Alþýðublaðið - 12.01.1980, Blaðsíða 7
Laugardagurinn 12. janúar 1980
7
Leiklistarþing haldið r Reykja-
vlk 20. og 21. janúar
„Stofnanaleikhús — frjálsir
leikhópar — vinnubrögö — skól-
un” er yfirskrift leiklistarþings,
sem haldið verður i Reykjavik
dagan 20. og 21. janúar.
Þar munu leikhúsmenn vænt-
anlega skiptast á skoðunum um
hvarog hvernig leiklist verði best
komið á framfæri við áhorfendur
og hver skuli vera skipan leiklist-
armála á komandi árum. Mál af
sliku tagi hafa stöðugt borið á
góma á undanförnum árum. Má i
þvi sambandi t.d. minna á blaða-
skrif og umræður um fyrirhugaða
byggingu Borgarleikhúss svo og
styrkveitingar til „frjálsra leik-
hópa”. s.s. Alþýðuleikhússins.
Þinghald hefst þann 20. janúar
kl. 10 i Þjóöleikhússkjallara með
framsöguerindum Gunnars Ey-
jólfssonar og Eyvindar Erlends-
sonar en siöan verður unnið i hóp-
um. Þingið er opið öllum sem at-
vinnu hafa af leiklist. 1 fram-
kvæmdanefnd eru Guðmundur
Sveinsson, Helga Hjörvar, og Sig-
mund örn Arngrimsson og ber að
tilkynna þátttöku til þeirra fyrir
14. janúar.
Fyrirlestur um grænlenska list
í Norræna húsinu
1 tilefni af grænlensku sýning-
unni i Norræna húsinu heldur
danski listmálarinn Bodil Kaa-
lund fyrirlestur meö litskyggn-
um, i fyrirlestrarsal Norræna
hússins, i dag, 12. janúar kl. 15.00.
Fyrirlestur sinn nefnir hún
„Tradition og fornyelse i grön-
landsk kunst.”
Grænlensk list er sprottin af allt
öðrum rótum en evrópsk list og
hefur öldum saman þróast eftir
eigin leiðum. Nú hafa kynnin af
evrópskri list haft áhrif á græn-
lenska list, bæði holl og miöur
holl.
Eftir fyrirlesturinn um kl. 16.00
munu Bodil Kaalund og græn-
lenska listakonan Aka Höegh
leiöbeina sýningargestum um
sýninguna og svara fyrirspurn-
um.
Svo sem fram hefur komið i
fjölmiðlum stendur nú yfir nor-
rænt málaár, sem norrænu félög-
in á Norðurlöndum standa að.
Norræna húsiö leggur einnig sinn
skerf til málaársins með þvi aö
setja upp sýningar á bókum frá
Norðurlöndum, þar sem kynnt
verður eitt land i senn. Verða þar
til sýnis bækur um landið og
menningu þess, svo og bækur um
ýmis efni á tungu viökomandi
þjóðar.
Fyrsta bókasýning Norræna
húsins veröur grænlensk, og er
það við hæfi, þar sem i sýningar-
sölum hússins stendur nú yfir
sýning á grænlenskri list. Bæk-
urnar á sýningunni eru langflest-
ar i eigu hússins, en nokkrar hafa
verið fengnar að láni frá öðrum
bókasöfnum. Þessi bókasýning
mun standa út janúar, en i febrú-
ar er fyrirhugaö að hafa finnska
bókasýningu. Hinar norrænu
bókasýningar verða allar i bóka-
safni Norræna hússins.
Hvernig
að þvi að mæla dg meta
árangur,og mikið er lagt uppúr
upplýsingastreymi milli aðila.
Það, sem ég hér kalla
stjórnsýslu, á við hvers konar
opinbera þjónustu i þessu til-
viki, t.d. heilbrigðisþjónustu svo
að dæmi sé tekið.
Markm iösbundin stjórnun
kallar á náið samráö æðstu
stjórnenda, t.d. kjörinnar
stjórnarnefndar og starfs-
manna. Akvörðun meginmark-
miða, sem fyrst og fremst er i
verkahring hinna kjörnu
fulltrúa, hlýtur að markast
mjög af þvi, hvernig hægt er að
ná þeim fram með þvi að setja
takmarkaðri markmið fyrir
sérhvern þátt i starfseminni.
