Alþýðublaðið - 14.11.1978, Blaðsíða 4
alþýðu-
IHhT'TF
útgefandi Aiþýðuflokkurinn
Ritstjórn og auglýsingadeild Alþýðublaðsins er að Síðu-
múla 11, sími 81866. •
Þriðjudagur 14. nóvember 1978,.
38. þing Alþýduflokksins:
Að kosningum loknum
38. þing Alþýðuf lokksins
færir öllum þeim, sem
unnu með Alþýðuf lokknum
í siðustu kosningum og
veittu honum liðsinni til að
vinna mesta kosninga-
sigur, sem flokkurinn
hefur unnið i allri sögu
sinni, einlægar þakkir fyr-
ir óeigingjörn störf og öfl-
ugan stuðning.
BæBi i kosningum til sveita-
stjórna og Alþingis vottuöu
islenskir ITJðséndur AlþýBu-
flokknum traust i þeim mæli, aB
aldrei hefur jafnaBarstefnan átt
meira fylgi aB fagna i kosningum.
Þessi kosningaúrslit leggja
AlþýBuflokknum mikla ábyrgB á
herBar og skyldur, sem flokk-
urinn mun leggja sig fram um aB
gegna eins vel og samviskusam-
lega og honum er framast unnt.
Til þess starfs heitir hann á full-
tingi og stuBning þeirra fjöl-
mörgu, sem gerBu sigur AlþýBu-
flokksins og jafnaBarstefnunnar
svo glæsilegan, sem raun ber
vitni.
38.. þing AlþýBuflokksins er
þeirrar skoBunar, aB i kosningum
á sl. vori hafi launastéttirnar sýnt
svo ekki er um villst, aB þær
kröfBust þess, aB stjórnmála-
flokkar þeir, sem kenna sig við
verkalýBshreyfinguna, sliBruBu
sverB ágreinings og tækju
höndum saman um stjórn lands-
ins meB nánu samstarfi viB
verkalýBshreyfinguna. Þess
vegna fagnar þingiB aB Alþýðu-
flokkur og Alþýðubandalag náðu
samkomulagi um samvinnu og
geröu samstarfssamning við Fra-
sóknarflokkinn um stjórn
landsins.
38. þing Alþýðuflokksins bindur
miklar vonir við rikisstjórn þess-
ara þriggja flokka og óskar henni
allra heilla. Jafnframt leggur
þingið sérstaka áherslu á, að
flokkarnir vinni ötullega að þvi að
koma á föstu og varanlegu sam-
starfi við samtök launafólks i
landinu með kjarasáttmála að
markmiði og að I stefnumörkun
stjórnarinnar i efnahagsmálum
verði algerlega snúið við blaðinu
frá starfsháttum fyrri stjórna og
tekin upp ný vinnubrögö í þeim
anda, sem felst i baráttu Alþýðu-
flokksins og tillögum um ger-
breytta efnahagsstefnu frá þvl i
kosningunum i vor. Mestu máli
skiptir að árangur náist i
aögerðum gegn verðbólgu og slikt
mun ekki takast nema rikis-
stjórninni auðnist i samvinnu við
verkalýðshreyfinguna að ná þeim
markmiBum I vlsitölumálum,
fjárfestingarmálum, atvinnu-
málum, skattamálum og vaxta-
málum, og I öörum þáttum efna-
hagsmála, sem ráö er fyrir gert i
þeirri gerbreyttu efnahagsstefnu,
sem AlþýBuflokkurinn bar fram I
kosningunum i vor og kjósendur
veittu mjög öflugan stuBning.
Alit alsherjarnefndar
I. 38. þing Alþýðuf lokksins
lýsir þakklæti sínu til
þeirra tæplega 30.000 kjós-
enda, sem greiddu flokkn-
um atkvæði í sveitastjórna-
og alþingiskosningum á
síðasta vori.
FlokksþingiB lýsir þeim ein-
dregna ásetningi, aö flokkurinn
starfi áfram i þeim anda, sem
kosningabaráttan var háö, og
berjist á öllum sviöum fyrir þeim
þjóöfélagsumbótum, sem hann
hefur lagt áherslu á.
