Alþýðublaðið - 12.08.1978, Page 4

Alþýðublaðið - 12.08.1978, Page 4
alþýðu i n Útgefandi Alþýðuflokkurihn Ritstjórn og auglýsingadeitd Alþýðublaðsins er að Síðumúla 11, sími 81866. Laugardagur 12. ágúst 1978 Sighvatur Björgvinsson, alþingismaður: Hvaða erindi eigum við í stjórn? Rifrildið um braðabirgðaúrræöin i efnahagsmálun- um með sama gamla og forpokaða tungutakinu er deila um aukaatriði en ekki aðalatriði. Aðalatriðið er að forða því með breyttri efnahagsstefnu að sama ástandið skapist ávallt með reglulegu millibili. Aðal- atriðið er að gera þá kerfisbreytingu á íslensku samfélagi, sem gerir það að verkum, að fólk geti lifað i öryggi og velsæld í frjálsu og siðuðu samfélagi manna. Eina erindi Alþýðuf lokksins í stjórnarráðið er að fá sliku áorkað. Við væntum þar stuðnings Alþýðu- bandalagsins, en það skarst úr leik. Efnahagsmálin hafa um langan aldur verið meginvið- fangsefni islenskra stjórnmála. I kosningum eftir kosningar hefur vart um önnur mál verið talað. Svo einhliða áhersla hef- ur verið lögö á efnahagsmál í málflutningi stjórnmálamanna að halda mætti, að ekkert annað væri viðfangsefni þeirra né ætti að vera en eilif umfjöllun um efnahagsmálin i þrengsta skiln- ingi. Þannig hafa fleiri en ein og fleiri en tvær rikisstjórnir verið myndaöar svo til eingöngu um bráðabirgðaráöstafanir i efna- hagsmálum; um björgunarúr- ræði; og énn er það svo, að i blaöaskrifum um þær stjórnar- myndunartilraunir, sem gerðar hafa verið, hefur nær eingöngu verið fjallað um bráðabirgðaúr- ræði i efnahagsmálum meö sama hætti meira að segja með sömu orðum og gert hefur verið i 20 ár. Ekkert annað hefur komist aö i þessari umræðu en gamli söngurinn um „redding- ar” með færslu upp, færslu nið- ur — færslu út eða færslu suður, eins og Jónas Kristjánsson komst að orði i Dagblaðsleiöara fyrir skemmstu. Það er eins og blaöamenn og stjórnmálamenn hafi gert með sér einhvers kon- ar þegjandi samkomulag um, að stjórnmál skuli einskorðast við sömu gömlu tugguna um sömu gömlu bráðahirgðaúrræð- in i efnahagsmálum og að þess- ir aöilar veröi stöðugt að gang- ast undir próf um kunnáttu i fræöunum til þess að geta talist menn meö mönnum. Einfaldar staðreyndir. Efnahagsmál eru vissulega þýöingarmikill málaflokkur en þó siður en svo sá eini, sem kemur til álita við stjórnar- myndanir. Og sá þáttur efna- hagsmála, sem mesta umræðu hefur fengið — björgunarúrræði til þess að koma i veg fyrir yfir- vofandi stöðvun atvinnulifsins — er sennilega sá þýðingar- minnsti. Agreiningur er enginn um þá einföldu staðreynd, að útflutn- ingsatvinnuvegir landsmanna eru reknir með tapi og um þaö bil að stöövast. Við þvi eru ekki til nema ákveöin úrræði, sem menn þekkja frá fornu fari. Þau eru ekki fýsileg né aðlaðandi, en framhjá þeim verður engu að siður ekki gengiö. Hvort sem mönnum likar það betur eða ver eru þær bráðabirgðaráðstafan- ir, sem nú þarf að gera til þess að halda atvinnulifinu gang- andi, aðeins svar viö aðstæðum, sem þegar hafa skapast og eru þvi óhjákvæmilegar — nánast einvörðungu einfalt reiknings- dæmi. Að gera slikt reikningsdæmi að meginatriði stjórnmála- baráttu og frágangssök i stjórn- army ndunarviðræðum er barnalegt, stjórnmálamönnum til vansæmdar og móðgun við allt sæmilega vitiborið fólk. Að mynda rikisstjórn aðeins utan um slik óhjákvæmileg úrræði til bráðabirgða er jafn heimsku- legt þótt þaö hafi verið gert. Þá væri alveg eins hægt að mynda stjórn á grundvelli margföldun- ^rtöflunnar^öaáJtylgnHl^so^ Bóndinn hljóp ritstjórann af sér Hér sjáum við bóndann Stefán Jasonarsonog ritstjórann Jónas Kristjánsson i einviginu fræga. En eins og mönnum er ljóst, skor- aði Stefán Jónas á hólm. Skyldu þeir þreyta með sér hlaup eitt mikiö. Skoraöist Jónas ekki und- an áskorun Stefáns