Alþýðublaðið - 01.12.1979, Síða 5

Alþýðublaðið - 01.12.1979, Síða 5
Laugardagur 1. desember 1979 5 Alþýöufíokkurínn — hvers vegna? ff1” berjast fyrir þvi aö gegn verðbólgunni veröi beitt þeim ráðum sem duga. Ó.B .G. Geir Gunnlaugsson prófessor: fyrir samræmdri stefnu i efnahagsmálum” „Ég fylgi Alþýöuflokknum, vegna þess aö ég er jafnaöar- maöur, og Alþýöuflokkurinn, er eini flokkurinn sem berst fyrir þvi aöhér risi þjóöfélag, byggt á þeirri stefnu. Aðalmdl þessarar kosninga- baráttu er baráttan gegn veröbólgu. Alþýöuflokkurinn hefur barist fyrir samræmdri stefnu i efnahagsmálum, þar sem rikisvaldið beitiöllum þeim hagstjórnartækjum, sem henni erutiltæk. 1 stað siendurtekinna bráðabirgðaúrræöa komi stefna til lengri tima. I siöustu kosn- ingum veittu kjósendur flokkn- um brautargengi, til þess að ráöast gegn þvi þjóöfélagi verðbólgu, sem hér hefur risiö upp á siðasta áratug. Samstarfsflokkarnir, vildu ekki taka þátt i þeim aðgeröum sem þurfti. Alþýöubandalagið viröist vera orðið helsti talsmaður braskaranna, og Framsókn vissi ekki i hvorn fótinn hún átti að stiga frekar en fyrri daginn. Alþýöuflokkurinn sýndi, aö hann var ekki i stjórn til þess að hafa ráöherra, úr þvi einskis árangurs var að 1 vænta, sleit hann samstarfinu, til þess að leita á ný til kjósenda, og leggja stefnu sina undir þeirra dóm. Veiti kjósendur Alþýöuftokkn- um stuöning á ný, mega þeir treysta því, aö hann mun Helga Guömundsdóttir tölvustjóri: !■■■ leggja frekar þingsæti sin i hættu ” ,,I siöustu kosningum kaus ég Alþýöuflokkinn i fyrsta skipti. Þá var ég leigjandi, og stefna flokksins i húsnæðismálum féll mér vel i geð. Nú er ég aö kauþá mér ibúö, og enn kemur 1 ijos ao stefna flokksins i ibúöarlána- málum er sú skynsamlegasta, sem lögö hefur veriö fram. Éghef lfkatrú á þvi, að stefna flokksins i efnahagsmálum almennt, sé skynsamleg, og lik- legust til þess aö ná árangri i þvi aö byggja hér upp heilbrigt efnahagslif. Mér likar vel aö sjá þann kjark sem þingmenn flokksins hafa sýnt, meö þvi að slita stjórnarsamstarfinu, þvi þaö er mjög sannfærandi aö sjá þá leggja frekar þingsæti sin I hættu, en sætta sig við enda- lausar skammtimalausnir. Siöast en ekki sist, finnst mér aö það hljóti aö vera til bóta, að hafa sem flesta unga frambjóðendur, þaö er kominn timi til aö veita nýju blóöi í is- lensk stjórnmál. Mikill meirihluti frambjóðenda Alþýöuflokksins eru af yngri kynslóðinni, og það er gott.’ ’ Trausti Sigurlaugsson: „Lífsviðhorf mitt mótaðist af lífi verkafólks og alþýðumanna” Ég styö Alþýöuflokkinn vegna þess aö hann hefur á stefnuskrá sinni málefni sem mér eru hug- leikin, þ.e. frelsi, jafnrétti og bræöralag. Foreldrar minir voru verka- fólk á Isafirði, og sjálfur stund- aöi ég verkamannavinnu á timabili og lifsviðhorf mitt mót- aöist af lifi verkafólks og alþýöumanna. Ég byrjaöi snemma aö taka þátt I félagsstörfum og þaö leiddi af sjálfu sér aö ég gekk 1 Alþýöuflokkinn. Þaö kom ekki annaö til greina. Ariö 1960 fluttist ég suöur og settist aö i Kópavogi, þá tók ég litillega þátt i störfum Alþýöuflokksins þar. Ég vinn fyrir félagssamtökin Sjálfsbjörg, og öll félagsleg samhjálp er mér mikiö hjartansmál, félagsleg samhjálp er einnig eitt höfuö stefnumál Alþýöuflokksins, og fellur stefna hans þannig vel aö mlnulffsviöhorfi. x-A Birna Eyjólfsdóttir húsmóöir: Flokkur afskiptra þjóðfélagshópa Ég tel einfaldlega aö Alþýöu- flokkurinn sé flokkur framtiöar- innar. Hann gefur ungu fólki möguleika á aö koma hugöar- efnum sinum á framfæri, og er þaö meira en hægt er aö segja um hina flokkana. Þeir eru staönaðir og taka litiö sem ekk- ert mark á unga fólkinu. Þaö er augljóst mál að Alþýöuflokkurinn berst flokka __mest fyrir hverskyns félagsleg- um réttindamálum, og vil ég I þvi sambandi t.d. minna á frumvarp Jóhönnu Siguröar- dóttur um aöstoö viö þroska hefta. Nú, einnig