Alþýðublaðið - 23.05.1981, Síða 3
3
Laugardagur 23. maí 1981
alþýðu-
I H hT'JT'M
Otgefandi: Alþýðuflokkurinn
Framkvæmdast jori: Jdhann-
es Guömundsson.
Stjórnmálaritstjóri (ábm):
Jón Baldvin Hannibalsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Helgi Már
Arthursson. ,
Blaðamenn: Olafur Bjarni
Guðnason, Þráinn Hall-
grimsson.
Auglýsingar: Þóra Haf-
steinsdóttir.
Gjaldkeri: Halldóra Jónsdtítt-
ir.
Dreifingarstjóri: Sigurður
Steinarsson.
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Sfðumúla 11, Reykjavik,
simi 81866.
Alþýðubandalagið og
forverar þess i islenzkri pólitik
hafa hátt á fjórða áratug boðað
islenzku þjóðinni fagnaðarer-
indi hins voDnlausa hlutlevsis og
pólitiskrar einangrunarstefnu.
Enn i dag nota Álþýðubanda-
lagsmenn hvert tækifæri til þess
aö fordæma lýðræðisrikin og
varnarsamtök þeirra. Enn i dag
er þeim lýst sem árásargjörn-
um heimsvaldasinnum, sem
vilja gina yfir auðlindum jarðar
og ógna þannig heimsfriðnum.
Að sjálfsögðu eiga Islendingar
engra sameiginlegra hagsmuna
að gæta með „kapitalistum” og
„heimsvaldasinnum”. Helzt er
að skilja, að tslendingar eigi að
skipa sér i sveit með hinum frið-
elskandi þjóðum þriðja heims-
ins — með hinum hlutlausu rikj-
um. 1 ræðu og riti þeirra Al-
þýðubandalagsmanna er hvergi
að finna neina þjóðfélagsgrein-
ingu á eðli Sovétrikjanna. Þetta
hervædda alræðisriki og ný-
lendustefna þess kemur hvergi
við sögu i heimsmynd Alþýðu-
bandalagsmanna. Þvert á móti
er i öllum grundvallaratriðum
tekið undir „hræðsluáróður”
Kremlverja gegn lýðræðisrikj-
unum og varnarviðbunaði
þeirra. Utanrikispólitik Alþýðu-
bandalagsins er þvi enn i dag
hin sama og Sósialistaflokksins
hér áður fyrr og Kommúnista-
flokksins þar á undan. í þeim
efnum hefur ekkert breytzt.
þetta skýtur óneitanlega
skökku við, þegar hafðar eru i
huga hástemmdar yfirlýsingar
Svavars formanns og Kjartans
aðalritstjóra, um, að héðan i frá
séfortið þeirra i ösku. Að þeirra
sögn er Alþýðubandalagið nú
orðið hinn eini sanni flokkur lýð-
ræðisjafnaðarmanna á fslandi.
Þessu til sönnunar er ýmislegt
tint til. Þeir segja að Alþýðu-
bandalagið hafi þorað að mót-
mæla innrás Varsjárbandalags-
rikjanna i Tékkóslóvakiu ’68
(aðrir segja að þeir hafi ekki
þorað annað). Þeir segjast vilja
„sósialisma með mannlegu
yfirbragði” alveg eins og
Dubchek, þótt þeir megi ekki
vera að þvi að fara nánar út i þá
sálma. Þeir visa til þess, að
Arni Bergmann skrifar stund-
um af næmleik um kvöl og pinu
andófsmanna i Sovétrikjunum.
Þeir segjast senda Pólverjum
samúðarskeyti, þegar við á. Og
Svavar formaður vitnar viða i
hástemmt heillaóskaskeyti,
sem hann sendi félaga Mitter-
and i Frakklandi, að loknum
kosningasigri jafnaöarmanna.
Þurfa menn frekar vitnanna
við? Er ekki bara næst á dag-
skrá að sækja um aukaaðild að
Alþjóðasambandi jafnaðar-
manna — svona sem fyrsta
skrefið?
