Alþýðublaðið - 21.11.1979, Qupperneq 3
Miðvikudagur 21. nóvember 1979
3
alþýðu-
Framkvæmdastjóri:
Jóhannes Guðmundsson.
Stjórnmálaritstjóri (ábm):
Jón Baldvin Hannibalsson
Blaðamenn: Garðar Sverris-
son og Olafur Bjarni Guðna-
son
Auglýsingar: Elin
Harðardóttir.
Dreifingarstjóri: Sigurður
Steinarsson
Gjaldkeri: Halldóra Jóns-
dóttir
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Siðumúla IX, Reykjavik,
simi 81866.
Alþýðuflokkurinn telur
félagslegt og efnahagslegt jafn-
rétti allra þegna þjóöfélagsins,
jafnt fatlaðra sem annarra vera
eina af grundvallarhugsjónum
þeirrar stjórnmálastefnu, sem
hann berst fyrir.
Flokkurinn telur sig.hafa sýnt
i verki, að hann starfar i anda
þeirra hugsjóna. 1 þvi sambandi
minnir hann á nokkur hugsjóna-
mál fatlaðra sem hann hefur
beitt sér fyrir siðan hann
hóf stjórnaraöild fýrir rúmu ári
siðan. Af þeim verkum telur
hann að fáist raunhæf mynd af
viðhorfum sinum til fatlaðra.
1. Af hálfu Alþýðuflokksins var
flutt á siðasta Alþingi frumvarp
til laga um aðstoð við þroska-
hefta, sem hlaut samþykki
Alþingis s.l. vor. Meö þeim lög-
um var stigið veigamikið
spor aö þvi marki aö
tryggja likamlega og and-
lega þroskaheftu fólki jafn-
rétti við aðra þjóðfélagsþegna
og skapa þvi skilyrði til aö lifa
sem eðlilegustu lifi I samfélag-
inu.
2. Á vegum flokksins var einnig
flutt á siðasta þingi frumvarp til
laga um Framkvæmdasjóö
öryrkja og þroskaheftra. Það
frumvarp var fellt inn I
frumvarpið til laga um aöstoð
við þroskahefta og var lögfest
með þvi. Framkvæmda-
sjóðurinn veitir vissu fyrir þvi,
að unnt verði að standa við þau
markmið sem lögin kveða á um,
auk þess að sjá fyrir fjármagni
til uppbyggingar endurhæfinga-
stöðva verndaöra vinnustaða og
dvalarstaða fyrir öryrkja.
Honum eru tryggð árlega
framlög úr rikissjóði, framlög
sem eru verðtryggö og munu
halda óskertu raungildi.
3. Ráðherra flokksins setti i
sumar reglugerð um öryrkja-
vinnu. Með henni er varið
almennafé til að opna öryrkjum
greiðarileið inn á hinn almenna
vinnumarkað en áður var fyrir
hendi.
4. í byggingarreglugerð sem
ráðherra flokksins setti á þessu
ári, er aðgengi fatlaðra aö
nýbyggingum i landinu tryggt
meö afdráttarlausari hætti en
áður hafði þekkst.
Þar er gengiö til móts við
þarfir hreyfihamlaöra meö
ákvæðum um sérstök
bifreiðarstæði fyrir þá, um
ibúðir á jarðhæð allra fjölbýlis-
húsa, sem ber að byggja og laga
að þeirra þörfum, svo og
sérstökum kröfum sem lúta að
hurðum og frágangi þröskulda,
lyfta og stigaganga.
5. 1 frumvarpi til laga um
húsnæðismálastofnun rikisins,
sem lagt verður fyrir Alþingi af
hálfuflokksins, er gertráð fyrir
sérstökum flokki lána til að
mæta kostnaði viö nýbyggingar
eða breytingar á eldra húsnæði
vegna sérþarfa þeirra sem eru
hreyfihamlaðir eða með skerta
starfsorku. Lán þessi eruvaxta-
laus.
6. í frumvarpi um eftirlaun til
aldraöra, sem flutt var af háifu
flokksins s.l. veturog endurflutt
verður strax og Alþingi kemur
saman, felst mjög mikilsverð
réttarbót fyrir öryrkja, sem
engra réttinda njóta hjá lif-
eyrissjóðum svo og þeirra sem
eiga aðild aö óverötryggðum
sjóðum sem veita félags-
mönnum takmörkuð réttindi.
