Alþýðublaðið - 22.05.1979, Side 2
Þriðjudagur 22. maí 1979
2
Starfsumhverfi
og vinnuvemd
alþýðu
ITTFT'TPm
Útgefandi: Alþýöuflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guömundsson
Abyrgöarmaöur: Bjarni P. Magnusson
Ritstjórnarfulltrúi: Guöni Björn Kjærbo
Auglýsingar: Ingibjörg Siguröardóttir
Dreifingarstjóri: Siguröur Steinarsson
Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir
Ritstjórn og auglýsingar eru aö Siöumúla 11, Reykjavik. Simi 81866.
Prentun: Blaöaprent h.f.
Áskrift (meö Helgarpóstinum) er kr. 3000 á mánuöi.
Verö i lausasölu er kr. 150 eintakiö
Fyrir Alþingi liggur frum-
varp félagsmálaráðherra um
aðbúnað, hollustuhætti og ör-
yggi á vinnustöðum. Frum-
varpið markar timamót, með
þvi er stefnt að setningu heild-
arlöggjafar um vinnuvernd og
starfsumhverfi.
Alþýðuflokkurinn hefur sið-
ustu ár hert baráttu sina á
þessu sviði og unnið að setn-
ingu slikrar löggjafar. Sú
barátta flokksins hefur jafnt
verið háð innan þings, sem ut-
an. Björn Jónsson forseti
Alþýðusambands íslands og
fyrrverandi ritari Alþýðu-
flokksins, Karl Steinar Guðna-
son þingmaður núverandi rit-
ari Alþýðufldcksins og vara-
formaður Verkamannasam-
bandsins ásamt mörgum öðr-
um fulltrúum Alþýðuflokksins
i verkalýðshreyfingunni fengu
samþykktar tillögur um að-
gerðir i vinnuverndarmálum i
tengslum við kjarasamning-
ana vorið 1977 og samþykkti
rikisstjórnin þær tillögur 19.
april sama ár. Þar var meðal
annars lagt til, að rikisstjórnin
hlutist til um, að skipuð yrði
nefnd, sem fengi það verk að
endursemja lög um aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi á
vinnustöðum og um vinnuum-
hverfi verkafólks almennt.
Nefndin var skipuð hinn 14.
september 1977 og var Karl
Steinar Guðnason ritari
Alþýðuflokksins einn nefndar-
manna. Nefndin vann gott
starf og mikið og skilaði áliti
fyrir nokkru. Magnús H.
Magnússon félagsmálaráð-
herra hefur siðan fylgt málinu
eftir og lagt fram viðamikið
frumvarp þar sem fjallað er
um alla þætti vinnuvemdar,
aðbúnaðar og starfsumhverfis
i einni heildarlöggjöf.
1 frumvarpinu er gert ráð
fyrir þvi að ein stofnun, sem
nefnd er Vinnueftirlit rikisins,
sjái um framkvæmd laganna.
Þá er frumvarpið unnið sam-
kvæmt þvi megin sjónarmiði
að eftirlitið með aðbúnaði,
hollustuháttum og öryggi á
vinnustöðum verði sem allra
mest innan vinnustaðanna
sjálfra. Þar með er ábyrgð og
vald fært til þeirra sem
mestra hagsmuna hafa að
gæta og fulltrúum starfsfólks
tryggt öryggi til þess að sinna
eftirlits og upplýsingaskyldu
sinni.
Þá fjallar frumvarpið um
vinnustaðinn hvernig hann
skuli úr garði gerður. Einnig
er kafli sem tekur til véla,
tækjabúnaðar og er þar fjallað
um eftirlit með slikum búnaði.
Kafli er um hættuleg efni og
vörur þar sem kveðið er á um
að ekki megi framleiða eða
nota slik efni eða vörur án
þess að jafnframt sé tryggt að
starfsmenn séu varðir gegn
slysum, eitrunum og sjúk-
dómum. Þá fjallar frumvarp-
ið og itarlega um hvildartima
og fridaga, vinnu barna og
unglinga, heilsuvernd, læknis-
skoðanir og aðrar rannsóknir.
Alþýðufldckurinn stendur
heilshugar að þvi að frumvarp
þetta öðlist lagagildi sem
fyrst, 1 þvi eru ákvæði er
varða hið daglega lif meiri-
hluta þjóðarinnar og munu
stuðla að heilbrigðara og
betra þjóðlifi.
B.P.M.
