Alþýðublaðið - 29.11.1978, Qupperneq 2
2
Miðvikudagur 29. nóvember 1978
alþýöi blaóió i-
(Jtgefandi: Alþýðuflokkurinn Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Arni Gunnarsson. Aðsetur ritstjórnar er i Siðumúla 11, simi 81866. Prentun: Biaðaprent h.f. Askriftaverð 2200 krónur á mánuði og 110 krónur i iausasölu.
Hvað tæki við?
1 umræðum á Alþingi um frumvarp til laga uml
timabundnar ráðstafanir til viðnáms gegn verð-
bólgu, hefur sú skoðun komið fram hjá flestum
ræðumönnum, að ekki sé nóg að gert. Þetta sjónar-
mið hefur einnig komið fram i viðtölum við forystu-
menn verkalýðshreyfingarinnar. Enginn dregur i
efa, að hér séu á ferðinni bráðabirgðaráðstafanir,
sem ætlað sé að veita rikisstjórninni svigrúm til
frekari aðgerða.
I greinargerð, sem frumvarpinu fylgir koma
fram flest þau atriði, sem Alþýðuflokkurinn hefði
viljað að yrðu tekin fastari tökum. Þar er greint frá
þeim vilja rikisstjórnarinnar að verðbólgan verði
komin niður fyrir 30% i lok næsta árs. — Enn eru
þetta aðeins orð á pappir og samþykki Alþýðu-
flokksins er við það miðað að athafnir fylgi orðum.
Flokkurinn mun þvi herða róðurinn að mun i
baráttunni gegn verðbólgunni og reyna að fá sam-
starfsflokkana til að viðurkenna i raun, að verð-
bólgan hafi rýrt og skekktlaunatekjur almennings
meira en nokkuð annað á efnahagsmálasviðinu.
Engin dul skal á það dregin, enda hefur það komið
skýrt i ljós að undanförnu, að stjómarflokkamir eru
ekki sammála um aðferðir. Alþýðuflokkurinn hefur
litið á verðbólguna sem höfuðóvin þjóðfélagsins og
haft það efs t; á verkefnalista sinum að berjast gegn
henni. Ham telur, að með nánu samráði núverandi
rikisstjórnar við launþegasamtökin hafi skapast
óvenjulega góður grundvöllur til þeirrar baráttu,
sem nú verður að hefjast.
Með kröfum Alþýðuflokksins um aðgerðir, sem
fram koma i greinargerð frumvarpsins, reyndist
unnt að kný ja rikisstjórnina til ákveðnari afstöðu en
ella hefði orðið. Barátta hans innan rikisstjómar-
innar hefur þvi borið talsverðan árangur, þótt
engum endanlegum markmiðum hafi verið náð.
Þessar staðreyndir m.a. ollu þvi, að Alþýðuflokk-
urinn ákvað að styðja frumvarpið um timabundnar
ráðstafanir. Hann gerir sér fyllilega ljóst, að i
þriggja flokka samsteypustjóm er ekki unnt að ná
fram öllum málum. Það er afstaða þriggja flokka,
sem mótar heildarstefnuna.
Hins vegar hafa þingmenn Alþýðuflokksins tekið
þá ákvörðun, að verði timabilið til 1. marz næst
komandi ekki notað út i hörgul til raunhæfari
aðgerða, verði þeir lausir allra mála. Næstu vikur
og mánuðir geta þvi orðið afdrifarikir fyrir núver-
andi stjómarsamstarf. Það væri hins vegar hörmu-
leg niðurstaða, bæði fyrir núverandi rikisstjórn og
verkalýðshreyfinguna, ef timinn yrði ekki vel
notaður og upp úr slitnaði.
Verkalýðshreyfingin getur ekki vænst þess, ef
upp úr slitnar i þessari rikisstjórn, að önnur svipuð
verði mynduð i bráð. Það myndi engum gagna, ef
núverandi rikisstjórn gæfist upp við að leysa efna-
hagsvandann, þótt verkalýðshreyfingin beitti
þrýstingi gegn annari rikisstjórn. Efnahags-
ástandið er svo með ólikindum slæmt, að órói á
vinnumarkaði, verkföll og vinnudeilur, myndu
aðeins sökkva þjóðarskútunni enn dýpra, svo vart
yrði i mannlegu valdi að rétta hana við.
Það er þess vegna allra hagur að nú takist þjóðar-
sátt og að rikisstjómin fái frið til að kveða verðbólg-
una niður og koma á jafnvægi i efnahagsmálum.
