Alþýðublaðið - 09.01.1980, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 09.01.1980, Blaðsíða 2
2 AAiðvikudagurinn 9. janúar 1980. Kjaramál: Laun og launatengd gjöld í fiskvinnslu Kjararannsóknarnefnd hefur nýlega birt yfirlit yfir ýmis launatengd hjöld og annan óbeinan kostnað, sem atvinnurekendum ber að breiða til viðbótar beinum launagreiöslum. Til grundvallar útreikningi fyrir fiskvinnslufólk er notaður 3. taxti eftir 1 ár, miðað við 1. júli 1979. Um frekari skýringar visast til Fréttabréfs Kjararannsóknarnefndar nr. 44. 1. Dagvinnutaxti 1.142.00 2. Veikindagreiöslur 39.97 3. Slysagreiðslur 6.85 4. Fæðingarstyrkur kvenna 0.80 5. Orlof 99.10 777777 Samtals 1.288.72 6. Sjúkrasjóður 12.89 7. Orlofsheimilasjóður 3.22 8. Lifeyrissjóður 71.38 9. Slysatrygging I 3.75 10. Atvinnuleysistryggingasjóður 7.50 11. Lifeyristrygging 25.77 12. Slysatrygging II 4.54 13. Launaskattur 45.11 14. Iðnaðargjald -- 15. Félagsgjald atvinnurekenda 10.31 16. Iönlánasjóðsgjald 17. Aðstöðugjald 7.37 Laun og launatengd gjöldalls 1.480.56 óbeinn launakostnaður sem hlutfall af taxta. 19% Sú framsetning, sem hér er notuð, er með mokkuð öðrum hætti en áð- ur, en þá var lögð áherzla á útreikning heildarlaunakostnaðar á virka vinnustund. Birtist slikur útreikningur i siðasta fréttabréfi Sambands fiskvinnslustöövanna. Reiknað á þann hátt verða álögur á virka vinnu- stund nú 47% umfram taxta. Við siðasta útreikning af þessu tagi i jóli 1978 var þetta hlutfall 44.9 þannig ða álögur hafa aukist um rimlega 2 prósentustig frá siðasta ári. Nettóskuld 1 öllum launþegum gegnum tölvu, fyrir utan að senda bréf öllum vinnuveitendum, annarra en opinberra starfsmanna, og skatt- heimtuseðla til allra launagreið- enda á sama tima, eru inn- heimtumál rikissjóðs þegar kom- in i eindaga. Það fyrsta sem reyn- ir á á Alþingi eftir að það kemur saman, að loknu jólaleyfi, er ákvöðun innheimtuhlutfalls og samþykkt innheimtuheimildar. Innritun fer fram miðvikudag 9. jan., fimmtudag 10. jan. og föstudag 11. jan. kl: 17.-21. i Miðbæjarskóla: Kennslugreinar og þátttökugjöld á vetrarönn: PRÓFADEILDIR VIÐSKIPTADEILD 1. ÖNN HEILSUGÆSLUDEILD 2. ÖNN KR: 28.000-. FORNÁM KR: 19.000.- AÐFARANÁM KR: 19.000.- ALMENNIR FLOKKAR TUNGUMÁL ÍSLENSKA STÆRÐFRÆÐI BÓKFÆRSLA KR: 15.000,- VÉLRITUN LEIKFIMI ÆTTFRÆÐI ÍSLENSKA F.ÚTLENDINGA I. fl KR: 15.000.- II. fl KR: 22.000.- BARNAFATASUMUR SNÍÐAR OG SAUMAR POSTULINSMÁLNING MYNDVEFNAÐUR HNÝTINGAR BÓTASAUMUR TEIKNUN OG AKRÍLMÁLNING KR: 29.000.- KR: 29.000,- KR: 29.000.- KR: 22.000.- KR: 15.000,- KR: 15.000.- KR: 22.000.- BYRJENDAFLOKKAR VERÐA í norsku, islensku f. útlendinga, þýsku, sænsku, ensku, frönsku-ítölsku, spænsku, bókfærslu, ættfræði, og öllum ofangreindum verknámsgreinum. Ekki er innritað i gegnum sima. Þátttökugjald greiðist við innritun. Raunhæfar 1 bætur eru greiddar á laun. Veröbætur eru skertar að þvi leytinu til, að allar verðhækkan- ir fást ekki bættar, og kaup- hækkunum, sem stefna umfram raunverulega framleiðniaukn- ingu er velt út i verðlagið á ný. Launþegar bera þvi sjálfir kostnaðinn i formi