Alþýðublaðið - 13.06.1979, Síða 1
alþýdu'
blaðið
Miðvikúdagur 13. júní 1979
StjórnarráMft: Þingflokkur Alþýöuflokksins gerlr þær kröfur
til rikisstjörnarinnar aö hiin móti kjaramálastefiiu til lengri tlma.
Gunnlaugur Stefánsson alþingismaður
„Allar launþegahreyf-
ingar semji um kaup
og kjör á sama tíma”
Eins og skýrt var frá i Alþýðu-
blaðinu f gær fundaði þingflokkur
Alþýðuflokksins i fyrradag. Eng-
ar stefnubreytingar voru geröar
frá fyrri samþykktum þingflokks-
ins um efnahags- og atvinnumál.
Þá var heldur ekki tekin bein af-
staða til þess hvort rétt þætti að
setja bráðabirgöalög á farmenn
nú fljótlega, eins og ýmsir hafa
viljaö.
Alþýðublaðið sneri sér til Gunn-
laugs Stefánssonar alþingis-
manns og spurði hann hvort þetta
þýddi að stefna þingfiokksins
væri aðgerðaleysisstefna. Sem sé
að þingflokkurinn vildi ekki að
rikisstjórnin gripi inn i þau
vandamál sem væru fyrir hendi á
atvinnumarkaðnum.
„Það sem ég tel að hafi fyrst og
fremst falist i samþykkt þing-
flokksins frá þvi i mai, þar sem
fjallað er um frjálsa kjarasamn-
inga, er að allar launþegahreyf-
ingar eigi aö semja um kjör sín á
sama tima,” sagöi Gunnlaugur
StefáBBson alþingismaöur.
Og Gunnlaugur hélt áfram: „I
öðru lagi aö fram fariuppstokkun
og gerð yrði einföldun á launa-
kerfinu i landinu og einnig að gert
yrði að meginmarkmiði i hinum
frjálsu heildarsamningum að
kjör þeirra lægst launuöu yrðu
bætt. Til að þessu markmiði megi
ná, þarf góðan tima og mikinn
undirbúning. ööruvisi ná slíkir
kjarasamningar ekki tilgangi sin-
um. Sú var hugmyndin sem lá að
baki tillögu þingflokksins um
frjálsa kjarasamninga, að sett
yrðu bráðabirgðalög i landinu
sem skipuðu launþegasamtökum,
hvort sem þau hefðu lausa eða
fasta kjarasamninga,aðganga til
samninga öll á sama tima á
ákveönu timabili.”
Aðgerðastefna ekki að-
gerðaleysi
„Einnig segir i samþykkt þing-
flokksins,” bætti Gunnlaugur
Stefánsson viö, „aö ef aðgerðir
fámennra hópa séu farnar að
ógna almannaheill og stefna at-
vinnuöryggi og afkomu verka-
fólks I hættu þá hljóti rikisvaldið
aðgripa f taumana. Það er þvi hin
argasta rangtúlkun að halda þvi
fram að samþykkt þingflokksins
frá þvi i vor feli i sér aðgerðaleysi
af hálfú rikisstjórnarinnar. Þvert
á móti gerir þessi samþykkt kritf-
ur til rlkisstjórnarinnar, það að
hún móti kjaramálastefnu til
lengri tima, en fresti einstökum
kjaradeilum sem upp koma, til
þess tima aö heildarkjarasamn-
ingar fari fram i landinu. Stefna
Gunnlaugur Stefánsson: Stefr.a
þingflokksins er fremur aðgerða-
stefna, en aögerðaleysisstefna.
þingflokksins er þvi fremur að-
gerðastefna en aðgerðaleysis-
stefna.”
Fresta verkföllum fram
að heildarkjarasamn-
ingum
Skal, að þinu mati, setja á
bráðabirgðalög núna strax til að
stöðva þær vinnudeilur sem eru I
gangi?, var næsta spurning
Alþýðublaðsins.
