Alþýðublaðið - 11.06.1978, Side 1
alþýöu-
blaöiö
93% sætanýting hjá
Iðnó á þessu leikári
— En húsið stenzt engan veginn
nútíma kröfur segir Vigdís Finn-
bogadóttir leikhússtjóri
Allir Reykvikingar
kannast við gamla vina-
lega húsið á Tjarnar-
bakkanum, þar sem
leiksýningar Leikfélags
Reykjavikur hafa farið
fram undanfarin 80 ár.
Iðnó stenzt ekki nútima-
kröfur
En það er ekki nóg að húsið sé
vinalegt. Vigdis Finnbogadóttir
leikhússtjóri sagði i viðtali við
blaðamann Alþýðublaðsins að
húsið væri mjög langt frá þvi að
standast þær kröfur sem gerðar
eru til nútima leikhúss.
Sviðið er fast og ekki hægt að
skipta um leikmynd i hvelli, ef á
þarf að halda. Hjá Leikfélaginu
eru fastráðnir leikarar og það er
dýrt að hafa lausráðna leikara að
auki. Þetta tvennt setur verk-
efnavali leikhússins vissar
skorður.
Og það er erfitt að hafa margar
sýningar i gangi i einu i' leik-
húsinu, vegna þess að þar er
hvergi pláss til þess að geyma
leiktjöldinog verðurað keyra þau
út í bæ.
Fjárhagur Leikfélagsins er
heldur ekki beysinn. Iðnó tekur
bara 230 manns i sæti og augljóst
er, að svo litið hús getur ekki
staðið undir sér.
Leikfélagið hefur einnig haft
sýningar i Austurbæjarbiói og
þeir sem leiö hafa átt um Miklu-
brautina hafa séð að þar er nýja
borgarleikhúsið að risa, þó hægt
fari. En Vigdis sagði það vera
alvegóráðið hvenær þaðkæmist i
gagnið.
Leikfélagið aflar meiri
peninga en það fær frá
þvi opinbera
Reykjavikurborg styrkir Leik-
félagið á þannhátt að hún borgar
laun fastráöinna starfsmanna
þess, sem eru 34 talsins. Og rikiö
veitir árlegan styrk til starf-
seminnar. Styrkir nema 45% af
- rekstrarkostnaðiLeikfélagsins en
Leikfélagið stendur sjálft undir
55% heildarkostnaðarins. Þannig
að það aflar meiri peninga en það
fær í opinberum styrkjum.
Annars sagði Vigdis að starfið
hefði gengið vel. Undanfarin ár
hefur Leikfélagiö lagt áherzlu á
sýningu islenzkra leikrita og hef-
ur þaö verið óhemju vinsælt.
í lok mai voru sýningar Leik-
félagsins á þessu leikári orðnar
217. 66 þúsund manns höfðu séð
þessar sýningar, þannig að sæta-
nýting i leikhúsinu er 93%, sem er
mjög gott.
Leikhúsið út til fólksins
Nú er sú stefna að ryðja sér til
rúms i leiklistarmálum erlendis
að leikfélögin eigi að leita uppi
áhorfendurna enekki öfugt. Litiö
hefur þetta verið stundað hér á
landi, nema þá kannski helst af
Alþýðuleikhúsinu.
Þjóðleikhúsið og Leikfélag
Reykjavikur hafa þó farið
sýningarferðir út á landsbyggð-
ina,leigt sérhúsnæði og sett verkin
upp þar. Þessar sýningar hafa
verið afar vinsælar hjá dreif-
býlismönnum. Einnig gerðist
það veturinn '75-’76 að Leikfélag-
ið setti upp leikritið ,,Morð i
Dómkirkjunni” eftir Fidelius, i
Neskirkju. A miööldum voru
kirkjuleikir algengir i Evrópu, en
innihald leikritanna hefur senni-
lega verið af öðrum toga spunnið
en innihaldið i leikriti Fideliusar.
Það að leikhúsið komi til fólk-
sins en ekki öfugt taldi Vigdis
vera erfitt i framkvæmd. Þaö er
spurning um pening eins og svo
oft áður. Og einhver verður að
borga, þvi leiksýningar kosta
peninga.
Götusýning Das Freies
Theater
Það var fyrir forgöngu Vigdisar
að leikhópurinn Das Freies
Theater kom hingað til landsins.
Sagðist hún vera mjög ánægö
með framlag þeirra til Lista-
hátiðar. Og Listahátið verður að
fjármagna þessar sýningar,
einmitt vegna þess aðþað er ekki
hægt að standa niður á Lækja-
torgi og rukka menn fyrir það
sem þar ber fyrir augu.
Sagði Vigdis það ekki óalgengt
erlendis að bæjarfélögin leigðu
svona hópa til þess að leika fyrir
fólk, þvi að kostnaðarlausu.
Það væri kannski ekki úr vegi
að Reykjavikurborg leigöi leik-
hópatÚ þessaðskemmta borgar-
búum innanhússeða utan eftir þvi
hvernig viðraði.
EI
FRÆGUR SIRKUS
SÝNIR í LAUGARDALSHÖLL
Á næstu dögum er
væntanlegur hingað til
lands einn þekktasti
sirkus á Bretlandseyj-
um. Kemur hann hingað
á vegum Bandalags is-
lenzkra skáta og er fyr-
irhugað að haldnar verði
20 sýningar i Laugar-
dalshöll.
Sirkusinn er kenndur við stofn-
anda sinn og eiganda, Gerry
Cottle, sem nú er orðinn viðfræg-
ur fyrir leiklistarstarfsemisina.
Ekki fékkst leyfi til að flytja eitt
einasta dýr til landsins með sirk-
usnum, enda alkunna að hér á
landi gilda strangar reglur um
innflutning dýra. t staðinn munu
fleiri listamenn koma fram á sýn-
ingunum, eða i allt um 40 manns.
Verður Laugardalshöllin
skreytt sérstaklega i tilefni sýn-
inganna og mun sirkusinn m.a.
koma með sætispalla til að
mynda hinn nauðsynlega hring
umhverfis miðju fólsins. Með
sirkusnum verður islenzkur
kynnir og i hléi verður selt ýoiis-
legt dót, til minningar um
skemmtunina.
Miðaverð hefur enn ekki verið
ákveðið og verður eingöngu tekiö
á móti pöntunum frá fólki, sem
býr utan Stór-Reykjavikur-
svæðisins.
Fyrsta sýningin verður 30. júni
n.k. og hin siðasta 9. júli.