Alþýðublaðið - 05.12.1979, Page 4

Alþýðublaðið - 05.12.1979, Page 4
Ólafur Ingólfsson skrifar: Saga úr veröbólgunni ÉG hef heyrt um einn mann sem er óánægður með raun- vaxtastefnu ' Alþýðuflokksins. Þetta er fátækur flugstjóri sem er að berjast við að koma yfir sig húsi sem er minna en meðal félagsheimili, ekki nema nokk- ur hundruö fermetrar hvor hæð. Og svo þarf hann náttúrulega að gera Ut Wagoneer jeppa og ann- an bil, og einnig aö kosta upp á bát, sumarbústað, 10 hesta og svona ýmislegt smávegis.Og til þess að borga þetta þarf hann auðvitað á hagstæöum lánum aö halda, þvi að iaunin eru ekkert verulega hærri en rétt og slétt ráðherralaun. Flugstjórar hafa þokkalegan lifeyrissjóð og þar getur hann fengiö 20 milljón króna lán, en til þess aö sjóöurinn étist ekki jafnóöum upp, eins og ýmsir sjóðir hafagert — einnig sparifé fólks — þá tóku menn upp á þeim skratta, að hafa lánin verðtryggð, þannig að lántak- endur borgi aftur það sem þeir fengu lánaö, en ekki t.d. helm- inginn, eða minna, eins og stundum hefur komið fyrir. Eins og menn sjá, eru bað af- arkostirað verða að borga aftur alla upphæðina. Þessi maöur leitaði vitaskuld til lánastofn- ana, sem höfðu ekki (enn) tekið upp verðtryggingu. Jafnvel þótt greiðslubyrði sé þyngrii byrjun, þar sem hún dreifist á færri ár. Þessi maður átti greinilega ýmsa góöa vini, þvi að hann átti þess kost að fá töluvert margar milljónir svona með meðgjöf. Þeir sem eru svo vitlausir að leggja inn peninga I banka, eru ekki of góðir til að borga brús- Vextir og verdtrygging Vextir-verðtrygging. Þetta tvennt er sitthvað og skyldi alls ekki blandað saman. Þegar tal- að er um krónutölu, sem vex, t.d. úr 1 milljón i 1,5 milljónir á einu dri. finnst mönnum aö um verulega aukningu sé að ræða. En i 50% verðbólgu eru þessar tvær stærðir nákvæmlega jafn stórar. Þetta verður skiljan- legra, ef maður hugsar sér ein- hvern hlut, en ekki krónur. Segjum að maður taki á leigu ibúð i eitt ár. Hún er metin á 20 milljónir i upphafi ársins, en 30 miiljónir, eða 50% meira, viö lok þess, þegar maðurinn skilar henni aftur. Segjum að verð- bólga sé einnig 50%. Auk þess getum viö hugsað okkur að maðurinn borgi t.d. 600 þús. i leigu fyrir árið, sem telzt vist lágt. Þegar maðurinn skilar ibúð- inni hefur hann borgað i leigu sem svarar 3% af andvirði hennar, eins og það var við upp- haf ársins, fyrir afnotin og má hugsa sér það sem vexti, sem eigandinn fær af eigninni. En hverju skilar hann að auki? Tók hann ekki við 20 milljónum og skilaði 30? Má þá ekki segja að hann hafi borgaö 10,600.00 kr. i vexti af 20 milljón króna láni? Eða hvað? Nei, i þessu dæmi sjá allir aö slikurútreikningur væri rangur. Þessar 10 millljónir, sem eignin jókst að verðmæti i krónutölu, er i rauninni engin eignaaukn- ing eiganda i 50% veröbólgu. verðmætið stóð i stað, 10 millj- ónir voru ekkert annað en verð- trygging. Þetta er munurinn á verðtryggingu og vöxtum. Verðtrygging er svo sjálf- sagður hlutur að það er furðu- legt hvað það hefur gengið illa að fá fólk, og ekki sizt stjórn- málamenn, til að skilja hvilikt réttlætismál hún er. Og þó, það eru nefnilega ýms- ir sem skilja þetta mjög vel, Þeir gætu hugsað sér að fá á leigu 20 milljón króna eign i ár ogskila aftur t.d. 22 millj (10% vextir) þótt verðmætið væri raunverulega 30 millj. Þeir myndu þannig kunna við það að þiggja 8 milljónir króna að gjöf frá öðrum. Suomi félagid fagnar þjódhátídardegi Finna MFA Fyrir skömmu lauk tveimur 1. önnum i Félagsmálaskóla alþýðu. Sú fyrri stóö yfir 7.