá þessum börnum og þegar mamma eða pabbi koma dauö- þreytt að sækja þau eftir langan vinnudag er kannski litið eftir annað en að koma i sig matnum og fara siðan i háttinn. Svo er gangur náttúrunnar einu sinni þannig að börn eldast ef allt er með felldu og verða eldri en 6 ára og eiga þvi ekki lengur kost á dagheimilisvist. A skóladagheim- ilum i Reykjavik er rými fyrir 92 börn og eru það svo til eingöngu börn einstæðra foreldra sem þar dvelja. Það er þó bara örlitið brot af börnum einstæðra foreldra á þessum aldri i borginni, sem vist- ast þarna. Og hvað með hin? Það mun vera algengt að þessi börn sem ekki eru i gæslu, fari snemma að sjá um sig sjálf, með þeim kostum og kannski aðallega göllum sem þvi fylgir einkum fyr- ir mjög ung börn. Aö einangra vissa þjóðfé- lagshópa Svo er það spurning t.d. i sam- bandi við dagheimili og skóladagheimilin, hvort þaö sé heppilegt að einangra þann- ig börn einstæðra foreldra og börn sem einhverra hluta vegna búa við erfiðar félagslegar að- stæður. Þaðerhætta á að slikt geti haft ýmsa aðlögunarerfiðleika i för með sér sem koma kannski ekki i ljós fyrr en löngu löngu seinna. Það er orðin regla i nú- tima samfélögum að draga fólk i dilka.börn i einn, vandræðaungl- inga i annan, gamalt fólk i þann þriðja og þannig mætti lengi telja. Þessir þjóðfélagshópar einangr- ast æ meira og þjóðfélagið i heild verður fjandsamlegra manneskj- unni. Aðeins þeir sem vinna að framleiðslunni og þéna sæmilega er gefinn kostur á að njóta lifsins. Réttur minnihlutahópa sem ekki framleiða neitt s.s. barna og aldraðra er borinn fyrir borð. Þessi þróun er kannski ekki orðin eins slæm hér eins og viða erlend- is og það er þarft fyrir Islendinga að láta sér reynslu nágrannaþjóð- anna að kenningu verða og reyna að spyrna við að sama óheilla- vænlega þróunin eigi sér stað hér hjá okkur. Eins og þjóðfélagið er i dag býður það hreinlega ekki upp á annað en þessa skiplingui mis- munandi hópa og þarf aö breyta ansi miklu til að hér komist ein- hver jöfnuður á. EI foreklra Félagið var stofnað árið 1969 og hefur það af mikilli atorku beitt sér fyrir mál- efnum félagsmanna. Má það heita kraftaverk hverju það hefur fengið framgengt þvi fjármagnið er af skornum skammti og án þess er litið hægt að gera. Borgin hefur stutt félagið við að koma húsi félagsins í Skerjafirðinum i íbúðarhæft ástand. I þessu húsi á að koma upp aðstöðu fyrir þá félags- menn sem eru á götunni með börn sín. Það er von félagsins að þetta hús komist i gagnið í haust, en það veltur allt á þvi hvern- ig til tekst með fjáröflun. Brýnasta verkefni félags- ins eru húsnæðismátin, en meðan húsnæðismálapóli- tíkin á islandi er eins og hún er, hefur hvorki Félag einstæðra foreldra eða aðrir aðstöðu til að bæta mikið úr húsnæðisvand- ræðum leigjenda. Ei Baldur Garðarsson Baldur Garðarsson er einstæð- ur faðir, en hann á einn son þriggja ára gamlan. Baldur er háskólamenntaður, hefur vel launaða vinnu frá 9—6 á daginn á meðan er sonur hans á dagheim- ili. Baldur býr i leiguibúð. Hvað finnst honum um aðstöðu ein- stæðra foreldra? — Hún er sennilega frekar slæm oft á tiðum. Aður vann ég t.d. á barnaheimili, en kaupið var svo lágt að ég varð að hætta að vinna þar vegna þess. Ég hef svo sem ekki undan neinu að kvarta núna, ég hef það vel borgaða vinnu. Er leigan hjá þér há? — Hún er alveg skikkanleg, við leigjum þetta þrjú saman ég og hjón sem eiga eitt barn og skipt- um þessu á milli okkar. Ég hef nú ekki nema gott af þeim að ségja, annars hef ég litið starfað með þeim. Þeir geta ef- laust fengiðeinhverju áorkað, t.d. þetta hús sem þeir eru að koma upp. Elín Bjarnadótfir Elin Bjarnadóttir er einstæð móðir. Hún býr, eins og svo margir aðrir einstæðir foreldrar i leiguhúsnæði, en hefur verið heppin með leigu. Þriggja ára gömul dóttir hennar er i einka- pössun á daginn frá kl. 9 á morgn- ana til kl. 7 á kvöldin. Elin vinnur alla daga og hefur að auki verið að reyna að lesa við öldunga- deildina við Menntaskólan við Hamrahlið. Blaðamaður spurði Elinu fyrst: Getur ein manneskja unnið fyr- ir fjölskyldu 1 dag? eldra? — Ég er nýgengin i félagið og hef litið kynnt mér það, hef bara ekki haft tima til þess. En hús- næðismálin eru náttúrulega mik- ilvægust, ef félagið getur fengið ■' einhverju áorkað þar, þvi yfirleitt eru einstæðir foreldrar alltaf að flytja. Og það er slæmt bæði fyrir þá sjálfa og börnin. Ég er sjálf að missa húsnæðið og vantar bæði barnapössun og vinnu. Konan sem passar stelpuna er að hætta. Maður getur náttúrulega alltaf einhvern veginn fengið húsnæði, það er bara verst hvað er orðið mikið húsaleiguokur hérna. Það er alveg ferlegt að borga þetta 45—50 þús. fyrir tveggja her- bergja ibúð. Gísli Júlíusson Gisli Júliusson býr einn ásamt Geta yfirvöld gerteitthvað til að bæta hag einstæðra foreldra? — Ég er nú ekki viss um það, það er þá helst að auka dagvistar- stofnanir. Annars held ég nú að það sé best fyrir börnin að vera' heima ef það er hægt. Það væri kannski mögúleiki fyrir yfirvöld að aðstoða þetta fólk skattaleið- ina. Getur ein manneskja séð fyrir heimili i dag? Það er alveg útilokað fyrir lág- launafólk. Hvað finnst þér um Félag ein- stæðra foreldra? — Ég hef nú svo litið kynnst þvi og ekki verið virkur félagi. Ég hef stundum mætt þarna á fundi hjá þeim. Það getur kannski haft á- hrif á skatta- og tryggingamál. i

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.