Aður en Svavar sækir um inn-
göngu i Krataklúbbinn hjá
félaga Willy Brandt, er rétt að
geta þess, að Lyndon B. Johnson
Bandarikjaforseti gleymdi ekki
að fordæma innrás Rússa i
Tékkóslóvakiu, en lét þar við
sitja, alveg eins og Alþýðu-
bandalagið. Hinn hægri sinnaði
öryggismálaráðgjafi Carters
Bandarikjaforseta, Zbigniew
Brzezinski, skrifar nú um hrun
kommúnismans i Póllandi af
ólikt meiri lærd ómi og skilningi
en Haukur Már, blaðafulltrúi
APN og ASt á Islandi. Og sjálfur
Franz Joseph Strauss, helzti
hugmyndafræðingur hægri afl-
anna i Þýzkalandi, skrifar af
ólikt meiri ástriðuhita um of-
sóknir Kremlverja á hendur
andófsmönnum, en Arni
blessunin Bergmann. Samt sem
áður hefur enginn þessara
herramanna séð ástæður til að
sækja um inngöngu i Alþjóöa-
sambandið hans Willy Brandts.
Það þarf nefnilega annað og
meira en siðbúnar samúðar-
Eða hvers vegna er það, að á
þessum sama landsfundi Al-
þýðubandalagsins, sem hyllti
félaga Einar og Brynjólf svo
innilega, voru samþykktar
þrettán álitsgerðir um utan-
rikismál, þar sem varnarsam-
tök lýðræöisrikjanna eru sökuð
um striðsæsingar, vigbún-
aðaræði og kaldrifjaðar áætl-
„AÐ VERMA Sin HRÆ
VIÐ ANNARRA ELDl..”
kveðjur með fórnarlömbum of-
beldisins, til þess að gera menn
að sósialdemókrötum.
þótt Svavar formanni þyki á
stundum henta að smjaðra fyrir
erlendum jafnaðarmannaleið-
togum og jafnaðarmannaflokk-
um er þess að minnast, að það á
ekki alltaf jafn vel við i þeim
söfnuði. Þegar Svavar hafði
tekið við formannskjöri á lands-
fundi AB s.l. haust, lét hann það
verða sitt fyrsta verk að dusta
rykið af félaga Einari og
Brynjólfi, kalla þá upp á sviðið
og láta hylla þá. 1 hástemmdum
alvörutón var söfnuðurinn
minntur á, aö hinn rauði þráður
fortiðarinnar til Sósialista-
flokksins og Kommúnista-
flokksins væri óslitinn. Alþýðu-
bandalagið væri stolt af arfi for-
veranna. Þá var nú ekki aldeilis
verið að afneita fortiðinni, —
trúnni á hið alþjóðlega föður-
land öreiganna! Þetta var
raunar i eina skiptiö á þessum
pólitiska hluthafafundi hins
sjálfumglaða kerfisflokks sem
hinn óbreytti söfnuður fékk
útrás fyrir ósviknar tilfinn-
ingar. Sú stemning segir meira
en margar ræður hentistefnu-
mannsins, sem leggur sig allan
fram um að villa á sér
heimildir.
anir um kjarnorkustyrjöld, en
Ráðstjórnarrikin eru hvergi
nefnd á nafn, nema i framhjá-
hlaupi? Hvers vegna eru
varnarsamtök lýðræðisrikjanna
þindarlaust fordæmd, um leið
og tekið er gagnrýnislaust undir
helztu áróðurssjónarmiö Ráð-
stjórnarrikjanna i utanrikis-
málum? Hvers vegna er þess
krafizt, að Norðurlönd verði
einhliða lýst kjarnavopnalaust
svæði, á sama tima og Rauði
herinn beinir sextán meðal-
drægum eldflaugum hlöðnum
kjarnaoddum að skotmörkum á
Norðurlöndum? Hvers vegna er
þess krafizt, að Vestur-Evrópa r
afvopnis, á sama tima og Rauði
herinn beinir 660 meðaldrægum
eldflaugum hlöðnum kjarna-
oddum að skotmörkum um alla
Vestur-Evrópu? Og hvers vegna
er það að Alþýðubandalagið,
þrátt fyrir öll samúðarskeytin
til fórnarlamba hins sovézka
hervalds, sem krefst þess enn i
dag, að tslendingar einangrist
pólitiskt og opni hér allt upp á
gátt, á sama tima og hernaðar-
leg nærvera Ráðstjórnarrikj-
anna, i lofti, á hafinu og i undir-
djúpunum, allt i kringum
landið, fer hraðvaxandi ár frá
ári? Hafa forystusauðir Alþýðu-
bandalagsins, arftakar félaga
Einars og Brynjólfs ekkert lært
og engu gleymt, þrátt fyrir allan
fagurgalann?
S á jafnaöarmannaflokkur er
ekki til á byggðu bóli, sem gerir
sig sekan um þann fláttskap,
sem utanrikispólitik Alþýðu-
bandalagsins raunverulega er.
