Alþýðublaðið - 06.05.1981, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 06.05.1981, Qupperneq 2
2 Miðvikudagur 6. maí 1981 L'tgefandi: Alþyðuflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guömundsson. Stjórnmálaritstjóri (ábm): Jón Baldvin Hannibals- son. Blaöamenn: Helgi Mar Arthursson, Ölafur Bjarni Guðnason, Þráinn Hallgrimsson. Anglýsingar: Þóra Hafsteinsdóttir. Gjald- keri: Halldóra Jónsdóttir. Dreifingarstjóri: Sigurður Steinarsson. Hitstjórn og auglýsingar eru aö Siöumúla 11. Reykjavik, simi 81866. Milli steins og sleggju Næstu leikir i þráskák rikisstjórnarinnar i efnahagsmálum liggja nú nokkurn veginn ljóst fyrir. Með þvi að svipta launþega i landinu rúmlega helmingi umsaminna visitölubóta á laun þann 1. marz s.l., tókst rikisstjórninni að halda hækkun framfærsluvisitölu innan við 6%. Með þvi að skera niður áður ákveðin framlög til opinberra framkvæmda, þ.á.m. vegamála og húsnæðisrhála, og nota þessa fjármuni i staðinn til að greiöa niður landbúnaðarvörur, er að þvi stefnt að halda hækkun framfærsluvisitölu innan við 8—8,5% þann 1. júni n.k. Þar með er rikisstjórnin komin hálfa leið að settu marki. Hinni fyrirframgefnu niðurstöðu um 40% verðbólguhraða á árinu 1981. Aðferðirnar hingað til hafa verið i hefðbundnum stil: Lögboðin riftun kjarasamninga og auknar niðurgreiðslur landbúnaðarafurða. Astæðan fyrir þvi að þessir biðleikir rikisstjórnarinnar hafa tekizt bærilega hingað til er sú, og sú ein, að rikistjórnin hefur getað reitt sig á biðlund, eða e.t.v. væri nær lagi að segja þjónustulund, verka- lýðsrekenda, Alþýðubandalagsins. En til þess að dæmið gangi upp siðari hluta ársins, verður Alþýðubandalagið að leggja ennþá þyngri byrðar á verkalýðsforingja sina. Þeir sem horfðu upp á vandræðalega málsvörn Asmundar og Thorlaciusar i sjónvarpssal þann 1. mais.l., eru að visu farnir að efast um,að þeir fái risið undir enn þyngripólitiskum klyfjum valdhafanna. Til þess að dæmið gangi upp seinni hluta ársins, þannig að út- koman verði i reynd hin fyrirfram gefna niðurstaða um 40% hækkun framfærsluvisitölu á árinu, þarf rikisstjórnin að halda visitölu- hækkuninni innan við 8% i september, og innan við 10% i desember. Hingað til hefur lánið leikið viö rikisstjórnina: Innflutningsverð á oliu og benzinvörum hefur verið stöðugt ótrúlega lengi, og fer nú jafnvellækkandi. Afli hefur glæðzt mjög verulega að undanförnu og meðalverö á útflutningsvörum okkar farið hækkandi. Þetta hvort tveggja, ásamt með umbúrðarlyndum og undirdánugum verkalýðs- foringjum, hefur gert rikisstjórninni pólitiskt kleift að leika hvern biðleikinn á f ætur öðrum. Að velta vandanum á undan sér og slá öll- um óþægilegum alvöruákvörðunum á frest. Sérstaklega hefur ^töðugleikioliuverðlags, aukinn afli og stórhækkað útflutningsverð- lag á skreið og saltfiski auðveldað rikisstjórninni að hanga á tiltölu- lega stöðugu gengi, mun lengur en gerlegt er við venjulegar kringumstæður. Nú fer máliö hins vegar nokkuð að vandast. Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaöarins er fyrir löngu galtómur. Ekki verður lengur ausið úr honum til þess að standa undir hallarekstri frystiiðnaðarins. Fisk- verðshækkun er ekki íyrirsjáanleg á næstunni á Bandarikja- markaði. 