og mætti til leiks á iþróttavellinum á Selfossi kl. 11 árdegis I gær. Hlupu þeir tiu hringi í kringum völlinn en það er um fjórir km. 1 upphafi mátti ekki sjá hver myndi að lokum sigra. En þegar liöa tók á hlaupið gerð- ist Jónas allmjög svo þungstfgur á meðan sá gamli hélt áfram að skokka, án þess, að þvi er virtist, að hann blési úr nös. Lauk svo leiknum með þvi, að þegar Stefán kom i mark, átti Jónas um það bil hálfan hring eftir. Vonandi hafa þeir þó báðir getað mætt sprækir og hressir á Landbúnaðarsýning- una, sem opna átti strax eftir hádegi á Selfossi. Blaðamaður Alþýðublaðsins leit þar við og verður nánar greint frá sýning- unni siðar. fjöru. Ef Islendingar hyggjast ekki einir allra þjóða lýsa þvi yfir, að hagfræði sé ekki vis- indagrein og allar viðurkenndar staðreyndir þeirra fræða séu bull, þá ætti að vera einna auð- veldast að ná samkomulagi um þær óhjákvæmilegu aðgerðir, sem gera verður til þess að at- vinnulifið haldist gangandi. Það ; ætti aö vera siöasta en ekki fyrsta umræðuefnið flokka i milli viö stjórnarmyndanir nú. Um hitt ætti fyrr að ræöa, hvaða ráöum beita þurfi i efna- hagsmálunum, svo þessar efna- hagskreppur endurtaki sig ekki si og æ með reglulegu millibili, eins og raunin hefur á orðið. Hver er sú gerbreytta efna- hagsstefna, sem taka þarf upp á Islandi þegar hinar óhjákvæmi- legu bráöabirgöabjörgunarráð- stafanir hafa verið gerðar? Gengisfelling er ekki úrræði, heldur andsvar viðástandi, sem þegar hefur skapast. Sama máli gegnir um þær aörar leiðir, sem ræddar hafa verið — millifærslu og niðurfærslu. Hvor þeirra um sig er aðeins viöbragð viö orðn- um hlut. Hvernig eigum viö að koma i veg fyrir, aö þessar að- stæður skapist strax aftur? Það á að vera megininntakið i efna- hagsmálaumræðu flokkanna. Þannig umræður vildum við Alþýðuflokksmenn innleiöa i vinstri viðræöunum en fengum engan hljómgrunn. Alþýðu- bandalagið fékkst ekki til þess að leiða hugann lengra fram i timann, en til næstu áramóta. Pólitisk hugsun Lúðviks Jóseps- sonar hefur ávallt veriö og er enn i vertiðum. Kerf isbreytingar. Til hvers fer flokkur i rikis- stjórn? Hvaða erindi á t.d. Alþýðuflokkurinn i stjórnarráð- iö? Það eitt að þjóöin geti lifað frá hendinni til munnsins i efna- hagslegu tilliti? Það eitt að redda málunum frá mánuði til mánaöar — eða frá „vertið” til „vertiðar” samkvæmt pólitisku timatali Alþýðubandalagsins? Nei — við höfum ekkert i slika stjórn að gera. Alþýðuflokkurinn vann i sið- ustu kosningum umtalsverð- asta sigur, sem nokkur stjórn- málaflokkur hefur unniö i kosn- ingum á Islandi. Auðvitað vill hann fúslega fylgja þeim sigri eftir með þvi aö beita áhrifum sinum i rikisstjórn og axla þá ábyrgð, sem þvi fylgir. En þvi aðeins að það sé á grundvelli þeirrar stefnu, sem flokkurinn bar fram, barðist fyrir og hlaut fylgi viö. Ef er óhjákvæmilegt að gera þungbærar ráöstafanir, s.s. eins og að fella gengi eða hækka skatta, til þess að halda atvinnulifinu gangandi, þá gott og vel. Alþýöuflokkurinn flýr ekki staðreyndir og hleypur ekki af hólmi þótt svo sé. En hann krefst þess að sjálfsögðu að dæmið gangi upp. En Alþúðuflokkurinn fer ekki i rikisstjórn bara til þess að fella gengi eða hækka skatta. Hann fer ekki i rikisstjórn að- eins til þess aö gera óhjákvæmi- legar bráöabirgðaráöstafanir i efnahagsmálum. Hvað efna- hagsmálunum viövikur, þá fer Alþýöuflokkurinn ekki I rikis- stjórn nema þær breytingar verði geröar á stjórn efnahags- mála sem gera það að verkum, að slikar bráöabirgðabjörgun- arráðstafanir þurfi ekki aö verða jafn daglegt brauö og þær hafa verið. Fáist það ekki fram á flokkurinn ekkert érindi i stjórnarráðiö. M.