Alþýðublaðið - 20.09.1978, Side 3
AAiðvikudagur 20. september 1978
3
Hver er réttur leðgjenda?
#%■■■■ m ■ ■ ■ ■ ■ ■■ _ ■ ■■ f» ■ r ■ ■
Gölluð leigjendalöggjöf skerðir rétt
leigjenda segja Leigjendasamtökin
Alþýðublaðinu hefur
borist svokallað Minnis-
blað fyrir leigjendur frá
Leigjendasamtökunum.
Sökum þess slæma
ástands sem rikir i mál-
efnum leigjenda þykir -
blaðinu rétt að birta
þessa tilkynningu Leigj-
endasamtakanna:
Fjölmargir leigjendur hafa
leitað ráöa hjá Leigjendasamtök-
unum frá stofnun þeirra I vor. t
þvi skyni aö gefa sem flestum
leigjendum ibúðarhúsnæöis til
kynna réttarstööu þeirra I dag,
leyfir stjórn Leigjendasamtak-
annaséraö senda öllum dagblöö-
um eftirfarandi samantekt úr bók
Björns Þ. Guömundssonar, „Lög-
bókin þin”, sem gefin var út af
Erni og örlygi hf. áriö 1973.
Húsaleiga er meðal
mikilvægari leigusamn-
inga.
Leigusala (þeas. eiganda eða
umboösmanni hans) er skylt aö
láta leigutaka leiguibúö i té i
leigufæru ástandi á tilskildum
tima. Honum er ogskylt aö halda
ibúöinni i leigufæru ástandi allan
leigutimann, nema hún eyöilegg-
ist af óviðráöanlegum ástæöum,
s.s. jaröskjálfta, snjóflóöi eöa
bruna. Verulegar vanefndir
heimila leigutaka riftun og getur
leigutaki þá flutt úr ibúöinni og
þarf ekki aö greiöa leigu, nema
fyrir þann tima, sem hann hefur
búið i ibúöinni. Leigutaki getur
og, ef hann kýs þaö heldur, gert
eöa látiö gera viö galla á ibúðinni
á kostnaö leigusala. Getur hann
siöan dregiö kostnaðinn frá húsa-
leigunni. Um ástand ibúöar er
öruggast aö fá mat dómkvaddra
manna, ef um það veröur ágrein-
ingur.
Sá er vill fá framkvæmt mat
(t.d. vegna galla á húsnæöinu)
snýr sér til viökomandi héraös-
dómara (i Reykjavik til borgar-
dómaraembættisins) meö beiöni
um dómkvaðningu matsmanna.
Leigjanda ber aö fara vel með
húsnæöiö. Vanefndir i þvi efni
geta varöað riftun leigusamnings
og útburði úr húsnæöinu, en leigu-
sali getur þó jafnframt krafiö
leigutaka um leigu fyrir þaö, sem
er eftir leigutimabilsins, nema
honum bjóöist annar tækur leigj-
andi. Sé samningi þannig rift fyr-
ir vanefndleigjanda, er leigan öll
fallin i gjalddaga.
Þegar hús eöa ibúö er tekin á
leigu, er venja, aö leigjandinn
megi framlengja einstök her-
bergi, nema þaö sé sérstaklega
bannaö i hUsaleigusamningi.
Framleigutaki nýtur þá sins rétt-
ar aðeins i skjóli réttar þess, sem
hefur ibUðina eöa húsiö á leigu.
Veröi þvi t.d. aðalleigjandi borinn
út vegna vanskila, veröur fram-
leigutaki einnig aö vikja, ef hús-
eigandi krefst. Um leigu ein-
stakra herbergja gilda annars aö
öllu verulegu sömu reglur og um
ibúöaleigu.
Húsaleigugjald getur veriö
miöaö viö allt leigutimabil eöa
styttri tima, t.d. mánuö, eins og
.-,tiöaster.Hámarkþesser bundiö
verðstöðvunarlögum (bráöa-
birgöalög frá 9. september s.l.).
Stundum er áskiliö, að húsaleigu-
gjald sé greitt fyrirfram, en sé
ekki sérstaklega um þaö samiö,
munlitiösvoá,aöupphæöina eigi
aö greiða eftir á. Leigjandi á aö
færa leigusala leigugjaldiö, nema
ööru visi sé um samiö. Vanskil
leigjanda varöa riftun leigu-
samningsog útburöi, séu vanskil-
in veruleg. Skatta og skyldur af
hinu leigða húsnæöi er leigjanda
ekki skylt aö greiöa, nema svo sé
um samiö.
Húsaleigusamningur. Um leigu
húsnæöis er tryggast aö gera
skriflegan samning um öll leigu-
kjör. Ekki er þörf á aö þinglýsa
venjulegum húsaleigusamningi,
enséuþeiraö einhverju leyti frá-
brugönir þvi, sem venjulegt er,
t.d. óuppsegjanlegir af hálfu hús-
eiganda, leigutimilangur o.s.frv.,
er öruggara aö láta þinglýsa
samningi. Þó aö eigendaskipti
veröi að húseign, heldur húsa
leigusamningur gildi sinu. Leigj-
anda veröur ekki vikiö úr húsæði
á leigutimanvrm, meöan hann
stendur i skilum og fer sæmilega
meö húsnæöiö, enda þótt húsið sé
selt eöa leigusali veröi gjald-
þrota.
