Alþýðublaðið - 10.01.1980, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 10.01.1980, Blaðsíða 4
STYTTINGUR Fjölmennasti skóli landsins öll börn á forskólaaldri í Umferðarskólanum. Trygve Bratt- eli sjötugur eftir Gylfa Þ. Gíslason A nýliðnu ári, barnaári 1979, urðu timamót i umferöarfraeðslu hérlendis, en þá voru i fyrsta sinn öll 3ja til 6 ára börn á landinu þátttakendur i umferðarskólan- um „Ungir vegfarendur”. Fram að þeim tima höfðu að visu 87,2% barna notiö þessarar fræöslu i 59 sveitarfélögum, en i ársbyrjun 1979 gerði Umferöar- ráð sérstakt átak til þess að þau börn sem ekki voru i skólanum bættust i hópinn. Meö dyggri aðstoð oddvita og sveitarstjóra þeirra 165 sveitar- félaga sem hér áttu hlut að máli, fór svo að umferðarskólinn er nú skóli allra landsmanna og á sið- asta ári voru nemendur hans 21.244 i öllum 224 sveitarfélögum landsins. Þar með náði Island skemmti- legri sérstöðu i umferðarfræðslu forskólabarna sem vakti verð- skuldaða athygli á alþjóðlegu þingi umferöarráða sem haldið var á Spáni á liðnu ári. Hefur hvergi náðst sú samvinna sem hér á landi tókst á milli Umferð- arráðs og allra sveitarfélaga landsins. Hún felst i þvi að sveit- arfélögin greiöa mikinn hluta af kostnaðarverði þeirra verkefna sem umferöarskólinn sendir börnunum. Erlendis er þetta við- ast hvar ákvöröun einstakra for- eldra og með þvi móti er tæplega hægt að ná til allra. Umferðarráð bindur miklar vonir við þessa ánægjulegu skip- an mála og þakkar öllum þeim sem unnið hafa að framgangi þess. Þaö er von ráðsins að um- ferðarskólinn haldi áfram að stuðla aö auknu umferðaröryggi yngstu vegfarendanna, en það ætti honum að takast ef áfram helst sá áhugi, sem einkennt hefur starf foreldra og nemenda skólans frá upphafi. Vel má vera að áhrifa þessar ungu vegfarenda eigi eftir aö gæta i auknum mæli i bættri um- ferð framtiðarinnar. „HVAÐ UNGUR NEMUR - GAMALL TEMUR”. Alennur fundur félags laga nema, Orators Orator, félag laganema við Háskóla Islands efnir I kvöld fimmtudaginn 10. janúar, til al- menns fundar um efnið „Endur- bætur og opnun dómskerfisins.” Hefst fundurinn kl. 2Ó.30 og verður i Lögbergi, húsi Laga- deildar H.l. Frummælendur á fundinum veröa Vilmundur Gylfason, dómsmálaráðherra, Már Pétursson, formaður Dómarafélags Reykjavikur og Eirikur Tómasson, héraðsdóms- lögmaður. Að loknum framsögu- ræöum verða almennar umræður og frummælendur svara fyrir- spurnum. Fundurinner öllum op- inn meðan húsrúm leyfir. Á morgun verður sjötugur einn þeirra manna, sem sett hafa mestan svip á sögu Norö- manna á þessari öld. Trygve Bratteli er sigilt dæmi þess i sögu/þeirra tima, sem við nú kennum við tækni og visindi, að skólamenntun er ekki skilyrði þess að geta orðið atkvæðamik- ill forystumaður. Hann naut barnaskólamenntunar i fæðing- arbæ sinum, Nötteröy á Vest- fold, á árunum 1917-24. Þá varð hann sendisveinn, hvalveiði- maður, afgreiðslumaður og byggingarverkamaöur i tiu ár. En þegar hann var 24 ára, gerð- ist hann ritstjóri að málgagni Verkamannaflokksins i smá- bænum Kirkenes i Norður-Nor- egi. Þá var teningnum kastað. Frá þeim tima hefur Trygve Bratteli helgaö sig stjórnmál- um. A árunum 1934-49 var hann ritstjóri og starfsmaður sam- taka ungra jafnaöarmanna i Noregi. Fyrstu tvö ár heims- styrjaldarinnar siðari gerðist hann aftur byggingarverka- maöur i Kristiansund. Þrjú sið- ari striðsárin dvaldi