Engin kjaraskerðing yrði verri en sú, að yfir
þjóðina dyndi atvinnuleysi og stöðvun atvinnu-
rekstrar. Það em kannski of fáir íslendingar, sem
muna þá tima, er verkalýðshreyfingin háði strið sitt
við vofu atvinnuleysis, hverskonar nauðsynjavarn-
ingur Vir skammtaður og að kreppti á flestum
sviðum. Þetta ástand þyrfti allur almenningur að
hafa i huga, þegar hann tekur afstöðu til rikis-
stjórnarinnar og baráttu hennar gegn verðbólgunni
—AG—
Ný bók frá
Matreiðslubók handa
ungu fólki á öllum aldri
Almenna bókafélagið
hefur sent frá sér mat-
reiðslubók, sem nokkuð
er frábrugðin þeim bók-
um þeirrar tegundar,:
sem látnar hafa verið á
þrykk út ganga hérlend-
is til þessa. Ber ritið það
sérkennilega nafn
,,Matreiðslubók handa
ungu fólki á öllum aldri”
og er höfundurinn ungur
háskólanemi, Sigrún
Daviðsdóttir, sem blek-
beri hefur reyndar
fundið sanna að þvi að
búa yfir ósvikinni
matargerðarkúnst.
öll geröbókar er viö þaö miöuB,
aö sem flestum ætti aö vera ger-
legt aö afla sér eintaks, og ekki|
slður aö hafa gagn af innihaldi
þess. Bókin hefur aö geyma 220
uppskrif tir aö hinum ýmislegustu
réttum, sem sumir hverjir hafa
lltt verið á borö bornir hérna
megin Atlantsála,svosem eins og
pasta eöa spaghetti, pæar og
pizzur. Aö auki geymir bókin
margvislegar almennar ábend-
ingar, sérdeilislega um krydd, en
einnig um vin meö og i mat, sæt-
meti og feiti I mat, ennfremur
gerbakstur, og um hinar marg-
vlslegustu máltiöir utan hins
hversdagslegasta, svo sem
barnaboö, samburðaröl (oröiö er
fornt og merkir veislur, sem allir
gestir leggja eitthvaö til), stór-
veislur og miönætursnarl.
Af einstökum fréttum sem
bókin geymir uppskriftir aö, má
nefna Búrgundarsnigla, glóöaö
eggaldin, brauöfingur, fenu-
greek, möndlusilung. Annars
skiptistbókin I þessum kafla: for-
réttir; sópur,- sósur; kryddlegir og
kryddollurt fiskur og skelfiskur;
kjöt-, pasta eöa spaghetti; og hris-
grjón; pæar og pizzur; grænmeti;
brauð; eftirréttir og kökur; sulta;
ymislegt.
I formála segir höfundur meðal
annars: „Um nokkurt skeiö hefur
ný ti'zka veriö aö ryöja sér til
rúms I matargerö I Frakklandi.
Hún beinist að þvi aö gera matinn
léttari og spara hitaeiningarnar,
án þess aðslaka nokkuö á ströng-
ustu kröfum matargeröar-
listarinnar. Helsta leiöin er sú, aö
matreiöa matinn sem minnst,
sleppa öllu brasi, nota aöeins
mjög góö hráefni og láta þau
halda bragöi sinu og öörum sér-
kennum.. Þessi stefna fékk heitið
hin nýja matargeröarlist. Hún
viröist harla vænleg.”
Enn segir siöar i formála: „t
þessari bók eru ekki uppskriftir
að öllum mat, en vonandi góöar
uppskriftir aö margs konar mat,
og þetta er ekki siöur bók um
mat. Uppskriftum þarf ekki aö
fylgja af smásmugulegri
nákvæmni, því aö þær eru ekki
slður hugsaöar til þess aö benda á
ýmsa möguleika, og til þess aö
kveikja hjá ykkur hugmyndir.iifc
BHM mótmælir vinnubrögð-
um ríkisstjórnarinnar
Bandalag
Háskólamanna hefur
sent forsætisráðherra
bréf vegna stjórnar-
frumvarps um tima-
bundnar ráðstafanir til
viðnáms gegn verð-
bólgu. Ennfremur gengu
formenn stjórnar og
launamálaráðs BHM á
fund forsætisráðherra í
gærmorgun til að leggja
áherslu á mótmæli BHM
og skýra sjónarmið þess
nánar.
í bréfi þvi sem Banda-
lag Háskólamanna sendi
forsætisráðherra segir
m.a.
„Bandalag háskólamanna mót-
mælir þeim vinnubrögöum xikis-
stjórnarinnar, aö ekkert samráö
skuli haft viö BHM, þrátt fyrir
fögur orö um samráö viö aöila
vinnumarkaöarins og hefur
itrekuöum beiönum launamála-
ráðs BHM um fund meö
ráöherranefnd þeirri sem faliö
var aö hafa samráö viö aöila
vinnumarkaöarins ekki veriö
sinnt.
