Alþýðublaðið - 28.12.1978, Page 2

Alþýðublaðið - 28.12.1978, Page 2
2 Fimmtudagur 28. desember 1978. alþýöu- blaðið Otgefandi: Alþyftuflokkurinn Ritstjóri og ábyrgðarmaóur: Arni Gunnarsson. Aösetur ritstjórnar er i Sibumúla 11, simi 81866. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftaverö 2200 krónur á mánuöi og 110 krónpr i lausasöiu. Jólaleikrit útvarpsins í kvöld: Afl vort og — eftir Nordahl Grieg Hungur og ofát Jólahátíð hins vestræna heims byggist að verulegu leyti á margskonar tilbreytingu í mat og drykk, gjafa- flóði og kirkjusókn. Hin ytri umgjörð jólanna ber ósjald- an ofurliði hinn eina sanna tilgang hátíðarinnar: minninguna um fæðingu Frelsarans, sem boðaði jöfnuð og frið með mönnum. A annan dag jóla sýndi sjónvarpið fréttamyndir og greindi f rá hungursneyð í Eþíópíu, þar sem hundruð þús- unda manna hafa látizt á þessu ári af matarskorti. Og Eþíópía er aðeins lítið dæmi um þær hörmungar, sem. fólk í Af ríku og Asíu býr nú við sökum fæðuskorts. A hverri einustu klukkustund deyja tugir og hundruð barna af hungri. Otblásnir magar og hverskonar hörgul- sjúkdómar er eitthvert mesta mein mannkyns. Ojöf nuð- urinn er slíkur, að á meðan keppikefli milljóna er ein máltíð á dag, deyja Vesturlandabúar úr ofáti og of f itu og þúsundir stofnana hafa það eitt verkefni að grenna þá, er neyta of mikils matar. Grátur deyjandi barna og syrgjandi foreldra er of f jarri fslandsströndum, svo þjóðin megi greina hann. Af þeim sökum verður vandamálið óraunverulegt í hugum (slendinga og bænir um aðstoð aðeins ómur af hörmung- um og þjáningum. Jafnvel hafa framlög íslendinga til þróunarlandanna farið minnkandi á undanförnum ár- um, þjóðinni til verulegrar skammar. Islendingar hafa verið svo uppteknir af eigin vanda- málum, sem eru hreinn barnaleikur miðað við vanda margra annarra, að þeir hafa ekki gefið gaum fátæk- ustu meðbræðrum sinum. Hið kristna hugarfar, sem aII- ur almenningur lætur í Ijós um jólahátíðina, ristir vart djúpt á meðan þjóðin réttir ekki deyjandi börnum hjálparhönd. Ár barnsins er framundan. Um leið og Islendingar huga að stöðu sinna eigin barna í þjóðfélaginu, ættu þeir að leggja sitt af mörkum til að lina þjáningar og lengja líf milljóna barna, sem aðeins fæðast til að deyja, þegar móðurmjólkina þrýtur. —AG— Frábært Silfurtúnglið eftir Halldór Laxness er eitthvert sér- kennilegasta verk íslenzkra leikhúsbókmennta. Þetta þema um fánýti frægðarinnar þegar borið er saman við myndir hversdagslífsins, er afar sérstætt. Silf urtúnglið er f yrir löngu orðið sígilt listaverk sem (slendingar hafa kunnað vel að meta. A annan dag jóla frumsýndi Sjónvarpið nýja gerð af Silfurtúnglinu í leikstjórn Hrafns Gunnlaugssonar. Umgjörð Silfurtúnglsins er færð nær okkur í tímanum, Silf urtúnglið sjálft er ekki f jölleikahús, eins og það er í upprunalegri gerð Halldórs Laxness, heldur er það sjón- varpsþáttur. Inn I umgjörð Silfurtúngslins fléttast svo harmsaga um móðurina sem er til þess prettuð að yfir- gefa eiginmann og barn til þess að halda út á listabraut- ina, og er að lokum skilin eftir yfirgefin og fordrykkju portkona á meðan litli drengurinn, sem hafði gefið henni sönginn, er dáinn vegna söknuðar. Sýning sjónvarpsins á Silf urtúnglinu var óvenjuleg og frábær. Ungt listafólk, sem að þessari sýningu vann, hef ur margt áður getið sér gott orð fyrir söng og dans. Þessi sýning var samfelld heild og öllum aðstandendum Jólaleikrit útvarpsins veröur flutt fimmtudaginn 28. des. kl. 20.10. ÞaB er „Afl vort og æra” (V&r ære og vSr makt) eftir norska skáldiö Nordahl Grieg. Þýöinguna geröi Jóhannes Helgi, en leikstjóri er Gisli Halldórsson. 