8—9% kauphækkun 1. júni, og aukinn framleiðslukostn- aður, sem af þvi leiðir, þýðir að frystingin verður rekin með veru- legum halla. Við þetta bætist ný fiskverðsákvörðun upp úr 1. júni. Til þess að dæmi rikisstjórnarinnar raskist ekki, verður enn að höggva i þann knérunn að krefjast nýrrar kjaraskerðingar af sjó- mönnum. Takizt það ekki, mun gengið ekki stand,ast. Jafnvel þótt sjómenn og útgerðarmenn láti að vilja stjórnarinnar og sætti ‘sig við innan við 8% hækkun fiskverðs, er fyrirsjáanleg gengislækkunar- þörf á bilinu 12—14%. Rikisstjórnin mun gera allt sem hún getur til þess að fresta óumflýjanlegri gengislækkun fram eftir sumri. Hún veit sem er, að sleppti hún þolanlega frá ákvörðunum um hækkun fiskverðs og búvöruverðs eftir 1. júni, getur hún siglt á lygnum sjó fram eftir sumri, meðan stjórnmálastarfsemi á tslandi liggur i sólarlandadvala. H in raunverulega pólitiska þolraun, sem biður rikisstjórnar- innar, verður ekki fyrr en næsta haust. Þá er aftur komið að nýjum kjarasamningum. Sú ákvörðun rikisstjórnarinnar, að gefa B.S.R.B. kost á nokkurri kjaraleiðréttingu á miðju samningstimabili og framlengja samninga opinberra starfsmanna aftur fyrir A.S.t., var vissulega með ráðum gerð. Ráðherrar Alþýðubandalagsins munu nú leggjast með ofurþunga á stjórnarliðana i forystu A.S.I., um að halda kaupkröfum innan þeirra marka, sem hin fyrirframgefna niðurstaöa rikisstjórnarinnar um 40% verðbólgu útheimtir. Þetta verður ekki auðvelt verk íyrir Asmund og Björn, vegna þeirrar djúpstæðu óánægju sem nú grefur i vaxandi mæli um sig innan verkalýðshreyfingarinnar, og á vinnustöðum, út af linkind og litil- þægni verkalýðsforystunnar. Flokksræðisforystan i miðstjórn A.S.l. verður þess vegna milli steins ráðherrahollustunnar og sleggju almenningsálitsins innan hreyfingarinnar. — JBH FLOKKSSTARF Viðtalstími þingmanna Alþýðuflokksins Kl. 11—12 á skrifstofu Alþýöuflokksins eöa í sima 15020 Miðvikudaginn 6. maf Sighvatur Björgvinsson Síglutprður Alþýöuflokksfélag Siglufjarðar heldur fund i Borgarkaffi, sunnudaginn 10. mai kl. 14:00. Frummælendur: Finnur Torfi Stefánsson og Vilmundur Gylfason. Allt Alþýðuflokksfólk er hvatt til aö mæta. Stjórnin. Davíð Oddsson um nýja skipulagið á austursvæðinu: Forsendur meirihlutans eru afturhald og uppgjöf Alþýðublaðið birti i siðustu viku grein um skipulag Austur- svæða, þ.e. hin nýju bygginga- svæði borgarinnar þar sem gert var grein fyrir helstu for- sendum og röksemdum Borgar- skipulags og skipulagsnefndar fyrir breyttu skipulagi. Miklar umræður hafa verið um skipu- lagið og hefur minnihluti borgarstjórnar, gengið harðast fram i gagnrýni sinni á skipu- laginu. E ins og kunnugt er hefur skipulagið nú verið samþykkt i borgarstjórn með nokkrum breytingum, sem meirihlutinn gerði við það. Helstu breytingar eru þær, að svæðiið norðan Stekkjabakka var fdlt út, þá var ákveðiðað nýverandi mörk Golf- vallarins verði óbreytt og tengi- braut frá Selási út á Suður- landsveg verður felld niður. Sjálfstæðismenn sátu hjá við allar breytingartillögurnar nema tvær og þeir greiddu at- kvæði gegn skipulaginu i heild og lýsti Davið Oddsson þvi yfir að þeirra valkostur væri gamia skipulagið frá 1977. Davið Oddsson .hefur gengið harðast fram i gagnrýni sinni á þeim skipulagshugmyndum sem nú hafa verið samþykktar. Fleyg eru þau orð hans að skipu lagstillögur meirihlutans i borgarstjórn miðuðust við nýja byggð ,,,inn til dala og upp til heiða”. Davið var i gær beðinn að skýra út stefnu Sjálfstæðis- manna og gera grein fyrir þeim ágreiningi, sem fram hefur komið um skipulagsmálin. Davið minntii upphafi á sam- þykkt