Húsaleigutimi. Leigutimi ibúöa
fer eftir húsaleigusamningi eöa
venju. Uppsagnarfrestur leigu-
samninga aö ibúö er viöast hvar
skv. venju 3 mánuöir miöaö við 1.
október og 14. mai. Uppsagnar-
frestur leigusamninga um einstök
herbergi er þó almennt talinn
styttri, hálfur mánuöur eöa einn
mánuur. (Hér lýkur ivitnun i
„Lögbókina þina”)
Húsaleigusamningur Húseig-
endafélags Reykjavíkur. 1 nýrri
kennslubóksem lesin er i Háskól-
anum, segir Páll Sigurðsson
kennari i Lagadeild: ,,A vegum
Húseigendafélags Reykjavikur
hefur veriö samiö staölað form
fyrir notkun húsaleigusamninga,
og er notkun þess almenn hér i
borg. Er hér aö öliu leyti um ein-
hliða skilmála aö ræöa en þó er
iöulega vikiö frá eftir atvikum.
Skilmálarnir miöast mjög viö
hagsmuni leigusala og er þar
m.a. kveðið á um rétt leigusala
(eöaeigandans) til aö vikja leigu-
taka fyrirvaralaust úr hinu leigöa
húsnæöi, ef leigutaki efnir eigi
ákvæöi samningsins”.
Inýlegublaöaviðtali um þennan
samning segir Ragnar Aöal-
steinsson hæstaréttarlögmaöur
m.a.: „Þetta er staölaöur samn-
ingur og svo einhliöa saminn, aö
dómstólar mundu aldrei beita
ýmsum ákvæöum samningsins
eins og þau eru þar oröuö. Ein-
hliöa, staölaöir samningar,
samdir af sterkari aöila i samn-
ingssambandi, eru aö jafnaöi
túlkaðir þröngt af dómstólum og
gagnaöila i hag. Samningsform
Húseigendafélagsins gefur leigj-
andanum enga möguleika á að
semja, hann veröur annaö hvort
að skrifa undir eöa ekki”.
„Almenna reglan er sú, að
leigutaki ber ábyrgö á þvi tjóni
sem hann veldur, en viöhaldið er
á kostnaö leigusala (eigandans).
í samningseyöublaöi Húseig-
endafélagsins er gengiö of langt,
þvi ekki er hægt aö ætlast til aö
leigutakar sjái um viöhald á hús-
eign, sem getur numiö miklum
fjárhæöum”.
„1 fjölbýlishúsum er gert ráö
fyrir i samningsformi Húseig-
endafélagsins aö leigutaki greiöi
fyrir eigin reikning hlut ibúöar-
innar i sameiginlegum kostnaði
húseignarinnar. I framkvæmd
mundi þetta þýöa, aö þar sem
lögö eru á húsgjöld sem taka ekki
aöeins til rekstrar heldur lika til
viðhalds á sameign og jafnvel til
framkvæmdahluta á sameign,
þyrfti leigutaki aö borga fyrir
það. Þetta er ósanngjarnt og
stæöist ekki f'yrir dómi”.
Veruleg vanskil af hálfu leigj-
andans eru i samningsforminu of
þröngt túlkuð og of þungar kvaöir
lagöar á leigjandann ef hann
kæmist i vanskil. önnur ákvæöi
eru bersýnilega ósanngjörn, og
hafa dómstólar beina heimild til
bess samkvæmt lögum, aö vikja
Framhald á bls. 2l
Iðntæknistofnun
íslands
mun gangast fyrir námskeiði fyrir neta-
gerðarmenn dagana 5. og 6. október n.k.
Kynnt verða meðal annars efni til neta-
gerðar, uppsetning veiðafæra og prófanir
á netum. Þá verða og kynntir nýir
islenskir staðlar um fiskinet og veiðar-
færi.
Þeir sem áhuga hafa tilkynni þátttöku til
Iðntæknistofnunar Islands, Skipholti 37,
simi 81533.
Laus staða
Dósentsstaöa I iifefnafræöi viö verkfræöi- og raunvisinda-
deild Háskóla Islands er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um ritsmiöar og
rannsóknir svo og námsferil og störf skulu sendar
menntamálaráöuneytinu Hverfisgötu 6, Reykjavik fyrir
16. október næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið
14. september 1978
Vantar fagfólk og
aðstoðarfólk
við kjötvinnslustörf og kjötmóttöku sem
fyrst. Hafið samband við framleiðslu-
stjóra i sima 19750.
Búrfell h.f.
Mulningsvél til sölu
Universal CSE 1024, ásamt sambyggðum
mötunar og hörpunarbúnaði. Upplýsingar
hjá véladeild Vegagerðar rikisins á
Reyðarfirði og i Reykjavik.
Skrifleg tilboð berist skrifstofu vorri fyrir
kl. 11:00 f.h. 3. okt 1978, merkt: ÍJtboð nr.
2432/78.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
16. okt.—4. nóv.
Fararstjóri: Kristin Guðmundsdóttir innanhússarkitekt.
Ferðaáætlun:
Flogið London — Hong-Kong og til baka sömu leið
Dvalist i Hong-Kong einn dag á útleið,borgin skoðuð
Farið með járnbraut Hong-Kong — Kwang — Chow (Kanton)
ferðast um Kina til 1. nóv. komið m.a. til Peking — Shanghai —
TSINGTAO — TSIAN
Dvalist i London 2 daga á heimleið.
örfá sæti laus, ferðinni lokað næstu helgi.
€SÞ
I Ferdaskrilslo/a
KJARTANS
HELGASONAR
I Skólavöröustig 13A Fteyk/avik simi 29211