Alþýðublaðið - 21.05.1978, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 21.05.1978, Blaðsíða 3
Sunnudagur 21. maí 1978 3 — Kvikmyndin sem listgrein er alveg stórkostleg. Aö safna saman fólki, svo þaB sé ekki bara hver að pukra i sinu horni. Einn sér um texta, annar um tónlist, sá þriðji um myndina, fjórði um söguþráðinn og svo eru leikar- arnir. —Það er hópvinnan sem er mikilvæg. Það er hlægilegt að hugsa sér t.d. málverk unnið i hópvinnu, en i kvikmyndinni geta allir verið skapandi. Sem list- grein er kvikmyndin mjög hættu- legt vopn, þá eru listamennirnir komnir út úr vinnustofunum sin- um, þeir eru komnir út á götuna og farnir að ræða saman. Þéir geta meira að segja farið að hafa áhrif á gang mála i þjóðfélaginu. Til þess verða þeir náttúrlega að koma myndinni i sýningu. — Já , en það ætti'að ganga bet- ur um leið og listamennirnir fara að tala við hvorn annan i staðinn — Kvikmyndin er fyrst og fremst sett fram sem iðnaður vegna þess að það eru svo miklir peningar i veltu. Kvikmyndir þurfa samt ekki að vera svona dýrar, þaðeru bara'svo mörg fyr- irtæki sem græða á þeim, þess vegna er talað um þær sem iðnað. Það er hægt að gera góða mynd, þó það standi ekki eitthvert fyrir- tæki á bak við hana. Videoband krefst t.d. ekki svo mikilla pen- inga. Það voru aðallega framleið- endur og dreifendur sem gerðu þetta að peningaspursmáli. Ef maður fer aftur á bak i tim- ann, þegar kvikmyndir eru að koma upp, þá eru þær fyrst og fremst listgrein. Það er Holly- wood sem gerir kvikmyndina að iðnaði.Alveg eins og Kaninn gerði t.d. með gömlu málarana, gerði þá að iðnaði. Þegar ég var I skóla úti, þá hafði maður það að vinnu Það var ómissandi fyrir mig sem listamann eða bara sem þroskað- ar.einstajding. Úm hvað vilt þú gera kvikmyndir? — Ég vil gera rómantiskar myndir, ég held að fólk sé alltof stressað. Það ér eins og róman- tikin sé orðin eitthvaö andstætt við raunveruleikann. Ég vil draga fram nýtt verðmaætamat i andstöðu við stress — þjóöfélagið. Ég er voðalega hrifin af þessu uppkasti að handriti um Alþingi. Þar eru það maður og kona, þulur og þula sem segja söguna. Þau ganga á milli bæja og eru að segja frá þvi sem hefur gerst. Svo lifa þau sinulifiogsagan breytist eftir þvi hvernig þeim liður. I upphafi þegar þau segja frá kynnum Hall gerðar og Gunnars, þá eru þau mjög ástfangin og þetta veröur þulurinn og þulan sem segja sög una og stundum gagnrýna þau eða kætast, en Gunnar og Hall- gerður eru yfirstéttarfólk, rikt fólk. Að h verju á að stefna I islenskri kvikmyndagerð? — Fyrst og fremst að einhverri samheldni og samvinnu. Ég þekki nú islenska kvikmyndagerð voða- lega litið, nema gamla og svo náttúrlega heimildarkvikmynd- irnar. Menn leggja út i það að gera myndir, ég reyndi að fá með mér fólk sem ég vissi að hafði eitthvað að segja. Það var mjög mikilvægt fyrir mig og ég held fleiri lika. Kvikmynd getur ekki orðið góð, að visu góð tæknilega séð, nema það sé virkilega sam vinna við gerð hennar og það er fágætt. Sjáðu t.d. ameriskar tæknilega fullkomnar kvik- myndir. Það er ekkert um þær að >em fólkið er, þá er hún dauð geti verið falleg fyrir að vera alltaf að keppa viö hvorn annan. I dag er listin alveg stöðnuð, það eru galleriin sem ráða þvi hvaða nöfn fara upþ og hver ekki. I kvikmyndalistinni er eins farið að, þar hefur eitt nafn meira að segja en annað. Fyrst voru það stjörnurnar er höfðu allt að segja, svo komu leikstjórarnir og vildu lika láta til sin taka og þannig koll af kolli. Nú, ef þú vilt koma þvi til skila sem þú ert aö segja, þá verðurðu að snúa þér til dreifingaraðila. En