Flokksþingiö minnir á þá stað-
reynd að þrátt fyrir hina miklu
sigra veröur flokkurinn að hafa
samstarf við aöra flokka til aö ná
meirihlutafylgi viö þau mál, sem
hann leggur áherslu á hverju
sinni.
II. FlokksþingiB bendir á, aö i
samstarfsyfirlýsingu núverandi
rikisstjórnar séu fjölmörg af
baráttumálum jafnaöarmanna,
og nú velti allt á þvi, hversu rikis-
stjórninni tekst um framkvæmd
þeirra.
Þingið ieggur megináherslu á,
að rikisstjórnin noti möguleika
þá, sem hún hefur meö nánu sam-
starfi við samtök launþega —
kjarasáttmála — til að ná veru-
legum árangri I baráttunni gegn
óðaverðbólgu, en tryggja jafn-
framt kaupmátt aimennra
launþega. Nauösynlegt er, aö
reka rikissjóö meö verulegum
afgangi, greiða niður skuldir hans
við Seðlabankann, endurskipu-
leggja fjárfestingarmál, beita
raunvöxtum og almennu aðhaldi i
öllum rekstri hins opinbera jafnt
sem umsvifum annarra aöila.
Sllk stefna er þjóðarnauðsyn,
en hún veröur vart framkvæmd
án þess að allmiklar fórnir verði
lagðar á einstaklinga og fyrir-
tæki. Afla verður rikissjóöi nauð-
synlegra tekna, en Aiþýðu-
flokkurinn lýsir fullkominni and-
stöðu við það ákvæði fjárlaga-
frumvarpsins, sem hækkar hlut-
fallslega tekjuskatta á lamennum
launþegum. Flokkurinn telur, aö
stefna eigi að afnámi tekjuskatts,
nemá á hátekjur.
III. Flokksþingið fagnar þvi, aö
stefnuyfirlýsing rikisstjórnar-
innar gefur fyrirheit um að beina
landbúnaöi inn á þær brautir aB
framleiöa fyrst og fremst fyrir
innanlandsmarkafi, og lofar
endurskoöun á þeirri land-
búnaðarstefnu, sem rikt hefur og
er aö þrotum komin. Þingiö
leggur áherslu á, að framkvæmd
þessarar stefnubreytingar takist,
bændaséttinni og þjóðinni allri til
heilla, og i anda gagnkvæms
skilnings milli bænda og
neytenda.
IV. 38. flokksþing Alþýðu-
flokksins minnir á, að núverandi
rikisstjórn á að vera i senn
aðhaldsstjórn i fjárhags- og verð-
bólgumálum, og framfarastjórn.
Meðal fjölmargra umbótamála,
sem hrinda verður i framkvæmd,
minnir þingiB á húsnæBis- og
tryggingarmál, stööu aldraöra og
öryrkja, umbætur i dómsmálum,
atvinnulýöræöi og starfs-
umhverfi, þjóöareign djúphita og
fallvatna svo og umbætur á
stjórnarkerfinu I heild meö nýrri
stjórnarskrá.
Flokksþingiö minnir jafnframt
á, aö I samstarfsyfirlýsingu
stjórnarflokkanna eru fyrirheit
um baráttu gegn spillingu og mis-
rétti, gegn skatssvikum, fjár-
málaafbrotum og öörum slikum
meinsemdum. Þessi markmiö
rikisstjórnarinnar eiga rót sina
aö rekja til stefnu Alþýðu-
flokksins, sem leggur megin-
áherslu á aö viB þau verði staðiö.
Ef þjóðin á aö bera byröar vegna
erfiðleika I efnahagsmálum, er
algert skilyröi, að misrétti eins og
stórfelld skattsvik sé upprætt.
V. Flokksþingið harmar, hversu
litill árangur hefur náðst I slökun
á spennu og afvopnun i heims-
málum. Þess vegna telur þingið
óhjákvæmilegt að Alþýöu-
flokkurinn fylgi óbreyttri stefnu i
utanrikis- og öryggismálum.