„Til þess að tryggja megi þann
árangur sem þingflokkur
Alþýðuflokksins vonast eftir, með
þvi að fram fari heildarkjara-
samningar allra aðila á sama
ákveðna timabilinu, þá tel ég að
verði að spoma gegn þvi aö ein-
stakir starfehópar standi utan viö
sllka samninga. Þvi er það eðli-
legt að rikisstjórnin fari þess á
leit viö farmenn, aö þeir fresti
verkfalli slnu og semji um kjör
sin og laun samhliða öðrum laun-
þegahreyfingum I landinu, þegar
slikir samningar farafram. Og ef
farmenn hlíta ekki þessum ósk-
um, þá stendur samþykkt þing-
flokksins ekki i vegi fyrir því að
sett verði á farmenn lög, sem
fresti verkfalli þeirra þar til
heildarkjarasamningar fari i
gang,” sagði Gunnlaugur
Stefánsson.
Ekki andvigir visitölu-
þaki
Loks var alþingismaðurinn
spurðuraö þvihvort Alþýðuflokk-
urinn standi gegn þvi aö visitölu-
þak veröi sett á há laun. „Ég tel
að þingflokkurinn hafi aldrei
samþykkt andmæli viö þvi aö
Kjaradeilumar:
BER STJORNINNI
AD GRÍPA INNf?
Nú styttist óðum í verkbann Vinnuveitendasambands Islands. Menn greinir á um
það hvort ríkisvaldinu beri að skipta sér af kjaradeilunum. Spurningin er: Ber
skilyrðislaust að fylgja þeirri grundvallarreglu að frjáls samningsréttur skuli
giIda, eða er ástandiðsvo alvarlegt að það réttlæti ríkisafskipti.
Meirihluti bingmanna vill ekki ríkisafskipti, en almenningur er, ef taka má
mark á skoðanakönnun Dagblaðsins, klofinn I afstöðu sinni.
Alþýðublaðið hafði samband við þá Þorstein Pálsson og Finn Torfa Stefánsson.
Þorsteinn,erysem framkvæmdastjóri VSI, einn aðalhvatamaðurverkbannsákvörð-
unarinnar. Finnur Torfi, þingmaður jafnaðarmanna, er ekki alfarið sammála
þingflokknum.
Blaðið hafði því stutt viðtöl við þessa aðila og innti þá álits á stöðunni.
Finnur Torfi Stefánsson
alþingismaður:
„Beita skal
lagasetningu ef
samningaviðræður
reynast
árangurslausar”
Ber að setja lög á farmenn?
„Ég tel að þegar vinnudeilur
eru farnar aö stofna þjóðarhag I
hættu, þá beri rlkisvaldinu
skylda tál þess að vinna að iausn
þeirra og beita til þess laga-
setningu ef samningaviöræður
reynast árangurslausar.”
En er það ekki einmitt staöan
I dag?
„Jú, mér sýnist þær aðstæður
vofi nú yfir.”
Er þingflokkurinn sammála
þessu?
„Þingflokkurinn gerði fyrir
Finnur Torfl
alþingismaður.
Stefánsson
nokkru siðan samþykkt þess
efnis að kjaradeilur bæri að
leysa með frjálsum samning-
um. Ég hygg aö allir þingmenn
Alþýðuflokksins séu sammála
um þá grundvallarreglu. En frá
þeim tima er samþykkt þessi
var gerð hefur ástandið breyst
mjög til hins verra, sém gerir
það nauðsynlegt að skoða málið
i nýju ljósi. Þingfiokkurinn
hefur ekki gert neina formlega
samþykkt þar um.”
Var umboðsleysi Magnúsar I
ráöherranefnd ásetningur þing-
flokksins?
„Ráðherrar hafa að sjálf-
sögðu fullan rétt til að ræða og
vinna að úrlausnum vanda-
mála. Hér gildir einu hvort um
er að ræða rikisstjórnina sem
heild eða hina ýmsu hópa
hennar. Það reynir ekki á um-
boð þeirra fyrr en til
ákvöröunartöku kemur.”