má benda á stefnuskrá flokksins um barniö I þjóöfélaginu. Almannatryggingakerfiö og flest önnur félagsleg þjónusta þessa lands er bein uppskera af stefnu og starfi Alþýöuflokks- ins. Mestur hluti þeirra tillagna sem bornar voru fram á siðasta þingi um bætt hlutskipti ýmissa afskiptra þjóöfélagshópa komu frá Alþýöuflokknum. Eitt þess- ara mála, frumvarpið um eftir- laun aldraöra, var stöövaö af Framsókn. Maöur roðnaöi fyrir hönd hákarlaf ormannsins, Ólafs Jó. þegar hann reyndi að bera þaö af sér i sjónvarpinu. Eiöur Guönason: Tíminn lýgur um t Timanum f dag er vitnaö til ummæla, sem ég á aö hafa látiö falla á framboösfundi i Borgar- nesi á miövikudag, um Borgar- fjaröarbrú, og brú yfir ölfusár- ósa. Frásögn Timans af þvi sem ég á að hafa sagt þarna, er alröng. Timinn kveöur mig hafa sagt, aö fresta ætti byggingu brúar yfir ölfusárósa um óákveöinn tima. Þau ummæli viðhaföi ég aldrei, og eru þessi skrif Timans önd- vegisdæmi um þann heiðarleik og drengskap sem Framsóknar- menn iöka nú. A fundinum i Borgarnesi sagöi ég um tillögu Sighvatar Björg- vinssonar f jármálaráöherra, varðandi framlög til vegamála næsta ár, að auövitað yrði lokið við Borgarfjaröar brú. En þessi tillaga gæti hins vegar þýtt að á næsta ári yröi ekki ráöist i nýjar stórframkvæmdir, eins og t.d. brú yfir ölfusárósa. Miðað viö þá sannleiksást sem efsti maöur Framsóknar i Vesturlandskjördæmi, Alexander Stefánsson hefur sýnt á fram- boðsfundum, þykir mér liklegt aö þessi falsaða frétt Timans eigi einhverjar ættir til hans aö rekja. E.G. bskiptaráöherra: d verð itefnunn á leng na og ðslubyrði Lenging lánstíma Hitt er annaö mál, aö lánskjara- stefnan sem byggist á verðtrygg- ingu hefur hingaö til ekki fengist framkvæmd svo sem lög gera ráð fyrir. Það sem snýr að fólkinu hef- ur oröiö útundan”. 1 6. kafla efna- hagslaganna frá þvi i vor segir aö fyrir árslok 1980 veröi i áföngum komiö á verðtryggingu sparifjár og inn- og útlána. En þar segir lika orörétt: „Sam- hliöa verðtryggingu veröi lánstími almennt lengdur og skal setja um þetta efni almennar reglúr, þar á meöal um heimild til skulda bréfa- skipta af þessu tilefni.” Þess vegna hef ég á undanförn- um vikum átt viöræöur og bréfaskipti viö Seölabankann og nú siðast Samband viöskipta- bankanna, þar sem ég lýsi þeirri skoðun rikisstjórnarinnar, aö forsenda þess aö næsti áfangi vaxtabreytinga verði framkvæmdlur, sésú, aö ákvæöum laga um lengingu lánstima og jöfnun greiðslubyröi yfir lánsti'mann veröi framfylgt. Kynning á lánskjörum 1 tilefni þessa máls hefur við- skiptaráðuneytið íátið eftirfarandi frá sér fara: „Að frumkvæði rikisstjórnarinn- ar hafa að undanförnu farið fram viðræður við viðskiptabanka um framkvæmd lánskjarastefnunnar, einkum að þvi er varöar lengingu lánstíma og jöfnun á greiðslubyröi, samhliða að verðtryggingu sé kom- iö á i áföngum, eins og tilskilið er i lögum. Jafnframt hefur verið fjall- að um nauðsyn þess að kynna al- menningi rækilega þá möguleika sem bankar og sparisjóðir bjóða i þessu sambandi. Samvinnunefnd banka og sparisjóða mun birta um þessi mál ítarlegar auglýsingar. Samband islenskra viöskipta- banka hefur tekiö jákvætt undir lengingu lána i tengslum við fyrir- hugaöa vaxtabreytingu hinn 1. des. n.k. Viðskiptaráðherra hefur i dag ritaö stjórn Islenskra viðskipta- banka bréf þar sem stefnumörkun i þessu efni er itrekuð og skilgreind nánar A þeirri forsendu aö nú veröi gerð gangskör að þvi aö lengja lánstima og jafna greiðslubyrði hefur rikisstjórnin lýst sig sam- þykka þeirri tillögu bankastjórnar Seölabankans að vextir af sparifé og öörum innlánum hækki hinn 1 des. um 4% en útlánsvextir um 2,5% og þar meö verði dregiö úr mun innláns- og útlánsvaxta um 1.5%. Þessi afstaða rikisstjórnarinnar er beinlinis á þvi byggð að nú verði stigið ákveöið skref til að fram- kvæma þá þætti lánskjarastefn- unnar, sem