7. Við endurskoðun laga um
almannatryggingar sem nú er
langt á veg komin mun
flokkurinn gera tillögur um að
mat á örorku fari fram I fjöl-
skipaöri nefnd þar sem gætt sé
félagslegra sjónarmiöa jafn-
framt hinna læknisfræðilegu.
Eins og áður greinir telur
Alþýðuflokkurinn forgöngu
sina um þau mál sem hér hefur
verið drepið á, lýsa betur og
áþreifanlegar afstööu sinni til
fatlaöra og jafnréttismála
almennt, en fögur orð og fyrir-
heit. Það er Alþýðuflokknum
áhugamál að með þjóðinni og
stjórnendum hennar veröi sú
hugarfarsbreyting að stuðn-
ingur og fyrirgreiðsla við
fatlaða og aðra þjóðfélagshópa,
san svipað eru settir, verði
miðuð við þarfir fremur en
umdeilanlegt mat á þvi, hvað
samfélagið sé aflögufært meö á
hverjum tima.
MÁLEFNI FATLAÐRA
FLOKKSSTARFIÐ
Kosningaskrifstofa Alþýðu-
flokksins i Garðabæ er að Goða-
túni 2. Opið alla virka daga frá
20:30 til 22:30, laugardaga frá
14:00 til 18:00. Simi 43333.
Kópavogsbúar
Fundur verður hjá Alþýðuflokks-
félögunum i Kópavogi i kvöld kl.
8.30 að Hamraborg 1,4. hæð. Rætt
verður um Kosningarnar. Sjón-
varp á staðnum.
Kosningaskrifstofa Alþýðuflokks-
ins i Kópavogi er að Hamraborg
1, 4. hæð, simi 44700. Opið alla
daga vikunnar frá kl. 13—22.
Stuðningsmenn velkomnir.
Suður landskj ördæmi
Kosningaskrifstofur og trúnaöar-
menn Alþýðuflokksins fyrir Al-
þingiskosningarnar i Suðurlands-
kjördæmi.
Se lfoss:
Kosningaskrifstofa, Þóristúni 13,
simi: 99/1737 Gunnar B.
Guðmundsson, simi: 99/1490.
Vestmannaeyjar:
Kosningaskrifstofa, Miðstræti 14,
simi: 98/1539
Sólveig Adolfsdóttir, simi:
98/1816
Eyrarbakki:
Kristján Gislason, slmi: 99/3350
Hella:
Sigurður Þorgilsson, slmi:
99/5864
Hveragerði:
Guðmundur Einarsson, slmi:
99/4112
Hvolsvöllur:
Helgi Hermannsson, simi:
99/5276
Stdikseyri:
Olöf Steinunn Þórarinsdóttir,
slmi: 99/3324
Þorlákshöfn:
Erlingur Ævar Jónsson, simi:
99/3766
Efstu menn á lista:
Magnús H. Magnússon, 91/39133,
91/25000
Agúst Einarsson, 91/86660,
91/21400
Hreinn Erlendsson, 99/1552.
Kosningaskrifstofur A-listans.
Vesturlandskjördæmi
Alþýðuflokkurinn hefur opnað
kosningaskrifstofu að Röst, Akra-
nesi. Skrifstofan verður opin kl.
14.00-22.00 alla daga fram til
kosninga. Simi 1716.
Reykjavik:
Skrifstofa Alþýöuflokksins,
Hverfisgötu 8-10, simi: 29244 og
15020. Opin daglega kl. 9.00-22.30.
Þjónusta vegna utankjörfundar-
atkvæðagreiðslu er þar. Umsjón,
Guðmundur Haraldsson.
Skólavörðustigur 16, simi:
22023-16736-20094-
Opin daglega kl. 10.00-22.00.
Kópavogur:
Hamraborg 1, simi: 44700.
Hafnarfjörður:
Alþýðuhúsiö, simi 50499.
Keflavik:
Hringbraut 106, sími: 3030 og
3031.
Akranes:
Röst, simi: 1716.
Borgarnes:
Böðvarsgata 1.
fsafjörður:
Aðalstræti 22, simi: 3070.
Bolungarvik:
Verkalýðsfélagshúsið, simi 7108.
Siglufjörður:
Borgarkaffi, simi 71402.
Akureyri:
Strandgata 9, simi: 24399.
Hafnfirðingar
Kosningaskrifstofa Alþýðuflokks-
ins er i Alþýðuhúsinu Hafnarfirði
3. hæð skrifstofan er opin frá kl.
