Alþýðublaðið - 05.03.1981, Page 3

Alþýðublaðið - 05.03.1981, Page 3
Fimmtudagur 5. mars, 1981 3 Efnahagsmá! 1 of þungt í vöfum. Hann minnti siöan á tillögur Alþýöuflokksins, sem lagöar voru fram i des. slöastl. aö lán húsnæöisstjórnar verði hækkuð upp i 35% af verði staðalibiíðar á þessu ári, en þvi til viðbótar er gert ráð fyrir að bankakerfið veiti lán til langs tima, sem nemi helmingi hús- næðisstjórnarlána, en þessi lán verði verðtryggð með lágum vöxtum. Skattamálin. Kjartan vék siðan að tillögum Alþýðuflokksins i skattamálum, og sagði þá m.a.: ,,Ég gat þess hér I upphafi, að i till. okkar væri gert ráð fyrir verulegri lækkun á tekjusköttum einstakl- inga. Það er vert að gefa þvi gaum, að núgildandi skattalög munu færa rfkissjóði tekjur, sem eru 5.5 milljarði kr. hærri heldur en I fjárlögum. Það er lika vert að gefa þvi gaum, að skattar samkv. fjárlagatill. eru öðrum 5.5 milljarði kr. hærri heldur en svarar til óbreyttrar skattbyrði milli áranna. Skatt- byrði einstaklinga á árinu 1980 var um 13.3%, ef við tökum greiðslubyrði, með tilliti til greiðsluárs, sem er eðlilegasta viðmiðunin. Ég vek sérstaka athygli á þessu. Þetta þýðir það i raun og sannleika, að þegar koma á til framkvæmda lækkun á greiðslubyrði skatta til þess að vernda ráðstöfunartekjur, þá verður fyrst að lækka um 11 milljarða og siðan um viðbótar- fjárhæð, sem nemur þvi sem nauðsynlegt er til þess að mæta þeim hugmyndum um að lækkunin verði 1—1.5% af tekj- unum. 11 milljarða kr. lækkun ein sér mundi ekki þýða neina lækkun á greiðslubyrði af skött- -um á greiðsluári, heldur óbreytta greiðslubyrði. Það er mikilvægt að menn hafi þetta I huga, þegar litið er á það við- fangsefni, að tryggja ráðstöf- unartekjur fólks með skatta- lækkunum.” Siðan rakti Kjartan tillögur Alþýðuflokksmanna, sem gera ráð fyrir lækkaðri skattbyrði um 1,5% af tekjum hjá öllum þeim, sem hafa miðlungstekjur eða minna. Þetta mundi þýða skattalækkun hjá hjónum, sem hafa minna en 12 milljónir gkr. i laun á siðasta ári og einhleyp- inga með undir 8 milljónir i laun og einstæða foreldra með allt að 10 millj. i 'laun. Gert er ráð fyrir verulegri hækkun persónuafsláttar sem nemur samtals hjá hjónum um 255 þús. gkrónum. Þá er gert ráð fyrir, að persónuafsláttur nýtist til greiðslu eignarskatts, sem létta mundi undir með gömlu fólki, sem á erfitt með að standa undir eignarsköttum af ibiíðum sinum. I tillögum Alþýðuflokksins nú er einnig það nýmæli, að ónýtanlegur persónuafsláttur allt að 430 þús, gkr greiðist út þeim sem eldri eru en 20 ára og stunda ekki atvinnurekstur. Telja tillögumenn, að þetta ákvæði muni létta verulega undir með þeim hóp, sem hefur á undanförnum árum búið við mjög bág kjör. Kjartan Jó- hannsson minnti siðan á það, að á siðasta þingi hafi fjármála- ráðherra brugðið á það ráð að á elleftu stundu að festa ákveðna Íágmarksupphæð á fastan frá- drátt, sem sé nú látin óhreyfð, en alþýðuflokksmenn leggi til að hún hækki úr 550 þús. i 900 þús. gkr. og