—20. október en sú seinni 4.—17. nóvember. Fyrirkomulag námsins og við- fangsefni 1. annar er komið i nokkuð fastar skoröur, en náms- greinarnar voru þessar: Ræðu- mennska, fundarstörf, félags- stjórnun, framsögn, hópefli, saga og Sögusafn Verkalýös- hreyfingarinnar, starf og staða trúnaðarmanna á vinnustöðum, skipulag og starfshættir ASÍ, út- gáfustarf verkalýðsfélaga, fjöl- þjóðasamtök verkalýðs- hreyfingarinnar, helstu réttindi launafólks, almannatryggingar, stefnuskrá ASt, heilbrigði og öryggi á vinnustöðum. Ennfrem- ur var skipst á skoðunum við for- ystumenn verkalýðssamtakanna um málefni hreyfingarinnar. Á báðum þessum önnum komu ýmsir góðir gestir i heimsókn, t.d. skáld sem lásu úr verkum sfnum, sönghópur og fulltrúar Nemenda- sambands Félagsmálaskóla al- þýðu. Auk þess var leikþátturinn Vals eftir Jón Hjartarson sýndur á önnunum, en þeikþáttur þessi hlaut fyrstu verölaun i leikþátta- samkeppni MFA sem kunnugt er. Á meðan skólinn stóð yfir fóru nemendur i skoðunarferðir um nágrennið og heimsóttu Garð- yrkjuskóla rikisins að Reykjum, litið var inn hjá Mjólkurbúi Flóa- manna og Sláturfélagi Suður- landsá Selfossi. Ennfremur gekk Þórður Jóhannsson hreppstjóri i Hveragerði með nemendum um Olfusborgarsvæðið, og sagði frá örnefnum og þjóötrú sem tengjast staðnum og umhverfi hans. Þrjátiu manns stunduðu nám við Félagsmálaskóla alþýðu á þessum tveimur önnum og fimm- tán leiðbeinendur komu og störf- uðu við skólann um lengri eða skemmri tima. Námsstjórar voru þeir Karl Steinar Guðnason og Tryggvi Þór Aðalsteinsson. Eftir áramót verður svo starfi skólans haldið á'fram og hefur verið rætt um, aö pa veroi 3. önn haldin i fyrsta sinn auk 2. annar, sem verður sú fjórða. Um þetta mun stjórn MFA taka ákvörðun fljótlega, og verkalýðsfélögum og fyrri nemendum tilkynnt um það i bréfi. Formaður skólast jórnar Félagsmálaskóla alþýðu er Stefán ögmundsson, en stjórn skólans er jafnframt stjórn MFA. Farsóttir í Reykjavík Farsóttir i Reykjavik vikuna 4.—10. nóvember 1979, samkvæmt skýrslum 8 (7) lækna. Iðrakvef.................14 (19) Kighósti ................ 4 (0) Hlaupabóla .............. 3 (4) Hettusótt.................6 (3) Hvotsótt................. 2 (0) Hálsbólga................28 (39) Kvefsótt ................84 (83) Lungnakvef...............22 (8) Kveflungnabólga.......... 2 (4) Blöðrusótt ungbarna ..... 1 (0) Virus ...................10 (9) Dilaroði................. 1 (0) Pólitiskttaugaáfal! Þrátt fyrir ósigur Alþýðu- flokksins nú i kosningunum, er ljóst aö flokkurinn hefur endurheimt sinn sess i islenskum stjórnmálum, og á fastafylgi meðal kjósenda. Fyrir þingkosn- ingarnar ’78 var háleitasta hug- sjón Alþýðubandalagsins sú að „þurrka Alþýðuflokkinn út”. Þessi draumur Alþýðubanda- lagsins varð aö martröð þegar flokkarnir stóöu uppi með sina fjórtán þingmennina hvor. Þetta pólitiska taugaáfall hljóp svo i geðiö á LUÖvik og skósveinum hans aö stjórnarsamstarf reynd- ist ekki unnt næstu þrettán mánuðina. Þótt Alþýöuflokkurinn hafi tap- aðf jórum þingsætum, hefur hann 100% meira fylgi en hann haföi fyrir kosningarnar ’78. Alþýðu- bandalagið missti þrjá og hjakk- ar þvi I sama farinu með sína krónisku fylgismenn. Þvi miður virðist þvi