Alþýðublaðið - 10.10.1981, Side 3
Laugardagur 10. október 1981
3
FRÉTTIR
I STUTTU
MÁLI
Héðinsmálið
Vegna plássleysis verður
grein JBH um Héðinsmáliö svo-
kallaö aö biða þriðjudagsblaðs,
en þá mun birtast 5. og siöasta
greinin um þetta timabil i sögu
islenskra stjórnmála.
Markús með
björgunarnetið í
Reykjavíkurhöfn
Markús B. Þorgeirsson
verður meö björgunaræfingu i
króknum við Ingólfsgarð,
laugardaginn 10. október kl.
15.30.
Honum tií aðstoðar veröa
(sjódeild) Björgunarsveitar
Ingólfs i Reykjavik. Landhelg-
isgæslan, ásamt nemendum úr
Stýrimannaskólanum og vél-
skólanum, og krani ásamt
kranamanni frá Eimskipafélagi
tslands h/f.
Sýningar á
Landmannaleit-
um hafnar á ný
Sem kunnugt er létu Land- og
Holtahreppar gera heimildar-
kvikmynd um smölun á Land-
mannaafrétti og ber hún nafnið
Landmannaleitir. Myndin er
um hálfs-annars tima löng og
annaðist Guðlaugur Tryggvi
Karlsson kvikmyndunina.
Myndin var frumsýnd að Brúar-
lundi i Landsveit i vor og var al-
menn ánægja með hana. Sér-
staklega þótti athyglisvert að
meö tilliti til Heklugosanna ný-
verið þá er myndin ómetanleg
heimild um afréttinn fyrir gos,
en nú er hann stórskemmdur af
gosefnum. ,
Nú er i ráði að hefja sýningar
aftur á myndinni og verður
fyrsta sýningin að Laugalandi i
Holtum, laugardaginn 17. októ-
ber nk. kl. 9. Siðan er i ráði að
sýna myndina fyrir ýmsa
áhugahópa. Þá hefur sjónvarpið
látiö gera styttri útgáfu af
myndinni og biöur hún hljóð-
setningar.
Utanríkis-
ráðuneytið fær
svæði frá
hernum
Samkævmt ósk ólafs Jóhann-
essonar, utanrikisráöherra,
hefur farið fram á vegum sendi-
ráös Bandarikjanna og varnar-
liösins athugun á þvi að rifin
veröi girðingin um svæði þaö,
sem aðskilur Keflavikurkaup-
stað og Innri-Njarðvik. Jafn-
framt yrði þakin oliuleiösla sem
liggur um svæðið og það afhent
utanrikisráðuneytinu til ráö-
stöfunar. Svæöið er hluti af
varnarsvæöi þvi, sem varnar-
liöiö fékk til afnota á sinum
tima. Sendiherra Bandarikj-
anna, hr. Marshall Brement,
hefur nú tilkynnt utanrikisráö-
herra aö gengið hafi verið frá
formsatriðum svo framkvæmd-
ir geti hafist innan skamms.
Svæðið verður siðan afhent
fyrri eigendum samkvæmt sér-
stökum samningum þegar um-
ræddum framkvæmdum er lok-
ið.
fllþýöublaðið hefur að undan-
förnu birt greinaflokk um hin
sögulegu ágreiningsefni lýð-
ræöisj afnaöarm anna og
kommúnista á tslandi á milli-
striðsárunum. Þessi saga er
rakin eftir samtimaheimildum.
Hún staðfestir, að kommúnistar
klufu Alþýðuflokkinn áriö 1930
vegna þess, að þeir settublinda
hollustu við ógnarstjórn Stalins
I Sovétrikjunum ofar vilja
alþýöunnar til sameiningar i
lýðræðissinnuðum verkalýös-
flokki.
Tilraun Héðins Valdimars-
sonar á árunum 1937 — 1938 til
þess að sameina þessa tvo
flokka á ný i lýðræðissinnuðum
verkalýðsflokki, er væri engum
háður „nema umbjóðendum
sinum, Islenskri alþýðu”
strandaði aftur á þessum kenni-
setningum sovéttrúboðsins.
Kommúnistar gerðu það enn á
ný aö ófrávikjanlegum -skil-
yröum fyrir samstarfi viö
lýðræðisjafnaðarmenn, að hinn
nýi flokkur tæki skilyrðislausa
afstööumeö Sovétrikjunum, og
höfnuðu þvialgerlega, að starfa
á grundvelli laga og þingræðis.