það er mjög erfitt I dag, þó þú sért með gott handrit. Dreifingaraðilinn er tregur, nema þú sért með einhver fræg nöfn, nöfn sem seljast. Nú er kvikmyndin iðnaðarvara og lýtur markaðslögmálunum eins og aðrar slikar. að mála fölsk málverk, það voru allir nemendur I þessu, viss fyrir mynd, viss stærð, 250$ stykkið svo kom Kaninn og keypti þetta allt saman sem evrópska list. Hvað um vinnu þina við kvik- myndir á italiu? — Við gerðum eina langa kvik- mynd i samvinnu við kommún- istaflokkinn. Hún var tekin i herteknum verksmiðjum á ítaliu og er Hka leikin á köflum. Við geröum hana i hópvinnu, ræddum saman og við verkamennina. Það var alltaf að koma fram eitthvað nýtt og nýtt svo við vorum sifellt að breyta einhverju. Þetta var eiginlega sagan um stéttaskipt- inguna. Þarna kynntist ég mörgu fólki, sem ég hefði aldrei kynnst ef ég hefði setið inni og málaö. rómantisk saga, en svo kemur þeirra strit inn I og þá breytir um svið. Myndin er eiginlega i þrem köflum, sá fyrsti er rómantlskur, annar fjallar um lifsbaráttuna og hörkuna og þriðji kaflinn um lagalegu hliöina. í hverjum kafla er lýst einu Alþingi. A fyrsta þinginu er verið að gifta fólk, það er drukkið og dansað og vinir hitt- ast. Það er þyngra yfir næsta þingi, Gunnar er svo mikil hetja og andrúmsloftiö er kuldalegt. A þriðja þinginu er lagalega hliðin sýnd, það er verið að dæma alla. I lokin er verið að ráðast á Gunnar og þulurinn og þulan eru að koma einhvers staðar að. Þau upplifa þessa senu þegar Gunnar deyr og þessar tvær sögur bindast saman. Það eru fulltrúar lágstéttarinnar Hér er engin kvikmyndapólitik... segja nema að annað hvort að þær séu leiðinlegar eða skemmti- legar, en aö þær slái þig eitthvað, hafi eitthvað að segja þér, það er mjög sjaldgæft. — Það þarf lika að koma á kennslu i kvikmyndagerð á íslandi. Kvikmyndin er tján- ingarform framtiðarinnar og höfðar mjög sterkt til yngra fólks. Hún er lika rétt tjáningsrform, maðurinn vill ekki hirast einn út i horni með það sem hann er að gera, hann er félagsvera. Og það að geta unnið saman og tjáð sig um leið, er náttúrulega alveg stjórkostlegt — Svo er það mjög áriðandi að sjá góðar myndir. ísiendingar hafa slæmt fordæmi hvaö snertir kvikmyndagerð. Þar er bara i Fjalakettinum sem eitthvað er af sæmilegum myndum, myndum sem hægt er að læra eithvað af . Hvað finnst þér um islenska kvik- myndapólitik? — Kvikmyndapólitik er hér engin. Menn segja að þeim finnist að það ætti að koma þessi sjóöur- inn eða hinn. En það er bara spurning um það hvernig fólk vinnur. Þorsteinn Jónsson, hann fær ekkert að gera, það geta verið til hundrað þúsund sjóðir fyrir þvi. Það er absúrd að tala um 30 miljónir i dag sem eiga að koma á næsta ári. Hvað verða 30 miljónir þá og hvað kostar að gera kvik mynd eftir eitt ár? — Kvikmyndasafnið ætti að geta séð fólki fyrir almennilegum myndum á ódýran hátt. Það er margt hægt aö læra af gömlu myndunum. — Róska hefur staðið i stappi við islenska sjónvarpið um að það fjármagni helminginn af mynd- inni um Alþingi á móti Italska sjónvarpinu. Heldur er landinn tregur. Það dugir ekki til aö ráða- menn italska sjónvarpsins sendi menn til viöræöu við ráðamenn þess islenska. Það er bara eins og að berja höfðinu við stein. Eru Italir sármóðgaöir út i þessa nor- rænu þumbara og hyggjast ekki lengur elta ólar við þá. Svo fram- tiðin ein getur skorið úr um þaö hvað verður um kvikmynd Rósku um hið forna Alþingi okkar ís- lendinga. Þegar blaðamaður var að tygja sig til heimverðar bætti Róska við: — Heyrðu, láttu það fylgja meö að það sé listin að lifa sem skiptir