Meira að segja Vesturþýzkir
jafnaðarmenn, brautryöjendur
slökunarstefnunnar i Evrópu,
hafa aldrei gleymt þvi, að ein-
angruð og án hernaðarsam-
vinnu við Bandarikin, er
Vestur-Evrópa varnarlaus
frammi fyrir hernaðarmætti
Ráðstjórnarinnar. Og á seinasta
þingi Alþjóöasambands jafn-
aöarmanna i Madrid, var eng-
inn eins afdráttarlaus i grein-
ingu sinni á hernaðarlegri út-
þenslustefnu Ráðstjórnarrikj-
anna, bæði gagnvart Evrópu og
i þriöja heiminum, og einmitt
fulltrúi franskra jafnaöar-
manna Michel Rocard. Hann
lýsti þvi yfir, að engir jafnaðar-
menn gætú verið hlutlausir i
þeim örlagariku átökum sem
fram fara um alla heimsbyggö-
ina milli afla alræðis og lý
ræöis. Hann lýsti þvi hvernig þið
sovézka hagkerfi hefur gersam-
lega brugðizt sem fyrirmynd
hinna vanþróuöu þjóða. Hvernig
samtök hinna svokölluöu „hlut-
lausu” þjóða „eru að leysast
upp, frammi fyrir gegndar-
lausri ásókn og þrýstingi Ráð-
stjórnarinnar i þremur heims-
álfum. Hann lýsti þvi yfir, að
jafnaðarmenn ættu að vera
framvarðarsveit i baráttunni
fyrir lýðræöinu i heiminum,
hvar sem að þvi er sótt.
Og svo eru lærisveinar
Einars og Brynjólfs — og
Ulbrichts á Islandi, menn eins
og Svavar Gestsson, Hjörleifur
Guttormsson og Kjartan ólafs-
son, að senda frönskum jafn-
aðarmönnum heillaóskaskeyti,
þegar þeir hafa unnið það afrek,
að losa um kverkatak franska
Kommúnistaflokksins á vinstri
hreyfingunni þar i landi, og
opna henni þannig leiö til raun-
verulegra þjóðfélagsáhrifa i
fyrsta sinn i sögu 5ta lýðveldis-
ins.
Þvilik endemis hræsni! jbh
FLOKKSSTARF
Alþýðuflokksfélög
Reykjavíkur
Hádegisveröarfundur i Iðnó laugardaginn 23. mai
Fundarefni: Borgarmál.
Gestur fundarins veröur Björgvin Guðmundsson borgar-
fulltrúi.
Fjölmennið Stjórnin.
Leiðarþing og almennir stjórnmálafundir
Alþýðuflokksins i
VESTURLANDSKJÖRDÆMI
Alþýðuflokkurinn i Vesturlandskjördæmi gengst fyrir
leiðarþingum og almennum stjórnmálafundum, þar sem
Eiður Guðnason alþingismaður, gerir grein fyrir störfum
Alþingis i vetur og stjórnmálahorfum. Fundirnir verða
sem hér segir:
Borgarnes:
Mánudaginn 25. mai klukkan 20.30 I Snorrabúð. Gestur
fundarins: Karl Steinar Guðnason, alþm.
Akranes:
Þriðjudaginn 26. mai i Röst klukkan 20.30 Gestur fundar-
ins: Vilmundur Gylfason, alþm.
Búöardalur:
Miðvikudaginn 27. mai klukkan 20.30 I kaffistofu K.Hv.
Stykkishólmur:
Föstudaginn 29. maí klukkan 20.30 I Lionshúsinu. Gestur
fundarins: Kjartan Jóhannsson, alþm. og fyrrv. sjávarút-
vegsráðherra.
Grundarfjörður:
Laugardaginn 30. mai klukkan 15.00 i samkomuhúsinu.
Gestur fundarins: Kjartan Jóhannsson alþm. og fyrrv.
sjávarútvegsráðherra.
Ólafsvik og Hellissandur:
Mánudaginn 1. júni. Klukkan 20.30 i Röst.
Alþýðuflokkurinn Vesturlandskjördæmi.
Blöndósingar — Húnvetningar
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn I félagsheim-
ilinu Blönduósi á sunnudag kl. 2 e.h.
