Alþýðublaðið - 17.11.1979, Side 2
Verðbólgan er að rjúka upp í 80% á ári!
Við verðum að
stöðva vitleysuna!
Vegna þess að efnahagslegu sjálfstæði okkar sem þjóðar
er voðinn vís af hennar völdum.
Vegna þess að afkoma atvinnuveganna og atvinnuöryggi
okkar allra er í hættu, ef þessu heldur áfram.
Vegna þess að heilbrigður atvinnurekstur, sem er undir-
staða bættra lífskjara, þolir ekki kollsteypur,
öryggisleysi og óvissu frá degi til dags.
Vegna þess að meðan verðbólgunni ekki linnir geta laun-
þegar í landinu aldrei litið fram á þann dag, að
þeir geti lifað mannsæmandi lífi af eðlilegum
vinnudegi.
Vegna þess að verðbólgan veldur látlausri tilfærslu fjármuna
frá launþegum, skattgreiðendum og sparif járeig-
endum til eignaaukningar forréttindahópa í
skjóli skulda og skattsvika.
Vegna þess að félagslegar umbætur í húsnæðismálum unga
fólksins, lífeyrismálum aldraðra og mannréttinda-
málum þeirra, sem lifa við skerta starfsorku —
dagar jafnharðan upp í verðbólgufárinu.
Vegna þess að misrétti verður ekki eytt og lífskjör verða
ekki bætt nema við ráðumst til atlögu gegn
verðbólgunni — OG NÁUM ÁRANGRI.
Sjálfsvirding okkar og sidmenntað samfélag
í anda samhjálpar, jafnaðar og réttlætis
er í veði