Alþýðublaðið - 09.03.1979, Blaðsíða 1
alþýðu
blaðið
Föstudagur 9. mars 1979. 49. tbl. 60. árg.
Jafnaðarmenn
Gerízt áskrifendur að málgagni ykkar
— Alþýðublaðinu, strax í dag
Bragi Sigurjénsson alþingismaður:
Alþýðuflokkurinn
vill ekki í viðreisn
Ef vinstri stjórninni tekst ekki að ná
fótfestu þá er ekki fjarlægur
ríkisstjórnarmöguleiki að Alþýðubandalag
og Sjálfstæðisflokkurinn fari í sæng saman
viö þingrofstillögu
sjálfstæðismanna á
þann hátt að ég sé að
,,Það er mikill mis-
skilningur að túlka
breytingatillögu mina
skapa tima og grund-
völl fyrir nýtt við-
reisnarsamband Al-
þýðuflokks og
S jálf stæðisf lokks ’ ’,
sagði Bragi Sigurjóns-
son alþingismaður i
samtali við Alþýðu-
blaðið. ,,Það er mag-
Bragi: VIII ekki viftreisn, en
minnihlutastjórn Alþýftuflokks-
ins mögulega.
yfirlýst stefna Alþýðu-
flokksins að hann vill
ekki slika st jörnarsam-
setningu. Flokkurinn
vill ekki nýja við-
reisn”.
Eins og kunnugt er flutti
Bragi breytingatillögu við þing-
rofstillögu Sjálfstæðisflokksins
þess efnis að ef ekki náist sam-
komulag núverandi stjórnar-
flokka um stjórn efnahagsmála
og ráöstafanir til að draga úr
verðbólgu fyrir 17. mars þá
skulu kannaðar nyjar leiðir til
stjornarmyndunar. Ef ekki tak-
ist að koma saman starfhæfri
rikisstjórn fyrir 20. apríl n.k. þá
skuli rjúfa þing og efha til
kosninga.
Bragi sagði i samtalinu að
litlar likur virtust vera á þvi að
stjórnarflokkarnir næðu sam-
stööu um samræmda stefnu i
efnahagsmálum. Hins vegar
stæði nú lokatilraunin yfir og
væri vonandi að dæmiö gengi
upp, þvi ljóst væri að meirihluti
þjóðarinnar vildi að vinsti
stjórnin sæti áfram.
„En ef stjórnin splundrast þá
eru ýmsir rikisstjórnarmögu-
leikar aðrir inni I myndinni,”
hélt Bragi áfram. „Hugsanleg
væri minnihlutastjórn Fram-
sóknarflokks og Alþýðuflokks,
sem yröi að reiöa sig á stuðning
Framhald á bls. 3
Fyrsta „rannsóknarþingmálið” hafið
Laxalónsmálið
Sérþekkingaraðilar kallaðir fyrir
óhætt er að fullyrða að
Laxalónsmálið svonefnda
sé fyrsta „rannsóknar-
þingmálið" sem tekið er
fyrir á Alþingi. Málið er í
höndum allsherjarnefndar
og hefur nefndin nú þegar
kallað fyrir f jölmarga sér-
þekkingaraðila til þess að
afla sér upplýsinga um
málið. Hefur blaðið fregn-
að að meðal þeirra sem
kallaðir hafa verið fyrir
séu Veiðimálastjóri, Yfir-
dýra læknir, Sveinn
Snorrason lögfræðingur
Skúla Pálssonar á Laxa-
lóni, auk þess sem nokkrir
fiskifræðingar hafa verið
tilkvaddir. Síðasti fundur
nefndarinnar, þar sem
kallaðir verða fyrir slíkir
aðilar, verður n.k. mánu-
dag og má búast við því að
í Ijósi þeirra upplýsinga er
þá liggja fyrir verði það
athugað eins vandlega og
kostur er hvort nefndin
geti ekki gert tillögur til
lausnar á þessu máli.
Forsaga málsins
En hver er forsaga málsins?
Laxalónsmálið byrjaði áriö 1951
með þvi aö Skúli Pálsson vildi
hefja hér nýjan atvinnurekstur,
þ.e. að koma á stofn laxeldisstöð.
