Alþýðublaðið - 11.06.1978, Qupperneq 4
Sunnudagur 11. júní 1978
Götubardagar í USA:
Nazista-??lögregla” ræðst
á unga mótmælendur!
í nokkrum bandariskum borgum hefur brydd-
að á óhugnanlegum atburðum upp á síðkastið.
„Lögreglumenn” ráðast á mótmælagöngur af
ýmsu tagi, og „lögregluþjónar” þessir eru með
hið alræmda hakakrossbindi um vinstra hand-
legginn.
Skýringin á þessu er sú aö þetta
eru ekki raunverulegir lögreglu-
þjónar, heldur meölimir hins
bandariska nýnazistaflokks,
,,Hins þjóðernissósialistiska
flokks hvitra”, sem láta þarna til
skarar skriða. Flokkurinn hefur
valið sér einkennisbúning, sem
nánast i smáatriðum er eins og
sumarbúningur bandarisku lög-
reglunnar, — fyrir utan armbind-
ið með hakakrossinum.
Allt þetta minnir óhugnanlega
mikið á bardagana um göturnar i
Þýzkalandi þriðja áratugsins
þegar stormsveitir Adolfs Hitlers
réðust gegn kommúnistum, jafn-
aðarmönnum og gyöingum.
Lítill en starfsamur
flokkur
Nýnazistaflokkurinn i Banda-
rikjunum er, enn sem komið er
mjög litill, en þeir kumpánar
sækja i sig veörið og hafa nú und-
anfarið stöðugt aukið aðgerðir
sinarútá við.Ekki sistá þetta við
eftir aðflokkurinn fékk leyfi til að
halda fundi og göngur i gyðinga-
hverfum bandariskra borga.
„Baráttan um göturnar” I
Bandarikjunum harðnaði ekki
. hvað sist þegar sjónvarpsstöðvar
vestra sýndu sjónvarpsmynda-
flokkinn „The Holocaust”. Það er
erfitt að þýða þennan titil, en orð-
ið merkir eiginlega stórbruna eða
eitthvað þvi um likt. í Bandarikj-
unum er þetta orð einnig haft um
grimmdarverk nasista i Þýzka-
landi á Hitlerstimanum. Sjón-
varpsmyndaflokkurinn fjallaöi
um morð nazista á milljónum
gyðinga i seinni heimsstyrjöld-
inni.
Sýningar á myndaflokknum
leiddu til mótmælaherferðar I
Bandarikjunum gegn nýnazisma,
en félagar i bandariska ný-
nazistaflokknum fóru einnig I
mótmælaaðgerðir, — gegn sýn-
ingu þáttanna.
Alþjóðleg samtök
Foringi nýnazistasamtakanna I
Bandarikjunum, Matt Koehl, er
sá maður sem samræmir aðgerð-
ir nýnazistasamtaka um heim
allan. Alitið er aö hann hafi ekki
einasta sambönd við slika glæpa-
flokka I Bretlandi, Frakklandi og
Belgfu, heldur sé einnig nátengd-
ur leynilegum nýnazistiskum
flokkum i Austur-Evrópu.
Höfuðstöðvar nýnazista I
Bandarikjunum eru úr Arlington i
Virginíuriki. Stöövarnar eru
vaktaðar allan sólarhringinn af
þungvopnuðum mönnum, sem
hafa grimma og stóra hunda sér
til aöstoðar.
Flokkurinn gefur út blaðiö
„White Power” „Hvitt Afl”. Ekki
alls fyrir löngu hljóðaði aðalfyrir-
sögn á forsiöu þannig: „Hitler lif-
ir.”
Það er ljóst aö fasisminn var
ekki kveðinn i kútinn I heims-
styrjöldinni siðari. Þetta illgresi
hefur á ný fest rætur meðal þjóöa
viða um heim. Vonandi hafa
hörmungar siðasta striös kennt
mönnum að vera á verði gagn-
vart sliku.
Hitler lifir, stendur á forsföu blaös nýnazistanna, White Power.
Blaöinu er dreift af fólki sem klæöist einkennisbúningum, sem i
flestu líkjast sumarbúningum bandariskra lögreglumanna, jafnvel
hjálmurinn er eins.
* :
Matt Koehi, leiðtogi nýnazista I USA kannar vörö fyrir utan höfuöstöövar fiokksins f Ariington. Haka- Þetta minnir allt óhuggulega á baráttuna I Þýzkalandi þriöja ára
krossfáninn blaktir viö hiiö stjörnufánans. tugsins, þegar glæpaflokkar Hitlers fóru um götur Þýzkalands.