Alþýðublaðið - 27.05.1978, Qupperneq 9

Alþýðublaðið - 27.05.1978, Qupperneq 9
sst Laugardagur 27. maí 1978. 9 Oánægja með Igörfund í Gautaborg kosmngavíxla stjórnarinnar er hafin. Félagsmálaráðherra hef- ur látið frá sér fara frétt þar sem hann greinir frá því, að í bréfi sem hann sendi Húsnæðismála- stjórn 19. maí hafi hann æskt þess að lán til kaupa á eldri íbúðum yrðu hækkuð úr einni rnillj ón í 1.8 milljónir. Þessu hafa málgögn rík- isstjórnarinnar slegið upp og getið þess þannig að nú væri ákveðiðaðlánin yrðu hækkuð. Hins vegar er ekkert um það getið að fjármagni, til þess að standa straum af óhjá- kvæmilegum kostnaði við hækkunina, gleymdi ráð- herrann alveg aðgera ráð fyrir. Alþýöublaöið ræddi i gær við Jón H. Guðmundsson, sem sæti á i Húsnæðismálastjórn um þetta mál. „Bréf ráðherra er ekkert ann- að en frómar óskir hans”, sagði Jón. „Engin fjárveiting er fyrir hendi til að unnt sé að hækka lánin sem þessu nemi. Hús- næðismálastjórn ákvað i mars- mánuði að hækka þessi lán úr 600 þús. i 1 milljón króna. A þessu ári er gert ráð fyrir að heildarfjárhæðin sem varið verður til umræddra lána nemi 720 milljónum króna. Það er þegar ljóst að þessi fjárhæð mun vart hrökkva þrátt fyrir að hámark lánanna sé miðað við 1 milljón og þvi hreint út sagt ó- raunhæft að tala um 1.8 milljón- ir, — nema til komi sérstök fjár- veiting. Ég fæ þvi ekki annað séð en hér sé um að ræða póli- tizka blekkingu til þess gerða að slá ryki i augum almennings fyrir kosningarnar.” Jón gat þess einnig aö hið um- rædda 1 milljón krónu hámark ætti einungis við um f jölskyldur með börn og sem ekki hefðu átt eigið húsnæði áður. Jón sagði að frá þvi að reglur um lán til kaupa á eldri ibúðum hefðu verið sett i tið félagsmála- ráðherra Alþýðuflokksins hefði verðbólgan sifellt rýrt lán þessi. 1 upphafi var miðað við að þau næmu um helming af lánum til byggingar nýrra ibúða. Nú er svo komið, þrátt fyrir að há- markið hafi verið fært i 1. mill- jón, að þau nema ekki 30% af lánum til nýrra ibúðabygginga. Þaö væri þvi góðra gjalda vert að hækka lánahámarkið, — en tilgangslaust er að tala um slikt nema sérstök fjárveiting kflmi til. Vildi Jón sérstaklega vara fólk við að ana út i kaup á ibúðum á þeirri forsendu að lán- in hefðu þegar verið hækkuð i 1.8 milljónir, — þvi væri alls ekki til að dreifa. 1 annan stað kvaðst hann fagna þvi mjög að nú virtist sem stjórnvöld væru að vakna til vit- undar um að það gæti verið þjóðhagslega hagkvæmt að halda úti lánastarfsemi til end- urbóta á eldra húsnæði. Hingað til hafa þessi lán verið takmörk- uð við aldraða og öryrkja, en i bréfi ráðuneytisins er farið fram á að hugað verði að hvort ekki muni þykja æskilegt að rýmka þess ákvæði. „Ég er búin að hamra á þessu i mörg ár og þykir mér gleðilegt að sjá að menn eru nú loks að taka við sér hvað þetta varðar”. Alþýðublaðinu hefur borist eftirfarandi bréf frá íslendingi i Gauta- borg, Sviþjóð. ,,Hér i borg eru bú- settir á annað þúsund is- lendingar að þvi að sagt er og hér var kosið á ræðismannsskrifstof- unni i miðbænum. Allur þorri vinnandi fólks gat ekki kosið vegna þess að aðeins var