Alþýðublaðið - 19.10.1978, Blaðsíða 4
alþýöu-
I n fu'Tl'
Otgefandi Alþýðuf lokkurinn
Ritstjórn og auglýsingadeild Alþýðublaðsins er að Siðu-
múla 11, sími 81866. *
Fimmtudagur 19. október 1978
Af hverju eruð þið ailtaf að tala
um Kröflu?
,,Af hverju eruð þið
alltaf að tala um
Kröflu”. Svo komst Jón
Sólnes að orði á liðnum
vetri i skemmtilegum
spurningaþætti i sjón-
varpi. Þá var Krafla
mjög á dagskrá og
kosningar framundan.
Nú eru kosningar ekki í
sjónmáli. Vilmundur og
Sóines báðir i stjórnar-
andstöðu, enda segir fátt
af Kröflu.
Land ris og land hnigur þar
nyrðra, og i Kelduhverfi standa
menn að fiski, þar sem áöur voru
grænar grundir. En almenningur
fær litið um það að vita, hvort nú
streymir birta og ylur um land
vort fyrir tilverkan Kröfiu, eða
hvort vélunum japönsku sé snúið
með aðkeyptri orku eins og
stundum áöur. Heldur ekki hvort
holur þar blási eöa hafi blásið út.
Nýlega hafði þó fréttamaöur
sjónvarps það aö segja, að jarð-
visindamenn heföu með sinum
stöðugu mælingum i alltsumar og
visindalegum útreikningum
komizt aö þeirriniðurstööu, aö til
tiöinda munidragaviðKröflu nú i
þessari viku eða þá einhvern
timann seinna. Og meö sömu
visindalegu nákvæmninni hafa
þeir einnig fundið það út, að
kvikuhlaupið það væntanlega,
muni liklega stefna til suöurs eða
þó jafnvel til norðurs. Þó gæti það
lika átt það til að spýtast beint i
loft upp.
Nýr Kröflumálaráöherra er nú
setztur að völdum. Hjörleifur,
kominn af Austurlandi, þar sem
rafmagnsskortur hefur á undan-
förnum árum hrjáð menn mest. 1
viðtali viö fjölmiöla, nýkominn i
stólinn, lét hann hafa það eftir
sér, aö hann mundi halda áfram
leiknum við Kröflu (enda með
ellefu holur i forgjöf). Væri næst
fyrir hendi, að reyna að endur-
vekja dauðar holur og siöan bora
nýjar.
Skilja mátti á honum, að
brátt yrðu völd öll tekin úr
höndum Arnalds og Sólness og
öðrum fengin i hendur.
Fyrst skyldi reynt við holu nr.
11. Fékk Hjörleifur þá léðan
tappa einn, geysimikinn af áii
gerðan, hjá Ragnari f Straumsvik
fyrir vináttusakir. Þann tappa lét
hann reka það djúpt i jörðu niöur,
að eigi næöu Mývetningar upp að
sprengja sem stifluna foröum. En
er bora skyldi tappann úr aftur,
reyndist hann harðari undir tönn
en lofað hafði verið og lét sig
hvergi. Brutu bormenn Hjörleifs
á honum allmargar borkrónur, en
engin nýlunda telst þó krónur fari
fyrir lítið þarnyrðra. En sumir
geta sér þess til, að þarna hafi
Ragnar leikið á Hjörleif, enda
taliö mengun lofts næga, þó ekki
væri hleypt upp eitruðum gufum
úr iðrum jarðar. Og er nú ál-
tappinn sá hinn mikli enn fastur i
jörðu niðri, og hola ellefu blæs
litt.
En nú skal tekiö til við holu
nr. 12 og er stefnan tekin til
austurs, og telja sumir, að það sé
þó eitthvað i áttina. Ekkert hefur
verið áætlað um, hve mörgum
megawöttum boran sú hin tólfta
muni blása, en slumpaö hefur
verið á að hún muni kosta
180.000.000 minikrónur aö
óbreyttu heimsmarkaðsverði á
oliu og bilaleigutaxta á Akureyri.