máli. Menn eiga ekki að loka sig inni. Ef listin er ekki nátengd lif- inu er hún einskis virði. eru mannréttindi? því, hvað visi en aflagaðar valdhöfunum i hag! Þó hér sé drepið á fátt eitt, sýnir það hverjum, sem vill sjá sjáandi, að við ramman er reip að draga. Samt hlýtur það að vera von, eftir þvi sem þjóðirn- ar raunverulega nálgast I krafti nútimatækni, brotni smám saman niöur þeir múrar tor- tryggni og allskonar hleypi- dóma, sem fram aö þessu hafa haldið þjóðunum um of aðskild- um. Hér er þó ekki aðeins átt við hinn siðferðilega og trúarlega grunn. Jafnvel hinn þekkingar- legi grunnur virðist vera á margvislegan hátt allur annarr i einu landi en öðru. Við vitum um visindalegan grundvöll Mendels og Lamarcks i erfða- fræði. En það eru hreint ekki margir áratugir siðan kenning- ar Lysenkos i þeim fræðum urðu viðtekinn og stjórnskipaður sannleikur i Rússlandi! Ennþá annað dæmi mætti nefna, að visindamaðurinn Blaise Pascal mátti búa við það, að uppgötvanir hans voru við- tekinn sannleikur — eins og þær eru nú um alla heimsbyggðina — norðan Pyreneafjalla, en harðbannaðar sem villutrú sunnan sama fjallgarðs! Og hver minnist ekki þeirra Brunos og Galileo Galileis? En þar sém við bæöi vitum og viðurkennum, að siðferðilegt mat er jafn mismunandi og raun er á, hlýtur þaö að krefja okkur um að leita leiða, til þess að finna mannkyninu sameigin- legan siðferðisgrundvöll, til að standa á i kröfum um sams- konar réttindi handa öllum. Að eölilegu mati ætti þetta að vera fyrsta skrefið, enda ætti það að leiða tiltölulega fljótt til sam- eiginlegs lagagrundvallar. Vel getur veriö, aö við á Vesturlöndum verðum að fara nokkru dýpra en við höfum gert og berjast fyrir réttindum öðr- um til handa — á lægra stigi i bili — en við teljum okkur þurfa heima hjá okkur. Hér verðum við að byggja á þróun og hið eina, sem við eigum úrkosta, er aö freista að flýta þeirri þróun eftir öllu megni. Framar öllu verðum við að sannfæra alla um, að lýðréttindi, eins og við metum þau til eftirsóknar, séu enginn heimskulegur heilaspuni hins vestræna heims. Hið fyrsta og þýðingarmesta, sem fyrir okkur verður I þessum athugunum er hiö stjórnmála- lega frelsi — lýðræðið — sem vissulega er upprunnið i hinum verstræna heimi. Að öllu athug- uðu sýnist það vera greiðasta leiðin, til að auka skilning fólks á mannréttindum, vegna þess að það snertir hvern einasta þjóðfélagsþegn, þó vera megi að misdjúpt sé fyrst i stað. Okkur, sem erum alin upp við frelsi og lýðræði — og finnst ef til viil, að það sé sjálfgefið — verður oftast fyrir að túlka það i aðalatriðum á þann veg, að það birtist i málfrelsi, funda- og félagafrelsi, frjálsri fjölmiðlun, frjálsum kosningum og jafnrétti fyrir lögum (þessa skrá mætti auðveldlega lengja að mun) en við ættum að geta — i bili — hafizt handa hér. Þvi miður rekum við okkur vist fljótlega á þær hömlur, að túlk- un mismunandi þjóða og þó einkum valdhafa á hugtakinu frelsi og lýðræði, er ákaflega misjöfn. Við skulum ekki reyna að blekkja okkur með þvi, að við höfum ekki raunsannar fregnir af, að hvenær sem gerð eru stjórnlagarof, má heita að hin opinbera túlkun valdamanna sé, að það sé gert til að efla lýðræð- ið! í viðbót við það kunna sumir — ef til vill flestir — að láta i veöri vaka, að valdarán þeirra sé framkvæmt, til að vernda fólkið — viðkomandi þjóð — fyrir meira og minna óskil- greindum háska! Auövitað fylgir hér oftast i kjölfariö, aö vegna þessa um- rædda háska þurfi að herða tök- in i ýmsum efnum — svona rétt i bili — unz stjórnvöldin hafi náð algerum tökum á óvinunum! Þráttfyrir