Frummælendur: Finnur Torfi Stefánsson og Arni Gunn-
arsson
Jóhanna____________________4
hafa verið siðan 1975, i gildi
reglur, sem kveöa á um, að
a.m.k. skuli vera ein kona i öll-
um nefndum, ráðum og stjórn-
um sem rikisstjórn og hið opin-
bera skipar i.
Ég sagði i upphafi, að ég
skyldi ekki vera langorð um
þetta mál nú og við það skal ég
standa. Ég vil itreka, að ég tel
eðlilegt, að frekari umræöur
eigi sér stað i þjóðfélaginu um
þessi mál, áður en Alþingi tekur
ákvörðun i þessu máli, þannig
að milli þinga gefist tóm til að
athuga málið betur. 1 nefndar-
álitihefur félagsmálanefnd gert
einu ákvæði frumvarpsins sér-
stök skil og þvi ber að fagna.
Þar er lagt til, að rikisstjórnin
Fjölskylduferð Alþýðuflokks-
fólks í Kópavogi
Alþýðuflokksfélögin í Kópavogi efna til fjöl-
skylduferðar um Reykjanesfólkvang fimmtu-
daginn 28. mai.
Tilvalin helgarferð fyrir alla fjölskylduna.
Takið börnin með.
Leiðsögumaður: Jón Jónsson, jarðfræðingur.
Brottför frá: Hamraborg 7, kl. 10.00 stundvis-
lega.
Tilkynnið þátttöku til:
Sólveigar, simi 44593
Sigriðar, sími 42429
Grétu, sími 44071
í september 1975 var Reykjanesfólkvangur
stof naður. Að honum standa eftirtalin sveitar-
félög: Reykjavik, Kópavogur, Seltjarnarnes,
Garðabær, Hafnarfjörður, Keflavik, Njarð-
vik, Grindavik og Selvogur.. Fólkvangurinn
nær alla leið norður i Vifilstaðahlið suður á
Krísuvikurberg og vestan frá Höskuldarvöll-
um austur fyrir Grindarskörð, þar sem Blá-
fjallafólkvangur tekur við. M eð þessu hefur
það komist i framkvæmd að friðlönd og fólk-
vangar ná alla leið þvert yfir Reykjanesskag-
ann Ur Elliðaárvogi á Krisuvikurberg.
Ferðinni verður hagað þannig i stórum drátt-
um: ekið inn á Höskuldarvelli, gengið síðan
meðfram Trölladyngju inn um Sog, upp á
Grænavatnseggjar og niður á Lækjarvelli. Þar
geta þeir, sem vilja, lokið göngunni og tekið
sér far með bilnum í Krisuvik, en hinir halda
göngunni áfram yfir M óhálsá um Ketilstig,
yfir Sveifluháls og koma niður hjá SeltOni,
þ.e. hverasvæðinu i Krísuvik.
beiti sér fyrir þvi nú þegar að
kannanir verði gerðar á raun-
verulegum launakjörum
kvenna og karla og Kjara-
rannsóknarnefnd, Jafnréttis-
ráði og öörum aðila veröi gert
kleift með fjárframlögum, eða á
annan hátt að standa fyrir þeim.
Ég hef sagt i umræðum um
þetta mál, að ég tel þetta ákvæði
mikilvægasta ákvæði lrum-
varpsins, þvi að verði það fram-
kvæmt, þá er ég sannfærð um,
að það hefur áhrif á kjör fjölda
kvenna á vinnumarkaðinum.
Þær örfáu kannanir, sem þegar
hafa verið gerðar i þessu efnj
gefa mjög skýrt til kynna, að
mikið misrétti rikir i launamál-
um kvenna og karla. Þvi geri ég
mér vonir um, að deildin geti
fallist á afgreiðálu þessa máls,
sem lögö er til á þessu stigi
málsins og fram kemur i nefnd-
aráliti og hún veröi til þess að
þegar verði hafist handa i þessu
máli. I trausti þess að svo verði
leggja nefndarmenn félags-
málanefndar til þá afgreiðslu
frá deildinni sem fram kemur i
þessu nefndaráliti og ákvarðan-
ir um önnur ákvæði frum-
varpsins biði næsta þings.
Leiguíbúðir_______________8
byggðar i tveimur húsum,
verða reistar i Suöurhliðum og
fimm ibúöir i Eyrarlandi i
Fossvogi.
Sigurður sagði að þetta væri
bara byrjunin. Nú yrði málinu
fylgt eftir og reynt að ná tak-
markinu, sem setthefði verið,
að byggja 100 leiguibúðir.
Sagðist hann vonast til aö það
takmark næðist fljótlega.