eykst þessi frádráttur skv. þvi verulega umfram skattvfsitölu. Skattamál einstæðra foreldra Siðan vék Kjartan að skatta- álögum á einstæða foreldra og sagði þá m.a. að það hefði sann- ast, sem hann hefði haldið fram, aö skv. þvi skattakerfi, sem lög- fest var ifyrra, hafi skattar ver- iðhækkaðir verulega á einstæð- um foreldrum. Fjármálaráð- herra hefur mótmælt þessu, sagði hann, en nú hefur sérstök nefnd, sem ráðherra skipaði staðfest, að þetta fólk hafi orðið fýrir verulegri skattaiþyngingu. Með tillögum Alþýðuflokksins nú er reynt að lagfæra þetta ranglæti og verður lágmarks- upphæð fasts frádráttar hjá ein- stæðum foreldrum 50% hærri heldur en hjá einhleypum. Siðan sagði Kjartan Jóhanns- son: „Þessar aðgerðir þýða það, að skattur lækkar mjög veru- lega hjá fólki eða um það bil 255 þús. gkr. hjá hjónum og yfirleitt á bilinu 215—300 þús. gkr. hjá einhleypum og hjá einstæðum foreldrum yfirleitt á bilinu 325—400 þús. gkr. Hér væri þvi stigið mjög myndarlegt skref til þess að vernda kaupmátt ráð- stöfunartekna hjá fólki. En ég vil þó vekja sérstaka athygli á þvi að það að greiða út ónýtan- legan persónuafslátt hefur mjög veruleg áhrif i þá átt að bæta einkanlega og langt umfram við þetta hag þeirra, sem lægstar hafa tekjurnar og verst hafa orðið Uti. Enn fremur er það einkenni þessara tillagna, að skattalækkunin er hlutfallslega meiri af lágum tekjum heldur en miðlungstekjum. Skv. tillögunum á tekjuskatts- lækkunin að koma til fram- kvæmda um leið og skerðingar- ákvæði rikisstjórnarinnar taka gildi. Lagt er til að fyrirfram- greiðslur lækki þá til að mæta ’ þeirri kjaraskerðingu, sem kemur til framkvæmda. Kjartan sagði, að augljóslega þýddi það fyrirhöfn, m.a. nýja útsendingu skattseðla, en það væri litilræði miðað við þá kjaraskerðingu, sem fólk mundi væntanlega taka á sig. Gert er ráð fyrir þvi i tillögum Alþýðuflokksins, að barnabætur verði greiddarút til þeirra, sem eiga tvö börn eða fleiri og sagði Kjartan það vera réttlætismál, að það fólk sem hér um ræðir gæti fengið barnabæturnar greiddar út á fyrri hluta árs og þörfin væri nú brýnni vegna yfirvofandi kjaraskerðingar. Hvernig á að mæta skattalækkun? Sfðan gerði Kjartan grein fyr- ir þvi hvernig Alþýðuflokks- menn vildu mæta þeirri skatta- lækkun sem nú er boðuð. Sagði hann að álagning skv. gildandi skattalögum mundi færa rikis- - sjóði 5.5 milljarða umfram áætlunartekjur fjárlaga og að tekjuáætlun fjárlaga af tekju- skatti einstaklinga væri öðrum 5,5 milljörðum of há miðað við óbreytta skattbyrði milli ára. Þá er gert ráð fyrir þvi, að sú fjárhæö, sem nefnd er i fjárlög- um til efnahagsráðstafana, 11 milljarðar, verði nýtt i þessu skyni. Heimild er einnig i fjár- lögum til lækkunar rikisút- gjalda um 3 milljarða og er gert ráð fyrir að hún verði nýtt. Þannig sést að nægilegt svig- rúm er i þessum efnum, sagöi hann. Siðan gerði Kjartan Jóhanns- son itarlega grein fyrir einstök- um liðum breytingartillagn- anna eins og þær birtast á