Þá vill bandalagiö einnig mót-
mæla þvi harölega, aö enn skuli
gert ráö fyrir þaki á veröbætur,
þótt almennt sé nú viöurkennt aö
þessi regla feli i sér óþolandi mis-
munun milli manna sem í raun
hafa sömu laun, en mismunandi
uppbyggt launakerfi. Þannig
njóta nú allir félagsmenn ASI
óskertra veröbóta meöan 80%
félagsmanna BHM búa viö
skertar veröbætur. 1 þessu
sambandi viljum viö visa I drög
aö áliti visitölunefndar nóvember
1978, en þar er sýnt fram á þá
mismunun, sem núgildandi regla
um þak á verðbætur hefur 1 för
meö sér. Hins vegar koma hvergi
fram i drögunum eöa bókunum
meö þeim, nein rök fyrir slikri
takmörkun veröbóta.
BHM vill jafnframt benda á aö
aögeröir skv. 2. og 3 gr.
frumvarps til laga um
timabundnar ráöstafanir til
viönáms gegn veröbólgu, þ.e.
lækkun skatta og félagslegar um-
bætur, koma félagsmönnum
BHM sennilega aö litlu gagni,
enda var ekkert samráö haft viö
BHM um þessar aögeröir og
getur bandalagiö þvi ekki sætt sig
viö aö þessar aðgeröir skeröi
veröbætur félagsmanna banda-
lagsins.
Viö viljum þvi óska eftir þvi aö
fá aö skýra þessi sjónarmiö nánar
á fundi meö yöur hr. forsætisráö-
herra, áöur en frumvarp þetta
veröur lagt fram á þingi. Jafn-
framt væntum viö þess aö hér
eftir verði haft nánara samráö
við BHM, og þá ekki aöeins á
siöustu stigum, og teljum viö
raunar aö þaö sé forsenda þess aö
vinnufriöur haldist.”
Frá landlækni
Leikmenn mega ekki lækna
Aö gefnu nokkru tilefni undan-
farna mánuöi óskar landlæknir aö
minna á, aö þeim, sem ekki hafa
lækningaleyfi, er óheimilt sam-
kvæmt Islenskum lögum aö taka
sjúklinga til lækninga. Ennfrem-
ur er þeim, sem ekki hafa hlotið
löggildingu ráöherra til aö kalla
sig sjúkraþjálfara, óheimilt að
stunda sjálfstæö sjúkraþjálfunar-
störf.
Um þessi atriöi er fjallaö I
Læknalögum nr. 80/1969 og Lög-
um um sjúkraþjálfun nr. 31/1962.
Til frekari glöggvunar á þvi
hvaö um er aö ræöa skal hér
vitnaö i þessi lög.
1 upphafi 15. greinar Lækna-
laga segir svo:
„Hvers konar skottulækningar
eru bannaöar hér á landi.
Þaö eru skottulækningar:
1. ef sá, sem ekki hefur
lækningaleyfi, býöst til aö taka
sjúklinga til lækninga, gerir sér
lækningar aö atvinnu, auglýsir
sig (auök. landl.) eöa kallar sig
lækni, ráöleggur mönnum og af-
hendir þeim lyf, sem lyfsalar
mega ekki selja án lyfseöils og
nær þaö einnig til lyfsala og aö-
stoöarfólks þeirra.”
I upphafi fyrstu greinar Laga
um sjúkraþjálfun segir:
„Rétt til aö kalla sig sjúkra-
þjálfara hér á landi hafa þeir ein-
ir sem hlotiö hafa til þess lög-
gildingu heilbrigðismála-
ráöherra.”
Onnur grein laganna hljóöar
svo:
„Sjúkraþjálfun er meöferð sem
sjúkum er veitt I lækningaskyni
meö nuddi (auök. landl.), æfing-
um, ljósum, hita, rafmagni og á
ýmsan annan hátt eftir fyrirmæl-
um læknis.”
I fimmtu grein Laga um
sjúkraþjálfun segir:
„Um sjúkraþjálfara gilda aö
ööru leyti eftir þvi sem viö getur
átt.reglurlaga um lækningaleyfi,
réttindi og skyldur lækna og ann-
arra, er lækningaleyfi hafa og um
skottulækningar.”
FBoHKsstarfió
Hafnfirðingar
Kvenfélag Alþýðuflokksins
i Hafnarfirði
heldur skemmtifund
fimmtudaginn 30. nóvember
1978 og hefst hann kl. 20.30 1
Alþýöuhúsinu.
Fundarefni:
Asthildur ólafsdóttir segir
frá námskeiöi norrænna
Alþýöuflokkskvenna i Dan-
mörku á sl'. sumri.
Upplestur.
Bingó — jólavinningar.
Kaffidrykkja
Konur fjölmenniö og takiö
meö ykkur gesti. Stjórnin.
Skrifstofa Alþýðuflokksins
Strandgötu 32 er opin á
mánudögum og miðvikudög-
um á milli kl. 17 og 19. Simi
skrifstofunnar er 50499.
Alþýðuflokksféiögin i Hafn-
arfirði.
Akureyringar
Kvenféiag Alþýðuflokks-
ins Akureyri heldur lau;f.a-
brauðs og kökubasar að
Strandgötu 9 sunnudaginn 3.
desember kl. 15. Stjórnin.