Alþýðublaðið - 01.10.1980, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 01.10.1980, Qupperneq 1
Pólitískt Hugmyndafræðilegt áhættuflug gjaldþrot Kremlverja — sjá leiðara bls. 3 — sjá bls. 4 Tw^övTkuclagurTToktóber 1980. — 148. tbl. 61. árg. ,,Það eru allt að því grátleg örlög, að á þessum tímamótum skuli Alþýðubanda- lagið fara meðstjórn orku- og iðnaðarmála í ríkisstjórn, en sá f lokkur hefur barist hatramlega gegn hvers konar stóriðju, ekki síður þótt Islendingar eigi þar meiri- hluta, eins og á Grundartanga. Þá er það ekki síður ógæfa, að sjálf ur iðnaðarráð- herrann er andvígur orkufrekum stóriðnaði og úrtölumaður á því sviði. Á þingi Norðlendinga í sumar lagði hann sig fram um að tina til alla galla, sem hann gat fundið við stóriðju”. Benedikt Gröndal: Lifskjör og atvinnuöryggi þjóðarinnar standa nú höllum fæti, og er að vonum beigur í iandsmönnum af þeim sökum. Þó á þjóðin einn varasjóð, þar senv er hin mikla óbeislaða orka faf vatna og jarðhiti . Þessi orka eyó- ist ekki, eíns og olia eða kol, heldur endurnýjast i sifellu. Það hlýtur að vera eitt höfuð- verkefnistjórnvalda núogi næstu framtið að stofna til stóraukinnar virkjunar og láta reisa hvert orkuverið á fætur öðru næstu ára- tugi. Mikil reynsla hefur fengist i þessum málum síðasta áratug, og er nú ljóst, að íslendingar gætu einir reist og 'rekið verksmiðjur eins og álverið og járnblendiverk- smiðjuna, og hafa lánstraust til að fjármagna slik fyrirtæki. Það getur því verið matsatriði, hvort eða að hve miklu leyti haft verður samstarf við erlend fyrirtæki á þessu sviði. Það eru allt að þvi grátleg örlög, að á þessum timamótum skuli Alþýðubandalagið fara með stjórn orku- og iðnaðarmála i rikisstjórn, en sá flokkur hefur barist hatramlega gegn hvers konar stóriðju ekki siður þótt Is- lendingar eigi þar meirihluta, eins og á Grundartanga. Þá er það ekki siðri ógæfa, að sjálfur iðnaðarmálaráðherrann er and- vigur orkufrekum stóriðnaði og úrtölumaður á þvi sviði. A þingi Norðlendinga i sumar lagði hann sig fram um að tina til alla galla, sem hann gat fundið við stóriöju. Auðvitað er orkufrekur stór- iðnaður ekki allra meina bót, en aðeins einn þáttur þeirrar upþ byggingar i atvinnumálum, sem verða þarf til að bæta og tryggja lifskjör þjóðarinnar. Sjávartlt- vegur og fiskiðnaður, landbún- aöur og annar iðnaður munu halda sínum sess og stóriðja mun ekki risa á þeirra kostnað. Þvert á móti mun þessum eldri atvinnu- greinum verða styrkur af þvi, ef efnahagslifiö verður fjölbreytt- ara, gjaldeyrisstaðan sterkari og traust atvinna meiri. RUmur áratugur er liðinn, siðan álverið hóf starfsemi sína, og siðan hefur járnblendiverk- smiðjan verið reist. Hefur fengist af þessu víðtæk reynsla, þvi að þessi fyrirtæki eru svo til ein- göngu rekin af Islendingum. Um gagn þjóðarinnar af þessum tveim iðjuverum hefur þetta meðal annars komið i ljós: 1) Miklar gjaldeyristekjur hafa fengist af verksmiðjunum, og eru þær taldar verða 15—20% af öllum vöruútflutningi næsta ár. 2) NálægtlOOO manns hefur vinnu við verksmiðjurnar, og greiða þær góð laun og veita góða að- búð, svo að störf i þeim eru eftirsótt. 3) Litið sem ekkert hefur borið á félagslegum vandamálum viö verksmiðjurnar eða af völdum þeirra, nema hvað nágranna- byggðir búa við stóraukna vel- megun. 4) Með byggingu og rekstri verk- smiðjanna hefur flust inn I landið mikilvæg tæknikunn- átta, og hefur reksturinn gengið jafnvel betur i höndum Islendinga en i nálægum lönd- um. 5) Of litlar kröfur um mengunar- varnir vorugerðar viö álveriö, en járnblendiverksmiðjan er glöggt dæmi um, hve árangursrik nýjustu hreins- unartæki eru. I framtiðinni á að vera unnt aö fyrirbyggja mengun og umhverfis- skemmdir. 