Alþýðublaðið - 12.11.1981, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 12.11.1981, Blaðsíða 4
4 Fimmtudagur 12. nóvember 1981 Tekist á um fuli- trúa í Norður- landaráði Mikil átök eiga sér nú staö innan danska flokkakerfisins um þá ætlun Ankers Jörgen- sens, forsætisráðherra aö mynda sjálfstæöa sendinefnd Grænlendinga og Færeyinga á Noröurlandaráösþingum. Mikil mötmæli hafa komið fram gegn þessum áætlunum og tvi'sýnt hvernig þeim átökum lyktar. Forsætisráöherrann hefur sett fram þá hugmynd, að Fær- eyjar og Grænland eigi að fá hvort um sig tvo fulltrúa i' Norð- urlandaráði og mynda sjálf- stæða sendinefnd. Þetta þýðir að sendimönnum Dana fækkar um 4 i 14. Hingað til hafa fulltrú- ar Færeyja og Grænlands verið innan sendinefndar Danmerkur en nú er sem sé verið að ræða sjálfstæðar sendinefndir. Mál þetta er ekki komið lengra en svo, að það er nú til umræðu á hinum Norðurlöndun- um, en það hefur lengi verið ósk þessara þjóða að senda sérstaka sendinefnd á þing Norðurlanda- ráðs og hafa eigin skrifstofur. Ihaldsmaðurinn Ib Stetter hefur sagt að hann telji hug- myndir Ankers „mjög ösann- gjarnar”, og að hann skuli hafa tekið þaö upp á sitt eindæmi að vinna að lausn þessa máls. Hann hefur óskað eftir því að rikisstjómin geri hreint fyrir sinum dyrum og skýri afstöðu sina —ekki sist vegnaþess, seg- ir hann, að nú situr sérstök nefnd sem vinnur að samning- um um þetta efni fyrir Norður- landaráð og rikisstjórnir Norð- urlandanna. Stuðningsflokkar rikisstjórn- arinnar eru einnig óánægðir með tilraunir forsætisráðherr- ans til að finna lausn á þessu máli, meðal annars vegna þess að sérstök sendinefnd Græn- lands og Færey ja hefur það i för með sér, að fulltrúum siná- flokkanna á þingum Norður- landaráðs verði fækkað. Ef svo fer að fulltrúum Dana Anker Jörgensen á fullt i fangi meö aö sannfæra stjórnmála- menn i Danmörku um aö rétt sé að Færeyjar og Grænland fái sérstaka sendinefnd á þingum Noröurlandaráös. fækkar um fjöra við þessar breytingar, sem ekkert skal þo fullyrt um, má gera ráð fyrir talsverðum átökum, þvi smá- flokkarnir munu hver um sig reyna að halda fulltrúum sinum og þeirri stöðu sem þeir hafa notið innan samstarfs Norður- landanna á þessu sviði. AKT David Owen:_____ Kjarnorkuvopna- áætlanir NATO verður að endurskoða Ummæli Reagans Banda- rikjaforseta um mögulega notk- un kjarnorkuvopna, án þess aö slikt leiöi nauösynlega til kjarn- orkuvopnastriðs, hafa annars- vegar leitt til mótmæla og mót- mælaaögeröa en á hinn bóginn til yfirlýsinga eitthvað i þeim tón.að þaö séengin ástæöa til aö hræðast, þetta sé ekkert nýtt. En nokkrir jafnaðarmenn iV- Þýskalandi og einnig David Owen, fyrrum utanrfkisráð- herra Bretlands og þingmaður fyrir hinn nýja flokk jafnaðar- Ronald Reagan Bandarikjafor- seti. Hann mismælti sig ekki. manna þar i landi hafa gerst talsmenn fyrir enn öðru sjönar- miði. Eins og David Owen seg- ir: Það voru engin mismæli hjá Bandarikjaforseta, þegar hann ræddi um hugsanlega beitingu kjarnorkuvopna i takmörkuðu striði. Þessi ummæli eru i sam- ræmi við ráðandi viðhorf innan NATO. Ummæli Ronald Reagan hafa varpað ljósi á hemaðar- áædanir