ö.o.: Við flýjum ekki vand- ann. Viö hlaupumst ekki undan ábyrgö á lausn hans. En þvi að- eins á flokkurinn erindi i rikis- stjórn að upp verði tekin sú ger- breytta efnahagsstefna, sem hefur það i förmeð sér að þjóðin þarf ekki að standa andspænis sömu efnahagsvandamálunum með fárra mánaða millibili, eins og verið hefur. Þjóðfélagsumbætur. t hinum einskorðuöu efna- hagsumræðum hafa stjórn- málamenn nú um langt skeið vanrækt með öllu ýmsar þjóðfé- lagsumbætur, sem i hugum okkar Alþýðuflokksmanna skipta ekki minna máli en Sumarferðalag Verkakvennafélagsins Framsóknar verður laugardaginn 19. ágúst um Borgar- fjörð, heitur matur á Hótel Bifröst. Tilkynnið þátttöku til skrifstofunnar sem allra fyrst simar 26930 26931. Heimilt er að taka með sér gesti. Stjórnin Búðahreppur Laus störf Eftirtalin störf eru laus til umsóknar: Starf skrifstofumanns. Gjaldkera- og bók- haldsstörf eru aðalverkefni. Starf bygg- ingarfulltrúa Búðahrepps. Staða skóla- stjóra og kennara við Tónlistarskóla: Búðahrepps. Umsóknum skal skilað til skrifstofu Búðahrepps, Fáskrúðsfirði fyr- ir 23. ágúst 1978. Uppl. i sima 97-5220. Sveitarstjóri Búðahrepps lausn efnahagsmála. Hafa menn t.d. veitt því at- hygli, að um margra ára skeið hefur ekkert sérstaklega mark- vert gerst til aukins jafnréttis og frelsis þegnanna og ýmsar þjóðfélagsmeinsemdir hafa verið látnar aö mestu afskipta- lausar? Islensku þjóöfélagi hef- ur á ýmsan hátt hrakað hvað varðar ýmis mannleg verömæti og ýmsum mikilvægum stofn- unum samfélagsins og voldug- um félagssamtökum er hætta búin sökum stöðnunar, sem breyst hefur i afturför. Þessu viljum viö Alþýðu- flokksmenn breyta. Við viljum auka raunveru- legt lýðræði i samfélaginu og stofnunum þess með þvi að auka ábyrgð slikra stofnana og aðhald með þeim. Við viljum afnema tafar- laust þau lög, sem sett voru til ónýtingar á „sólstöðusamning- unum” og taka strax i kjölfarið upp viðræður við verkalýös-. hreyfinguna um hvernig tryggja megi kaupmátt launa og eölilegt launahlutfall. Við viljum styrkja lýðræðið I verkalýðshreyfingunni og fá henni jafnframt aukin itök og aukna ábyrgð um úrlausn mála svo voldugt afl sem verkalýðs- hreyfingin er i samfélaginu. Við viljum skera upp herör gegn verðbólguhákörlunum og aðstöðubröskurunum, svindli og svinarii, sem þrifst i skjóli úreltra starfaðferða og deyfðr- ar siðgæðiskenndar Við viljum segja óeðlilegum gróðasjónarmiðum strið á hendur með afnámi óeölilegra forréttinda og sérréttinda og pólitiskrar spillingar og teljum bæði rangt og óréttlátt að á sama tima og fjárhagsgeta þjóðarinnar til þess að standa straum af kostnaöi við læknis- hjálp og heilsugæslu er um það bil að þrjóta þá skuli einstakl- ingum haldast uppi að auögast með ævintýralegum hætti á þvi að selja sjúkum lyf og lækn- ingatæki. Lyfjaverslun á ekki að reka með stórábatasjónar- mið fyrir augum. Við álitum rangt, að meginþorri Islendinga sé likt og landlausir leiguliðar i sinu eigin landi á sama tima og fámennur hópur manna telur sig geta auðgað sig á kostnað samborg- ara sinna með þvi að selja þeim afnotarétt af náttúruauðlindum lslands. Orka fallvatna og há- Framhald á bls. 2 Viðræður halda áfram á mánudag 1 gær hófust viöræöur Sjálf- stæðisflokksins, Framsóknar- flokksins og Alþýöuflokksins um hugsanlega stjórnarmyndun þessara flokka. Viðræöufundurinn hófst klukkan 10 árdegis og stóð fram undir klukkan eitt. Akveöiö var, aönæsti viðræöufundur þessara aðila hæfist á mánudag klukkan 10. Þeir sem tóku þátt i þessum viðræðum voru: Benedikt Grön- dal og Kjartan Jóhannsson frá Alþýðuflokknu m, Ólafur Jóhannesson og Steingrimur Hermannsson frá Framsóknar- flokknum og Geir Hallgrimsson og Gunnar Thoroddsen frá Sjálf stæðisflokknum. Þingflokkur Alþýðuflokksins hélt fúndi bæði i gær og i fyrra- dag, þar sem fjallað var um stjórnmálaviðhorfið.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.