6) Ýmsar aörar atvinnugreinar, svo sem málmiðnaður, hafa hlotið ný verkefni og nýja reynslu. Vinnsla úr áli er ónýttur möguleiki til nýrra iðngreina. Þegar á allt þetta er litið verður augljóst, að Islendingar hljóta að snúa sér nú að þvi að nýta aðra mestu auðlind sina, orku fall- vatna og jarðhita. Svo litið hefur verið notað af þessum sjóði, að þar eru verkefni til margra ára- tuga. Nú þarf að gera áætlun um röð af virkjunum og verksmiðjum á ýmsum sviöum og ýmsum stöö- um á landinu, og fylgja þeirri áætlun fram næstu tvo áratugi. Verðmæti orkunnar fer nú stöðugt vaxandi. I ðn aðarráðherra er á móti orkufrekri stóriðju óvirkjuð orka til iðnaðar er varasjóður þjóðarinnar hver og einn geti sjálfur dæmt um gang mála, er rétt að rifja upp nokkur atriði úr þessari sögu oliu- viðskiptanna. Þegar' rikisstjórn Alþýðu- flokksins tók til starfa hafði sendinefnd sú, sem Svavar sendi til Moskvu (en hann fór ekki með) fyrir skömmu snúið aftur til Is- lands án þess að samningar tækj- ust. Þá lá fyrir, að Sovétmenn buðu i aðalatriðum óbreytta samninga, þar með verðskilmála samkvæmt dagverðum á Rotter- dammarkaði og ákvæði um að Is- lendingar festu fyrirfram heildarinnkaup sin á oliu á árinu 1980. Jafnframt var frestur til að ljúka samningum settur til 15. nóv. 1979. Islenzkir aðilar stofni sérhæft olíuinnf I utningsfy ri rtæki - segir Kjartan Jóhannsson fyrrv. sjávarútvegsráðherra Olíumál í brennidepli: ,,Sú árátta er alltaf rík hjá okkur (slendingum, aö líta ekki fram á veginn. Mál eru ekki leyst fyrr en þau eru komin í óefni. Þau eru geymd og gleymd og grafin, ef þau brenna ekki beinlínis á baki. Þannig kann enn einu sinni að fara í olíumálum okkar íslendinga, ef fram- tíðarskipulagi þeirra og framtíðarverkefnum í olíuað- dráttum verður ekki sinnt einmitt meðan iag er til þess, en kröftunum eytt í að þrátta um dagprísa". Um þessar mundir fer Þjóövilj- inn hamförum vegna samninga um oiiukaup frá breskum aðilum á svonefndu „mainstream” verði. Spyrja má, hvort Þjóðviljinn teiji að þjóðin hafi gleymt því að oliukaupin frá Sovétmönnum samkvæmt braskmarkaði i Rotterdam uröu okkur hrikalegt áfall á árinu 1979. Sú verðhækkun, sem þá reið yfir okkur var langt umfram almenna verðhækkun i heiminum á oliuvörum. Telur Þjóðviljinn að þjóöin hafi gleymt þvi að þá hröklaðist Svavar Gestsson þáverandi viðskiptaráð- herra til þess að skipa oliuvið- skiptanefnd, en vildi að öðru leyti enga stefnu marka og litið á sig leggja til að bæta úr og t.d. alls ekki fara til Moskvu i þeim erindagerðum? Heldur Þjóðvilj- inn að það sé gleymt, að á þeim tima talaði Svavar Gestsson fyrir þvi, að horfið yrði frá fastbind- ingu oliuverðsins við Rotterdam- skráningu, eöa ber að skilja skrif Þjóðviljans nú þannig, að Svavar hafi ekki meint það sem hann sagði þá? Olíuviðskipti: Nauðsyn nýrra viðskiptahátta Erlendir aðilar, sem heyrðu Is- lendinga skýra frá þvi, að öll oliu- kaup okkar væru frá Sovétmönn- um á Rotterdamviðmiðun hristu hausinn i vorkunnsemi og undr- uðust hvernig það mætti vera að islenska þjóðin væri i slikri heljargreip. Yfirgnæfandi meiri- hluta islensku þjóðarinnar var lika ljóst hver ósköp verðlagning oliunnar samkvæmt samning- unum við Rússa hafði leitt yfir okkur. Almennur skilningur var á nauðsyn þess að breyta viðskipta- háttum i oliumálum. Og