Vísir - 20.01.1969, Blaðsíða 1

Vísir - 20.01.1969, Blaðsíða 1
59. árg. - Mánudagur 20. janúar 1969. - 16. tbl. Forsetaskipti í Banda- ríkjunum fara fram i dag >■ Forsetaskipti fara fram í dag 'i Washington. Johnson forseti og Nixon sitja hlið við hlið á viðhafnarpalli fyrir framan Capi tol (þinghúsið) í eins konar byrgjum sem i eru rúður úr skotheldu gleri, en fram undan í nokkurri fjariægð er pallur sjónvarpsmanna. Léynilögreglu- menn eru á öðru hverju strái og öll hugsanleg tæki í notkun tengd öryggi fráfarandi og verðandi forseta. Frá því er Nixon hefur unnið for setaeið sinn sem 37. fprseti Banda ríkjanna er „Johnson fyrrverandi forseti" (ex-president). Fánar blakta á hverri stöng og skrautbog- ar eru með stuttu millibili á hinni heimskunnu Pennsylvania-breið- m-> 10. siða. i nwiD—nnTMn--------- Sjómannaverkfallið skollið á Almennt verkfall siómanna hófst á miðnætti í nótt. Þegar síðast frétt ist í morgun hafði sáttafundur ekki verið boðaður, en fyrsti fundur deiluaðila með sáttasemjara var á miðvikudagskvöld og stóð til morguns. Síðan hefur ekki verið haldinn fundur. Verkfall sjómanna, er nú er haf ið, nær til bátaflotans. Að því standa beir aðilar, sem þátt hafa tekið í samningsumleitunum við útgeröarmenn að undanfömu. Nær verkfallið til bátasiómanna á Suð- vesturlandi, Snæfeilsnesi, við Eyja fjörð og í Vestmannaeyjum. Eldhafið að Korpúlfsstöðum var geysimikið eins og myndin sýnir. — iiiiæiiiiili (Ljósm. Vísis, B. G.). Tjónið i Korpúlfsstaðabrunanum tafíð nema 3 milljónum kr. Eldurinn kom upp ■ í sjö klukkustundir barðist slökkvilið Reykja víkur við eld, sem kom upp í húsinu á Korpúlfs- stöðum á laugardag. — Miklar skemmdir urðu á þegar háspenna fór inn 3 álmum hússins og tal- ið er, að tjónið á húsinu sjálfu nemi vart undir 3 milljónum króna, en þá er ótalið tjón á heyi, skjölum og öðru, sem á rafkerfi hússins fórst í eldinum. Fólkið á Korpúlfsstöðum varð eldsins vart um kl. 6 á laugar- dag, en vegna skammhlaups, sem oröið hafði einhvern tíma milli kl. 5 og 6, var síminn í ólagi og varð að senda dóttur -ábúandans, Aðalsteins Þorgeirs Tilraun með flottroll fyr- ir síldarskipin — veiðarfærið verður sett upp á Akureyri — spjallað við Guðna Þorsteinsson FLOTVARPA, sem teiknuð er af Guðna Þorsteinssyni, fiskifræð- ingi, samkvæmt þýzkum fyrir- piyndum, verður reynd hér við iand í vor. - Vélbáturinn Björg- vin frá Dalvík hefur verjð tek- inn á leigu til þess að annast þessar tilraunir, sem sennilega munu hefjast í aþrfl. Með þess- um tilraunum verður sannreynt, hvort íslenzku síldveiðiskipin geti notað þess konar veiðar- færi, sem Þjóðverjar hafa reynt með mjög góðum árangri að und anförnu og meðal annars hér við land. Vísir ræddi við Guðna Þorsteins- son í morgun, sem nú er á förum til Þýzkalands, ásamt fulitrúa frá Netastöðinni Odda á Akureyri, en þar verður flotvarpan sett upp. Munu þeir kynna sér þessi veiðar- færi og gerð þeirra í Þýzkalandi. Þjóðverjar hafa framleitt mikið af flotvörpum nú upp á síðkastið og meöal annars flutt talsvert af þeim út. Sagði Guðni að ætlunin væri að panta efni í vörpuna úti, en hún yrði síðan