hætta á að sagan endurtaki sig meö sjúklegri afbrýðisemi bandalagsmanna. Draumur þeirra um að safna krötum ogkommum f afturhalds- Fimmtudaginn, 6. des. n.k. er þjóðhátiðardagur Finna. Suomi- félagið minnist dagsins með fagn- aði i Norræna húsinu kl. 20:30 um kvöldið. Þar leikur Hornaflokkur Kópavogs undir stjórn Björns Guðjónssonar. Barbro Þórðarson formaður félagsins flytur ávarp. Kveðjur frá Finnlandi ber Hans Ottelin sendiráðunautur. Hátiðarræðu flytur Sigriður Thorlacius. Loks syngur viðfræg finnsk visnasöngkona Barbara Helsingius. Hún á litrikan starfs- feril að baki. Fimleikakennara- prófi lýkur hún 1961 og fær siðan samt, en rómantiskt kosninga- bandalag, virðist endanlega úti. HeiIIaði prófessorsglottið? Engin vafi er á að hin siglottandi véfrétt, Ölafur Jó,hef- ur skipt sköpum i kosninga- baráttu framsóknar. Sakir geö- og rótleysis i stjórnarsamstarfinu hefur þessi nitjándualdar söfn- uður einhvernveginn orðið útundan I kosningabaráttunni. Þaö var einfaldlega ekki hægt að finna þar fastan punkt til að f jalla styrk til námsdvalar i Kaliforniu vestur, dvelur þar á árunum 1962—1964 og lýkur M.A. prófi við Stanford-háskólann. Á Ameriku- árunum fær hún áhuga á visna- söng og heim komin kynnir hún bandariska visnasöngvara fyrst Finna að einhverju marki. Bargara hefur frá þvi 1965 unnið lengur og skemur við finnska hljóðvarpið. Nú á þessum áratug sem fréttastjóri tónlistar- og iþróttaefnis m.a. við útsendingar á ensku. Hún hóf feril sinn sem visna- söngkona með sjónvarpsþætti. Hún hefur nú gert 15 sjónvarps- um. Vegna geöleysis kom þaö i hlut ráöherra framsóknar aö sætta umbótaöfl krata og ihalds- öfl Alþýðubandalagsins. OtUr þessu kom einn allsherjar hræri- grautur,sem enginn vildi kannast við, nema auðvitað Ólafur Jó og hans meðreiðarsveinar. Það hef- uraldrei vcriö markmið framsóknar aö stjórna i sjálfu sér, heldur hittaö vera f stjórn.Þessi flokkur, sem á ekki sinn lika á vesturhveli jarðar, er fyrst og siðast I pólitik til að verja óbreytt ástand. Framsóknarflokkurinn átti dagskrár og hafa flestar þeirra verið sýndar erlendis. A 7. og 8. áratugnum hefur hún um skeið veriðbúsett i Bandaríkjunum og i Noregi. 1 þessum löndum báðum hefur hún komið fram i sjónvarpi margoft og I Noregi hefur hún einnig unnið fyrir hljóövarp, leik- iðinn á hljómplötur, haldið visna- kvöld, skemmt i skólum og viöar um 6 ára skeið. Þá hefur hún á ný haldiö söngskemmtanir I Sviþjóð og m.a. komið fram i hinum vin- sælu morgunþáttum Lennarts Hylands. A söngskrá hennar eru auk Framhald á 3. siðu sinn þátt iaðgera SIS aö þvi veldi sem þaö er. Nú er SIS orðið auöhringursem heldur úti heilum stjórnmálaflokki. Auk þess að vera varðhundar óbreyttrar land- búnaðarstefnu, veröa þingmenn flokksins að gæta hagsmuna SIS. X-verðbólga Vitanlega er sá aðili traust- vekjandi sem kemur á sáttum. Framsóknarflokkurinn hamraði á þvi linnulaust aö ráðherrar flokksins, með prófessor Olaf glottandi I hásæti, hefðu komið á sáttum i stjórninni. Þessu til viöbótarhefur flokknum tekist að gera glottið á Ólafi Jó að einskon- ar vörumerki, Þótt þvi verði ekki trúað að óreyndu viröast kjósendur hafa hrifist af uppátækjum mannsins. Þessi sigur framsóknar staðfestir sinnuleysi islenskra kjósenda gagnvart verðþenslunni. En það er, sem betur fer lýðræði i land- inu, og þegar kjósendur panta framsóknaráratug, þá eiga þeir heimtingu