Alþýðublaðið - 29.10.1981, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 29. október 1981
7
Breytt skipan 8
þá í 1. sætið, gátu ekki kosið Sig-
hvat i 2. sætið, en eftir breyting-
una núna á flokksþinginu, þá
hefði Sighvatur sjálfkrafa einn-
ig orðið frambjóöandi til 2. sæt-
is.”
Geir tiltók einnig annaö dæmi.
,,Ef við lltum til prófkjörsins i
Reykjavik ’79 og hugsum okkur
að i næsta prófkjöri myndi
Benedikt aftur bjóöa sig fram I
1. sætið eingöngu, Vilmundur i
2. sætið eingöngu og Jóhanna 13.
sætiö eingöngu. Ef ekkert fram-
boö kæmi á móti þeim i þessi
sæti, þá yrðu þau sjálfkjörin, en
þaö þyrfti ekki nema einn fram-
bjóöanda, sem byði sig fram i 1.
sæti gegn Benedikt, eins og
Bragi Jósepsson gerði i siöasta
prófkjöri, til þess að þau öll þrjú
yrðu einnig i framboði til allra
sæta fyrir neðan þau, sem þau
upphaflega buðu sig fram i.
Þannig hefði þá Benedikt verið i
framboöi i sæti 1—4 og Bragi
sömuleiöis. Vilmundur i sæti
2—4 o.s.frv. Þaö er þvi ljóst af
þessu, aö sú tillaga sem flokks-
þingið samþykkti getur breytt
verulega framboðsmálum I
prófkjörum Alþýöuflokksins,”
sagði Geir Gunnlaugsson.
Opin prófkjör
1 framhjáhlaupi má geta þess,
að prófkjör Alþýðuflokksins eru
bundin i flokkslögum. Þar segir
m.a. ,,að öllum, sem eru 18 ára
og eldri og ekki flokksbundnir I
öðrum stjórnmálaflokkum er
heimil þátttaka i prófkjöri Al-
þýöuflokksins i viðkomandi
kjördæmum eöa sveitarfélagi”.
Þá segir einnig að „niðurstöð-
ur prófkjörsins eru bindandi
hljóti sá frambjóöandi, sem
kjörinn er,minnst 20 af hundraöi
af kjörfylgi Alþýðuflokksins við
siðustu sambærilegu kosning-
ar”.
Ennfremur segja lög Alþýöu-
flokksins að i prófkjörum skuli
„velja i jafnmörg sæti fram-
boöslistans eins og fulltrúar Al-
þýðuflokksins urðu i næstu sam-
bærilegu kosningum þar á und-
an, að einu viðbættu”.
Alþýðuflokkurinn er einn is-
lenskur flokka, sem hefur opin
prófkjör bundin i lögum, enda
hafa kjósendur vel kunnaö aö
meta þessa leiö til vals á fram-
boðslista flokksins. Samkvæmt
lögum flokksins skal prófkjör-
um lokiö fjórum mánuðum fyrir
regiulegar kosningar. Sam-
kvæmt þvi má ætla aö prófkjör
Alþýðuflokksins fyrir sveitar-
stjórnarkosningarnar að vori,
fari fram I janúar og febrúar
næstkomandi og þá mun að
sjálfsögðu veröa fariö að hirtni
nýsamþykktu tillögú Ólafs
Björnssonar, sem hér var getið
að framan. Og um hana hafði
Geir Gunnlaugsson þetta að
segja að lokum: „Almennt má
segja um þessa breyttu skipan,
að hún þrengi rétt frambjóð-
enda, en auki jafnframt rétt
kjósandans.”
— GAS
Úr einu... 3
1.7 milljónir króna.” Þessu tapi
hefurverið mættá „á hefðbund-
inn hátt” m eð framlagi úr rikis-
sjóði og lántöku samkvæmt
lánsfjáráætlun.