hann i fangabúðum i Þýzkalandi. En þegar eftir aö hann kom heim þaðan 47 kiló aö þyngd, hóf hann aftur stjórnmálastörf og varð varaformaður Verkamanna- flokksins 1945. Formaður flokksins var hann 1965-»75. Þingmaður hefur hann verið ■ siðan 1949. Hann var fjármála- ráðherra 1951-55 og 1956-60, samgönguráðherra 1960-64 og forsætisráðherra 1971-72 og 1973-76. Nú er hann formaður þingflokks Verkamannaflokks- ins. Fyrir nokkrum árum kom ég til Kirkenes og hitti þar oddvit- ann I sveitarfélaginu, sem Kirkenes er i, Arnt Isaksen. Henn hefur búið þar alla ævi sina, og er eldri en Trygve Bratteli. Kærasta umræðuefni hans reyndist vera að segja frá samstarfi sinu við Trygve á æskuárum þeirra. Ég hef aldrei heyrt fullorðinn mann lýsa æskuvini sinum af jafnmikilli aðdáun. Það var sameiginlegur áhugi á stjórnmálum, sem gert hafði þá aö samstarfsmönnum og vinum. Arnt Isaksen lýsti honum ekki sem leiftrandi mælskumanni, sem heillaði fólk á fundum meö fögru oröskrúði. „Það er nóg til af slikum mönn- um”, sagði hann. En hann sagði, aö Trygve væri maður, sem allir hlytu að treysta. Það þyrfti ekki að þekkja hann mik- iö til þess að sjá það. Og þeir, sem þekktu hann vel, vissu miklu meira. Þeir vissuaö gáfur hans og dugnaöur væru með ó- likindum, og svo hitt, að hann elskaöi náungann, hver sem hann væri, meira en sjálfan sig. Skömmu siöarhitti ég Trygve Bratteli i' Osló og sagöi honum, að Arnt Isaksen i Krikenes hefði beðið mig aö heilsa honum. „Þaövar gottað þúskyldir hitta hann”, sagði Trygve. „Hann var nánasti vinur minn i Kirke- nes. Églæröi mikið af honum.” Snemma á sjöunda áratugn- um, þegar rikisstjórnin hér á- kvaö að undirbúin skyldi samn- ing þjóðhagsreikninga og þjóðhagsáætlana I Efnahags- stofnuninni, sem þá laut stjórn Jónasar H. Haralz, snerum við okkur til norsku rikisstjórnar- innar og spurðumst fyrir um, hvort hún gæti ekki látið okkur 1 té sérfræðiaðstoð við þetta verk, en Norömenn voru þá og eru enn framarlega á þessu sviði, og er yfirstjórnin i höndum fjár- málaráðuneytisins. Vegna einstaks velvilja norsku stjórnarinnar komu þrirnorskir sérfræðingar i þessum efnum hingað og dvöldu hér i nokkra mánuöi. Ég kynntist þessum mönnum. Mestan hluta sjötta áratugarins hafði Trygve Bratt- eli veriö fjármálaráðherra, en var nú samgönguráðherra. Þessir hagfræðingar sögðust aldrei hafa kynnzt f jármálaráö- herra, sem liktist honum. Hann talaði lítið, en hlustaöi þeim mun meira. Samt þyrfti hann ekki að hlusta lengitil þessað skilja til hlitar, hver væri kjarni málsins. Oft hefðu ákvarðanir hans ekki verið i samræmi við tillögur sérfræðinganna, en þá hefði það aldrei brugðizt, að hann rökstuddi gerðir sinar, i stuttu, en næstum ótrúlega skýru máli. Þóttéghafi þá verið orðinn talsvert kunnugur Bratt- eli, hafði ég ekki gert mér ljóst það, sem ég veit núna, að hon- um heföi reynst auðvelt aö vinna til verðlauna i stærðfræði við Oslóarháskóla og verða stæröfræöingur á heimsmæli- kvarða, eins og orðið hefur hlut- skipti sonar hans. Þegar Islendingar minntust 1100 ára byggðar I landi sinu 1974, var Trygve Bratteli for- sætisráðherra Noregs og var fulltrúi þ jóðar sinnar á hátiðinni ásamt konu sinni, Randi. Nokkru áður hafði hann beðið sendiherra Noregs hér i Reykjavikað undirbúa fyrir sig og konu sina stutta sumarleyfis- ferð til einhvers staðar úti á landi. I bréfi til sendiherrans hafði hann sagt, að