Vísir - 22.02.1969, Síða 1

Vísir - 22.02.1969, Síða 1
59. árg. - Laugardagur 22. febrúar 1969. - 45. tbl. Þjóðortekjur d mmn lækk- uðu um 8% 1968 • Bjarni Bencdiktsson, forsæt- isráðherra, gaf Alþingi í gær skýrslu um efnahagsástandið. Virðist nú lfklegt, að fleiri ráð- herrar birti þingmönnum heild- aryfirlit yfir viðfangsefni sin svo sem utanríkismál og samgöngu- mál. í upphafi ræöu sinnar gat for- sætisráðherra þess, að þjóðartekjur á mann mundu nú svipaðar í raun- 7. síða. Frá fundi Alþýðusambands Islands í gærdag Lúgmurkskrufu uð stuðið verði við summnginn frú því í fyrru | — segir i ályktun fundar ASI. — 16 manna samninganefnd kjörin til viðræðna við atvinnurekendur ■ Fimmtíu og þriggja manna fundur miðstjórnar ASl og full- trúa landssambanda og einstakra félaga kaus 16 manna samninganefnd til samningaviðræðna v?ð atvinnurekendur í gær og er því ekkert því til fyrirstöðu, að samningaviðræður geti hafizt ef hin einstöku launþegafélög innan ASÍ fallast á að veita þessari nefnd umboð til samninga. Nefndin hafði ekki komið saman í gærkvöldi, enda nýkjörin, en reikna má með því, að Hannibal Valdimarsson verði formaður hennar. Fundurinn, sem hófst kl. 2 i gær og lauk kl. 7, gerði eftirfar- andi ályktun: ,,Fundur miðstjórnar Alþýðu sambands Islands, fulltrúa allra landssambanda innan A.S.I. og einstakra félaga sem eru beinir aðilar að sambandinu, haldinn 21. febrúar 1969, mótmælir harð iega einhliða ákvörðun og til- kynningu samtaka atvinnurek- enda um að fella niður vísitölu uppbætur á kaup 1. marz n.k. Við samningagerð A.S.Í. og atvinnurekenda í marz 1968 var beinlínis gert ráð fyrir vísitölu uppbótum á kaup á árinu 1969, og sú afstaða verkalýðshreyfing arinnar að sætta sig þá við skerta vísitölu, var m.a. gerð í trausti þess að þetta ákvæði um áframhaldandi kaupgjalds- vísitölu tryggði nokkuð hag launþega. Fundurinn telur, að það hljóti að vera algjör lágmarkskrafa samtakanna nú, að staðið verði við þau fyrirheit. sem koma fram í samningum frá því í marz 1968, enda útilokað fyrir láglaunafólk að taka á sig nýja dýrtíðaraukningu, eða skeröa kjör sín frekar, en ge'rt var f með samningunum frá 1968, en *' niðurfelling vísitöluuppbóta 1. marz n.k. þýðir um 10% kaup skerðingu. Fundurinn viðurkennir því ekki hinar einhliða ákvarðanir atvinnurekenda, og telur óhjá- kvæmilegt að snúast til varnar gegn þeirri kjaraskerðingu, sem atvinnurekendur hafa nú boðað. Lýsir fundurinn yfir fullri sam stöðu verkalýðshreyfingarinnar um kröfur sínar um verðlagsbæt ur á laun“. Auk miðstjórnarinnar áttu öll landssamböndin innan ASl full trúa á fundinum svo og nokkur einstök félög, sem ekkj eru í landssamböndum og eru beinir aðilar að A.S.