Halli á rekstri
Norðurstjörnunnar
Erfitt mun veröa að meta
nákvæmlega halla Norður-
stjörnunnarh.f. á þessu ári, „en
hins vegar er ljóst” segir i svari
framkvæmdastjóra fyrirtækis-
ins, ,,aö nokkur hallihefur verið
á rekstrinum i ár og gengur
hann út yfir eigið fé fyrirtækis-
ins.”
Eftir þessa litt svo glæsilegu
iqjptalningu, benti Hjörleifur
Guttormsson á þá augljósu
niðurstöðu, að öll fyrirtækin
gerðu ráö fyrir rekstrarhalla,
en mismunandi miklum á þessu
ári. Hann sagði að erfiðleikar
þeirra fyrirtækja, sem flytja út
á Evrópumarkaö, stafaöi af
óhagstæðri gengisþróun. Hann
ræddi siðan nokkuö rekstar-
erfiðleika hinna einstöku fyrir-
tækja svo sem Kisiliðjunnar,
Járnblendiverksmiöiunnar og
Siglósfklar og itrekaði llokin, aö
„Ýmis þessara fyrirtækja eiga
við verulegan vanda að glima
einsog raunar gættihjá ýmsum
fleiri fyrirtækjum nú eins og oft
áður.” Sagöi hann að iðnaðar-
ráðuneytið ynni nú að athugun á
„vissum þáttum i málefnum
þessara fyrirtækja, en vildi ekki
frdcar fara Ut i það.
Staðfesting
á gagnrýni
stj órn ara ndstöðu
Með ræðu sinni á Alþingi, hef-
ur þvi Hjörleifur Guttormsson
nú staöfest þá gagnrýni sem
fram hefur komið I sumar og
haust, aö mörg stærstu iönfyr-
irtæki landsins fljóti nú á rikis-
styrkjum, lánum, hvers konar
fyrirgreiöslu frá bönkum og
lánastofnunum, meðan rikis-
stjornin aðhefst ekkert til að
skapa þeim þá rekstraraðstöðu
sem stjórnendur þeirra telja
grundvöll að rekstri þeirra i
framtiðinni.
Samgönguráðherra 1
um að kanna beri afstöðu neyt-
enda til skrefatalningarinnar,
myndi inokkru breyta ákvöröun
um aö setja skrefatalninguna i
gang nú um næstu mánaðamót.
— Þaö hafa verið geröar ýms-
ar breytingar á þessu máli t.d.
hefur veriö lengdur timi lægri
taxta um helgar, frá kl. 19 á
föstudögum til kl. 8 á mánudög-
um, hélt Steingrimur áfram. Ég
tel þaö af og frá að fara að
kanna afstöðu neytenda núv það
er ekki til neins annars en að
egna dreifbýlið á móti þéttbýl-
inu.
Steingrimur sagði ennfremur
að vandasamt yrði aö kanna
skoöanir manna. Hinar leiöirn-
ar, sem hægt væri að fara, væru
ekki siður vandasamar og hann
kvaðst vera hræddur um að það
ætti eftir aö standa i mönnum aö
gera upp á milli leiða. — Það
væri hægt að spyrja fólk hvort
það vildi skrefamælingu eða
ekki, en ég hef ekki trú á þvi að
fólki séu kunnugar aðrar leiöir
til þess aö iýsa afstöðu sinni.
Svo ég mun standa á þessu ó-
breyttu, sagði samgönguráð-
herra að lokum.
— EGE
FUF 8
segja sig úr flokknum.
Friörik segir að deilur innan
flokksins snúist um „ólýðræðis-
leg vinnubrögð”. Þvi næst segir
hann: „Við teljum að Fram*
sóknarflokkurinn hér hafi verið
of lengi i stjórn með fhaldinu,
teljum að þeir séu komnir of
langt frá stefnu flokksins. Þeir
eru búnir að vera þaö lengi að
vart má á milli sjá, hvort þeir
séu i Framsóknar- eða Sjálf-
stæöisflokknum.”