snúa að lengd lánstima og jöfnun greiðslubyröi og verði þannig komið jöfnum höndum til móts við hag sparifjáreigenda og þarfir lántakenda um jöfnun greiðslubyrði. Þótt allar aðstæður séu óvissar og óvenjulegar telur rikisstjórnin óverjandi að falla nú frá skipulegri framkvæmd stefnunnar að koma á verðtryggingu sparifjár og Iánsfjár fyrir lok árs 1980. Vitaskuld er æskilegast að markið náist aö sem mestu leyti meö þvi að úr verð- bólgu dragi á riæsta ári, en ein for- senda þess er einmitt að dregið verði úr verðrýrnun sparifjár al- mennings með markvissum hætti.” Aðgerðarleysi Svavars Vinnubrögð fyrrverandi við- skiptaráðherra Alþýðubandalags- ins, Svavars Gestssonar, i þessu máli, er óneitanlega athyglisverð. Sem kunnugt er samþykktu allir þingmenn Alþýðubandalagsins efnahagslögin frá i vor, þar meö verötryggingarstefnuna. Hins veg- ar hafa málsvarar flokksins alla tiö siöan svariö af sér alla ábyrgö af þessari lagasetningu. Þeir hafa hamrað á þvi, að Alþýöuflokkurinn hafi neytt þá til fylgis við verö- tryggingarstefnuna sárnauöuga. Talsmenn Alþýöubandalagsins hafa ekki linnt látum viö að afflytja þessa stefnu, og gera hróp að Alþýöuflokknum fyrir svo- kallaða hásvaxtastefnu. Hins vegar aöhafðist Svavar Gestsson ekkert, alla sina ráö- herratiö, i þvi að framfylgja þvi ákvæði laganna sem kvað á um lengingu lánstima og jöfnun greiðslubyrði en framkvæmd laganna aö þessu leyti skiptir sköpum um hag lántakenda. Hlutur Kjartans Jóhanns- sonar Það hefur þvi komið i hlut Kjartans Jóhannssonar að beita sér fyrir þvi við Seðlabanka og Samband viðskiptabankanna, að farið veröi að lögum við fram- kvæmd verötryggingastefnunnar. 1 bre'fi til Seðlabankans hefur viðskiptaráöherra jafnframt mælst til þess, að vextir af innistæðum veröi greiddir i byrjun hvers mánaðar. Bréfið er svohljóðandi: „Ráðuneytið óskar hér meö eftir þvi, aö Seölabankinn kanni, i sam- ráði við viðskiptabanka og aðrar innlánsstofnanir, möguleika á þvi, aö innlánsstofnanir gefi viðskipta- vinum sinum kost á að fá vexti af innistæöum greidda I byrjun hvers mánaðar, og vaxtakjörin veröi viö þaö miðuð, að ársávöxtun verði hin sama hvort sem greitt er árlega eða mánaðarlega. Þess ER óskað aö könnun þessari verði hraöaö.” Að þvi er varöar greiöslubyröi afurðarlána atvinnuveganna segir svo i bréfi viöskiptaráðherra til Sambands islenskra viöskipta- banka: „Ennfremur beinir ráðuneytiö þvi til viðskiptabankanna, að hlut- íall þeirra lána, sem þeir bæta við endurkaupanleg lán út á útflutn- ingsafurðir veröi rýmkuö um sem svarar 2% af endurkaupanlegum lánum, og jafnframt að þvi fylgi jafnan uppæröu andviröi endur- kaupanlegu lánanna.” 1 erindum sinum bæði til Seðla- banka og Sambands viðskipta- bankanna leggur viðskiptaráð- herra megin áherslu á, að þau láns- kjör sem raunverulega bjóðast og taka miö af lengingu lánstima og jöfnun greiöslubyrði verði rækilega kynnt og auglýst af hálfu bankanna i fjölmiðlum og með öðrum hætti. Kjarni málsins er sá að dreifa verðbótaþætti vaxta yfir lánstim- ann Kjarkleysi hinna flokkanna A sama tima og rikisstjórn Alþýðuflokksins stendur þannig föst fyrir á verötryggingarstefnu sinni, en gengur um leið strangt eftir þvi að bankarnir framkvæmi lögin meö þvi aö standa viö leng- ingu lánstima og dreifingu greiöslubyröi, þá tvistruöust full- trúar hinna flokkanna i bankaráði Seðlabankans i allar áttir og þoröu fæstir að taka nokkra afstööu. Fulltrúar Framsóknarflokksins, sem stundum vill kenna verötrygg- ingarlögin viö formann sinn, vildu fresta vaxtahækkuninni. Fulltrúi Alþýöubandalagsins taldi aö ekki skipti máli, hvernig stefna væri i framkvæmd! Og annar fulltrúi Sjálfstæöisflokksins sat hjá. Hann lagöi ekki i neina leiftursókn! Þannig sýnist augljóslega hægara um aö tala en I aö komast. -JBH

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.