Alþýðublaðið - 21.01.1981, Page 3
Miðvikudagur 21. janúar 1981
«?
alþyou
I H hT'JT'
Ctgefandi: Alþýðuflokkurinn
Framkvæmdastjorí: Jóhann-
es Guðmundsson.
Stjórnmálaritstjóri (ábm):
Jón Baldvin Hannibalsson.
Blaðamenn: Helgi Már
Arthúrsson, Ólafur Bjarnii
Guðnason, Þráinn Hall-
grimsson.
Auglýsinga- og sölustjóri:
Höskuldur Dungal.
Auglýsingar: Þóra Haf-
steinsdóttir.
Gjaidkeri: Halldóra Jónsddtt-
ir.
Dreifingarstjóri: Sigurður
Steinarsson.
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Sfðumúla 11, Reykjavik,
simi 81866.
flðspurður á Varðarfundi,
hvers vegna það hefði tekið
rikisstjórnina tæpan
meðgöngutima að leggja fram
bráðabirgðaráðstafanir i efna-
hagsmálum, svaraði Pálmi
Jónsson, landbúnaðarráöherra
þvi til, að ríkisstjórnin hefði
viljað biða eftir niðurstöðum
kjarasamninga.
Að visu var sú skýring hald-
litil. Rikisstjórnin samdi við
opinbera starfsmenn snemma
hausts og almennum kjara-
samningum var lokið 27.
október sl.
Kjarninn i aðgerðum rikis-
stjórnarinnar er hinsvegar sá
að afnema með lagaboöi um-
samda kauphækkun og um leiö
kostnaðarhækkun, sem af
samningunum leiddu. Með þvi
að þurrka út afleiðingar kjara-
samninga er það mat manna að
rikisstjórninni takist, að öðru
jöfnu, að halda óbreyttu verð-
bólgustigi, þ.e. um 55% verð-
bólgu i árslok 1981. Þetta segir
lika sina sögu um mat rikis-
stjórnarinnar á þeim kjara-
samningum, sem gerðir voru
undir forystu Alþýöubandalags-
manna i ASl, og lengi hafði ver-
iö beöið eftir.
Stjórnir og trúnaðarráð laun-
þegasamtaka hafa á undan-
förnum dögum sent frá sér mis-
jafnlega harðorö mótmæli við
þessari ihlutun rikisvaldsins i
gerða kjarasamninga. Viðbrögð
Alþýöubandalagsforystunnar i
ASÍ eru að visu áberandi linust.
Nú bregður svo við, að Dag-
blaðið kemst að þeirri niður-
stöðu i skoðanakönnun sinni, að
mikill meirihluti aðspuröra
kjósenda sé eindregið fylgjandi
riftun kjarasamninga og
skerðingu verðbóta á laun 1.
marz n.k., ef það getur oröiö til
að draga úr verðbólguhraöa.
Hins vegar er spurning,
hvernig þeir, sem lýsa fylgi sinu
viö skertar verðbætur 1. marz,
geta lika lýst sig fylgjandi fyrir-
ætlunum rikisstjórnarinnar, að
taka aftur upp sjálfvirkt visi-
tölukerfi á siðari hluta ársins,
þar sem versnandi viðskipta-
kjör munu hafa sjálfvirk kaup-
hækkunaráhrif og um leið veru-
leg verðbólguáhrif á nýjan leik.
Spurningar Dagblaðsins eru
að visu þess eðlis, að þeim
veröur ekki svarað einfaldlega
með já-i eða nei-i. Ef hins vegar
má túlka niðurstöðurnar sem
meirihlutafylgi alls almennings
við afnám núverandi visitölu-
kerfis, aukna verðtryggingu
sparifjár og heimild til niður-
skurðar á opinberum út-
gjöldum, þá má stjórnarand-
staðan vissulega vel við una.
Þetta er allt saman lykilatriði i
þeirri stefnu, sem Alþýðuflokk-
urinn hefur öörum fremur sett á
oddinn.
,,Ríkisstjórnin segist
hafa orðið að bíða með
efnahagsaðgerðir eftir
því að kjarasamningar
lægju fyrir. Því næst af-
nam hún áhrif kjara-
samninganna með lög-
boði. Þar með hefur hún
viðurkennt, að skatta-
lækkunarleiðin, sem
Alþýðuflokkurinn boðaði
við gerð kjarasamning-
anna, var rétt. Fylgi al-
mennings við riftun
kjarasamninga opin-
.berar algera vantrú á
hefðbundnar baráttuað-
ferðir verkalýðshreyf-
ingarinnar. Verkalýðs-
forystan hefur því fengið
alvarlega viðvörun."