I viötali við Valdimar Þor-
geirsson i opnu blaösins kemur
fram, aö þessi hópur hyggst
efna til sérstaks framboð I
næstu bæjarstjórnarkosningum.
Vikurfréttir ræða af þessu
tiiefni viö Guðjón Stefánsson,
bæjarfulltrúa Framsóknar-
flokksins. Hann staðfesti, að
ungu mennimir hefðu sagt sig
úr fulltrúaráöi f lokksins i Kefla-
vik. Aöspurður hvort sérstákt
framboð þessa hóps þýddi hið
sama og úrsögn úr flokknum,
taldi Guðjón svo vera. — j.
Lífeyrissjóður 1
aö Byggingarsjóður verka-
manna geti lánað til félagslegra
ibúöabygginga.
Af þvi fé, sem tekið veröur Ur
lifeyrissjóðunum á næsta ári er
áæflað, aö Framkvæmdasjóður
og rikissjóður haldi hlutfalli
sinu óskertu frá áætlun 1981, en
mest öll aukningin mun koma i
hlut Byggingarsjóðs verka-
manna.
Alls er lánsfé frá lifeyrissjóð-
unum áætlað um 531 milljón
króna, þar af 476 milljónir til
fjárfestingarlánasjóöa og 55
milljónir til rikissjóðs eins og
áður segir. Er þetta riflega
helmingur innlendrar lánsfjár-
öflunar samkvæmt áætluninni.
Þess má geta, aö Alþýðu-
flokksmenn fluttu á siðasta
þngi breytingartillögu við það
ákvæði i lánsfjárlögum, sem
kvað á um lagaþvingun á ráð-
stöfunarfé lifeyrissjóöanna. Þar
var bent á þá leið aö gera þetta
að heimildarákvæöi. Þannig að
lifeyrissjóöunum verði boðin
kaup á skuldabréfum, en þeir
ekki skyldaöir til að kaupa þau.
Þess má geta i lokin, aö nú-
verandi fjármálaráðherra sagði
i þingræðu — i stjórnarandstöðu
— árið 1977 að ekki ætti „að taka
fjármagn lífeyrissjóðanna
traustataki og ráðstafa þvi á
ákveðinn hátt.”
Þorgeir og Ellert 1
þær þrjátiu minútur sem vantar
upp á, þegar kaffitimarnir hafa
verið teknir inni dæmið, eru
fengnir á eftirfarandi hátt:
Nú vinna menn alveg fram að
lokum vinnudagsins, en fara
ekki i baö eftir vinnu og úr
vinnugallanum, fyrr en eftir að
þeir hafa stimplað sig út. Þá
skrifa þeir vinnuskýrslur einnig
eftir að þeir hafa formlega lokið
vinnu. Það er þannig gengið út
frá þvi að menn vinni alveg
fram á siðustu minútu og geymi
þrif og annað þviumlikt þar til
eftir vinnu, en geri ekki á sið-
ustu minútum eiginlegs vinnu-
tima, eins og viö hefur viljað
brenna. Það eru unnirnákvæm-
lega 8 timar”.
Þorgeir sagði, að enn hefði
ekki komið nein reynsla á þessa
tilraun, hún hefði aðeins staðið i
eina viku. „En það var sam-
þykkt að reyna þetta kerfi i tvo
mánuði og sjá svo til,” sagði
Þorgeir,” en aöalmunurinn er
náttúrlega sá, að nú komast
starfsmenn mun fyrr til sins
heima en áöur, og fá þó sömu
laun fyrir vinnu sina.”
—GAS
Lýsa stuðningi... 1
félaga og jafnfraiht á áður
framkomin tilmæli i þessu máli.