væri hann i vafa um, hvað þau hefðu séð af tslandi skyldi hann spyrja mig. Þetta varð til þess að við hjónin fórum með þeim til Hafnar i Hornafirði og ferðuðumst nokk- uð um nágrennið, i dásamlegu veðri. Um atvik, sem gerðust i þessari ferð, hefur Randi Bratt- eli skrifað i bók, sem gefin var út fyrir nokkrum árum og hlaut mikla útbreiðslu i Noregi: „Pa tokt með statsministeren”, en hún er kunnur blaðamaður og mjög vel ritfær. Ég var satt að segja farinn að halda, að ég væri orðinn vel kunnugur Trygve Bratteli, enda meira en aldarfjórðungur, siðan fundum okkar bar fyrst saman, og allt- af haföi farið mjög vel á með okkur. En nú sá ég, að manninn Trygve Bratteli hafði ég ekki þekkt nógu vel, og jafnframt hitt, að liklega verður honum ekki kynnzt réttilega, nema I samvistum við konu sina. Að þessu leyti svipar okkur hvors tilannars, og það hefur ef tilvill gert kynnin traustari. Trygve Bratteli er ekki aöeins maður fágætlega traustrar skapgerðar og óvenjulegra gáfna, heldur einnig^ þeirrar hlýju og hrein- skiptu kimni, sem er aðals- merki góðra og hamingjusamra manna. Trygve Bratteli hefur lifað stormasömustjórnmálalifi, þótt hannsémanna stilltastur. Hann var formaður Verkamanna- flokksins, þegar hann vann einn mesta kosningasigur sögu sinn- ar árið 1969. En hann hefur lika orðið að lúta í lægra haldi. Hann barðist fyrir aðild Noregs aö Efnahagsbandalagi Evrópu. 1 þjóðaratkvæöagreiðslu var þeirri aðild hafnað, svo sem kunnugt er. En með sama hætti og Trygve Bratteli ofmetnaðist ekki af sigrum sinum, lét hann Framhald á 2. slðu Úr flokkstarfinu Kjördæmisráð Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi er boðað til fundar laugardaginn 12. þ.m. kl. 14 í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði Fundarefni: Rikisstjórn með eða án Alþýðuflokks. Frummælendur: Kjartan Jóhannsson, ráðherra, Karl Steinar Guðnason, alþingismaður. Stjórnin. RATSJÁNNI Gagnrýnin á Flugleiðir „...við getum ekki treyst rekstrarupplýsingum stjórnenda Flugleiöa frekar en fyrri daginn. Fjölþjóðafyrirtæki getur hagað viöskiptum systur- og dótturfé- laga eftir hentugleikum”, segir JónasritstjóriKristjánsson m.a. i forystugrein Dagblaðsins s.l. mánudag. Um samdráttinn hjá félaginu segir Jónas: „Þegar Flugleiðir ganga illa á sama tima og ýmissystur- og dótturfyrirtæki i útlöndum ganga vel eða sæmi- lega, er mjög erfitt að átta sig á, aö hve miklu leyti tapið felst i bókhaldsþáttum innri viöskipta samsteypunnar.” 1 kjölfar uppsagnanna hjá Flugleiöum hefur mikið veriö rætt um fyrirtækið og óeðlileg umsvif þess erlendis. Starfsmenn hafa deilt hart á Flugleiðir, fýrir aö láta bandariska flugfélagiö Seaboard and Western annast viðgerðir og viðhald, sem þeir fullyrða að skaði fyrirtækiö um hundruð milljóna. Sigurður Helgason hefur hins vegar visað þeim fullyröingum á bug sem fjarstæðum. En i viötali við Þjóðviljann 1 sumar vakti sjálfur Alfreö Eliasson, aöstoðar- forstjóri úr Loftleiðaarminum, máls á þvi að undarleg persónu- leg tengsl væru milli Seaboard- manna og Sigurðar Helgasonar Þá hefur og veriö gagnrýnt að á meðan boðaður er samdráttur hér heima, skuli fyrirtækið sifellt veraað auka umsvif sin erlendis og ráða erlenda starfsmenn. Sagt er aöeinu gildi fyrir forráöamenn Flugleiöa, hvernig til takist hér heima, enda eigi þeir slikan auð, að afkoma þeirra sé gulltryggð erlendis. Opinber rannsókn Ekki er ástæða