þing- skjali og sagði siðan að lokum: „Ég legg áherslu á þaö að það ber brýna nauðsyn til þess þegar gripið er til ráðstafana af þessu tagi að koma til móts við þá, sem verst eru settir I þjóðfé- laginu. Tillögur okkar i þessum efnum miða sérstaklega að þvi að framfylgja þvi markmiði. En jafnframt höfum við flutt till. um bætta st jórn lánamála, eins og ég hef gert hér grein fyrir. Þessar till. mundu sniða ýmsa af verstu agnúunum af þeim áformum, sem uppi eru hjá rikisstj. Þær mundu mæta þörf- um þeirra, sem verst eru settir, bæta kjör sparifjáreigenda og rétta hag húsbyggjenda. Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um þetta mál. Auðvitað er öllum ljóst, að till. rikisst. eins og þær eru úr garði geröar, munu ekki duga til þess að ná varanlegum árangri, en það sem hér hefur verið gerð till. um muni geta lagt grunn að þvi.” Borgarmál 4 reistáviðog dreif i bænum, en i þessu tilfelli brá svo við, að ibúarnir við Seljaveg mótmæltu tilvist þessa fyrirtækis i sinni götu. Og þvi skyldu þeir hafa mótmælt? Jú, þeim fannst það svolitið hart að iðnfyrirtæki, sem fæst við áfyllingu gaskúta og meðferð eldfimra efna, skyldi vera reist á svæði, inni i miðju ibúðarhverfi, þar sem upphaflega var ætlað að á yrði barnaleikvöllur. Viðbrögð borg- arstjórnar þá, og reyndar allar götur siðan, við mótmælum ibúanna voru einfaldlega þau, að á þá var ekki hlustað fremur en þeir væru ekki til. Þannig hefur þetta gengið siðan I borgarstjóratið Gunnars Thoroddsen, ibúarnir hafa af og til itrekað mótmæli sin, borgar- yfirvöld hafa ekki hlustað, og fyrirtækið stendur enn þar sem barnaleikvöllurinn hefði átt að vera, meir að segja á lóð sem borgin á sjálf. M.ö.o. er hér komið skólabókardæmi um fullkomið tillitsleysi borgaryfir- valda við eindregnar óskir ibú- anna á þessum stað. Enn er þó ekki öll sagan sögð. Aðurnefnd kolsýruhleösla hefur það nefnilega fyrir sið, að geyma stóran gaskút fyrir utan gafl hjá sér, algerlega óvarinn fyrir veðri, vindum og skemmd- arvörgum. Þá lét fyrirtækið ný- lega reisa tvo heljarstóra tanka á svæðinu, en enginn virðist vita fyrir vist, hvort leyfi hafi feng- ist til þess arna. Þess gerist tæplega þörf að lýsa afleiðing- unum af þvi, ef þarna kænrv nú upp eldur. Það yrði þá heidur betur „fyrværkeri” i Vestur- bænum. Af öllu þessu má sjá hvert sú stefna leiðir, að taka heldur pólitiskar ivilnanir fram yfir vilja bæjarbúa sjálfra. Þessu þarf að breyta. Bæjarbúar þurfa að fá tækifæri til að láta skoðun sina i ljós, það er jú einu sinni gangur lýðræðis. Með þvi að taka meira tillit til óska bæjarbúa mætti koma i veg fyrir ástand svipað þvi og að framan er lýst. Ég vona svo bara að borgarfulltrúar okkar kratanna taki þetta til greina. Það er viðar pottur brotinn i þessum efnum. Sænski kvikmyndaleikstjórinn STEFAN JARL heldur íyrirlestur og sýnir kvikmynd sina „Förvandla Sverige”, fimmtudaginn 5.3. kl. 20:30 i Norræna húsinu. Veriö velkomin Norræna húsið ........