Hin sögulegu mistök Héðins
Valdimarssonar voru þau, að
halda að kommúnistar meintu
ekki það sem þeir sögðu. Hann
komst að þvifullkeyptu tæpu ári
siðar. Þá vörðu islenskir
kommúnistar innrás Rauða
hersins inn i eitt Norðurland-
anna með kjaftiogklóm.Héðinn
reyndi að koma vitinu fyrir
sovéttrUboðið, en beið lægri
hlut. Mat hans á hinum raun-
verulega átrúnaði og fyrirætl-
unumkommúnistar hafði reynst
rangt. Mat Alþýöuflokksforyst-
unnar reyndist rétt. Það var
hinn persónulegi harmleikur
Héöins Valdimarssonar.
Kommúnistar þökkuðu Héðni
samfylgdina með þvi að láta i
ljós þá ósk, að þögnin og
gleymskan geymdi minningu
hans. NU eiga þeir enga aöra
ósk heitari sjálfum sér til
handa.
Sd var tið, að kommúnistar
hér á landi sem annarsstaöar
þóttust til þess sjálfkjörnir að
draga rétta lærdóma af hinni
sögulegu þróun. Hinir rauðu
pennar settu saman læröar rit-
smi'ðar um „óhjákvæmileik
hinnar sögulegu þróunar”. Nú
er af sú tið. Nú vilja þeir láta
eigin sögu liggja i þagnargildi.
Nú skammast^ þeir sin fyrir
sina. 1 þvi er hin sögulega upp-
gjöf þeirra fólgin. AB visu laum-
ast þeir til þess á flokksþingum
sinum aö hylla hina aldurhnignu
framvaröarsveit sovétrtúboðs-
ins með heitstrengingum um aö
hinn rauði þráður sögunnar sé
enn óslitinn i Alþýöubanda-
laginu. En þetta fer mátulega
leynt. Sjálfum er þeim ljóst, að
d(ónur sögunnar hefur veriö
kveðinn upp. 011 sú hugmynda-
fræði, sem þessir menn hafa
lagt til grundvallar stjórnmála-
starfi sinu I hálfa öld, reyndist
vera byggö á sandi.
I hálfa öld hafa þeir háð
styrjöld gegn lýöræðisjafnaðar-
mönnum á tslandi, og flokki
þeirra. I hafni hugmyndafræði,
sem nú flokkast undir fordæöu-
skap og hindurvitni frá horfinni
öld, hafa þeir unnið verkalýðs-
hreyfingu og islenzku þjóöfélagi
óbætanlegt tjón. Allt var þetta
gert á fölskum forsendum.
Þessir menn. sem siálfir dubb-
uðu sig upp sem hetjur islensk-
rar sjálfstæðisbaráttu, voru i
reynd alla tið handgengnir er-
lendu valdi. tslendingar mega
þakka það legu lands sins, að á
það reyndi aldrei, að þessir
menn tækju að sér sama hlut-
verk og trúbræður þeirra i
kommúnistaflokkum Eystra-
saltsrikjanna eða Finnlands á
timum vetrarstriðsins. A þvi
leikur ekki minnsti vafi, að
Einar & Brynjólfur og félagar
hefðu ekki vikist undan að leika
sitt sögulega hlutverk á enda,
hefði rás viðburðanna fært þeim
þaö hlutverk upp i hendurnar.
Likingin við nazistana er
áleitin. Báðir voru þessir öfga-
hópar i þjónustu mannúðar-
lausrar hugmyndafræði og er-
lendra ógnarstjórna. En
munurinn er stór. Flestir hinna
islensku nazista sáu að sér og
hættu sjálfstæðri stjómmála-
starfsemi, á ður en helförin varð
lýðum ljós.
En boöberar sovéttrúboösins
á íslandi hafa ekkert lært og
engu gleymt. Þeir höfðu alla tið
tögl og hagldir i Sósfalista-
flokknum. Við fráfall Stalins
áriö 1953 efndi söfnuðurinn til
saknaöarhátiöar i Austurbæjar-
biói. Þarflutti Einar Olgeirsson
einhverja hjartnæmustu trúar-
játningu, sem heyrst hefur á
islensku til þessa mikilvirka
fjöldamoröingja. Arið 1968 sátu
hinir ókrýndu andlegu leiðtogar
Sósialistaflokksins, Einar og
Brynjólfur, stofnfund Alþýðu-
bandalagsins og lögðu blessun
sina yfir það, sem arftaka hins
pólitiska þrotabús Kommún-
istaflokksins og Sósialista-
flokksins Um likt leyti réðist
Rauði herinn inn i Prag. Arið
1978 voru liöin 40 ár frá stofnun
Sósialistaflokksins. Þá mundi
ritstjóri Þjóðviljans, Kjartan
Ólafsson, skyndilega eftir hinni
sögulegu arfleifö flokksins.