á að fá framsóknar- áratug. G.Sv. alþýðu- blaöið Miðvikudagur 5. desember KÚLTURKORN Sýning i Galleri Suður- götu 7. Laugardaginn 1. desember opnaði Sigriður Guðjónsdóttir sýningu á verkum sinum i Galleri Suðurgötu 7. Þetta er fyrsta einkasýning Sigriðar. Hún hefur áður tekið þátt i nokkrum samsýningum. Sigriður stundaði nám við Myndlista og handiðaskóla ís- lands, einr.ig var hún eitt ár við nám i Hollandi. Sýningin samanstendur af ljós- myndum og verkum sem unnin eru með hliðsjón af galleriinu sjálfu. Sýningin er opin frá 18 til 22 á virkum dögum en 14 til 22 um helgar, henni lýkur þann 10. þessa mánaðar. Tónleikar. Næstu áskriftartónleikar Sin- fóniuhljómsveitar Islands, hinir sjöundu á þessu starfsári verða i Háskólabiói, n.k. fimmtudag 6. desember og hefjast þeir eins og að venju kl. 20.30. Efnisskrá tónleika þessara verður sem hér segir: Karólina Eiriksdóttir — Notes, Mozart — Pianókonsert K V 466, Bruckner — Sinfónia nr. 1. Hljómsveitarstjórinn Reinhard Schwartz fæddist árið 1936 i Ber- lin. Hann stundaði almennt tón- listarnám við Borgartónlistar- skólann i Berlin og hljómsveitar- stjórn hjá Prof Herbert Ahlendorf ásamt námskeiðum hjá Herbert von Karajan í Berlin og Franco Ferrara i Hilversum. Hann var stjórnandi við Borg- arleikhúsið i Basel frá 1960-65, I Wuppertal hjá Janos Kulka 65 - 69. Reinhard Schwarz hefur stjórnað mörgum viðurkenndustu hljómsveitum i Þýskalandi, m.a. Filharmóniusveit Berlinar og Borgaróperuhljómsveitinni i Hamborg, svo eitthvað sé nefnt. Unnið að upptökum fyrir útvarp og sjónvarp og verið gestastjórn- andi m.a. i Þýskalandi, Austur- riki og Finnlandi. Hinar kerfis- bundnu tilraunir hans til þess að auka áhuga æsku- og skólafólks á leikhúsi og tónleikum hafa vakið mikla athygli um allt V-Þýska- land. Arið 1978 varð hann fastráð- inn hljómsveitarstjóri viö Rikisó- peruna i Vin. Pianóleikarinn Jörg Demus fæddist i Sankt Poelten i Austur- riki árið 1928. Hann hóf pianónám sex ára að aldri og aðeins ellefu ára fékk hann inngöngu i Tónlist- arskóla Rikisins i Vin. Jafnframt menntaskólanámi lagði hann stund á nám i pianóleik hjá Walt- er Kerschbaumer, orgelleik hjá Karl Walter, hljómsveitarstjórn hjá Hans Swarowsky og Joseph Krips og tónsmiðar hjá Joseph Marx. Eftir að hann útskrifaðist frá Tónlistar skóla Rikisins i Vin, fór hann til Parisar til náms hjá Yves Nat. Einnig var hann við Tónlistar- skólann i Saarbruecken, þar sem hann var undir handleiðslu Walt- er Gieseking. Hann hefur tekið þátt i fjölda sumarnámskeiða m.a. hjá Wilhelm Kempff, Arturo Benedetti-Michelangeli og Edwin Fischer. Jörg Demus kom fyrst fram á tónleikum þegar hann var fjórtán ára að aldri og voru það einleikstónleikar á vegum hins virta félagsskapar „Gesellschaft der Musikfréunde” i Vin. Skömmu siðar fékk hann tilboð um að leika á Italiu og I Sviss. Eftir um 1950 má segja að hann hafi verið á stöðugum tónleika- ferðalögum og hefur hann nú leik- ið á tónleikum um nær allan heim ef frá eru talin Sovétrikin og Kina. Arið 1956 vann hann hin eft- irsóttu Busoni-verðlaun á alþjóð- legri keppni pianóleikara i Bil- zano. Hann hefur i mörg ár verið fastagestur á mörgum virtustu tónlistarhátiðum i Evrópu og Ameriku. Hann hefur leikið inn á yfir 200 hljómplötur sem gefnar eru út af vönduðustu útgáfufyrir- tækjum. Á RATSJÁNNI

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.