Þó að kosningar séu nú ekki á
næsta leiti svo vitað sé, og þó að
nýr Kröflumálaráöherra sé setzt-
ur við stýrið, þá finnst mér og
kannske fleirum, sem skattana
greiöum og hærra verð á raf-
magni en annars staðar þekkist á
Norðurlöndum, að við þyrftum að
fá að vita örlitið meira um, hvað
er að gerast og hvað á að gera i
jafn dýrum framkvæmdum. Við
sættum okkur ekki endalaust við
þá afsökun, að áUka mistök við
borun hafi lika átt sér stað ein-
hvers statarvestur i Ameriku.
Og dýr verður leikurinn við
Kröflu, þegar völlurinn sá verður
kominn með 36 holur i hring.
verkefni
— hjá Alþýðuflokksfélagi Reykja-
víkur. Fyrsti stjórnarfundurinn
var haldinn s.l. þriðjudag
Landssamband versl-
unarmanna hafnar
tilmælum ASÍ
S.l. þriðjudagskvöld
kom nýkjörin stjórn
Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur saman til
fyrsta fundar. Á þessum
fyrsta fundi skipti
stjórnin með sér verk-
um, og ræddi starfið
framundan.
Mörg verkefni biða Alþýðu-
flokksfélags Reykjavikur nú á
næstunni. 1 þvi sambandi má
Mikið kapp er nú
hlaupið i þá Alþýðu-
bandalagsmenn. Þar
sem nú virðist liklegt að
þingmeirihluti sé fyrir
18 ára kosningaaldri,
hafa þeir lágt fram
frumvarp þess efnis i
efri deild Alþingis, um
viku eftir að samskonar
frumvarp var lagt fram
af Alþýðuflokksmönnum
i neðri deild.
nefna að nú er verið að undirbúa
af fuílum krafti kjör fulltrúa á
flokksþing Alþýðuflokksins sem
hefst i næsta mánuði. Auk þess
eru fyrirhuguð mikil fundarhöld
með ýmsum forystumönnum Al-
þýðuflokksins, svo sem ráöherr-
um, þingmönnum og borgar-
fulltrúum.
Þess má geta að mikill hugur er
i stjóm Alþýðuflokksfélagsins,
þvi að á siðustu tveim mánuðum
hafa gengið í félagið um tvö
hundruð manns.
Eins og fyrr sagði skipti stjórn-
in með sér verkum á þessum
Alþýðuflokksmenn hafa um
árabil barist manna mest fyrir
þvi, að kosningaaldur yrði lækk-
aður f 18. ár. Nú þegar þetta tak-
mark Alþýðuflokksins virðist i
sjónmáli rjúka þeir Alþýðu-
bandalagsmenntil og vilja sleikja
rjómann ofan af kökunni.
Að sjálfsögðu er það öilum
fagnaöarefni að Alþýðubandalag-
ið vilji leggja þessu góöa máli lið,
en hálf kjánalegt er að koma
fram meö alveg eins frumvarp og
lagt hefur verið fram.
Svona hátterni tiðkast aö visu
nokkuö hjá unglingum á gelgju-
skeiðinu, sem i lambsháttum
sinum gera sér oft leik að þvi að
fyrsta fúndi sínum, og varð
verkaskiptingin þessi:
Emelia Samúelsdóttir er for-
maður, en hún var kjörin sér-
staklega á aðalfundi félagsins
sem kunnugt er. Varaformaöur
er Björn Friðfinnsson, gjaldkeri
Jón Ivarsson, ritari Guölaugur
Tryggvi Karlsson, fjármálaritari
Hörður óskarsson, spjaldskrár-
ritari Skjöldur Þorgrimsson og
meðstjórnandi Sjöfn Sigur
Sigurbjörnsdóttir. Jóhannes
Guðmundsson veröur formaður
trúnaðarráðs.