Hann birti mikið viötal við and-
legan leiötoga hreyfingarinnar,
Einar Olgeirsson, af þvi tilefni.
Lesendur Þjóðviljans voru full-
vissaðifum, aö rauði þráöurinn
væri órofinn.
Nú hentar það Þjóðviljarit-
stjóranum betur aö lýsa hina
gömlu Stalinista friðhelga á
„öskuhaugum sögunnar”, eins
og hann kemst aö orði. Látum
• „Eftir hálfrar aldar
herferð gegn grund-
vallarsjónarmiðum lýð-
ræð is j a f naða rstef n u,
hafa íslenskir kommún-
istar nú játað uppgjöf
sína. Dómur sögunnar er
sá, að í öllum þeim
ágreiningsmálum, sem
hæst hefur borið í deilum
sósíaldemókrata og
kommúnista, hafa þeir
siðarnefndu haft rangt
fyrir sér. Samt hafa þeir
ekkert lært og engu
gleymt í hálfa öld. Þeir
boða enn sömu gömlu
klisjurnar um ríkisforsjá
og ríkissósíalisma af því
tagi, sem nú hefur gert
Pólland gjaldþrota. En þá
munar ekkert um að
senda samúðarskeyti
þegar upp úr sýður. Enn
ganga þeir erinda
sovézkrar utanríkis-
stefnu og neita að viður-
kenna nauðsyn þess, að
lýðræðisríkin ef li með sér
sameiginlegt varnar-
bandalag gegn hernaðar-
útþenslu sovétfasismans.
Eitt haf a þeir þó lært: Og
það er að blygðast sín
f yrir sögu sína og fortíð".
vera. Nú er þvi haldið fram, að
forystumenn hinnar nýju kyn-
slóöar Alþýðubandalagsins séu,
þegar öllu er á botninn hvolft,
bara ,,eins konar sósialdemö-
kratar”. Að visu hafi verið uppi
einhvers konar sögulegur mis-
skilningur, i u.þ.b. hálfa öld. En
þessi leiði misskilningur skipti
ekki lengur máli. Þannig eru
þeir Arni Bergmann, Hjörleifur
Guttormsson, Svavar Gestsson
og Kjartan ólafsson eins konar
„endurfæddir” sósialdemó-
kratar.
RITSTJÓRNARGREIN
Hvenær nákvæmlega þessi
endurfæöing áttisérstað erekki
alveg ljóst. Arni Bergmann var
i 10 ár búsettur i Sovétrikjunum.
Allan þann tima láðist honum
með öllu að skýra lesendum
Þjóöviljans, félögum sinum i
Sósialistaflokki og Alþýðu-
bandalagi, frá staðreyndum
mala um fyrirheitna landiö.
Hjörleifur Guttormsson sat
heilan áratug i lögregluriki
Ulbrichts. Einnig honum láðist
að trúa félögunum heima fyrir
sannleikanum um lögreglurikið.
Þeir Svavar og Kjartan hlutu
aöeins skemmri skirn i hinum
Austur-Evrópska veruleika.
Báðir töldu þó hyggilegra að
láta vera aö upplýsa félaga sina
um hið raunverulega ástand I
hinu sovézka nýlenduveldi.
Þeirkusuallir saman aðljúga
með þögninni. Allir vissu þeir
betur en þeir létu uppi. En eng-
inn þeirra reyndist hafa til að
bera þann andlega heiöarleika,
né heldur þann pólitiska kjark,
sem til þurfti á þeim tima, til að
ganga i berhögg við þá lifslygi,
sem forverar þeirra i mennta-
mannastétt höföu variö ævinni
til aö Utbreiða og viðhalda innan
hins islenska sovéttrúboðs.
0 g þannig standa málin enn i
dag. Enginn þessara manna
hefur haft til þess andlega buröi
að gera upp við fortiöina. Þeir
feröast enn með likið i' lestinni.
Botninn er að visu fyrir löngu
dottinn úr hinum sögulega
átrúnaði kommúnistaflokks,
Sósialistaflokks og Alþýðu-
bandalags. En það hefur ná-
kvæmlega ekkert komið i
staöinn. Eftir standa hinir rót-
tæku frasar, innantómir og
merkingarlausir. Fórnarlömb
þess þjóðfélagskerfis, sem
islenskir kommúnistar hafa
barist fyrir i hálfa öld, fá nú
öðru hverju samúðarskeyti frá
formanni Alþýöubandalagsins.
En hvorki formaður Alþýöu-
bandalgsins né aðrir i forystu-
sveit þess, hafa nokkru sinni
hugsað þaö til enda, hvað
uppgjöri við fortiöina felur i sér.