aðalskipulags Reykja- vlkur 1977, sem bæði Sjálf- stæðisflokkur, Alþýðuf lokkur og Fr am sók narflokkur hefðu staðið að á sinum tima. Þvi miður hefði það ekki hlotið stað- festingu og nú væri búið að sam- þykkja allt aðrar húgmyndir „Okkar meginágreiningur er sá,” eins og komið hefur fram i fjölmiðlum, að við teljum ekki rétt að fara að byggja upp ný svæði fbúðabyggðar við Rauða- vatn þar sem öll veður skilyrði og aðrar aðstæður erii mjög óhagsstæðar, þegar okkur stendur til boða að byggja á svæði sem liggur bæði neðar og er þar að auki miklu ódýrara fyrir borgina þ.e. við Grafar- voginn út með ströndinni. En var þá uppbvgging Breið- holtshverfisins á sínum tima röng stefna? Nú stóöuð þiö Sjálf stæðismenn að þeirri stefnu- mörkun? Nei, að visu hefur hvert skipulagssvæði sina galla og kosti. Breiðholtið varð til á sinum tima vegna þess, að þar var gífurleg þörf til að mæta stórum árgöngum fólks, sem var að koma inn. Breiðholtið hefur galla, þar má nefna snjó- þyngsli og ýmis önnur veður- farsleg atriði og ef að menn sjá þau nú ættum við frekar að reyna að varast vitin en endur- taka þau. En hvað um þau rök vinstri meirihlutans, að með þvi að byrja i Artúnsholti og Selási, nnmi þessi svæði þegar i byrjun njóta fullrar þjónustu frá nálægum svæðum en Keldna og Olf arsfellssvæðið yrði án slfkrar þjónustu i nokkur ár? 1 fyrsta lagi vil ég segja það, að deilan stendur ekki um upp- byggingu I Selási og Artúnsholti heldur um uppbyggingu á Rauðavatnssvæðinu. Uppbygg- ing er þegar hafin i Selási og Artúnsholtið getur notið þjónustu frá Árbænum. Þetta var vitað fyrirfram. En það dettur engum manni i hug að stór byggð við Rauðavatn, allt að 15000 manna byggð geti fengið þjónustu að um langan veg þ.á.m. barnaheimili skóla og annað. Það er gjörsamlega út i hött. Nú segir i greinárgerð borgarskipulags, að byggð i Sel- ási, Artúnsholti og við Rauða- vatn sé eini valkosturinn, sem geti tekið við hægri uppb ygg- ingu án þess að það komi niður á gæðum skipulagsins og þjónustu við'ibúana? Hvað vilt þú segja um þetta? Ég tel að þessi ftúl- yrðing sé alveg út i hött. Viö bendum á, eins og ég hef áður sagt, að það þurfi að byggja upp þjónustu á Rauðavatnssvæðinu, auk þess sem allar stofnlagnir frá þessu svæði verða miklu dýrari, en ef svæðið við Grafar- vog yrði fyrir valinu. Stofn- lagnir úr þessu nýja hverfi munu kosta um 18 milljarða króna meira og binda fram- kvæmdafé borgarinnar til margra ára. Nú Uilar þú um vond veður og snjóþvnglsi og óhagstæð veður- skilyrði á Austursvæðinu, en eru þetta nokkuð verri skilyrði en i Efra-Breiðholti? Já, að okkar mati eru þetta verri skilyrði. Það er vitað að nokkuð stórir hlutar Rauðavatnssvæðisins liggja mun ofar en efstu byggðasvæðin i Breiðholti, þar verður byggð á efstu svæðunum 20-30 metrum ofar en efst i Breiðholtinu og ég efast um að fólki almennt finnist það fýsi- legur kostur. Hvað segir þú um þær hug- Innlend syrpa Aðalfundur Alþýðubankans Aðalfundur Alþýðubankans 1981 var haldinn 25. april e.l. og var vel sóttur að vanda. Benedikt Daviðsson form. bankaráðs flutti skýrslu banka- ráðs og Stefán M. Gunnarsson bankastjóri skýrði reikninga bankans. Fram kom m.a.: Innlánaaukning á árinu 1980 varð 77,5% frá árinu 1979 og er þaö annaö árið i röö, að Alþýðu- bankinn nær hæstu hlutfalli inn- lánaaukningar miðaö við aöra viðskiptabanka. Aukning útlána varð 77%. Frá aðalfundi Alþýðubankans. Aðalmenn i bankaráð voru allir endurkjörnir en það skipa: Bene- dikt Daviðsson, Bjarni Jakobs- son, Halldór Björnsson, Teitur Jensson og Þórunn Valdimars- dóttir. Endurskoðendur voru kjörnir, Böövar Pétursson, Magnús Geirsson og Gunnar R. Magnús- son lögg. endurskoöandi. Samþykkt var að greiöa 5% arð til hluthafa fyrir áriö 1980, á greitt hlutafé og útgefin jöfnunarhluta- bréf. Aðalfundurinn samþykkti að ráöstafa kr. 30.000.