SAMMALA um að
VERA ÓSAMMALA
Þegar menn spyrja um, hvað
stjórnarandstaðan hefði viljað
gera i staöinn fyrir einhliða
ihlutun I gerða kjarasamninga,
þá hefur svarið legið fyrir lengi.
Stjórnarandstæðingar tóku
undir það á sinum tima, að
aðstæður i þjóðarbúskapnum
gæfu ekki tilefni til þess, að
kauphækkun i krónutölu skilaði
sér sem raunveruleg kaup-
máttaraukning.
þess i stað lagði Alþýðuflokk-
urinn megináherslu á, að rikis-
stjórnin byði fram umtalsverðar
skattalækkanir og auknar fjöl-
skyldubætur, til þess að treysta
kaupmátt hinna verst settu og
hamla um leiö gegn aukinni
verðbólgu. Rikisstjórnin
hafnaði þessari , leið með
steigurlæti. Hún kaus heldur að
semja við rikisstarfsmenn og
m<5ta um leið almenna kjara-
samninga, til þess eins að
afnema umsamdar „kjara-
bætur” með lagaboði skömmu
siðar. Hún valdi auðveldari
leiðina.
Nú viðurkennir rikisstjórnin,
að hún haföi rangt fyrir sér þá.
Um leið viðurkennir hún, með
þvi aö boöa litilsháttar skatta-
lækkun til aö draga úr kaup-
máttarskerðingunni, að
stjórnarandstaðan hafði rétt
fyrir sér. Um leið hefur rlkis-
stjórnin I reynd lýst sig sam-
þykka þvi mati Vinnuveitenda-
sambandsins, að 10% krónu-
töluhækkun kaupgjalds á sl.
hausti hafi i reynd þýtt 6%
kaupmáttarskerðingu ásamt
með verðbólgu, sem stefndi i
. 80%.
það er þess vegna rétt, sem
Þorsteinn Pálsson sagði i ræðu á
Varðarfundi um staöfestingu
rikisstjórnarinnar — eftir á — á
sjónarmiðum Vinnuveitenda-
sambandsins:
i ,,í raun réttri er rikisstjórnin
með verðbótaniöurskuröinum 1.
marz aðeins að leiðrétta þau
augljósu mistök, sem gerð voru
i októbersamningunum.”
Þessi þróun mala bendir ein-
dregið til þess að timi sé til
kominn fyrir verkalýðsforyst-
una að fara að hugsa sinn gang.
t fyrsta lagi er augljóst, að
yfirlýsingar forystusauða Al-
þýðubandalagsins um órjúfandi
samstöðu með verkalýðshreyf-
ingunni og náið samráð eru
staðlausir stafir.
t öðru lagi er ljóst, að ríkis-
stjórnin hefur aö ásettu ráði
vélað verkalýðsforystuna til
samninga, til þess eins að rifta
þeim með lagaboöi skömmu
siðar.
t þriðja lagi hafa stjórnar-
flokkarnir viðurkennt aö skatta-
lækkunarleiðin, sem stjórnar-
andstaöan boðaði við gerð
kjarasamninga, var rétt.
( fjórða lagibenda skoöana-
kannanir til þess að meirihluti
almennings i landinu hafi enga
trú á kjarabaráttuaðferöum
verkalýðsfory’stunnar. Almenn-
ingur I verkalýðsfélögunum
virðist samkvæmt þvi reiöu-
búinn að láta kyrrt liggja, þótt
visitölukerfi verði breytt, eða
þaö jafnvel afnumið, ef það
getur orðið til þess að draga úr
verðbólgu. Um leið verða þeir
stjórnmálaflokkar, sem i rikis-
, stjórn sitja, aö svara þvi, hvern-
ig þeir hyggjast, eftir öðrum
leiðum, tryggja kaupmátt
launa. Alþýðuflokkurinn hefur
itrekaö svarað þvi fyrir sitt
leyti. Stjórnarflokkarnir eiga
þeirri spurningu hinsvegar
ósvarað. Þeir verða hinsvegar
aftur krafðir svara i april,
þegar áhrif visitöluskerðingar
og frestun gengisaðlögunar
verða uppurin. Þá mun enn
koma á daginn, að Framsókn og
Alþýðubandalag geta ekki
komið sér saman um neitt,
annað en nýjar skammtima-
reddingar. —JBH
Höfðingi islenskrar prent-
listar á 20. öld er látinn. Stein-
grfmur Guðmundsson fyrrum
prentsmiðjustjóri I Ríkisprent-
smiðjunni Gutanberg andaöist
að morgni hins 14. janúar I
Borgarspitalanum I Reykjavík.