Fréttatilkynning
frá
rikisstjóminni
Ríkisstjórnin hefur ákveöiö aö
skipa sérstaka nefnd til þess aö
rannsaka alla helstu þætti oliu-
verslunar og olhinotkunar I land-
inu. Verkefni nefndarinnar eru aö
athuga eftirfarandi þætti:
a) oliukaup erlendis, veröviö-
miöanir i olluinnkaupum og
oliufragtir,
b) flutninga til landsins, strand-
flutninga meö olíu, flutninga
innanlands, geymslurými,
smásöludreifikerfi oliufélag-
anna,
c) rekstur olíufélaganna á þeim
áratug sem nú er aö liöa, fast-
eignamyndun þeirra, kostnaö
og tekjumyndun,
d) verömyndunarkerfi oliu inn-
anlands, þ.m.t. skattlagningu
hins opinbera, bankakostnaö,
álagningu ollufélaga og vfsitölu
rekstrarkostnaöar oHufélag-
anna,
e) oliunotkun landsmanna meö
tilliti til orkubúskapar lands-
manna i heild.
Nefndinni er ætlaö aö gera til-
lögur um úrbætur varöandi ofan-
greinda efnisþætti.
1 nefndinni eiga sæti: Eyjólfur
Sigurösson, framkvæmdastjóri,
Finnbogi Jónsson, verkfræöing-
ur, Gunnlaugur Stefánsson,
alþm., Halldór Asgrimsson, lögg.
endurskoöandi, Ingi R. Helgason
hæstaréttarlögmaöur og Stefán
Jónsson, prentsmiöjustjóri.
Ingi R. Helgason er formaöur
nefndarinnar.
Reykjavi, 21. maí 1979.
Flokksstarfió 1
Kópavogur
Félagsfundur kl.
20.30 að Hamraborg
1 á fjórðu hæð.
Rædd verða bæjar-
mál.
Stjórnin
Alþýðublaðið
á hvert heimili
m RÍKISSPÍTALARNIR
lH lausar stöður
LANDSPÍTALINN
HJÚKRUNARFRÆÐINGA og
LJÓSMÆÐUR vantar til sumar-
afleysinga á hinar ýmsu sjúkra-
deildir spitalans. Einnig vantar
HJÚKRUNARFRÆÐINGA til sum-
arafleysinga á Göngudeild kvenna-
deildar og i sótthreinsunardeild —
eingöngu dagvaktir. Upplýsingar
gefur hjúkrunarforstjóri i sima
29000.
FóSTRA óskast til starfa við barna-
heimilið Sólbakka frá 1. ágúst. Upp-
lýsingar veitir forstöðumaður
barnaheimilisins i sima 29000 (590)
LÆ KNARITARAR óskast til fram-
búðar á hinar ýmsu deildir spital-
ans. Einnig óskast LÆKNARITARI
fyrir áfengisdeild Kleppsspitalans
(Vifilsstöðum). Stúdentspróf eða
hliðstæð menntun áskilin, ásamt
góðri réttritunar- og vélritunar-
kunnáttu. Umsóknir er greini aldur,
menntun og fyrri störf sendist Skrif-
stofu rikisspitalanna fyrir 30. mai.
Nánari upplýsirigar veitir starfs-
mannastjóri i sima 29000.
KLEPPSSPITALINN
Stöður SÉRFRÆÐINGA i geð-
lækningum eru lausar til umsóknar.
Umsóknir er greini aldur, menntun
og fyrri störf sendist Skrifstofu rik-
isspitalanna fyrir 18. júni. Upplýs-
ingar veita yfirlæknar spitalans i
sima 38160.
Reykjavik, 20. mai 1979.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, Simi 29000
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir april
mánúð 1979, hafi hann ekki verið greiddur
i siðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum sölu-
skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eft-
ir eindaga uns þau eru orðin 20%, en siðan
eru viðurlögin 3% til viðbótar fyrir hvern
byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. degi
næsta mánaðar eftir eindaga.
Fjármálaráðuneytið,
21. mai 1979
PFélagsstarf eldri
borgara í Reykjavik
YFIRLITS- OG SÖLUSÝNING
Efnt verður til yfirlits- og sölusýningar á
þeim fjölbreyttu munum, sem unnir hafa
verið i félagsstarfi eldri borgara á s.l.
starfsvetri.
Sýningin verður haldin að Norðurbrún 1.
dagana 26., 27. og 28. mai 1979 og er opin
frá kl. 13.00 til 18.00 alla dagana.
Enginn aðgangseyrir.
Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar.
Laus staða
Staða ritara við embættið er laus til um-
sóknar. Góð kunnátta i ensku og vélritun
nauðsynleg.
Launakjör samkvæmt launakerfi opin-
berra starfsmanna.
Umsóknarfrestur til 20. júni n.k.
Lögreglustjórinn á Keflavikurflugvelli
16. mai 1979.