Neytendasamtökin
Neytendasamtökin lýsa yfir
stuðningi við framkomna tillögu
tólf þingmanna, tveggja stjórn-
málaflokka, á Alþingi um skoð-
anakönnun meðal neytenda
vegna ,,skrefatalningar”'Pósts
og sima. Samtökin hafa itrekað
lýst yfir andstöðu sinni við
framkomnar hugmyndir um
skrefatalningu og telja, að ná
megi yfirlýstum markmiðum
með skrefatalningunni með ein-
földum breytingum á gjald-
skrám. Neytendasamtökin telja
það gagnlegt, að þau megi taka
þátt I undirbúningi og úrvinnslu
skoðanakönnunarinnar, eins og
gert er ráð fyrir i umræddri til-
lögu þingmannanna.
Hætt við 8
heldurðu um timalengd kom-
andi samningalotu?
„Það er auðvitaö æði erfitt að
segja nokkuð um þaö, hvaö
samningarkunni að taka langan
tima. Hins vegar held ég að allir
sjái, aö samningar takast ekki
fyrir 1. nóvember. Nú, viðbrögð
Vinnuveitendasambandsins,
sem eru ekki nýframkomin,
benda lika til þess að samningar
geti orðið erfiðir. Það er þvi
hætt viö, aö þetta smelli ekki i
hvelli”.
Að lokum sagöi varaforseti
ASl: „Það hefur veriö nefnt aö
undanförnu, aö verkalýðshreyf-
ingin gangi nú ósamstæðari til
samninga en áður. Ég vil fyrir
mitt leyti visa þessum skoö-
unum frá. Það hefur ætiö verið
þannig, að ákveönir þættir eru
teknir upp á sameiginlegu boröi
og önnur hafa sérsamböndin
haft á sinu boröi einvörðungu.
Svoleiðis hefur þetta veriö á
undanförnum árum. Þvi segi
ég, aö verkalýöshreyfingin
standi samstiga I meginkröfum
sinum og gangi samhuga til
leiks til þessara samn-
inga”, — sagði Björn Þórhalls-
son.
— GAS
Afganistan 5
Sovétrikin og fylgiriki þeirra
myndu greiða atkvæði gegn
Indónesíu á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna, út af
spurningunni um yfirráðarétt á
Austur-TImor. Hingað tii hefur
Sovétblokkin setið hjá i þeim
deilum. En rikisstjómin i Indó-
nesiu lét ekki undan þessum
þrýstingi.
Sjötti hluti þjóðarinnar
er landflótta
Sovétstjórnin hefur af veikum
mætti reynt að draga úr þeim
skakkaföllum sem hún hefur
orðið fyrir vegna styrjaldar-
rekstursins i Afganistan. 1 nafni
leppstjórnarinnar voru settar
fram nýjar tillögur þ. 24. ágúst
sl., skömmu áður en allsherjar-
þingiö settist á rökstóla. Tillög-
urnar voru svipaðs eölis og þær
sem birtar voru 14. mai, þremur
dögum áöur en fundur utan-
rikisráöherra múhameöstrúar-
rlkja hófst i Islamabad. En
þrátt fyrir nokkra undanláts-
semi varðandi minniháttar at-
riöi er þess enn krafist, aö
Karmal-ríkisstjórnin verði við-
urkennd af samfélagi þjóðanna,
áður en til álita komi, að Sovét-
menn dragi liösitttilbaka. Enn
fremur a- þeirri kröfu haldiö til
streitu, að fulltrúum afgönsku
þjóöfrelsishreyfingarinnar
verði haldið utan við allar
alþjóölegar viðræður um mál-
ið. t hinum sovézku tillögum er
ekki minnst éinu orði á þær 2.5
milljónir afganskra flótta-
manna, sem flúiö hafa Iandið,né
rétt þeirra til þess að smía til
fyrri heimkynna. Hér er um að
ræða 1/6 afgönsku þjóöarinnar.