Hann fæddist aö prestssetrinu
Gufudal I Gufudalssveit i
Barðastrandasýslu hinn 21. mai
árið 1891. Foreldrar hans voru
þjóðkunn, sr. Guðmundur i
Gufudal, Guðmundsson á Stóru-
Giljá I Húnavatnssýslu Eiriks-
sonar, Jónssonar. Sr. Guð-
mundur fæddist 6 vikum eftir lát
föður sins og ólst upp i skjóli
móður sinnar Kristjönu Jóns-
dóttur frá Meðalheimum i Asum
við fátæktarbasl og erfiðleika,
sem mótuðu lifsviöhorf hans og
afkomenda hans um baráttu
fyrir jafnrétti og bræðralagi,
sem hljómaði um byggðir Vest-
fjarða og ísland allt borin fram
af skarpgáfuðum ræöu- og rit-
snillingum Gufudalsmanna, en
sr. Guðmundur var talinn einn
af ritfærustu blaöamönnum
sinnar tiðar, er hann ritaði i
blað sitt Skutul á ísafirði. Hann
var einnig áhrifarilcur ræðu-
maður, svo og synir hans.
Móðir Steingrims var
Rebekka Jónsdóttir frá Gaut-
löndum, Sigurössonar af hinni
kunnu Gautlandaætt. Faðir
hennar bóndinn og alþingis
maðurinn á Gautlöndum, er tal-
inn fyrsti bóndinn á tslandi sem
hélt til jafns við ísl. embættis-
mannav aldið á 19. öld og eftir aö
Islendingar fengu stjórnar
skrána 1874, enda i forsvari
þjóðarinnar á þjóðhátiðinni
1874. Hann var einnig stofnandi
og fyrsti formaöur Kaupfélags
Þingeyinga og þvi einn af frum-
kvöðlum samvinnuhreyfingar-
innará Islandi. Þriraf bræðrum
Rebekku á ttu s æti á a lþin gi, 2 af
þeim urðu ráðherrar og einn
varð fyrsti formaður Sambands
isl. samvinnufélaga. Við þær
aðstæður, að stjórnun og fram-
farir isl. þjóðfélags, félagslega
og stjórnmálalega væru nokk-
urskonar ættar og fjölskyldu-
mál ólst Steingrimur Guð-
mundsson upp til þroska og full-
orðinsára i stórum systkina-
hópi.
Alls uröu þau 10 systkinin frá
Gufudal og var Steingrimur
næstelstur þeirra. Hann mun
snemma hafa haft áhuga fyrir
þvi og veriö hans llfshugsjón að
gerast bóndi, en það átti ekki
eftir aö verða hlutskipti hans I
lifinu. — Stóri barnahópurinn I
Gufudal þurfti mikils með en
þröngt i búi hjá presthjónunum.
Ekki mun það hafa farið fram-
hjá neinum sem kynntist
heimilinu, aö börnin væru
óvenjulega skýr og vel gefin og
hópurinn vakið athygli er hann
kom til ísafjarðar, en þangað
fluttu foreldrarnir 1905, er sr.
Guömundur sagði brauði sinu
lausu. Til að létta undir við
menntun barnanna munu
bræður Rebekku hafa gert boð
systur sinni og mági, að þeir
vildu styðja einhvern af sonum
þeirra til langskólanáms. Það
boð er sagt að eigi hafi verið
þegið, þvi svo miklir jafnaðar-
MINNING
enda gátu allir treyst þvi að
hann ráðlegði þeim það eitt er
hann taldi sannast og réttast.
Einn af ráðherrum sem sam-
starf átti meö Steingrimi hafði
þau orð, aö hæfileikar Stein-
gríms til að stýra slíku fyrirtæki
til gagns fyrir alþjóð heföu verið
frábærir og sjaldan hefði verið
um að ræöa á tslandi farsælli
framkvæmd þjóðnýtingar á
vandasömu verkefni.