11-12 f.h. og 14-19 e.h. sími 50499.
Hafið samband viö Skrifstofuna.
Alþýðufiokksfélögin íHafnarfiröi.
Kosningaskrifstofa Alþýðuflokks-
ins i Keflavík Hringbraut 106.
Opið frá kl. 10.00-22.00. Simar 3030
og 3031.
Aðstoð viö utankjörstaða-
atkvæöagreiðslur og kærur vegna
kjörskrár.
Sannleiksást Haraldar frambiódanda
Eskimóasérfræðingurinn Har-
aidur ólafsson hripaði tví-
ræðan greinarstúf i Dagblaðið s.l.
föstudag. Kappin»veöur úr einu i
annað, allt frá Gunnari, Geir,
Hitler og Chile — til Marx,
Lenins, Stalins og Póllands.
Haraldur karlinn fjallar
ennfremur um Alþýðublaðið,
heimstyrjöldina og Bifreiðaeftir-
litið. Eftir að hafa upplýst
lesendur um upphaf siðari heim»
styrjaldar, segir Haraldur i beinu
framhaldi: .. :
„Grunurinn styrktist þegar
Aiþýðublaðið kom út á laugar-
daginn. Þar var ekki eitt einasta
orð um leiftursókn Sjálfstæðis-
flokksins, ekki eitt einasta orð til
að andmæla stefnuyfirlýsingu, er
gengur þvert á allt það sem
Alþýðuf lokkurinn áður fyrr
byggði starfsemi sina á.”
1 umræddu Alþýðublaðið var
þriggja dálka grein um stefnu
ihaldsins. Þar segir m.a. að hún
sé „gloppótt” og með mörgum
ófrágengnum endum.” Þá segir
og að hún sé „fullkomið
virðingarleysi við kjósendur.”
Auk Itarlegri gagnrýni I
umræddri grein, hefur
Alþýðublaðið gengið einna lengst
fram i að gagnrýna stefnu þessa á
undanförnum dögum.
Vitaskuld þarf Haraldur að
gera hosur slnar grænar fyrir
kjósendum. En heldur er það nú
löðurmannlegt að troða upp I einu
útbreiddasta blaði landsins, með
hreina og ómengaða lygi, uppá
Alþýðublaðið.
Undirritaður skilur fullvel
hversu mikil mannraun það er að
vera bendlaður við framboðslista
Framsóknarflokksins. Slíkur
maður hefur að sjálfsögðu ekki
mikinn sannleik fram að færa,
þegar hann nuddar sér utan I
lesendur DB.
Haraldi Ólafssyni fer betur að
stunda sinn eskimóabissnes. Það
er nóg að vara við kratisma og
flóttafólki, þótt menn fari ekki að
dilla sér fyrir framan kjósendur.
— Garðar Sverrisson.
,?Hina raunverulegu stefnu
á horðið fyrir kosningar”
Magnús Marísson skrifar
Það er margt öðruvisi en áður
var, nú á þessum fyrstu vetrar-
dögum.
Kosningabarátta er i fullum
gangi Frambjóðendur blta nú i
skjaldarrendur og hafa uppi
hávaða mikinn. Gömiu góðu
kosningaloforðin hafa verið sótt
upp á háaloftog dustað af þeim
rykið. Ný kosningaloforð lita
dagsins ljós, og er I þeim svolit-
ill harðindatónn.
Skuttogarar bjóðast ei meir I
hverja vlk. Né heldur brú yfir
hvaða sprænu sem er. t staðinn
bjóða menn aðhald, niðurskurð
og mikla og gáfulega skipan
þjóðmála.
Prúðbúnir höfðingjar
Gestagangur er með meira
móti nú I skammdeginu og er
þaö vel. Prúðbúnir höfðingjar
leggja nú leið sina á vinnustaöi
vitt og breitt um landið og ræöa
landsins gagn og nauðsynjar við
hinar ýmsu stéttir. Við skulum
vona að sparifötin óhreinkist
ekki, að hvor um sig skilji hinn
og menn ræði tæpitungulaust
saman.
Kjósendur eru i vafa, margir
hverjir, Margt er I boði og
margir ætla að frelsa heiminn
fyrir þá.
En menn gerast nú þreyttir á
loforðum og gylliboðum sem
reynast svo hjóm eitt aö kosn-
ingum loknum. Ýmsir segjast
ekki ætla að kjósa og segja sem
svo það sé sami rassinn undir
þeim öllum. Þeir lofi öllu og
sviki flest.