Flokksþingið lýsir stuðningi við
frelsisbaráttu allra kúgaðra
þjóða, stuðningi við hina 30 ára
mannréttindayfirlýsingu
Sameinuðu þjóðanna, svo og alla
þá, sem berjast fyrir mann-
réttindum.
Ályktun... 1
skapnum og hallalaus rlkis-
rekstur er nauösynlegur þáttur I
þeirri baráttu við veröbólguna
sem Alþýöufiokkurinn vill
standa aö. Ýmsum fjárfrekum
framkvæmdum t.d. virkjunar-
málum veröur aö fresta um
sinn. Prentun seðla, sem engin
verömæti standa bak viö, hlýtur
aö valda verðbólgu.
38. þing Alþýðuflokksins, telur
að sigur flokksins i siðustu kosn-
ingum feh i sér kröfu um að
horfiö verði af braut veröbólgu
og sífelldra bráðabirgöaráð-
stafana til boöaðrar frambúöar-
stefnu flokksins. Þess vegna
leggur flokksþingiö fyrir þing-
flokk Alþýðuflokksinsaö nýta til
þrautar þingstyrk sinn og aöild
aö rikisstjórn til þess að koma
fram gerbreyttri efnahags-
stefnu, þ.á.m. nauðsynlegum
breytingum á fyrirliggjandi
fjárlagafrumvarpi.
Þingiö ályktar aö stjórnar-
þátttakan sé undir þvi komin að
árangur náist um framgang
þeirrar efnahagsstefnu sem
Alþýðuflokkurinn mótaði fyrir
kosningar og itrekar I þessari
ályktun.
Skólaheimilið
í Breiðvík
Óskum að ráða bústjóra að heimilinu er
vinni að búskap.kennslu og öðrum heimilis
og uppeldisstörfum.
Upplýsingar gefur starfsfólk skólahejmilisins simi um
Patreksfjörð.
Forstöðumaður.
Tilboð óskast
i nokkrar fólksbifreiðar og Pick-Up bifreið
ennfremur nokkrar ógangfærar bifreiðar
er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðju-
daginn 14. nóvember kl. 12-3.
Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl.
5.
SALA VARNARUÐSEIGNA
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á
þvi, að gjalddagi söluskatts fyrir október
mánuð er 15. nóvember. Ber þá að skila
skattinum til innheimtumanna rikissjóðs
ásamt söluskattsskýrslu i þririti.
Fjármálaráðuneytið
10. nóvember 1978.
Tilkynning til —
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á
þvi, að 25% dráttarvextir falla á launa-
skatt fyrir 3. ársfjórðung 1978 sé hann
ekki greiddur i siðasta lagi 15. nóvember.
Fjármálaráðuneytið.
Dagheimili Siglu-
\7 fjarðarkaupstaðar
óskar eftir forstöðumanni frá 1. janúar
n.k. Fóstrumenntun áskilin.
Umsóknarfrestur er til 20. nóvember.
Upplýsingar veitir bæjarstjóri, simi 71315.
Umsóknir sendist undirrituðum.
Bæjarstjórinn
Siglufirði.
Ötboð
Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar
óskar eftir tilboðum i eftirtalin verk og
efni í 30 ibúðir i parhúsum i Hólahverfi A
Breiðholti:
Hita og hreinlætislagnir
ofnar,
hreinlætistæki og fylgihlutir.
tJtboðsgögn verða afhent á skrifstofu F.B.
Mávahlíð 4. mánudaginn 13. nóv. gegn 20.
þús. kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð mánudaginn 20/11
1978.
Verslunarmannafélag Reykjavíkur
Asmundur Björn Magnús
Vísitala og kjaramál
Verslunarmannafélag Reykjavikur held-
ur félagsfund að Hótel Loftleiðum,
Kristalsal, miðvikudaginn 15. nóv. kl.
20.30.
Fundarefni: Visitala og kjaramál
Frummælendur:
Asmundur Stefánsson hagfræðingur
Björn Björnsson viðskiptafræðingur
Magnús L. Sveinsson formaður
samninganfndar VR .
Félagsfólk er hvatt til að fjölmenna.
Verslunarmannafélag Reykjavikur