opið til klukk- an 4 á daginn en þá var fólk enn i vinnu. Ekki var kjörstaður opinn eitt einasta kvöld i allri vik- unni. En gamanið er rétt að byrja. Eins og allir Islendingar biðum við með að greiða atkvæði þar til á siðustu stundu og þegar á skrif- stofuna var komið beið þar mikill fjöldi fólks. Hvers vegna? Vegna þess, að það tekur 15 minútur fyr- ir hvern einstakling að greiða at- kvæði, vegna fáránlegs skipulags atkvæðaseðilsins. En á hann þarf að skrifa nafn og heimilisfang viðkomandi fjórum sinnum og tekur þetta sinn tima. Margir urðu óþolinmóðir og nenntu ekki að biða og fóru. Við komum klukkan rúmlega tvö og var biðin löng og leiðin- leg þar til að einhver gaur kom fram og tilkynnti að vegna skorts á atkvæðaseðlum yrði að tak- marka fjölda þeirra sem fengju að kjósa!! Og hverjir fengu að kjósa? Þeir sem búa lengst frá miðbænum og sem búa þar af leiðandi i „finni” hverfum og kjósa ihaldið. Þeim var visað inn fram yfir námsmenn og aöra „vanliga arbetare” sem hefðu kosið A eða G. Jú þarna biðu 8 at- kvæði A-listans úti, sem voru á leið til Kaupmannahafnar og gátu ekki tekiö þátt i kosningunni. Jú, við fáum nokkra seðla senda frá Malmö og Stokkhólmi á morgum, var okkur sagt, og þá höfum við opið frá klukkan 10—11 um morg- uninn.” Alþýðublaðið hafði samband við Benedikt Asgeirsson i utan- rikisráðuneytinu og spurði hann hvort settar hefðu verið einhverj- ar ákveðnarreglur um hve kjör- fundir hjá ræðismönnum erlendis ættu að standa lengi. Sagði Bene- dikt að fyrir 1974 hefði það fyrir- komulag gilt varðandi utankjör- fundakosningar hjá ræðismönn- um, að þær gátu einungis farið fram hjá islenzkumælandi ræðis- mönnum. Með lögum sem sett voru árið 1974, var þetta ákvæði fellt úr gildi og nú er það utanrik- isráðuneytið sem ákveður hvort atkvæðagreiðsla fer fram hjá við- komandi ræðismanni eða ekki. Sagði Benedikt að i greinagerð sem fylgdi lögunum væri sérstak- lega tekið fram að þar sem ræðis- mennirnir væru ólaunaðir starfs- menn væri ekki hægt að skylda þá til að hafa alltaf opið. „Það má varpa fram þeirri spurningu”, sagði Benedikt, ,,hvort að við- komandi aðilar hafi reynt að semja um það fyrirfram við ræð- ismanninn að fá að kjósa á öðrum timum.” Þá sagði Benedikt að sér væri ekki kunnugtum að atkvæöaseðla hefði vantað i Gautaborg. Hann sagði aftur á móti að oft væri erf- itt að meta það hversu marga at- kvæðaseðla þyrfti að senda á hvern kjörstað vegna þess að oft væri óljóst hve margir þeirra Is- lendinga sem búsettir væru á við- komandi stað væru á kjörskrá hér heima og hefðu rétt til að kjósa. —GEK Innistæðulaus kosningaávísun félagsmálaráðherra: Hækkun á lánum til kaupa á eldra húsnæði ekki fram- kvæmanlegt án tiárveitingar Utgáfa innistæðulausra ríkis- Kosningastjórn fl-listans í Reykjavík hefur ákveðið að fella niður hefðbundið eftirlit í kjördeildum með þvi hverjir kjósa og hverjir ekki. Að öðru leyti leggjum við áherzlu á að veita kjósendum A-listans alla þá þjónustu varðandi kosningarnar, sem i okkar valdi stendur. Nú er það Alþýðuflokkurinn! A-listinn í Reykjavík

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.