1 stærstu hlutverkunum eru Þor- steinn Gunnarsson, Glsli Alfreös- son og Róbert Arnfinnsson. Flutningur leiksins tekur tvær klukkuslundir. Leikurinn gerist á árum heims- styrjaldarinnar fyrri. Siglingar eru þá stórhættulegar vegna kaf- bátahernaöar Þjóöverja, en engu aö siöur senda útgeröarmenn skip og menn út I bráöan voöa. Fljót- tekinn gróöi er þeim meira viröi en mannslifin. Grunntónn verks- ins er þung ádeilda á þá, sem nota hörmungar striösins sér til fram- drtttar, oghöfunddreymir um þá tima þegar menn geta lifaö i sátt og samlyndi viö friösamleg störf. Þegar leikurinn var skrifaöur voru ýmsar blikur á lofti og þau öfl aö verki, sem kynntu undir ó- friöarbáliö. Ekki voru liönir nema tæpir tveir áratugir frá lok- um fyrri heimsstyrjaldarinnar og þaö hyllti undir þá slöari. Nordahl Grieg fæddist I Bergen áriö 1902. Ungur réöst hann háseti á kaupskip og sigldi um hálfan hnöttinn, stundaöi siöar nám i Oslo og Oxford og geröist blaöa- maöur. Dvaldi langdvölum er- lendis, m.a. I Klna, var fréttarit- ari i spænsku borgarastyrjöld- inni. Fór til London 1940 og varö talsmaöur norska hersins I Eng- landi. Flugvél hans var skotin niöur yfir Berlín I desemberbyrj- un 1943. Grieg skrifaöi allmörg leikrit, auk annarra ritverka, og hefur útvarpiö áöur flutt þrjú þeirra: ,í)n á morgun rennur aftur dag- ur” 1950), „Barrabas” 1952 og „Ósigurinn” 1962. Heklaður jóladúkur Rautt bómullargarn — heklunál nr. 3. Hvert hjól er ca. 9 sm í þvermál. Stóra hjóliö: Fytjiö upp 8 loftlykkjur, festið saman í hring meö draglykkju. Hekliö 16 fastalykkjur í hringinn. 2. umferð: 5 loftlykkjur X l st. I hverja fastal. með 2 loftl. á milli X. Endurtaka frá X til X umferðina út. Hekla umf. saman með draglykkju í þriðju af fyrstu 5 loftl. 3. umferð: 1 loftl. X fastal. í hvert bil á milli stuðla í fyrri umferð X ^endurtaka u,mf. út og hekla umferðsaman með dragl. í 1. lykkju. 4. umferð: 5 loftlykkj- ur, 3 tvöfaldir stuðlar (eins og venjulegir stuðl- ar nema slegið tvisvar upp á nálina og garnið dregið í gegnum 2 lykkjur og aftur 2 lykkjur.) X 8 loftl. 4 tvöfaldir stuðlar (1 í hverja fastal. frá fyrri umferð) X endur- taka umf. út. Festa saman með dragl. í topp- inn af fimmtu fyrstu loftl. 5. umferð: X 1 fastal. í miðl. af 4 tvöföldu stuðl- unum og 8 fastal. í loft- lykkjuboganum. Endur- takið frá X til X umf. út. Enda umf. með dragl. í fyrstu fastal. Litla hjólið: fitja upp 6 lofftl. og hekla saman í hring. Hekla 12 fasta- lykkjur í hringinn. 2. umferð: X 8 loftl. hlaupa yfir 2 fastal. hekla 1 fastal. í næstu lykkju.X Endurtakið frá X til X og enda umf. með dragl. í fyrstu loft. 3. umferð: 9 fasta- lykkjur f hvern loft- lykkjuboga. Við getum eftir vild haft dúkinn krdnglóttan eöa ferkant- aðan, og af hvaða stærð, sem við viljum. Dúkurinn er saumaöur saman eins og myndin sýnir. til mikils sóma. Leikur Sigrúnar Hjálmtýsdóttur, Þórhallar Sigurðs- sonar, Bjargar Jónsdóttur og Egils Ólafssonar, svo og annarra, sem fóru með hlutverk í þessari uppsetningu, var með ágætum. Það fagra lag Jóns Nordal við vöggu- vísu, sem er eins konar lykill að velgengni Lóu og síðan niðurlægingu hennar, naut sín vel í þessu umhverfi gervimennsku. Það hafa orðið miklar framfarir við gerð sjónvarps- leikrita á Islandi. Þegar illa hefur þótt takast til hefur verið ótæpilega gagnrýnt. Nú hef ur þeim Hrafni Gunn- laugssyni, Agli Eðvaldssyni og samstarfsfólki þeirra tekist frábærlega vel. Slíkt er lyftistöng fyrir allt menningarlíf í landinu. —VG. Bæjarstjóra Hafnarfjarðar mótmælir hækkun verðjöfnunargjalds á raforku A fundi bæjarstjórnar Hafnar- fjaröar 19. þ.m. var gerö svofelld samþykkt: „Bæjarstjórn mótmælir þeim fyrirætlunum, sem felast i frum- varpi, er nú hefur veriö lagt fram á Alþingi, aö hækka verö- jöfnunárgjald á raforku úr 13% I 19%. Skattheimtaá rafmagnssölu er nú þegar 33% en myndi veröa 39% viö umrædda breytingu. Fyr- ir notendur Rafveitu Hafnar- fjaröar þýöa 'petta aukin útgjöld sem nema 25—30 milljónum miö- aö viö núgildandi verölag. Telja veröur eölilegra aö leita annarra ráöatil aö leysa vandamál Rarik en frekari skattlagning á þegar háskattaöa nauösynjavöru svo sem rafmagniö er og hlýtur aö koma illa viö hinn almenna not- anda. Sllk endurtekin skattlagn- ing til lausnar vanda Rarik virö- istekkileiöatil þeirrar sjálfsögöu ráöstöfunar aö reyna aö gæta fyllstu hagkvæmni i f járfestingu, rekstri og / eöa notkun eöli- legra taxta fyrir veitta þjónu§tu.” Þessu er hér meö komiö á fram- færi.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.