Það er illa fariö i stjórnmál-
um okkar, þegar kjósendur eru
hættir aö sjá mun á mönnum og
stefnum. Þegar þetta rennur
allt saman i eina allsherjar
meöalmennsku fyrir augum
þeirra.
Hin fögru áform
Kosningaloforð eru ekki ýkja
hátt skrifuö þessa dagana.
Menn takameö varúð öllum lýs-
ingum um betri tið og blóm I
haga, aö loknum þeim aðgerð-
um sem boðaðar eru. Við höfum
kynnst þvi gegnum árin hvernig
flokkarnir hafa slegiö um sig
fyrir kosningar. Það eru gefin
„Skuttogarar bjóðast ei meir i
hverja vik. Né heldur brú yfir
hvaða sprænu sem er. t staðinn
bjóða menn aðhald, niðurskurð
og mikla og gáfulega skipan
þjóðmála.”
fögur loforö og áætlanir um hin
og þessi mál. Þegar svo á að
mynda stjórn eftir kosningar
hafa hin fögru áform gufað upp i
sambræðslunni sem þá fer fram
milli flokkanna. Við höfum
fengið smjörþefinn af þeirri
sambræðslu á liðnum árum.
Enga óskalista
Ef dæma má eftir málflutn-
ingum, er eins og hver einasti
flokkur gangi með þá grillu, að
hann geti myndað meirihluta-
stjórn að afloknum kosningum.
Við skulum vera raunsæ. Það
fær enginn flokkur meirihluta-
fylgi i þessum kosningum. Það
er ljóst að samsteypustjórn
verður við völd, svo við skulum
haga okkur I samræmi við það.
Flokkunum ber skylda til að
lýsa stefnu og vinnuáætlunum
„Það er illa farið I stjórnmálum
okkar, þegar kjósendur eru
hættir að sjá mun á mönnum og
stefnum. Þegar þetta rennur
ailt saman i eina allsherjar
meðalmennsku fyrir augum
þeirra.”
eins og þær verða, þegar búið er
að saméæma skoðanir þeirra
sem ætla að vinna saman eftir
kosningar. Kjósendur geta þá
kosið um málin einsog þau
raunverulega verða, i stað þess
að kjósa um einhverja óskalista
sem verða látnir fjúka I makki
flokkanna um stjórnarmyndun-
ina að kjöri loknu.
Að kaupa köttinn i
sekknum
Stjórnmálaflokkarnir verða
að segja með hverjum þeir eru
tilbúnir að vinna og meö hvaða
skilyrðum. Þeir verða þar meö
að gera stjórnarsáttmála fyrir
kosningar, en ekki eftir.
Það eru ekki nein alvöru-
stjórnmál, þegar stefnan sem
unnið ereftir,eralltönnurensú
„Við skuium vera raunsæ. Það
er ljóst að samsteypustjórn
verður við völd, svo við skulum
haga okkur I samræmi við það.”
sem kosin var. Það kallast að
kaupa köttinn i sekknum þegar
svo er gert.
Hinn almenni kjós-
andi ræður litlu
Þaö er ekki hægt að bjóða
kjósendum upp á það enn einu
sinniaö greiða atkvæði, án þess
að þeir viti nokkurn veginn hver
stefnan er þegar til kastanna
kemur. Það er aldrei að vita hvað
upp snýr, þegar flokkarnir hafa
lokið makki sinu um stjórnar-
myndunina.
Eitt vitum við þó með vissu.
Hinn almenni kjósandi ræður þá
litlu. 1 stuttu máli, það nær eng-
inn einn flokkur nægu fylgi til
meirihlutastjórnar. Það verður
samsteypustjórn við völd eftir
kosningar. Flokkarnir geta
samið um hvað sem er að lokn-
um kosningum, ef þeir eru ekki
búnir að lýsa samstarfsáætlun-
um fyrir kosningar og eru
bundnir af þeim. Það er timi til
kominn að flokkarnirskipuleggi
málefni sin lengra fram i tim-
ann en til dagsins i dag.
Sem sagt: hina raunverulegu
stefnu á borðiö fyrir kosningar
en ekki á eftir.
Magnús Marlsson
„Það eru ekki nein alvöru
stjórnmál, þegar stefnan sem
unnið er eftir, er ailt önnur en
sú, sem kosin var. Það kallast
að kaupa köttinn I sekknum,
þegar svo er gert.”