Alþýðublaðið - 14.09.1978, Síða 3
Fimmtudagur 14. september 1978
3
TILKYNNING
til söluskattsgreiðenda
Frá og með föstudeginum 15. þ.m. fellur
söluskattur niður af ýmsum tegundum
matvæla. Af þvi tilefni vill ráðuneytið
vekja athygli söluskattgreiðenda á nokkr-
um ákvæðum söluskattreglugerðar.
Undanþágur
Frá og með 15. þ.m. fellur niður söluskatt-
ur af öllum þeim matvörum sem ekki eru
þegar undanþegnar söluskatti öðrum en
gosdrykkjum, öli, sælgæti og súkkulaði-
kexi. Með matvörum teljast hvers konar
vörur sem ætlaðar eru til manneldis svo
sem kjöt og kjötvörur, mjólk og mjólkur-
afurðir, fiskur, ávextir, grænmeti og aðr-
ar nýjar og geymsluvarðar matvörur, sbr.
nánar 2. tl. 1. gr. rgl. nr. 316/1978.
Aðgreining viðskipta
Þeir aðilar sem selja bæði söluskattskyld-
ar og söluskattfrjálsar vörur skulu halda
hinum söluskattskyldu og söluskattfrjálsu
viðskiptum greinilega aðgreindum bæði i
bókhaldi sinu og á söluskattskýrslum.
Allir slikir aðilar skulu halda innkaupum
á skattskyldum og skattfrjálsum vörum
aðgreindum i bókhaldi sinu.
Bókhald og söluskattuppgjör smásölu-
verslana
Þeim smásöluverslunum sem ekki hafa
aðstöðu til að haida sölunni aðgreindri á
sölustigi er heimilt að skipta heildarsöl-
unni á hverju uppgjörstimabili eftir hlut-
falli innkaupa af söluskattskyldum vörum
annars vegar og söluskattfrjálsum vörum
hins vegar á sama timabili. útsöluverð
innkaupanna skal þá reiknað á öllum inn-
kaupum og skal heildarsölunni siðan skipt
i sömu hiutföllum og nemur hlutfallinu
milli útsöluverðs innkaupanna i hvorum
flokki fyrir sig. Ekki skal tekið tillit til
birgða við upphaf eða lok timabils.
Söluskattskil fyrir septembermánuð 1978
Þeir aðilar sem selja vörur, sem eru und-
anþegnar söluskatti, skulu skila tveimur
skýrslum fyrir septembermánuð. Skal
önnur skýrslan varða timabilið 1.-14.
september en hin timabilið 15.-30. septem-
ber. Þeir smásöluaðilar, sem nota heimild
til skiptingar á heildarveltu eftir útsölu-
verði innkaupa skulu gera söluskattskil
fyrir 1. til 14. september eftir eldri regl-
um, þannig að frá raunverulegri sölu á þvi
timabili skal draga innkaup söluskatt-
frjálsra vara á timabilinu að viðbættri
álagningu. Sölu á timabilinu 15.-30.
september skal skipt i hlutfalli við skipt-
ingu innkaupa milli söluskattskyldra og
söluskattfrjálsra vara á þessu timabili.
Söluskatt fyrir september skal þvi gera
upp án tillits til birgða við upphaf eða lok
timabilanna.
Sérstök athygli skal vakin á þvi að engar
birgðatalningar þurfa að fara fram vegna
söluskattskila fyrir september. Varðandi
undanþágur frá söluskattskyldu, bókhald
og söluskattskil vísast að öðru leyti til
reglugerðar nr. 169/1970 um söluskatt með
áorðnum breytingum, sbr. sérstaklega
reglugerð nr. 316 8. september 1978.
Fjármálaráðuneytið, 11. september 1978
Jafnaðarmenn
Gerizt áskrifendur að
málgagni ykkar -
Alþýðublaðinu, strax í dag
Ritstjórn
Alþýðu-
blaðsins
er í
Síðumúla
11 -
Sími
8-18-66
Húsvörður óskast
Húsvörður óskast fyrir 30 ibúðir aldraðra i
Lönguhlið 3. Aðeins umgengnisgott og
reglusamt fólk kemur til greina. Húsvörð-
ur annast eða hefur umsjón með ræsting-
um, og aðstoðar ibúa hússins eftir ástæð-
um.
Litil 2 herbergja ibúð fylgir starfinu.
Umsóknir er greini aldur, búsetu og fyrri
störf sendist húsnæðisfulltrúa, sem einnig
gefur allar nánari upplýsingar fyrir 20.
september n.k.
Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
W Vonarstræti 4 sími 25500