efalausan (?) vilja þeirra þar til, vill það oftast dragast furðu lengi, að þau telji sig búna I stakk til að auka frelsið á ný! Rétt á meðan þykir svo þurfa, að nota timann til að snúast hart gegn óvininum. Til þess eru margar leiðir. Ein og ef til vill einfaldasta leiðin er auövitað að má þá og alla þeirra liklegu fylgjendur hreinlega út af yfir- borði jarðar með fjöldamorö- um. Ahrifamikið er einnig, að hneppa þá i vinnuþrælkun viö kjör, sem likleg eru til að brjóta manndóminn niöur á skömmum tima. Nú ef um þekkt fólk er aö ræöa, t.d. utanlands, má stinga þeim inn á geðveikrahæli, eöa reka þá úr landi. Suma, sem ekki þykir heppilegt að með- höndla á áður talinn hátt, má beita ýmsum tiltækum harö- ræðum, sundra fjölskyldum þeirra, svona i þeim góða (?) tilgangi, að börnunum sé foröað frá aö feta i slóð foreldranna ! Hér er vissulega um auðugan garð að gresja, ef hugkvæmnin er nóg! Þessi örstutta lýsing á á- standinu i f jölda af löndum ver- aldar mætti benda okkur á að hugleiða i fullri alvöru, hvort okkur hafi ekki sézt yfir i áróðri okkar og baráttu fyrir mann- réttindum, að höfða til rótgróins hugsunarháttar og raunar ekki siður trúarskoðana þess fólks, sem við eigum orðastað við. Erum við ekki — ef til vill — of bakkabundin við okkar skilning á mannréttindamálunum, svo tal okkar fari meira og minna fyrir ofan garð og neðan hjá við- mælendum? Þegar viö fordæmum þá ógnaröld, sem nú rikir i Kambodiu, þurfum við ekki endilega að höfða til vestrænna viðhorfa. Við skulum muna, að Kambodiumenn eru Buddhatúr- ar. Og einmitt eitt æðsta boðorð þeirrar trúar er, að bera virð- ingu fyrir öllu lifandi lifi — rót- gróna virðingu. Sé sögunni vikið til Kina, vegna hinna margháttuðu til- rauna ýmissa Maóista, til þess aö uppræta tilteknar stéttir úr þjóðfélaginu, eða sundra fjöl- skyldum, mættum við muna, að við þurfum ekki að hlusta á né andæfa þeim skilningi i Maó- ismanum, að við séum að pre- dika eitthvert vestrænt, borgar- alegt siðferði. Framferði hinna harðvitugustu Maóista er nefni- lega algert brot á árþúsunda siöfræði og erfðakenningum þjóðarinnar, sem leggja megin- áherzlu á að stjórnvöldum beri að vera mannleg, og að traust samband barna og foreldra sé æðsta undirstaða mannlegrar hamingju. Og þaö er alger óþarfi fyrir okkur, ef við viljum deila á alls- konar grimmdarverk, sem tiðk- ast meöal stjórnvalda hjá áhangendum Múhammeds, að höfða til gyðinglegra eða kristinna erfðakenninga. Við þurfum ekki annað en minna á siðfræði Kóransins ajálfs. Minnumst þess, að á hverjum morgni er fólk kallað til bæna frá mjóturnum að boði spá- mannsins. Þaðan er lögð áherzla á, aö hinn allsvaldandi Drottinn beri i brjósti ótæmandi miskunnsemi til allra sanntrúaðra og sönn þjónusta við hann sé fyrst og fremst i þvi fólgin, að menn ástundi góövild og miskunnsemi hver við annan! Þessi þrjú dæmi ættu að nægja til að sýna okkur, aö það er alls ekki sama, hvernig hlut- irnir eru túlkaðir. Ef við ætlum að ná árangri i baráttu fyrir mannréttindum, verðum við að tala við hverja þjóö á þeirri bylgjulengd, sem hún skilur. Þegar allt kemur til alls er grundvallarmunur á siðfræði þjóðanna ekki eins mikill og i fljótu bragði mætti virðast, né heldur trúarskoöana og erfi- kenninga. Munurinn er fyrst og fremst fólginn i misjafnri túlkun og framferði valdhafa. Til litils er að áminna þá — marga hverja — en ef við náum sambandi við hin rótgrónu viðhorf i þjóðarsál- inni, kann leiðin aö veröa skemmri og auðfarnari en margan mætti óra fyrir. Þýtt og endursagt. O.S.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.