■■■■■—■ "-H Árshátíð Alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík verður haldin í Fóstbræðraheimilinu við Langholtsveg þann 6. mars n.k. / Listasafn Islands Tilboð óskast i að steypa upp byggingu fyrir Listasafn ísiands á lóðinni nr. 7 við Frikirkjuveg i Reykjavik, og að ganga frá lóð og húsi að utan. Húsið er ein hæö á kjallara og tvær að hluta, alls um 7600 ferm. Uppsteypu húss og frágangi þaks 2. hæðar skal lokið 15. des. 1981, en verkinu að fullu lokið 15. september 1982. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Rvk., gegn 1000.- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtu- daginn 26. mars 1981, kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Blaðburðarbörn óskast á Borgartún Hátún-Miðtún-Samtún Skúlagata-Hverfisgata-Skúlatún Reynimelur Birkimelur-Grenimelur Alþýðublaðið — Helgarpósturinn FLOKKSSTARF Fulltrúaráð Alþýðuflokks- félaganna í Reykjavik Fyrsti viðtalstimi þingmanna og borgarfulltrúa á þessu misseri verður miðvikudaginn 11. mars n.k. á skrifstofu Alþýðuflokksins kl. 17.30—18.30. Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður og Sigurður E. Guðmundsson varaborgarfulltrúi svara fyrirspurnum. Stjórnin Stjórnmálaskóli S.A. og fræðsluráð Alþýðuflokksins Námskeið i ræöumennsku og framsögn Fimmtudag 5. mars kl. 20—23. Fundarstörf Leiðbeinandi: Haukur Helgason. Námskeiöin verða haldin i Alþýöuhúsinu i Hafnarfirði. Námskeiðsgjald er 60 kr. fyrir 3ja kvölda námskeið og 50 kr. fyrir 2ja kvöida. Upplýsingar og innritun: Helga Kristin 40565 Sólveig Helga 44593. Ragnheiður 66688. Alþýðuflokkurinn og verkalýðshreyfingin Fræðsiuráð Alþýöuflokksins og verkalýösmálanefnd Alþýðuflokksins boða hér með til umræðufundar — annars i röðinni af þremur i febrúar og marz — undir heitinu: Alþýðuflokkurinn og verkalýðshreyfingin. Fundurinn verður haldinn laugardaginn 7. mars n.k., i Iðnó, uppi, og hefst kl. 14:00. Fundarefni: „1 staðvisitölukerfis. Nýjar leiðir til að varðveita kaupmátt launa." Framsögumenn: Björn Björnsson, viðskiptafræðingur, hjá kjara- rannsóknanefnd. Bolli Bollason, hagfræðingur, hjá Þjóðhagsstofnun. Hringborðsumræöur: Auk framsögumanna taka þátt: Jón Sæmundur Sigurjónsson, tryggingafræðingur Kjartan Jóhannsson, formaður Alþýðuflokksins Magnús Geirsson.formaður rafiðnaðarsambands Islands. Fundarstjóri: Grétar Þorleifsson, formaður fél. bygg- ingarmanna i Hafnarfirði. Fundarritari: Kagna Bergmann, varaformaður verkakvennafélagsins Framsóknar. Þriðji og siðasti fundurinn i þessari fundaröð er ráðgerður laugardaginn 28. mars á sama stað og tima. Aformað umræðuefni er: Skipulag sænsku verkalýðs- hreyfingarinnar og tengsl hennar við jafnaðarmanna- flokkinn. Á þeim fundi verður væntanlega sænskur fyr- irlesari. Þess er vænst að sem flest Alþýðuflokksfólk starfandi i verkalýðshreyfingunni sjái sér fært að sækja þessa fundi. Með baráttukveðju, f.h. fræðsluráðs og verkalýðs- málanefndar Alþýðuflokksins. Kristin Guðmundsdóttir.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.