I fyrstu tóku yfirvöld iv.el i máliö
ef marka má blaðaskrif frá þeim
tima, en siðan má segja að þeim
hafi snúist hugur þvi allt fram til
dagsins i dag hafa þau sifellt ver-
ið að leggja steina i götu hans að
þvi er hann sjálfur segir frá. Hafi
yfirvöld m.a. sett hömlur á rekst-
ur hans, svo og útflutning á þeim
forsendum að Regnbogasilungur-
inn hafi verið sýktur. Hins vegar
hefur slik sýki aldrei fundist eftir
þvi sem næst verður komist, enda
er tegundin talin mjög ónæm fyrir
hverskonar sýkingu.
Alvarlegt mál segir Versl-
unarráð
Þvl hefur verið haldið fram að
sú gifurlega varfærni sem yfir-
völd hafa sýnt I þessu máli stafi
af annarlegum ástæðum og þar
sem Alþýöublaöinu er kunnugt
um að Verslunarráö Islands hafi
látið þetta mál til sin taka hafði
blaðiö samband við Þorvarð
Eliasson og innti hann álits á þvi
hvers vegna þeir hefðu gert það.
Hafði Þorvaröur eftirfarandi að
segja: „Skúli kom til okkar og
hafði i frammi þessar ásakanir og
þvi viljum við að það verði kann-
að hvort að þær eigi við rök að
styöjast. Við teljum það ófært ef
einstakir atvinnurekendur telji
sig sæta sliku án þess að eitthvaö
verði aðhafst. Við erum þar með
ekki að leggja neinn dóm á þetta
mál. Hins vegar teljum við þessa
staöhæfingu Skúla svo alvarlegs
eðlis að það verði að rannsaka
málið” sagði Þorvarður að lok-
um.
Viöskiptalegir hagsmunir?
Nú spyrja ef til vill einhverjir
hvers vegna i ósköpunum við-
komandi yfirvöld virðast hafa
lagt hömlur á rekstur Skúla. Ef
betur er að gáð geta blandast inn i
þessa deilu viðskiptalegir hags-
munir eins og Verslunarráöið
hefur bent á.
Til þess að varpa skýrara ljósi
á máliö má benda á að i bréfi frá
Laxeldisstöð rikisins dagsett 21.
april 1978 til væntanlegra kaup-
enda laxaseiða, kom i ljós að seið-
in höfðu hækkað nákvæmlega um
100% frá þvi árinu áður. Hvort
sem hækkunin stafaöi af þvi að
Skúli var ekki með i samkeppn-
inni eöa ekki má búast viö þvi að
mál þetta veröi til lykta leitt hjá
allsherjarnefnd ellegar að rann-
sóknarþingnefndin sem fjallar
um þetta mál geti gert tillögur til
lausnar á þvi eins og fyrr segir.
Gaman verður þvi að fylgjast
með þessu máli og sjá hvort ný
vinnubrögð á Alþingi geti ef til
vill i framtiðinni leyst svona
eilifðarmál sem búiö er aö þvæl-
ast I kerfinu i tæp 30 ár.
— GBK
Alyktun aðalfundar Einingar:
Stjórnin kasti fyrir borð sundur-
lyndisfjanda og persónumetingi
— segir í ályktuninni
A aðalfundi Verkalýðs-
félagsins Einingar sem
haldinn var þann 4. mars
s.l. var eftirfarandi
ályktun gerð.
Aðalfundur Verkalýðsfélags-
ins Einingar, haldinn 4. mars
1979, fagnar þvi að það tókst að
mynda vinstri stjórn meö
félagsleg markmið að leiðar-
ljósi. En um leið harmar fund-
urinn þó þann seinagang og þá
sundrung, sem uppi virðist vera
innan stjórnarflokkanna, og
tefur fyrir þvi að mótuð sé sú
langtimastefna I þjóöarbú-
skapnum, er geri land þetta
byggilegra en nú er, m.a. meö
þvi að hamla gegn verðbólgu og
siðspillandi fylgifiskum hennar.
Fundurinn bendir á, aö það
var fyrir þrýsting frá launþega-
samtökunum I landinu, og þá
sérstaklega Verkamannasam-
bandi Islands, að þessi stjórn
var mynduð.
