Alþýðublaðið - 28.12.1978, Blaðsíða 3
Ealla* Fimmtudagur 28. desember 1978.
3
Það er kaupmátt-
urinn sem gildir
segir í leiðarafyrirsögn Vinnunnar
í nýútkomnu timariti
Alþýðusambands ís-
lands, Vinnunni er mjög
athyglisverður leiðari
sem vert er að vekja enn
meiri athygli á og birtist
þvi hér óstyttur.
A sambandsstjórnarfundi ASt,
sem haldinn var dagana 8. og 9.
desember sl., var Itrekaö þaö
sjónarmiö I kjaramálum, sem oft
hefur komiö fram áöur, en sjald-
an veriö eins umtalaö og slöustu
vikurnar.
I kjaramálaályktun fundarins
segir m.a.:
„Frá upphafi hefur barátta
verkalýöshreyfingarinnar beinst
aö þviaötryggjafulla atvinnu, ná
vaxandi kaupmætti og tryggja fé-
lagslegar umbætur. Allir þessir
þættir eru i vaxandi hættu vegna
ógnvekjandi veröbólgu, 14%
hækkun á ársfjóröungi jafngildir
nærri 70% á heilu ári. Veröbólgan
ógnar atvinnuörygginu, rýrir
kaupmátt og torvddar félagsleg-
ar umbætur. Veröbólguna veröur
aö hemja. Til þess aö þaö megi
takast, er nauösynlegt aö gríþa til
margvislegra ráöstafana á ýms-
um sviöum. Sambandsstjórn ASl
varar alvarlega viö þeirri villu-
kenningu, aö kauphækkanir séu
undirrót veröbólgunnar og minna
veröur á aö vlsitölukerfiö mælir
.einungis þær veröhækkanir, sem
þegar eru orönar og er þvi ekki
sjálfstæöur veröbólguvaldur.
Krónutölukækkanir kaups eru
hins vegar ekki markmiö I sjálfu
sér...
Þó aðgeröir rlkisstjórnarinnar I
september ogaftur nii I desember
séu bráöabirögaúrræöi en ekki
varanleg lausn á þeim efnahags-
vanda sem viö er aö etja, lýsir
sambandsstjórnarfundur ASf
skilningi slnum á nauösyn aö-
geröanna.Þaöerbrýntaöfá tlma
til þess aö fullvinna hugmyndir
um frambiíöarfyrirkomulag á
hinum ýmsu sviðum, ef vinna á
bug á verðbólgunni. Niöurfærsla
verölags hefúr ávallt veriö viöur-
kennd igildi kauphækkunar kaup
mátturinn er ekki siöur tryggöur
meö þeim hætti. Varöandi aörar
þær aögeröir, sem nú eru boöaö-
ar, veröur aö krefjast þess aö til-
lögur ASI um félagslegar umbæt-
ur nái fram aö ganga án tafar og
tryggt veröi aö boöaöar skatta-
lækkanir létti skattbyröi lág-
tekjufólks. Jafnframt veröur aö
it'reka nauösyn þess aö gripið
veröi til aögeröa á fldri sviöum
og þeir látnir axla byröar, sem
breiöust hafa bökin. Verkalýðs-
hreyfingin gerir kröfu til þess aö
það svigrúm, sem bráöabirgöa-
aögeröirnar gefa, veröi nýtt til
varanlegrar stefnumótunar I
samráöi viö verkalýðshreyfing-
unaogáréttar eftirfarandi atriöi I
þvi sambandi:
.1. Samræma veröur fjárfesting-
arákvaröanir og tryggja meö
heildarstjórn og skipulegri
áætlanagerö aö takmarkaö
fjármagn nýtist til þess aö
treysta atvinnu og auka fram-
leiöslu.
2. Geraveröur átak I hagræöingu,
jafnt hjá þvi opinbera sem I
einkarekstri: hrinda fram
úrbótum í stjórnun og bæta og
samræma tækjabúnað.
3. Framleiösla landbúnaöarvara
miöist viö innanlandsþarfir og
fjárfesting I landbúnaöi veröi I
samræmi viö þetta markmiö.
4. Jafnt í peningamálum sem
rikisfjármálum veröur aö gæta
fyllstu hagsýni, þannig aö þess-
ir þættir valdi hvoriti sam-
drætti í atvinnu né veröþenslu.
5. Heiídarstjórn veröi komiö á hiö
sundurlausa kerfi veröákvarö-
ana og verögæslu. Ahersla
veröi lögö á öflun gagna um
verölag erlendis og miölun
upplýsinga um veröi I verslun-
um hérlendis. Tryggt veröi aö
innkaup til landsinsfari fram á
hagkvæmasta veröi.
Til þess aö ná sem bestum
árangri varðandi langtíma-
stefnumótun, veröi verkalýös-
hreyfingunni tryggð aöstaöa til
þess aö taka þátt I umfjöllun um
einstaka málaflokka, svo sem at-
vinnumál, skattamál, verölags-
mál, fjárfestingarmál og félags-
‘legar umbætur, og fullt tillit veröi
tekið til óska verkalýössamtak-
anna I þessum efnum”.
15 stúdentar brautskráðir
frá Flensborgarskóla
15 stúdentar voru brautskráöir
frá Flensborgarskóla fimmtu-
daginn 21. desember s.l. og eru
það fyrstu stúdentar sem skólinn
útskrifar I desembermánuöi.
Flensborgarskóla var breytt I
fjölbrautarskóla vorið 1975 og
brautskráöi hann fyrstu stú-
dentahópinn sama vor. Afanga-
kerfi var tekiö upp I skólanum
haustiö 1976 og brautskráöist
fyrsti stúdentinn úr áfangakerf-
inu s.l. vor.
