Alþýðublaðið - 12.12.1978, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 12.12.1978, Blaðsíða 2
2 Þriðjudagur 12. desember 1978 alþýöi blaöiö i- Útgefandi: Alþýöuflokkurinn Ritstjóri og ábyrgöarmaöur: Arni Gunnarsson. Aösetur ritstjórnar er i Sföumúla 11, simi 81866. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftaverö 2200 krónur á mánuöi og 110 krónur I lausasölu. Framkvæmdasjóður öryrkja t fárviðri verðbólguholskef lunnar sem dunið hefur á landinu undanfarin ár vill alltof oft gleymast/ að í þing- sölum er ekki bara talað um efnahagsöngþveiti og verðbólguviðnám. AAörg eru þau- málin sem þar er f|al!að um, en ekki-er mælanleg i vísitölustigum eða skipta sköpum um versnandi eða batnandi viðskipta- kjör. Eittaf þessum málum er frumvarptil laga um fram- kvæmdasjóð öryrkja, sem Jóhanna Sigurðardóttir flytur. Þar er á ferðinni mál, sem snertir þá þegna landsins er ekki hafa farið í fylkingum með kröfu- spjöld og kraf ist réttar síns. I fyrstu grein þessa frumvarps segir, að stofnaður skuli sjóður, sem nefnist Framkvæmdasjóður öryrkja, og skuli hann vera í vörslu félagsmálaráðuneytisins. Og í annari grein segir, að hlutverk sjóðsins skuli vera að greiða fyrir f jármögnun þeirra framkvæmda, sem gertséráðfyrir í lögum, reglugerðum og áætlunum um sérkennslu og endurhæfingu. Þetta tímabæra frumvarp gerir ráð fyrir, að ráð- stöfunarfé sjóðsins skiptist í tvo sjóðshluta, sérkennslusjóð og endurhæf ingarsjóð. Því sem til sér- kennslusjóðsins fari skuli jöfnum höndum varið til að standa straum af stofnkostnaði greiningarstöðva, sér- skóla, sérdeilda, starfsþjálfunardeilda að grunnskóla- námi loknu og annarra stof nana sem lúta að hinni ýmsu sérkennslu sem mjög brýn þörf er á víða um land. Fjármagni endurhæfingarsjóðs skal varið samkvæmt frumvarpinu, til að standa straum af stofnkostnaði endurhæfingarstöðva, vinnustöðva og dvalarheimila. í greinargerð frumvarpsins kemst flutningsmaður svo að orði, að í árslok 1977 hafi öryrkjar sem á skrá voru hjá Tryggingarstofnun ríkisins verið 7405. Þessi fjölmenni öryrkjahópur þurfi meira eða minna á að halda endurhæfingu, vernduðum vinnustöðvum, at- vinnuþjálfun til að komast á hinn almenna vinnu- markað og dvalarheimili. Til viðbótar þessum hópi sé svo mjög f jölmennur hópur ellilífeyrisþega, sem vegna ýmiss konar sjúkdóma heyri til öryrkjahópsins og þurf i því engu að síður á þeirri aðstoð að halda sem um getur í endurhæfingarlögunum. AAeð þessu frumvarpi Jóhönnu er stigið stórt skref i áttina til þess, að gera öryrkja að jafn réttháum borg- urum og okkur sem heilbrigð erum. Það var ekki þjóð- félagi okkar til sóma, að fatlaðir skyldu þurfa að fara jafnréttisgöngu sína í haust, til þess eins að vekja á því athygli að það eina sem þeir færu f ram á væri jaf nrétti. Það er því okkur heldur ekki til sóma að frumvarpið um Framkvæmdasjóð öryrkja og önnur álíka mál á Alþingi, skuli að mestu liggja í þagnargildi hjá fjöl- miðlum. —L Framkvæmdanefnd leigufbúia i Eskifirði óskar eftir tilboði i 12 ibúða fjölbýlishús. Otboðsgögn afhendast á bæjarskrifstofu Eskifjarðar gegn 25 þús-kr. tryggingu. Skilafrestur er til 12. janúar 1979. Tilboð verða opnuð á bæjarskrifstofu Eskifjarðar mánudaginn 15. janúar 1979 kl. 14.00. Bæjarstjórn Eskifirði Flokksstarfið Hafnfirðingar Skrifstofa AlþýOuflokksins Strandgötu 32 er opin á mánudögum og miOvikudög- um á milli kl. 17 og 19. Simi skrifstofunnar er 50499. AlþýOuflokksfélögin i Hafn- arfiröi. Akranes Fundur meö alþingismönn- unum Eiöi GuOnasyni og Braga Nielssyni i Röst I kvöld þriöjudaginn 12. des- ember kl. 9. Alþýöuflokksfélögin. Reykjaneskjördæmi Stjórn kjördæmisráös Reykjaneskjördæmis boöar til fundar meö sveitarstjórn- armönnum AlþýOuflokksins I kjördæminu, varamönnum þeirra og formönnum flokks-' félaganna iaugardaginn 16. desember kl. 14.00 i Félags- heir.iilinu Kópavogi 2. hæö. Fundarefni: 1. Kynning sveitarstjórnar- manna og formanna fiokks- féiaganna. 2. Staöa aldraöra i dag. Kristján Guömundsson fé- lagsmálastjóri hefur fram- sögu um félagsmál og ræðir sérstaklega um málefni aldraöra. 3. önnur mál. Stjórnin. innrnnf RAKATÆKI Aukið vellíðon og verndið heilsuno Sendunt í póstkröfu RAFTÆKJAVERSLUN H.G. GUÐJÓNSSONAR ^ ’ r Suðurveri, Stigahlið 45-47 Simar 37637—82088 m mmmm ea -ath. fl 1| 0 Cfi auglýsingasíma I 5-00 SVRPU SKRPflR Ný lausn á gömlum vanda J 1 tU'jL. a I ' rv..'i Nýir möguleikar, sem gera þér kleift að innrétta skápana eftir þörfum. Uppsetning á SYRPU SKAP er þér leikur einn. Vmsamlegast sendið mer upplysmgar um SYRPU SKAPANA Naf n ISIiT : ÍSgL: / gglgp — Sknfiö qreinilega □ _SYRPU SKAPAR er islensk framleiðsla. AXEL EYJÓLFSSON HÚSGAGNAVERSLUN SMIÐJUVEGI 9 KÓPAVOGI SÍMI 43577

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.