Eftir langt og farsælt starf I
Gutanberg, var Steingrlmur við
góða heilsu. Svo atvikaöist árið
1962, að til starfa hjá Innkaupa-
stofnun rikisins vantaði mann
með sérþekkingu á gæðum
prentpappi'rs. Hér var um
hlutastarf að ræöa, og var Stein
menn voru foreldramir aö þau
treystu sérekkitilað gera uppá
milli hinnagáfuðu sona sinna og
leituðu þeir sér þvi brautar-
gengis á hinum ýmsu sviðum
þjóölifsins án langrar skóla-
göngu, og gengdu allir miklum
ábyrgðar- og forystustörfúm á
fullorðinsaldri.
Steingrimur h<X prentnám i
prentsmiðjunni Vestra á Isa-
firðiáriö 1905og lauk þar námi.
Siðar vann hann um skeið i
prentsmiðju Odds Björnssonar
á Akureyri og Gutanberg i
Reykjavik. I ársbyrjun 1914
sigldi hann svo til Kaupmanna-
hafnar og dvaldi þar við prent-
iðn I 4 ár, kom þá heim, en hélt
utan á ný árið 1919 og starfaði
við prentsmiðju Gyldendals
bókaverslunar um 10 ára skeið.
Hinn 1. jan. 1930 var hann svo
ráðinn forstjóri Rikisprent-
smiöjunnar Gutenberg og
gegndi þvl starfi til sjötugs-
aldurs árið 1961. Jafnframt var
hann framkvæmdastjóri Rikis-
útgáfu námsbóka 1937—1956 og
bókaútgáfu menningarsjóðs
1940—1946.
Þegar Steingrlmur tók við
forstjórastöðu i Gutanberg haföi
isl. rikið nýlega fest kaup á
prentsmiðjunni og haföi tryggt
sér starfskrafta hans áður en
frá kaupum var gengiö.
I Gutanberg varð starfstimi
Steingríms lengstur eða nær 32
ár, og er hann kom þar til starfa
mun hann hafa verið einhver
lærðasti allra islenskra prent-
ara um öll vinnubrögð og tilhög-
un I prentverki. Þar komu brátt
i ljósog fengu að n jóta sín sterk-
Steingrímur Guðmundsson
prentsmiðjustjóri
Fæddur 21. maí 1891
Dáinn 14. jan. 1981
ustu eöliskostir hans, skarpar
gáfur, viötækt sjálfsnám,
sterkur vilji og skyldurækni svo
aö af bar. Hann var þvl gæddur
flestum þeim kostum, sem
maður þarfnast til að stýra
þjóðnýtu fyrirtæki.
Prentsmiöjan hafði I upphafi
verið keypt að mestu fyrir láns-
fé, en svo segja kunnugir að
eftir þriggja ára starfstima hafi
skuldir aðmestu verið greiddar,
og eftir það hafi prentsmiöjan
greitt tekjuafgang til ríkissjóðs
flest árin meðan hún starfaði
undir stjórn Steingrims Guð-
mundssonar. Jafnframt var
lögð stund á það aö gera prent-
smiðjuna sem starfhæfasta
hvað snerti húsakost, vélar og
áhöld og tryggja atvinnu
prentaranna sem þar störfuðu,
og efla lifeyrissjóð þeirra. Með
timanum varð Gutanberg eitt af
fullkomnustu prentverkum á
landinu án þess að stofnað væri
til lántöku.