það skyldu menn hafa I huga, að sagan getur endurtekið sig og er það reyndar harla liklegt. Af þeim sökum er jafnbrýnt nú eins og á árinu 1979 að koma oliukaup- unum I nýjan farveg. Svo ekkert fari á milli mála og Stífni Sovétmanna Stifni Sovétmanna i samning- um varótrúlega mikil. Þrátt fyrir 25 ára viðskipti fengust Sovét- menn ekki til þess að láta okkur njóta þessara gamalgrónu við- skipta, þegar Rotterdam- markaðurinn var augljóslega orðinn óbrúkleg og ósanngjörn viðmiðun. Við þær aðstæður mátti telja eðlilegt, að þeir byðu okkur sambærileg viðskiptakjör og þeim viðskiptalöndum þeirra, sem kaupa af þeim hráolíu til vinnslu i stað þess að spákaup- mennska og brask á Rotterdam- markaði réði verðinu og það reyndar i viðskiptum við sósial- Norræni fjárf estingarbankinn: Lán veitt ís- lenzkum aðilum að upphæð 3,6 milljarðar Fyrir viku siðan boðaði stjórn Norræna fjárfestingarbankans til blaðamannafundar á Hótel Holti I Reykjavik. Fundurinn var hald- inn vegna stjórnarfundar bank- ans og fundar bankastjórnar meö eftirlitsnefnd Norræna fjárfest- ingarbankans. A fundinum fór einnig fram undirritun þriggja lánssamninga milli bankans og islenzkra lánastofnana. A fundi bankastjórnar var fjallað um nokkur ný fjárfest- ingarlán og byggðalán. Meðal annars voru samþykktar lánveit- ingar til byggðasjóðs i Finnlandi ogtil framkvæmda við kolahöfn i Arósum. Þá var og rætt á fundin- um um norrænt samstarf á sviði verktaksútflutnings og hugsan- lega fyrirgreiðslu bankans á þvi sviði. Norræni f járfestingarbankinn veitir Framkvæmdasjóði íslands fyrir hönd Byggðasjóðs lán til tólf ára, að fjárhæð sextán milljónir norskra króna, eða 1690 milljónir islenzkra króna. Þá veitir bank- inn Iðnþróunarsjóði jafnhátt lán til sama tima. Bæði þessi lán flokkast undir undir hin svoköll- uðu byggðalán, sem bankinn veitir til þess að stuðla að æski- legri byggðaþróun og atvinnu- uppbyggingu á Norðurlöndum. Framhald á bls. 3 iska alþýðulýðveldið, Sovétrikin Þrátt fyrir itrekaðar tilraunir af tslands hálfu, tókst ekki að fá fram breytingar á verðskil- málum oliukaupasamningsins. Eftir itarlegar viðræður minar við sendiherra Sovétrikjanna hér á landi féllust Sovétmenn hins vegar á það á elleftu stundu, að i samninginn væri bætt ákvæði þess efnis, að Islendingar gætu með eðlilegum fyrirvara dregið úr kaupum á gasoliu og beszini frá Sovétrikjunum hvenær sem væri á árinu 1980, og voru slikir samningarstaðfestirhinn 15. nóv. 1979 Tvenns konar ávinningur A sama tima hafði oliuvið- skiptanefnd tekist að fá tilboð um oliusölu til Islendinga m.a. frá BNOC. Viðskiptaráðuneytið fól nefndinni að hafa milligöngu um áframhald samninga við þessa aðila. Eins og haldið var á málinu ávannst tvennt: 1) tslenskum atvinnuvegum og heimilum var tryggt öruggt framboð á oliu á árinu. 2) Opnaðir voru nýir mögu- ieikar á oliuviðskiptum. Oliuviðskiptanefnd, þar á meðal fulltrúi Alþýðubandalags- ins,- mælti með samningum við BNOC og rikisstjórn Alþýðu- flokksins var sammála þvi. Rökin fyrir þeim viðskiptum voru tvi- þætt: 1) Ekki væri skynsamlegt að allir oliuaðdrættir okkar væru bundnir við eitt fjarlægt riki, seni ennfremur byndi verö- lagningu oliunnar við dag- prisa. 2) t samningum við BNOC mætti ná stöðugra verðlagi. Við yrð- um firrt stundarsveiflum á oliuverði. Líklegt væri, en ekki vist, að heildarvcrö yfir lengri tima yrði lægra samkvæmt samningi við BNOC en með kaupum á Rotterdamverðlagi. Framhald á bls. 6.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.