Enjmboðið fyrir hendi þegar
til ákvörðunartöku kemur?
„Þegar til hennar kemur
þurfa ráðherrar að sjálfsögðu
að afla sér umboös til aö sam-
þykkja”, sagði Finnur Torfi.
G.Sv.
Þorsteinn Páísson
framkvæmdastjóri VSÍ:
„Ríkisafskipti rétt
undir vissum
kringumstæðum”
Alþýöublaöið haföi i gær sam-
band við Þorstein Pálsson,
framkvæmdastjóra Vinnu-
veitendasambands Islands, og
bar undir hann þá spurningu
hvortrikisvaldinubæri aö gripa
inni með lagasetningu á far-
menn.
Þorsteinn sagði: „Okkar
stefna er að samningsrétturinn
eigi að gilda, en málið er ekki
auövelt. Dæmið snýr nú þannig
fyrir okkur að Framsóknar-
flokkurinn og Alþýðubandalagið
hafa fallist á þá stefnu Alþýðu-
flokksins að kjaradeilur skuli
háðar án ihlutunar rikisvalds.
Nú, vitaskuid kallar þetta á
Þorsteinn Pálsson fram-
kvæmdastjóri VSl.
stórkostleg átök. A meöan þess-
ari stefnu er fylgt verður lögmál
hnefaréttarins að gilda.”
Eru þetta nægar forsendur
fyrir jafn viðtæku verkbanni?
„Já, hiklaust. Rikisstjórnin
ætlast beinlinis til þess af okkur
og þar af leiðandi knýr hún
okkur til verkbannsins. Hún
hefúr tekið þessa ákvöröun og
kallar með henni á þessi eöli-
legu viðbrögð okkar.”
A hún þá að grlpa inni?
„Eins og ég sagði þá er frjáls
samningsréttur stefha Vinnu-
veitendasambandsins. En undir
vissum kringumstæðum geta
rikisafskipti verið rétt.”
Eru þetta ekki slikar
krmgumstæður?
„Um það vil ég ekkert láta
hafa eftir mér, og neita þvl að
svara þessari spurningu.”
Formaður Verkamannasam-
bandsins gerir þvi skóna að þið
séuð með þessu verkbanni að
knýja á um hærra vöruverð.
„Já, þetta er nú bæöi vitleysa
oghreinn útúrsnúningur,” upp-
lýsir Þorsteinn.
G.Sv.
timabundið visitöluþak yrði sett
á há laun,” svaraöi Gunnlaugur.
„Þess má geta aö nokkrir þing-
menn flokksins stóðu að frum-
varpi um hátekjugreiðshiskatt á
þinginu i vetur, þannig að fremur
mætti túlka viðhorf þingflokksins
á þá leið aö hann væri hlynntur
þvl að visitölubætur yrðu stöðv-
aðar við eitthvert tiltekið mark,
enda hefur þaö verið kappsmál
þingflokksins I allan vetur að
draga úr áhrifum vlsitölunnar á
kaupgjald ogverðlag i landinu.”
„Að lokum vil ég taka fram, að
allar umræður um þaö að Magnús
H. Magnússon félagsmálaráö-
herra hafi ekki umboö til þess að
taka þátt I störfum ráðherra-
nefndarinnar, eru einungis til
þess failnar að grafa undan þátt-
töku Alþýðuflokksins i rikis-
stjórninni og koma i veg fyrir að
rikisstjórninni geti tekistað koma
á eðlilegri stjórn mála hér á
landi,” sagði Gunnlaugur
Stefánsson alþingismaöur I lok
máls sfns.
-GAS
Eflum Alþyouflokkinn
Frá styrktarmannafélaginu Ási
(Til styrktar rekstri Alþýðuflokksins)
I Iþýðuflokksfólk: gerist félagar í Ási. Hafið samband
við skrifstofu flokksins milli kl. 2 og 5 á daginn,
sími 15020. Þeir sem fengið hafa gíróseðla eru
hvattir til þess að greiða framlagið
Njáll Símonarson formaður