Jafnframt innri breytingum i
prentsmiðjunni beitti Stein-
grímur sér fyrir umbrotsbreyt-
ingum á rikisskjölum, minnkaði
stilstærðina á Alþingistiöindum
og margháttuðum skjölum
stjórnarráðsins og var rikis-
stjórn og forsetum Alþingis til
ráðuneytis um öll prentmál með
sinni hagsýni og hollráðum,
grímur Guðmundsson ráðinn til
þessa ráðgjafastarfs, enda
manna fróöastur um pappirs-
gerðir. Starfaði hann að þessum
málum svo og endurskoðunar-
störfum hjá Innkaupastofnun-
inni um 18 ára skeið eða til 89
ára aldurs, er hann hætti endan-
lega störfum á s.l. sumri, vegna
likamlegrar heilsubilunar. En
skýrleiki I hugsun var slikur, að
ekki var vitað tilþess, aö honum
hefði nokkru sinni orðið á reikn-
ingsskekkja við endurskoöun,
þessi 18 ár, og ef mismunur kom
fram, var hægt aö ganga út frá
þvi af fullkomnu öryggi, að
rétta talan væri hjá Steingrími,
svo frábær var vandvirkni hans
og skarpskyggni þrátt fyrir hinn
háa aldur. Slikir hæfileikar svo
gamals manns munu vera
fátiðir. 011 störf hans hjá Inn-
kaupastofnuninni voru því leyst
af hendi af sömu nákvæmni og
ábyrgðartilfinningu og hans
fyrri störf, og samvinnuþýðari
og alúölegri samstarfsmann var
ekki hægt að fá en þennan fyrr-
um stjórnsama og ákveöna yfir-
boðara úr prentiönaðinum.
Undirritaöur átti þvi láni að
fagna, að starfa með Steingrimi
siðustu 18 æviár hans og eiga
hann að ráðgjafa. Fyrir alla þá
samvinnu og viðræður eru nú
fluttar alúðarþakkir að leiöar-
lokum. Hann var ekki aðeins
skarpgreindur, heldur djúp-
vitur, viðlesinn og fróöur um
innlend sem erlend málefni þvi
hann keypti til siöustu stundar
erlend tímarit á ensku um al-
þjóðamál. Oft áttum viö sam-
ræður um þjóöfélagsmál og ráð-
stafanir hinna ýmsu rikis-
stjórna sem setiö hafa. Þá var
gaman og fróðlegt að hlusta á
Steingrim. Hann var jafnaðar-
maður aö hugsjón og uppeldi og
ákveðinn stuðningsmaöur Al-
þýðuflokksins, en útlistanir
hans á hagfræði og stjómsýslu
hér á landi sem erlendis voru
upplifun, einföld framsetning
hans og frumlegar skýringar
voru frábærar. Það var jafnræði
á með þjóðhagsstjóranum
bróðursyni hans og hinum grá-
hæröa öldungi.
A slðasta áratug vann Stein-
grimur að útgáfu ævisögu afa
sins Jóns á Gautlöndum. Hann
hafði á afmælis- og fjölskyldu-
hátlð norður á Gautlöndum
varpaö fram þeirri hugmynd,
aö Gautlandaættin sameinaðist
um að láta skrá ævisögu for-
fööur sins og ættartölu. Varð
það til þess að Steingrimi var
falin forsjá þess verks og réð
hann kunnáttumenn til ritstarf-
anna, en jafnframt var hafin
fjársöfnun undir forustu Stein-
gri'ms, Þórleifar Norland og
Jóns Gauta Péturssonar. Ævi-
sagan kom svo út fyrir fáum ár-
um og ber nafnið „Frelsisbar-
átta Suður-Þingeyinga og Jón á
Gautlöndum”. Var þaö
Steingrlmi gleöiefni að aldrei
stóö á fjármunum til greiðslu af
kostnaði þess verks, enda mun
hann þar hafa lagt fram
drjúgan hlut sjálfur. — En hann
hafði einnig bundist Gufudals-
sveit órofa böndum og þangað
leitaði hugurinn oft alla tið.
Steingrimur Guðmundsson,
sinnti félagsstörfum innan
prentiðnaöarins og var fyrsti
heiðurfélagi Félags prent-
smiðjueigenda einnig á vegum
Alþýðuflokksins, átti sæti á
framboöslista til borgarstjórnar
Reykjavikur og sat i skólanefnd
Miðbæjar^og Melaskólans, auk
margra annarra trúnaðar-
starfa.
Hann kvæntist Eggrúnu
Arnórsdóttur prests I Hvammi
Arnasonar árið 1919. Eggrún
andaöist fyrir fáum árum. Þau
eignuðust tvær dætur Margréti
Félagsráðgjafa og Kristjönu
kennara, sem báðar eru bú-
settar i Reykjavík. Við fráfall
okkar góða vinar sendum viö
samstarfsmenn hans i Inn-
kaupastofnun rikisins dætrunun
báðum svo og barnabörnum
hans og ööru venslafólki inni-
legustu samúðarkveðjur.
Asgeir Jóhannesson