Svo ég taki dæmi um, h vernig
markmiðsbundin stjórnun fer
fram, þá var hér nýlega á
ferðinni prófessor frá banda-
riskum háskóla og hann sagði
mér, hvernig þessi stjórnunar-
aðferð snerti starf hans i
þrengstu merkingu. Fyrir
upphaf hvers skólaárs er hann
kallaður á fund deildarforseta i
deildsinni og sameiginlega rita
þeir niður þau markmið sem
þeir vilja setja starfi
prófessorsins á skólaárinu.
Hann ritar niður á eyðublað,
hvaða kennsla sé fyrirhuguð og
hvaðhannhyggistgera við þann
tima.sem honum er ætlaður til
sjálfstæðra rannsókna i fræði-
grein sinni. M.a. er skráð, hvað
hann hyggist rita um
fræðigreinina og hvort hann
hyggist kynna sér nýjungar i
greininni. Það er hlutverk
deildarforsetans að ýta á um
aukna framleiðni mannsins, og
þegar þeir hafa báöir ritað
undir markmið ársins, gengur
eyðublaðið áfram til starfs-
manna, sem rita á það kostn-
aðartölur, en siðan er gerð
heildaráætlun fyrir deildina,
þar sem tekin eru saman mark-
mið og kostnaður. Þannig
gengur þetta upp i valdapira-
mida háskólans, þar til æðsta
stjórn hans fjallar um heildar-
markmið og heildarkostnað,
sem hún vegur og metur, hvort
samrýmist ytri aðstæðum. Hún
sendir siðan einstaka liði til
endurskoðunar eftir þvi sem við
á, áður en endanleg markmið
eru sett. 1 lok skólaársins er
siðan gerður itarlegur saman-
burður á settum markmiðum og
árangri starfsins.
A sama hátt má taka fyrir
hvers konar opinbera þjónustu
eða starfsemi, og þarsem skyn-
samlega hefur veriö aö þessu
staðið hefur virkni jafnt starfs-
manna og stjórnenda aukizt,
kostnaðarvitund batnað og
markmiðin skýrzt.
Markmiðsbundin stjórnun
byggir á sveigjanleika hjá
starfemönnum, þar eö ný og
breytt markmið kunna að kalla
á nýja uppröðun starfa og
verkefna. Einnig getur breytt
áherzla á einstök atriöi kallað á
breyttar verklagsreglur.
Sögulegar 4
lokum orðið skildir að skipt-
um. Ég vil þess vegna halda
þvi tilskila, nú þegar haustar
að i lífi okkar beggja, að i
minningunni yfirgnæfir til-
finningin um vináttu okkar
alian skoðanaágreining og
deilur. Vel má vera aö atvikin
hagi þvi þannig að við eigum
enn eftir að taka einhverjar
snerrur. En ég efast um það
— og þó svo væri, hvaða máli
skiptir það? Við höfum aldrei
aðgreint heimspekina og
stjórnmálin... Viðhorf min
eru öll önnur en hans, en ég
tek honum eins og hann er —
jafnvel þótt ég andmæli hon-
um á enda veraldarinnar með
röksemdum sem hann mun
aldreireynast fáanlegur til að
hlusta á.”
Aldrei? Aldreiað segja aldrei.
A liðnum árum hafa margir að-
ilar orðið til þess að vilja leiöa
þá saman til opinberra kapp-
ræðna, i návigi. Aron hefur allt-
af þegið sh'k boð, Sartre hefur
alltaf neitað. „Samt sem áður er
mér sagt, að honum hafi likað
frekar vel gagnrýni min á bók-
ina hans um ofbeldið
(Dialictique de la Violence)...”
Ef til vill er það skaði að þessar
stórkostlegu rökræður áttu sér
ekki stað. Nú er þaö orðið of
seint.
Sögulegt handaband þeirra
þann 21. júni hefur ef til vill
merkingu, táknræna merkingu.
Vissulega hefur Aron rétt fyrir
sér þegar hann segir, að hann
hafi ekki breytzt. Gulag
Solzhenitsyns hefur kippt
stoðunum undan yfirlætislegu
sjálfstrausti vinstri aflanna.