nýrra kaup- hær.kana. Það er skiljanlegt að þeir sem lægst hafa launin vilji hafa tryggingu fyrir þvi, að kaup- máttur þeirra rýrni ekki I kjöl- far verðlagshækkunar. Það er hins vegar ekki rökrétt hugsun aö baki þeirrar hugmyndar, að láta öll laun breytast samfara verðlagshækkun. Kaupmáttur launa getur þvi aöeins aukizt, þegar til lengdar lætur, að þjóö- artekjur aukist. Með vaxandi þjóðartekjum eiga laun að hækka. Lækki þjóðartekjur hljóta raunveruleg laun að lækka með einhverjum hætti. t raun og veru er akkert rökrétt samband milli breytinga á framfærslukostnaði, eins og hann er mældur með verðlags- visitölunni, og getunnar til þess að auka kaupmátt laUna eða nauðsynjar á að skerða hann. Verðhækkanir á oliu og kaffi er- lendis hækka t.d. verðlag hér innanlands. Kaupmáttur þjóð- arteknanna minnkar. Þetta get- ur náttúrulega ekki verið traustur eða varanlegur grund- völlur kauphækkana innan- lands. Aflaaukning og verð- hækkanir á erlendum mörk- uðum eykur kaupmátt þjóðarteknanna og er traust- ur grundvöllur fyrir raunveru- legum kauphækkunum, en visitölukerfið færir launþegum ekki slika kauphækkun sjálf- krafa. Hún yrði aö fást meö grunnkaupshækkunum við upp- haf nýs samningstimabils. Þetta sýnir að verölagsvisitölu- kerflð er gallaö. Það segir sig sjálft, að það er órökrétt að laun á Islandi hækki og verð á land- búnaðarvörum sömuleiðis vegna uppskerubrests I brasilisku kaffihéruðunum. Er- lendar verðhækkanir hafa meiri áhrif hérlendis en þær annars heföu i' öðrum löndum vegna þess að innflutningur til Islands er miðað við þjóðartekjur'meiri en i flestum öðrum löndum. Um 40% af þeim verðmætum, sem Islendingar ráðstafa árlega, er flutt inn frá útlöndum. Erlendar verð- hækkanir Það sem gerist hér innan- lands þegar um erlendar verð- hækkanir er að ræða er það, að kaupgjald og verðlag landbún- aðarafurða hækkar. Þjóðartekj- urnar lækka og laun og landbún- aðarafurðir hækka. Slikt verður að teljast óeðlilegt. Slikt leiðir m.a. tíl aukinnar verðbólgu. Framleiðslukosnaöur innan- ianás hækkar og innlendar iðn- aoarvörur hækka I veröi»þetta veldur svo hækkun á fram- færsluvisitölunni, sem siðan veldur nýrri kauphækkun og nýrri hækkun landbúnaðaraf- urða og þannig koll af kolli. Hækkun framleiðslukostnaöar innanlands af þessum sökum gætu útflutningsvegirnir greitt ef verðlag á Islenzkum afurðum færi hækkandi, sé sú ekki raun- in, lendir islenzk útflutnings- framleiðsla fljótt i erfiðleikum og þarf þá að gripa til aðgerða, sem flestum ætti að vera kunn- ar. Launakerfi af þessu tagi er meingallaö. Sjálfvirkt verölags- visitölukerfi er þjóðarbúskapn- um skaðvænlegt. Slikt kerfi veitir launþegum enga sjálf- krafa hlutdeild i auknum þjóð- artekjum ef við gerum ráð fyrir að verðlag á innfluttri vöru haldist óbreytt. en það verður að teljast óeölilegt, að launþeg- ar njóti ekki góðs af hækkandi þjóðartekjum vegna launakerf- is, sem á að tryggja kaupmátt launa. En hvaö á aö koma i stað verðlagsvisitölukerfisins. Þessu er auðvitað ekki fljótsvarað, en eðlilegt virðist að lita til ná- lægralanda og huga að þvi með hverjum hætti þessi mál eru leyst þar. Grundvallaratriðið i þeirri skipan, sem þekktust er erlend- is er þessi, að laun eru ákveðin með vissu millibili i frjálsum samningum milli samtakalaun- þega og vinnuveitenda. Þau breytast ekki i hlutfalli við neina aðra stærð, sjálfkrafa. Þegar launþegasamtök I nálæg- um löndum gera kröfu um Ikauphækkun, hafa þau yfirleitt til hliðsjónar þá aukningu, sem orðið hefurá þjóðartekjum. Þau krefjast m.