sem eru óskynsamieg- ar og við verðum að breyta. Forsendan fyrir þessum hernaðaráætlunum er kenn- ingin um „flexible respones” eða „viðeigandi viðbrögð”, en það þýðir raunverulega að her- foringjar NATO útiloka ekki takmarkað kjarnorkustrið, sem svar við sovéskri árás með hefðbundnum hertækjum. David Owen hefur gagnrýnt þessar áætlanir bæði i ræðu og riti og hefur styrkt málflutning sinn með þvf að vitna til fjölda manna, vísindamanna og her- fræðinga, sem verður að taka tillit til. Mountbatten lávarður sagði skömmu áöur en hann var myrtur af hryðjuverkamönnum IRA: „Sem hermaður sem hef- ur stundað hermennsku i hálfa öld, tel ég að kjamorkuvopna- kapphlaupið hafi engan hernað- arlegan tilgang. Um allan heim má finna rústir rikja, sem trúðu á hinn forna rómverska máls- hátt: Ef þú vilt frið, búðu þig undir strið. A öld kjarnorku- vopna er þetta hreint brjálæði. Maður eykur ekki eigiö öryggi, með þvf að draga úr öryggi heimsbyggðarinnar”. Enski aðmirállinn Hill Norton lávarður, sem fyrir fáum árum varyfirmaður herráðsNATO er díki siður gagnrýninn: Þegar stigið hefur veriö yfir kjarn- orkuþröskuldinn, er það skref óafturtakanlegt, sem i reynd mun leiða til kjamorkuvopna- striðs, sem aftur mun i reynd leiða til þess að heimsmenning- in verður lögð I rúst.Ég mun fara i gröfina fullviss um það, að um leið og fyrsta nevtrónu- sprengjan hefur verið sprengd er mannkyniö þegar komið niu- tiu prósent af leiðinni til algers kj arnorku vopn astriðs. Hill Norton var ráðgjafiOwen á utanri'kisráöherratið hans. Þaö var einnig Zuckermann lávarður sem sagði: Ef menn tala sifellt um kjarnorkuvopn sem hlut sem hugsanlegt er að beita f striði, munu þau að lok- um verða notuð. Dean Rusk, sem var utan- rikisráðherra Bandarikjanna i forsetatið Kennedy og Johnson, er á sam a máli, eins og kemur i ljós f grein, sem hann skrifar i Washington Post: Ég veit ekki David Owen, fyrrum utanrfkis- ráöherra Bretlands og þing- maöur hins nýja jafnaöar- mannaflokks i Bretlandi, er ein- dreginn andstæöingur einhliöa afvopnunar, en um leið sann- færður um aö NATO verður aö taka áætlanir sinar til endur- skoðunar. hvort ég á aö hlæja eða gráta þegar óupplýstir eða illa upp- lýstir menn gera þvi skóna að hægt sé að heyja takmarkað kjarnorkuvopnastrið. Þvi' er m.a. haldið fram, að Bandarikin geti gefið Sovétrikjunum merki um að þau vilji aðeins takmark- að strið, með þvi að ráðast að- eins gegn hernaðarlega mikil- vægum skotmörkum. Það er þá skilið i þessum málflutningi, að Sovetfikin, þegar þau senda sprengjur til baka, láti vera að varpa þeim á borgir og bæi! Rusk spyr, ef menn vilja gefa merki, er þá ekki einfaldara að nota síma? Owen trúir ekki yfirlýsingum Leonid Bréznév um að tak- markað kjarnorkuvopnastrið og hugmyndirum aðverða fýrritil i kjarnorkuvopnaárásum, séu ekki forsendur fyrir áætlunum sovéskra herforingja, „Hvers vegna æfa sovéskir herir i Evrópu þá einmitt aðgerðir sem miðast við siíkar forsendur?” En Owen ereinnig þeirrar skoð- unar að nú sé einmitt timinn til að ræða um kjarnorkuvopna- laus svæði i Evrópu og undir- strikar nauðsyn þess, að komist verði að samkomulagi, sem gerir