Þeir 15 sem brautskráðust aö
þessu sinni hafa allir flýtt námi
sinu um hálft ár og þeir skiptast
þannig á brautir, aö 6 eru af eöli-
sfræöibraut, 6 af náttúrufræði-
braut, 2 af málabraut og 1 af fé-
lagsfræöibraut. Bestum náms-
árangri náöi Torfi Helgi Leifsson,
eðlisfræöibraut. Jafnframt var
brautskráður 1 nemandi af viö-
skiptabraut meö almennt versl-
unarpróf.
Þaö kom fram i ræöu skóla-
meistara, Kristjáns Bersa Ólafs-
sonar, viö skólaslitin aö áfanga-
kerfi skólans hefur nú verið
endurskoöaö I samvinnu viö Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja og Fjöl-
brautaskólann á Akranesi og
verður nám algerlega samræmt á
þessum stööum eftirleiðis. Eini
munurinn veröur sá aö skólarnir
bjóöa upp á nokkuö mismargar
námsbrautir, og munar þar
mestu að Flensborgarskólinnhef-
ur ekkert iönnám, en þaö er mik-
ill þáttur I starfsemi hinna skól-
anna.
Áramótaskaup útvarpsins verður að þessu sinni
Kaupmáttarstyrkjandi
og verðbólgueyðandi
að sögn höfunda
Aramótaskaup útvarpsins
nefnist aö þessu sinni„Stóö og
stjörnur” eftir þá Jón örn
Marinósson og Andrés Indriðason
og er bæði kaupmáttarstyrkjandi
og veröbólgueyöandi, aö sögn
höfunda. Gamaniö hefet kl. 22.30
og áætlaö aö þaö standi I tæpa
klukkustund, ef leikararnir
endast svo lengi. Benedikt Arna-
son stendur viö stjórnvölinn, og
Jón Sigurösson hrærir i músik-
blöndu, sem hann hefur sett
saman. Meöal þeirra leikara,
sem hafa lagt starf sitt og sóma I
hættu meö þvi aö taka þátt I
þessu, má nefnaSigrlöi Þorvalds-
dóttur, Þóru Friðriksdóttur,
Bessa Bjarnason, Róbert Arn-
finnsson, Onnu Kristlnu Arn-
grfmsdóttur og Flosa ólafsson.
En fleiri koma viö sögu, þó aö
þeir vilji ekki láta nefns álns
getiö.
Viðvörun
frá Heyrnardeild Heilsu-
verndarstöðvar Rvíkur
Vegna áramóta þykir sérstök ástæða til að
vara fólk við af leiðingum sprenginga. Munið að
heyrnartap, sem þær kunna að valda er alger-
lega óbætanlegt. Auk þess geta ýmiskonar önnur
slys hlotist af sprengingum.
Foreldrar. Reynið að koma í veg fyrir að-börnin
séu með „Kínverja" eða aðrar sprengjur og að
,þau forðist þá, sem hafa slíkt um hönd.
Athugið að flugeldar geta einnig verið hættu-
legir, þeir eiga það til að springa með háum
hvelli í stað þess að fara á loft.
Blys, sólir og annað þess háttar hefur einnig.
valdið alvarlegum slysum, ef fyllstu varúðar er
ekki gætt.
Fjölmargir, einkum börn og unglingar hafa
hlotið varanlegt heilsutjón af sprengingum og
öðru slíku um áramót. Látið það ekki endurtaka
sig í þetta sinn.
Heilsan er fyrir ÖLLU.
Gætið ýtrustu varúðar.
Kjarvalsstaðir
Umsóknarfrestur um stöðu listráðu-
nauts Kjarvalsstaða hefur verið fram-
lengdur til 7. jan. nk. Laun skv. kjara-
samningi Starfsmannafélags Reykjavik-
urborgar. Listráðunauturinn skal vera
listfræðingur að mennt eða hafa staðgóða
þekkinguá myndlistarmálum og öðru þvi,
er snertir listræna starfsemi. Umsóknum
skal skila til stjórnar Kjarvalsstaða.
Ransóknastaða
við Atómvísindastofnun
Norðurlanda (NORDITA)
Við Atómvísindastofnun Noröurlanda (NORDITA) I
Kaupmannahöfn kann aö veröa völ á rannsóknaaðstööu
fyrir íslenskan eölisfræöing á næsta hausti. Rannsókna-
aöstööu fylgir styrkur til eins árs dvalar viö stofnunina.
Auk fræöilegra atómvísinda er við stofnuniná unnt aö
leggja stund á stjarneölisfræöi og eölisfræöi fastra efna.
Umsækjendur skulu hafa lokiö háskólaprófi I fræöilegri
eölisfræöi og skal staöfest afrit prófsklrteina fylgja um-
sókn ásamt Itarlegri greinargerö um menntun, vlsindaleg
störf og ritsmlðar. Umsóknareyöublöö fást I menntamála-
ráöuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavlk. — Umsóknir (I
tvlriti) skulu sendar til: NORDITA , Blegdamsvej 17, DK-
2100 Köbenhavn 0, Danmark, fyrir 15. janúar 1979.
Menntamálaráðuneytið
19. desember 1978.
VEISTU...
... að árgjald flestra liknar- og styrktarfé-
laga er sama og verð eins til þriggja
sigarettupakka? Ævifélagsgjald er al-
mennt tifalt ársgjald.
Ekki hafa allir tima eða sérþekkingu til að
aðstoða og likna. Við höfum hins vegar
flest andvirði nokkurra vindlingapakka til
að létta störf þess fólks sem helgað hefur
sig liknarmálum.