ö.o., aö launþegar sem heild fái réttmæta hlutdeild I vaxandi þjóöartekjum. Þetta er ein leið, sem við gætum farið. Hin leiðin sem fara mætti er sú, að hafa einhverja sjálfvirkni i sambandi við kaupákvörðun þannig aö kaup hækki s jálfkrafa með vissumillibili i hlutfalli við einhverja stærð, sem væri ein- hverskonarvisitala er sýndi breytingar á þjóðartekjum hverju sinni, en hún er yfirleitt uppá við, þegar tillit er tekiö til lengritíma. Slika visitölu mættí kalla þjóðhagsvisitölu. Auðvitað getur það verið vissum erfið- leikum bundið að reikna slika stærð út, en það ætti þó að vera hægt að reikna út þjóðhagsvisi- tölu, sem væri nægilega örugg visbending um þaö hversu mik- ið þjóðartekjur fari hækkandi frá ári til árs. Þetta þýddi I raun og veru, að laun og verð á land- búnaðarafurðum breyttist I samræmi við þau verömætí, sem þjóðin hefur til ráðstöfun- ar, en ekki i samræmi við fram- færslukostnað, sem getur að verulegu leyti verið háður breytingum á verði erlendis og enginn innlendur aðili hefur nokkur áhrif á. Hagsmunamál launþega? Niðurstaðan af athugun á verðlagsvisitölukerfinu hlýtur að opna augu forystumanna launþega hreyfingarinnar fyrir þvi, að þetta kerfi er alls ekki hagsmunamál launþega þegar til lengdar lætur. Þetta kerfi á sinn þátt i alvarlegasta þjóðfé- lagsmeini Islendinga um þessar mundir, verðbólgunni. Mikil verðbólga er ekki aðeins hemill á heilbrigðan hagvöxt. Hún veldur einnig stórkostlegu þjóö- félagslegu misrétti. Hún flytur til fjármuni i þjóðfélaginu. Hún skerðir hag launþega og veldur þeim stórfelldu tjóni á meðan hún færir skuldurum og fjár- plógsmönnum rangfengið fé. Ætli menn að draga Ur verð- bólgu eða kveða hana i kútinn, einsog flestir virðast sammála um, i opinberri umræðu, verða menn að gera sér grein fyrir, að þetta verður ekki gert nema aðalliður þeirra aöferða verði einmitt afnám visitökukerfis- ins, að þvi frátöldu, aö tryggja verður kaupmátt lægstu launa. HMA Kosningagetraun Rauða krossins Rúmar 30 millj. Félagið vill þakka sérlega góöa þátttöku i getrauninni og þann mikla stuöning, sem almenningur sýndi þeim málefnum, er það vinnur nú að. Jafnframt er rikt tilefni til þess að minna á fjár- söfnun, sem Hjálparstofnun kirkjunnar stendur nú fyrir, undir heitinu: „Brauð handa hungr- uðum heimi”. Þátttaka i gétrauninni var á 30.101 seðli og nam andvirði hennar rúmum 30 milljónum króna. Að auki bárust félaginu framlögfrá mörgum aðilum.sem ekki tóku þátt I getrauninni. RUmlega 40% fjárins fara til hjálparstarfa við Kaniputseu- menn og 20% renna til deilda, þar með til innlendra Rauða kross verkefna. Um 20% fóru