Pakistönum ögrað
Hins vegar hefur rikisstjórnin
i Moskvu aukið mjög þrýsting
sinn á stjórnvöld i Pakistan.
Rikisstjórnin i' Pakistan hefur
hingaö til neitað öllum viöræð-
um viö Karmal-stjórnina, sem
hún telur ólögmæta. Seinustu
dagana i ágúst heimsótti að-
stoðarutanrikisráöherra Sovét-
rikjanna, Nikolai Firyubin,
Pakistan. Hann er valdamesti
embættismaður Sovétstjómar-
innar, sem heimsótt hefur
Islamabad frá þvi að innrásin I
Afganistan hófst. Heimsókn
hans bar engan árangur. Þann
5. sept. geröu sovéskar
sprengjuflugvélar i þrigang
árásir á pakistanskar landa-
mærastöövar. Tveimur dögum
siðar réðst sovézk skriðdreka-
sveit inn á yfirráöasvæði Paki-
stana.
Afganski stjórnarher-
inn er hruninn
Areitni af þessu tagi er ætlaö
að minna Pakistandi á, að þeir
eiga i vök að verjast á'2400 km.
löngum sameiginlegum landa-
mærum með Afganistan. Þrýst-
ingurinn hefur einnig verið auk-
inn með þvi að fjölgað hefur
veriö i sovézka hernámsliöinu
úr 85 þús. i 100 þús.
Þrátt fyrir það aö Sovét-
stjórnin hafi kynnt tillögurnar
frá 24. ágúst sl. sem tillögur
Karmal-stjórnarinnar, vita a 11-
ir, að höfundarrétturinn er
Moskvu. Opinberlega er látiö
svo heita að Vassili Zafronchuk
sé aðeins ráðgjafi I afganska
utanrikisráöuneytinu. I reynd
er hann utanrikisráðherra lepp-
stjórnarinnar.Núer svo komið,
að aöeins 15 starfsmenn af-
gönsku utanrikisþjónustunnar
eru eftir. Hinir hafa ýmist flúið,
horfiö neðanjarðar eða gengið i
lið með skæruliöum.
Háttsettur efnahagsráðgjafi i
stjórnarráðinu i Kabúl, sem
flúöi til Vesturlanda i mai sl.
fuilyrti, að allir starfsmenn af-
gönsku utanrikisþjónustunnar
séu andsnúnir Karmal-stjórn-
inni og sovézka hernámsliðinu.
Þeir biði aðeins færis til þess að
hverfa úr landi eða að ganga i
lið með andstööuhópum.
(JBH tók saman eftir
SwissPress Review)
Tilkynning
til eftirlaunaþega Starfsmannafélags
Reykjavfkurborgar
Fundir um kjaramál og skoðanakönnun
varðandi kröfugerð B.S.R.B. verða haldn-
ir að Grettisgötu 89 sem hér segir:
fimmtudaginn 29. október kl. 17 og
föstudaginn30. október kl. 17 og 20.
Stjórn Starfsmannafélags
Reykjavikurborgar
Verkakvennafélagið
Framsókn
Félagsfundur verður haldinn i Hreyfils-
húsinu við Grensásveg laugardaginn 31.
okt. kl. 15.
Fundarefni:
1. Kjaramálin.
2. Verkfallsheimild.
Mætið stundvislega og sýnið skirteinin við
innganginn.
Stjórnin.
Félagsmálanámskeið
Dagana 20—22 nóv. n.k. verður haldiö i Reykjavik nám-
skeið i féiags-og fundarstörfum. Námskeiö þetta er öllum
opiö og þátttökugjald er kr. 50-. Vegna takmarkaðrar
þátttöku er fólk hvatt til að láta skrá sig hiö allra fyrsta.
Skráning á námskeiðiö og allar nánari upplýsingar I
sima 15020 milii kl. 9—17.
Fræösluráö Alþýöuflokksins
i Reykjavlk.