Þeir sigla þvi enn undir
fölsku flaggi. Þeir menn, sem
gert hafa sér grein fyrir eðli
sovétkerfisins vita aö lýðræðis-
rikjunum stafar ógn af
hernaðarútþenslu þess. Samt
ganga forráðamenn Alþýðu-
bandalagsins enn erinda
sovéskrar utanrikisstefnu. 1
innanlandsmálum hafa þeir enn
uppi sömu gömlu kilsjurnar um
rikisforsjá og rikissósialisma,
sem nú hefur endað með gjald-
þroti i' Póllandi og boöar þjóðum
Austur-Evrópu arðrán hinnar
nýju yfirstéttar, stöðnun lifs-
kjara og skort.
Eitt hafa þeir þó lært á hálfri
öld. Þeirhafa lært aðskammast
sin fyrir fortið sina. Og það veit
sá sem allt veit, að þeir hafa nóg
til að skammast sin fyrir. -jbh
Undir fölsku flaggi
RITSTJÚRNARGREIN
í minningu Sadat
flnwar Sadat, Egyptalands-
íorseti, sem myrtur var sl.
þriðjudag af trúarofstækis-
mönnum muslima, var um-
deildur leiðtogi, bæöi heimafyr-
ir og á alþjóðavettvangi. Hitt
var óumdeilt, að hann skorti
ekki kjark. Það sýndihann hvaö
eftir annað, með óvæntum
ákvörðunum, sem urðu til þess
aö rjúfa þann vitahring, sem
öörum virtist með öllu óleysan-
legur. Slikur maður verður um-
deildur. 1 augum sumra var
hann svikari við sameiginlegan
málstað arabaþjóðanna. 1 aug-
um annarra var hann pólitiskt
mikilmenni, sem þorði að taka
stórar ákvarðanir, þrátt fyrir
mikla áhættu. Hin sögulega ferö
hans til Jerúsalem i nóvember
1977 til þess aðreyna að komaá
friði við þá þjóð, sem hann haföi
barist gegn 1 þrjá áratugi, var
ekki aðeins óvænt, heldur olli
hún straumhvörfum i þessum
heimshluta.
Fáir reiknuðu með þvi að
Sadat myndi sitja lengi á valda-
stóli, þegar hann tók við af Ab-
del Gamal Nasser árið 1970. En
Sadat átti eftir aö koma heimin-
um á óvart, hvaðeftir annað. A
seinustu valdadögum Nassers
var Egyptaland smám saman
að verða æ háðara Sovétstjórn-
inni, bæði efnahagslega og
hernaðarlega. Sadat undi þvi
ekki að vera neinn leppur þeirra
Kremlverja. Þegar hann reyndi
þá að vanefndum og brigðmæl-
um, tók hann þá stóru ákvörðun
aö visa tuttugu þúsund sovésk-
umhernaöarráðgjöfum á dyr og
þar með að afla Egyptalandi
annarra bandamanna.
En þaö var fyrst aö loknum
árangursrikum hernaöarað-
gerðum gegn Israel árið 1973,
sem Sadat ávann sér hylli þjóð-
ar sinnar sem mikilhæfur leiö-
togi. Frammistaöa egypska
hersins i þeim hernaöarátökum
þurrkaði út minninguna um
fyrriniðurlæginguEgypta ivið-
skiptum við Israela og gaf þjóö-
inni nýja trú á sjálfa sig og
framtiðina.
Rrið 1975 kom Sadat heimin-
um i' opna skjöldu þegar hann
opnaöi Suez-skuröinn, án þess
aö hafa náö þvi marki að visa
ísraelsmönnum útúr Sinai. Meö
þessari aðgerö ávann Sadat
Egyptum traust á alþjóöavett-
vangi, sem honum var nauösyn-
legt til þess að koma fram þeirri
utanrikispólitik, sem hann þá
hafði i undirbúningi.
Þvier ekki að leyna, aö heima
fyrir skilur Sadat eftir sig risa-
vaxin vandamál, sem eiga ræt-
ur að rekja til örbirgðar fjöld-
ans og misskiptingar auðs og
lifsgæða. Innanlandsástandiö i
Egyptalandi er enn eldfimt. 1
þeim átökum beitti Sadat and-
stæöinga sina einatt hörðu. Eft-
irmaður hans tekur þvi viö þjóö-
félagi mikilla innri átaka.
En hvað sem liður innan-
landsástandinu i Egyptalandi
voru vonir manna um sam-
komulag hinna striðandi afla og
um frið i Austurlöndum nær
fyrst og fremst tengdar persónu
Sadats. Kúla moröingjans getur
snarbreytt þeirri mynd. Uggur
um framtiöina fyllir nú tómiö
eftir Sadat.
— jbh