- (g.k. 3 millj) til Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra. 1 tilefni af tiu ára starfsafmælis Alþýðubankans haföi bankaráö samþykkt að kaupa málverk og gefa það Listasafni ASI. Keypt hafðiverið málverkið „Minning” eftir Eirik Smith. I lok aðal- fundarins afhenti fráfarandi for- maður bankaráðs listaverkið, Hannibal Valdimarssyni for- manni stjórnar listasafnsins. Aðalfundur Mjólkursamsölunnar í Reykjavík Föstudaginn 24. april s.l. var haldinn aðalfundur Mjólkursam- sölunnar i Reykjavik. A fundinum mættu 16 fulltrúar auk stjórnar og starfsmanná Formaöur stjórnar MS Agúst Þorvaldsson á Brúna- stööum stjórnaði fundi. 1 upphafi fundar minntist hann Sigurgrlms Jónssonar, bónda i Holti, en hann var lengi i stjórn MS og formaður stjórnar um nokkur ár. Sigur- grimur andaöist 15. janúar s.l. Agúst gerði þvi næst grein fyrir afgreiöslu nokkurra mála sem stjórnin hafði fjallað um á árinu. Fyrir stjórnina höfðu verið lögð 66 mál á árinu og hélt hún 13 fundi. Oft var fjallað um fram- leiðslumálin og svo verölagsmál. Þá verður umfjöllun um nýbyggingu MS meiri eftir þvi sem timinn liður. í framhaldi af skýrslu formanns gerði forstjórinn Guölaugur Björgvinsson itarlega grein fyrir rekstri fyrirtækisins og skýröi reikninga. Aður fjallaði hann nokkuð almennt um mjólkurframleiðsluna. Hann benti á að nauðsynlegt hefði reynst aö draga úr mjólkurfram- leiöslunni, miðað við það sem hún var árið 1978. Mjólkurfram- leiðslan minnkaöi um 6.95% á svæöi MS á slðastliönu ári miöað viö árið á undan. Yfir landið allt varð samdrátturinn 8.7%. Samtals hefur innvegin mjólk frá mjólkursamlögunum I landinu minnkað um 13 milljónir litra frá árinu 1978 og fram til siðustu ára- móta. Eðlileg innnanlandsneysla miðað við neyslu undanfarinna ára er á bilinu 100—105 millj. ltr. af nýmjólk, þegar allar mjólkur- vörur hafa verið umreiknaðar i mjólk. Þá benti Guðlaugur á samþykkt Framleiösluráös land- búnaðarins um að það teldi hæfi- lega framleiðslu til að fullnægja innlenda markaðnum 105—108 millj. ltr. af mjólk á ári. Þannig að nú virðist stefna i mjólkur- skort næsta vetur ef ekki verður breyting til auknmgar frá þvi, sem verið hefur síðustu þrjá mánuði. Sala á öllum helstu fram- leiösluvörum MS gekk mjög vel á árinu. Aukning varð i sölu á nýmjólk um 1.7% tæplega 3% aukning varð i sölu á rjóma. Heildarvelta MS var rúmlega 19 milljarðir g.kr. á árinu 1980. Það reyndist mögulegt að greiða framleiöendum grund- vallarverö fyrir mjólkina á siöasta ári, að frádregnu út- flutningsbótagjaldinu. Meðal- grundvallarverð svæðisins var tæplega g.kr. 304 á hvern litra. Vegna frestunar á verðhækkun i desember sl., þá lækkaði grund- vallarverð svæðisins um tæplega gkr. 0,72 á litra. Lægst var grund vallarverðiö hjá mjólkursam- laginu I Borgarnesi g.kr. 302.51 á litra en hæsthjá Mjólkurstöðinni i Reykjavik 304.70 litra. Af sölutekjum MS fá fram- leiöendur um 65% I sinn hlut, sem er lægra hlutfall en oftast áöur.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.