Það hefði þvi verið eölilegt
framlald af stjórnarmynduninni
að stefnumótunar Verka-
mannasambandsins hefði gætt
meira við lausn kjaramálanna
en raun ber vitni, þ.e. að lægstu
launin hefðu verið verðbætt að
fullu upp að ákveðnu marki, en
þar fyrir ofan hefði verið greidd
sama krónutala, samanber
samþykkt 33. þings ASI, en þar
segir i kjaramálaályktun
þingsins: „Fullar visitölubætur
komi á lágmarkslaunin, en
samakrónutala á þaulaun.sem
hærri eru”.
Fundurinn bendir á það, að ef
sú leið hefði verið valin, heföi
ekki þurft að gripa til jafn rót-
tækrar skattheimtu af launa-
fólki og I reynd hefur orðið, sem
siöan kallar á aukna spennu og
kröfur til aö standa undir þeirri
skattpiningu, sem þegar er
orðin á framleiðslustéttunum.
Kröfur fundarins eru þvi
þessar:
1. Kastið sundurlyndisfjanda
og persónumetingi fyrir borð.
2. Komiö ykkur unsvifalaust
saman um langtima-stefnu-
mörkun er miði að aukinni
framleiðni og auknum kaup-
mætti launafólks.
3. Tryggið öllum vinnu við
aröbær störf, er skapa aukinn
þjóðarauö til skipta.
4. Upprætið spillinguna I inn-
flutningsversluninni neytendum
til hagsbóta og styrkið með þvi
kaupmáttinn.
5. Og að siðustu, gleymið þvi
ekki, að það var launafólkiö sem
veitti ykkur umboð I siðustu
kosningum til að gerbreyta þvi
þjóðfélagi, sem við búum i.
Þeir, sem standa i vegi fyrir
þvi, að þeim breytingum verði
náð, geta ekki eftir þaö vænst
stuönings frá launafólki i náinni
framtið.
Það er og hefur veriö skoöun
a.m.k. lægst launaða fólksins,
að kaupmáttúrinn felist ekki
alltaf I auknum krónutöluhækk-
unum, heldur þvi hvað fæst fyrir
þær krónur, sem i umslaginu
eru hverjusinni. Þr um veltur
mest á virkri fjármálastjórn og
nýtingu fjármagns til verð-
mætasköpunar.
—GBK
Frá aðalfundi Verkamannafélagsins Einingar:
Jón Helgason kosinn
formaður
Fimm milljónir króna
ráðstafað i Endurhæf-
ingarstöð Sjálfsbjargar
Jón Helgason var
kosinn formaður
Verkalýðsfélagsins
Einingar á aðalfundi
félagsins sem haldinn
var 4. mars s.l.
Barst aðeins einn framboðs-
listi, borinn fram af fráfarandi
stjórn og trúnaðarmannaráði og
varð hann þvi sjálfkjörinn án
þess að til atkvæðagreiðslu
kæmi. Auglýst hafi verið eftir
framboöslistum til allsherjarat-
kvæðagreiðslu en sú auglýsing
var ákveðin á fúndi trúnaðar-
mannaráðs þann 16. janúar og
var framboðsfrestur til 26. þess
sama mánaðar.
Aðalstjórn félagsins þannig
skipuð. Jón Helgason, Akureyri
er formaður. Eirikur Agústs-
son, Dalvik er Varaformaður.
Olfhildur Rögnvaldsdóttir, Ak-
ureyri, er ritari. Gunnar J.
Gunnarsson, Akureyri er gjald-
keri. Aörir i stjórninni eru Unn-
ur Björnsdóttir. Akureyri, Þór-
arinn Þorbjarnarson, Akureyri,
og Ólöf V. Jónasdóttir, Akur-
eyri. Varamenn voru kosin,
Aöalheiður Þorleifsdóttir,
Akureyri, Matthildur Sigurjóns-
dóttir, Hrisey, Baldvin S. Bald-
vinsson, Akureyri, Guðlaug Jó-
hannsdóttir, Akureyri og Karl
Asgeirsson, Akureyri.
Aðalfulltrúar f trúnaöar-
mannaráð voru kosnir, Ólafur
Guðmundsson, Akureyri, Pálmi
Sigurösson, Akureyri, Einar
Arnþórsson, Akureyri, Geir-
þrúður Brynjólfsdóttir, Akur-
eyri, Siguröur Asgrimsson,
Akureyri, Sigriður Hermanns-
dóttir, Dalvik, Guðrún Bene-
diktsdóttir, Dalvik, Matthildur
Framhald á bls. 2