til að tiunda hversu mikilvægt það er landi og þjóö að flugsamgöngur falh ekki niður. En allar þessar sögusagnir hljóta að fá byr undir vængi þegar forráðamenn Flugleiöa sitja þvi sem næst þegjandi undir þeim. 1 fyrra var þess óskað á alþingi aö opinber rannsókn færi fram á starfsemi Flugleiöa og dóttur- fyrirtækjanna. Málflutningur þessi fékk hvorki hljómgrunn hjá forstjóra Flugleiða né á alþingi. Búist er viö að þingsályktunar- tillaga verði bráðlega borin upp, þar sem enn og aftur verður ósk- aö opinberrar rannsóknar. Þetta er kjörið tækifærifyrir ráöamenn Flugleiða til aö þvo hendur sínar endanlega. Ef allt er með eðlileg- um hætti hlýtur opinber rannsókn aö vera Flugleiðaforystunni kær- komin i' meira lagi, enda fýsir þá trauðla til að vera áfram mÚli tannanna á almenningi fyrir eng- ar sakir. — G.Sv. alþýðu blaðið Fimmtudagurinn 10. janúar KÚLTURKORN Janos Furst stjórnar Sinfón- íuhljómsveit Islands, György Pauk leikur einleik Næstu áskriftartónleikar Sinfóniuhljómsveitar tslands verða I Háskólabiói n.k. fimmtu- dag 10. jan. 1980 og hefjast þeir eins og að venju kl. 20.30. Efnisskrá tónleikanna veröur sem hér segir: BARTOK — Dansasvita ; DVORAK — Fiölúkonsert 'i a-moll op. 53. Z. KODALY — Háry János Hljómsveitarstjórinn Janos Furst fæddist f Budapest og nam við Franz Liszt-tónlistaraka- demiuna þar i borg og einnig viö Tónlistarháskólann i Paris og Tónlistarakademiuna I Brussel. Hann settist að i trlandi, starfaði þarm.a. sem konsertmeistari og einleikari og stofnaði Irsku Kammersveitina sem hvarvetna hefur unnið sér mikið lof fyrir tónlistarflutning. Janos Furst hefur stjórnað mörgum virtustu hljómsveitum i Evrópu og Japan og flutt bæöi hljómsveitar- og óperutónlist. Hann hefur starfað töluvert á Stóra-Bretlandi og i Skandinaviu og var m.a. aöalhljómsveitar- stjóriSinfóniuhljómsveitarinnar i Malmö frá 1974-7. Arið 1978 starf- aði hann mikið á St’ora-Bretlandi og á þessu ári mun hann m.a. stjórna óperunni „Salome” i Marseilles. Einnig mun hann á þessu ári stjórna Filharmonlu- sveitinni I Amsterdam þar sem flutt verða hljómsveitarverk Beethovens og svo Rfkissinfóniu- hljómsveitinni i Mexico. Einleikarinn György Pauk fæddist í Budapest. Hóf hann fiðlunám sex ára að aldri og varð yngsti nemandi Zathureczky og Kodály við Franz-liszt-tónlistar- akademiuna þar I borg. Fjórtán ára gamall hóf hann fyrir alvöru að leika á tónleikum og á næstu árum lék hann I öllum löndum A-Evrópu. Hann varð sigurvegari I Paganini-keppninni 1956 og I Jacques Tibauld-keppn- inni 1959 Hann kom fyrst fram i Lundúnum árið 1961 og vakti hann þá glfurlega eftirtekt. Segja má að með þvi hafi hinn alþjóð- legi ferill hanshafist. Hann nýtur mikillar frægðar bæði fyrir ein- leik og leik i kammerverkum og ertalinneinn af fremstu fiöluleik- urum samtimans. György Pauk er nú breskur rikisborgari. Þetta mun vera i þriðja sinn sem hann sækir okkur heim og leikur meö Sinfómuhljómsveit Islands. BOLABÁS Leifturflótti? í tillögum þeim, sem Sjálf- stæðisflokkurinn hefur Iagt. fram f þjóðstjórnarviðræðum, en enginn á höfundarrétt að, er gertráðfyrir allt að30 mill- jarða Utgjöldum til kjara- tryggingar lægstu launa. Fyrir kosningar var 35 mill- jarða niðurskurður ríkisút- gjalda burðarás leiftursókn- arinnar. Nú er spurningin: Hefur Ieifursóknin snúist upp i leifurflótta?

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.