sett upp á Akureyri. Þannig yrðu þessi veiðarfæri ef til vill gerð hér heima, ef flotvörpu- veiðar yrðu algengar hér. — Ég býzt við að byrjað veröi fyrir norðan, ef fært verður vegna íss í vor. Við erum dálítið áfjáðir í að ná þorskinum þar. Þarna fékkst góður afli í botntroll í fyrra, en það horfði hins vegar til vand- ræða hve fiskurinn var smár. — Stærri fiskurinn heldur sig meira uppi í sjó og þess vegna ætti þetta veiðarfæri að henta betur til veið- anna. Einnig höfum við hug á að finna nýjar fiskitegundir fyrir bræðsl- urnar, sem nú eru verkefnalausar. Ég gæti trúað að undir haustið yrði reynt að veiða kolmunna og spærl- ing í flotvörpuna. Það eru ýmis vandamál, sem koma upp varðandi notkun þess- arar vörpu, Þjóðverjar hafa notað hana fyrir skuttogara og mun stærri skip, en hér er um að ræða. En það er hins vegar ætlunin hjá okkur að reyna hana fyrir þessi „týpisku" sildarskip. Helzta nýjungin við þessa vörpu, er sú, að möskvastærðin á for- netinu er miklu stærri en á venju- legu trolli. Þetta gerir það að verkum að skipin geta notað til tölulega miklu stærri troll. Og þess »-> 10. síða sonar, yfir í Grafarholt til þess að gera slökkviliðinu viðvart. Slökkviliðsmenn meö 7 bíla og eina dælu vöru sendir upp að Korpúlfsstöðum og voru þeir komnir á vettvang kl. 6.22, en þá var mikill eldur logandi í húsunum. Logaði upp úr þekj- unni á N-álmunni og NA-álm- unni. Á efri hæð NA-álmunnar voru gevmd skjöl úr Borgar- skjalasafninu, en í nyrztu álm- unni var heyhlaða og geymslu- rými. Vindur stóö af NA og var því syðri álmunum hætta bú- in, en slökkvistarfið beindist að því að verja þær. Lagðar voru vatnsleiðslur úr ánni Korpu — en til þess þurftu slökkviliðs- menn að brjóta gat á ísinn — en heim aö bænum er um 300 m vegalengd. Réðust slökkviliðsmennirnir að eldinum frá miðálmunni út í NV-álmuna og NA-álmuna. Voru þá þakhæðirnar í þeim álmum orðnar alelda. Tókst að verjast því, að eldurinn næöi að breiðast út í suður-álmurnar, þar sem var mikill eldmatur, m—> 10. sfða. Unnið í gær að því að bjarga plöggum úr geymslu skjala- safns borgarinnar. LÉT PRENTA ÁVÍSANA- BLÖÐ MEÐ ÞORSK • Sparisjóðnum á Hornafirðl hefur borizt allóvænt send- i ing, en þar er um að ræða fá- einar ávísanir, prentaðar á nafn sparisjóðsins og gefnar út á hann. Ekki kannast forráöamenn sjóðsins við að hafa staðiö að prentun þessara ávísána, svo að nú er allt útlit fyrir, að einhver einkaaðili hafi hugsað sér að taka ómakið af þessari fjármála- stofnun og prenta tékkheftin fyr ir hana. Þessi nýju ávísanaeýöublöð eru töluvert frábrugðin þeim, sem notuð hafa verið til þessa. Þau eru öðruvísi .á litinn — og þar að auki hefur höfundur þeirra skreytt þau með listilegri mynd af þorski, eins og til að minna menn á að láta ekki glepj, ast af fölskum ávísunum. Alls munu fjórar ávísanir af j þessari tegund hafa borizt Spari] • sjóðnum á Hornafirði. Heildar-< upphæð þeirra er tvö til þrjúj þúsund krónur. Tvær þeirra eruj gefnar út í Klúbbnum í Reykja- vík og sú þriðja á Hellu. Mál þetta er nú í rannsókn] hjá lögreglunni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.