1 varastjórn eru þau ómar
Morthens og Sonja Berg. A þess-
um fyrsta fundi stjórnar Alþýðu-
flokksfélags Reykjavikur var
einnig kosið i stjórnir trúnaðar-
ráðs, ferðanefndar, launþegaráðs
og i útgáfustjórn félagsblaðs Al-
þýðuflokksfélags Reykjavikur.
—L
stinga undan kunningjum sinum
eins og það er kallaö, þegar ein-
hver tekur vin eða vinstúlku frá
öðrum.
Af flestum eldist þetta, en þeir
sem slika iðju stunda fram á full-
orðins ár, hafa löngum verið kaii-
aðir hjónadjöflar.
Ekki er laust við að þetta minni
lika á snobbarann, sem þarf að
kaupa sér nýjan bfl i hvert sinn
sem nágranni hans gerir það.
Ætla mætti að snobb væri hlutur,
sem sist bæri á hjá Alþýöubanda-
laginu. En kannski koma þar nýir
siöir með nýjum mönnum.
— L.
Alþýðublaðinu hefur
borist ályktun frá sam-
bandsstjórnarfundi Lands-
sambands fslenskra versl-
unarmanna, sem haldinn
var 14. október síðastlið-
inn. I Landssambandinu er
21 félag og auk þess 2
deildir verslunar- og skrif-
stofufólks i almennum
verkalýðsfélögum en borg-
andi félagsmenn eru um
8.000. Langstærsta aðildar-
félagið er Verslunar-
mannafélag Reykjavíkur.
i ályktun þess félags frá i
siðustu viku er hótað að
gripið verði til „frekari að-
gerða" ef kjaramálum
verslunarfólks hefur ekki
þokað verulega i sam-
komulagsátt fyrir 9.
nóvember næstkomandi,
en í ályktun sambands-
stjórnar Landssambands-
ins sem hér fer á eftir,
kveður við nokkuð annan
tón og hófsamari. Þó er
þar eins og i ályktun Versl-
unarmannafélags Reykja-
vikur tekið fram, að ekki
skuli gengið aö tilmælum
Alþýðusambandsins um að
'horfið verði frá uppsögn
kjarasamninga.
Sambandsstjórnarfundur
Landssambands islenzkra verzl-
unarmanna haldinn 14. óktóber
1978 ályktar:
A 11. þingi L.l.V. þann 4.-6.
nóv. 1977 var samþykkt að leita
þá þegar eftir leiðréttingum á
launatöxtum verzlunar- og skrif-
stofufólks til samræmis við ný-
gerða samninga við opinbera
starfsmenn, en þeir samningar
voru grundvallaðir á könnun
Hagstofu Islands á raunveruleg-
um launagreiðslum til verzlunar-
og skrifstofufólks hjá ýmsum
fyrirtækjum.
Fljótt eftir þingið var leitað
eftir viðræðum um málið við
vinnuveitendur, en undirtektir
voru afar dræmar, enda voru
samningar bundnir, þar til kaup-
gjaldsákvæðum þeirra var sagt
upp eftir setningu „Febrúarlag-
anna”.
Jafnframt var gengið eftir
efndum á samkomulagi við
vinnuveitendur, sem gert var
samhliða kjarasamningum vorið
1977, um endurskoðun á skipan
verzlunar- og skrifstofufólks i
launaflokka.
Siðan hafa aöilar ræðst við og
er þess að vænta að skriður sé um
það bil að komast á málin.
Þvi skorar sambandsstjórnin á •
öll aðildarfélög sambandsins að
hverfa ekki frá uppsögn kaup-
gjaldsákvæða samninganna, en
búa sig heldur undir að standa
fast að framgangi þess réttlætis-
máls, að verzlunar- og skrifstofu-
fólk fái með samningum viður-
kennd hliðstæð kjör og aðrir, sem
sambærileg störf vinna.
Kommar reyna að stinga undan krötum
Hafa líka lagt fram frumvarp um 18 ára kosningarétt, viku á eftir krötum