i kostnað, upplýsingar, prentun, dreifingu o.fl. og loks 20% i vinninga. Hjálparaögerðir félagsins við Kamputseumenn eruhafnar. Er 6 manna hjúkrunarlið komið til Thailands til starfa þar. Nú er veriö að undirbUa annan leiðang- ur, sem vonir standa til að fari fljótlega. Veröur nánar skýrt frá starfinu strax og tök eru á. Vinninga I getrauninni hlutu þeir Pétur Sigurðsson, Garðabæ, og Guðmundur S. Guömundsson, Tálknafirði. Skipta þeir jafnt á milli sin vinningspotti, kr. 3.010.100 tíl hvors. Reyndust þeir einir með allar fimm tölur réttar i getrauninni. Kosningagetraunin sjálf er stórt verkefni, og hefur Rauði krossinn fengið mikla aðstoð við framkvæmd hennar. Starfsmenn á bensinstöðvum i Reykjavik og viöar önnuðust móttöku i 3 daga. Þá sáu Junior Chamber félagar i Reykjavik um móttökuna við 7 skólaog Flugbjörgunarsveitin við Sjómannaskólann. Fjölmargir félagar Rauöa krossins og aðrir komu til starfa, og fógetar (notariusar) hjálpuðu okkur mjög vel og var bæöi af hálfu félagsins og með aöstoð fógeta séðum, aðöllum formkröfum var vel fylgt. Er ekki kunnugt um nein óhöpp viö skil og meðferð getraunamiða. Þess ber að geta, að dreifing og i móttaka seðla er bundin við svæði, þar sem Rauða kross deildir starfa. Björn Tryggvason var ábyrgðarmaður með getrauninni af hálfu félagsins. Flugleidir: FLUGFLOTINN INNAN- LANDS STAÐLAÐUR A st jórnarfundi Flugleiöa var endanlega samþykktur samningur félagsins við Kar-Air I Finnlandi um sölu tveggja Friendship flugvéla félagsins af F-27-100 gerð. Þessar flugvélar, sem bera einkennisstafina TF-FLJ og TF-FLK verða afhent- ar Kar-Air i mars og april 1980. Með þessum flugvélum selja Flugleiöir varahreyfla og aöra vélahlutí. Söluverö flugvéla og varahluta til Kar-Air er 1.785.000 ba nda rik ja do llara r. Þá er flugvélin TF-FIP til sölu og hafa að minnsta kosti fjórir að- ilar látið i ljósi áhuga á kaupum. Þessi flugvél er meö samskonar hreyfla og þær vélar sem seldar voru til Kar-Air. Burðarmeiri flugvélar i innanlandsflugið. Flugleiðir gerðu nýlega samn- ing við Korean Airlines um kaup á fjórum Friendship flugvélum, þrem af gerðinni F-27-200 og einni af F-27-500. Tvær þessara flug- véla hafa þegar verið seldar til Finnair. Flugvélarnar verða sótt- ar til Seoul og flogið til Islands i janUar. Tækjakosti tveggja þeirra, sem Flugleiöir eiga verð- ur breytt til samræmis viö það sem er i' Friendship vélum félags- ins og hef ja þær slöan flug á inn- anlandsleiöum. Þá hefir einnig komiötil greina að Flugleiðir taki að sér breytingar á tækjakosti flugvélanna sem Finnair keyptu. Samningar um það eru á lokastigi. Sem fyrr segir eru þessar breytingar á flotanum gerðar I þvi augnamiöi aö samræma flug- kostínn, en jafnframt verður hér um burðarmeiri flugvélar aö ræöa. Þannig verður unnt að fljúga meö fullfermi frá flugvöll- um, sem i dag verða aö sæta tak- mörkunum á farmi. Þá kemur einnig til einföldun á varahluta- lager félagsins, þar sem allar flugvélarnar verða búnar sams- konar hreyflum og flestum vara- hlutum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.