Guðirnir hafa brugðizt þeim oft
og miskunnarlaust. Hinum
gömlu striðsjálkum vinstri hug-
myndafræöinnar finnst sjálfum
eins og þeir séu afvopnaðir og
ráðvilltir — og eins og Aron seg-
ir” þegar hugmyndafræðin hef-
ur brugðizt þeim leita þeir aftur
til mannúðarstefnunnar...’ ’ Með
þvi að taka upp hanzkann fyrir
þá, sem sviptir eru mannrétt-
indum og leggja fram aðstoð til
að draga úr nauð flóttafólks frá
a1ræð i srikjunum hafa
Sartre-hjónin —eins og Michel
Foucault og svo ótal margir
aðrir — á elleftu stundu gert úr-
slitaátak til þessað bjarga sálu
sinni og samvizku. Hver vill
álasa þeim fyrir þaö?
c
LANDSVIRKJUN
ÚTBOÐ
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboð-
um i smiði og galvanhúðum á stálhlutum i
undirstöður fyrir 220 kV háspennulinu frá
Hrauneyjafossi að Brennimel (Hraun-
eyjafosslina 1) i samræmi við Útboðsgögn
428. Efnismagn er um 140 tonn.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68,
Reykjavik frá og með 14. janúar 1980,
gegn skilatryggingu að fjárhæð kr. 10.000.
Tilboðum skal skilað á skrifstofu Lands-
virkjunar fyrir kl. 11:00 mánudaginn 28.
janúar, en þá verða þau opnuð i viðurvist
bjóðenda.
ra
U! Verkamannabústaðir
Ákveðið hefur verið að gera könnun á þörf
verkamannabústaða i Kópavogi.
Þeir sem hafa áhuga á slikum ibúðakaup-
um, eru beðnir að fylla út sérstök eyðublöð
sem liggja frammi hjá bæjarritara á
bæjarskrifstofunum Fannborg 2 og hjá
félagsmálastjóra á Félagsmálastofnun-
inni Álfhólfvegi 32. Jafnframt veita ofan-
ritaðir nánari upplýsingar. Skilafrestur
gagna er til 29. jan. n.k.
Stjórn Verkamannabústaða i Kópavogi.
Lausar stöður
Stöður tveggja rannsóknarlögreglumanna
við lögreglustjóraembættið i Reykjavik
eru lausar til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 10. febrúar 1980.
Lögreglustjórinn i Reykjavik
9. janúar 1980.
Sjúkraliðar
Sjúkraliðaskóli Islands heldur endur-
menntunarnámskeið i mars 1980 ef næg
þátttaka fæst. Upplýsingar i sima 84476 kl.
10-12.
Skólastjóri.
í dag kl. 15:00
Danski listmálarinn BODIL KAALUND
flytur fyrirlestur með litskyggnum:
„Tradition og fornyelse i grönlandsk
kunst”, i fyrirlestrarsal hússins.
Eftir fyrirlesturinn mun hún ásamt græn-
lensku listakonunni AKA HOEGH leið-
beina gestum um grænlensku listsýning-
una „Land mannanna” i sýningarsölum
hússins.
Sýningin er opin daglega kl 14-19.
Verið velkomin
NORRÆNA
HÚSIÐ
Til sölu sumarhús
Óskað er eftir tilboðum I sumarhús sem er i smiðum hjá
nemendum lðnskólans, nánar tiltekið á lóð skólans við
Bergþórugötu. Nánari lýsing og teikningar eru afhentar á
skrifstofu vorri að Frikirkjuvegi 3, Reykjavik. Tilboð
verða opnuð á sama stað þriöjudaginn 29. janúar n.k. kl.
14.00 e.h..
INNKAUPASTOFNUN REYKTAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800
Auglýsing
um próf fyrir skjalaþýðendur og
dómtúlka.
Þeir, sem öðlast vilja réttindi sem
skjalaþýðendur og dómtúlkar, eiga þess
kost að gangast undir próf, er haldin verða
i febrúar n.k.,
Umsóknir skal senda dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu fyrir janúarlok á
sérstökum eyðublöðum, sem þar fást.
Próftökum verður veittur kostur á leið-
beiningum um frágang skjala og
þýðingartækni á nokkurra tima námskeiði
fyrir próf.
Við innritun i próf greiði próftaki gjald,
er nemur helmingi gjalds fyrir löggildingu
til að vera dómtúlkur og skjalaþýðandi.
Gjaldið, sem nú er kr. 12.720, er óaftur-
kræft, þó að próftaki komi ekki til prófs
eða standist það ekki.
Dóms og kirkjumálaráðuneytið, 8. janúar
1980.