herforingjum NATO og Varsjárbandalagsins ómögu- legt að gera sinar áætlanir miöaö við slíkar forsendur. Owen er hóflega bjartsýnn hvað varðar möguleikann á samkomulagi um slik mál, og ný viðhorf gagnvart kjarnorku- vopnum. Ekki sist vegna þess að V-Þýskaland (sem bað um meðaldrægar eldflaugar i upp- hafi, vegna þess aö ekki var borið fullt traust tii „varnar- regnhlifar” Bandarikjanna) hefur nú tekið upp nokkuð aðra afstöðu. Ekki sist vegna mikils þrýstings frá almenningsáiiti i V-Þýskalandi. B HRESSANDI IN Nemendaleikhús Leiklistarskóla islands sýnir Jóhanna frá Örk leikrit byggt á handriti eftir Önnu Seghers Samið af Mariu Kristjánsdóttur og nemendum fjórða bekkjar L.í. Þýðing söngtexta: Þorsteinn frá Hamri Leikmynd og búningar: Guðrún Svava Svavars- dóttir Ljósahönnun: David Walters Tónlist: Hjálmar H. Ragnarsson Þýðingar: Maria Kristjánsdóttir Umsjón með tæknihliðinni: Ólafur Örn Thorodd- sen Mærin frá Orleans hefur orðið mörgum að yrkisefni. Orðsins snillingar, svo sem einsog Anouilh og Bernard Shaw, hafa gert hana ódauðlega i verkum sinum, og allar beztu leikkonur meginlandsins eiga sér þann draum æðstan að fá að spreyta sig á Jóhönnu einhvern tima á lifsleiðinni. Verk Onnu Seghers þekki ég því miður ekki, né heldur leikgerð Brechts, en Maria Kristjánsdóttir kveðst hafa haft hana til fyrirmyndar við smiði sýningarinnar i Lindarbæ. Ekki ætla ég að bera hana saman við verk stórmeist- arans, en tel þó að allsæmilega hafi til tekizt, bæði hvað varðar leikgerð og leikstjórn. Við sjá- um Jóhönnu af Ork með augum nútfmakonu. Hugrekki, hvað er það? Sýndi Jóhanna af Ork hug- innar hafnaði hún hvers kyns málamiðlun og gekk ósigruð á bálið. En þrátt fyrir það er hún manneskja með sina kosti og galla, og einmitt þess vegna finnum við til samúðar. Mér fannst bygging verksins svolitið óljós, sérstaklega i fyrri hlutanum, en hinsvegar tókst mjög vel að koma til skila ein- lægum ákafa og trúarhrifningu mærinnar, og maður sleppti ekki af henni sjónum á ferð hennar milli máttarstólpa hins hnignandi franska rikis. Var það ekki sizt að þakka hrif- andi leik aðalleikkonunnar Ragnheiðar Tryggvadóttur og siðar Sólveigar Pálsdóttur. Maria hefur valið þá leið að skipta hlutverki Jóhönnu á milli þessara tveggja, þannig að önn- ur leikur fyrri hlutann og hin rekki, þegarhún ruddi sér braut i gegnum raðir óvinanna? Sýndi hún hugrekki, þegar hún var endanlega leidd á bálið? Hún trúðistaðfastlega,aðhún heyrði raddir af himnum ofan, hún naut handleiðslu guðs. Þegar hún heyrði ekki raddirnar leng- ur, þá bilaði trúin. En aðeins eitt augnablik. Aðeins hugsjóna- manninum er gefin svo mikil trú. Ikrafti trúarinnar braut Jó- hanna sér leið, og I krafti trúar- þann seinni. Auðvitað skilur maður sjónarmið Mariu um að vilja gefa fleiri en einni kost á að spreyta sig, en hefði ekki verið skynsamlegra að láta þessar tvær yngismeyjar leika á sitthvorri sýningunni? Óhjá- kvæmilega reynist erfitt að koma inn i mitt verk og halda uppi þeirri spennu, sem búið var að magna i fyrri hlutanum. Það fór ekki hjá þvi, að stemmningin dytti niður, þegar

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.