Í. Landssamböndin eru Verkamannasamband ís- lands, Sjómannasamband Is- lands, Landssamband ísl. verzl unarmanna, Málm- og skipa- smíðasambandið, Samband bygg ingarmanna og Landssamband vörubifreiöastjóra. Þá áttu Fé- lag bókagerðarmanna, Iðjufélög in, þ.e félög verksmiðjufólks og sex einstök félög, Starfsstúlkna- félagið Sókn, ASB (Félag af- greiðslustúlkna í brauð- og mjólkurbúðum), Félag ísl. kjöt- iðnaðarmanna, Félag ísl. raf- virkja, Mjólkurfræöingafélag Islands og Bakarasveinafélag ís lands fulltrúa á fundinum. Landssöfsiun fil stuðnings ibúum Bíafra Víðtæk landssöfnun er nú að hefjast hér á landi til stuðnings íbúum Bíafra, en þar dóu síð- ustu mánuði allt að tvöfalt fleirf manns en allir íbuar ís- lands til samans. Þær 5—7 milljónir manna sem enn eru eftir í Bíafra eru sárt þjáðar af sjúkdómum og hungri og bíður dauðinn, ef ekki verður að gert. Áskorun hefur verið rituð til landsmanna um stuðning við íbúa Bíafra og er hún undirrit- uð af biskupi islands og öðrum framámönnum. . ;:n ■< MORÐMALIÐ FYRIR RÉTTI Flugstjórinn úrskurðaður sakhæfur. Réttarh'óld 11. marz 9 Ákveðinn hefur verið munnlegur málflutningsdagur í máli ákæruvaldsins gegn Gunnari Viggó Frederiksen, fyrrum flug- stjóra, sem aðfaranótt 9. maí skaut Jóhann Gíslason, flugreksturs- stjóra Fí til bana á heimili hins síðarnefnda. ATVINNULEYSIÐ HORF IÐ í SJÁVARPLÁSSU Atvinnuástandið fer alls staðar batnandi Málið er höföað fyrir sakadómi Reykjavíkur og hefst munnlegur málflutningur þess þriðjudaginn 11. marz og mun að líkindum fara fram í Hegningarhúsinu við Skólavörðu- stfg. Dómurinn verður skipaður brem mönnum, Þórði Björnssyni yf- irsakadómara, Halldóri Þorbjörns- syni sakadómara og Gunnlaugi Briem sakadómara. Ákæruvaldið hefur gefið út á- kæru á hendur Gunnari Viggó Fred eriksen, þar sem hann er sakaður um manndráp, og gerir ákæruvaldið þá kröfu, að kærði verði dæmdur Shh 7. síða. Nú er sjáanlegt, að atvinnu- málin hafa mjög breytzt til batnaðar, eftir lausn sjómanna- verkfallsins. Nú fækkar veru- lega á atvinnuleysisskrá, þótt vinnan sé varla komin í fullan gang ennþá eftir verkfallið. Á nokkrum stöðum eru nú allir, sem voru á atvinnuleysis- skrá komnir í vinnu. Sveitar- stjóri Miðneshrepps tjáði blað- inu, að ekki væri nóg með, að allir hefðu horfið af skránni strax þegar verkfalliö ieystist, heldur virtist einnig vanta mann skap í ýmsa vinnu. I Sandgerði voru 3Ó manns atvinnulausir, jþegar flestir voru á skrá, en nú er allt þettá fólk komið í vinnu. Sömu sögu var að segja i Grindavík, þar hurfu allir af at- vinnuleysisskránni í gærdag. I Grindavík voru 111 manns at- vinnulausir, eða sem næst tí- undi hver maður, þar sem íbú- arnir eru 10^2. Allt þetta fólk, sem var á skrá, er starfsfólk frystihúsanna, sem hafa ekki verið starfrækt vegna skorts á hráefni í sjómannaverkfallinu. I Keflavík voru ekki fyrir hendi í gærkvöldi endanlegar tölur um fjölda atvinnulausra, en þar hafa verið um 200 manns á skrá. Þá var þaö greinilegt, að mikill fjöldi fólks var kom- inn í vinnu, þótt ekki hefðu allir komið því í verk að til- kynna um það til bæjarskrifstof unnar. I Hafnarfirði hafa 343 verið á skrá frá áramótum, og greini- legt var, að töluverð breyting er orðin þar á atvinnuleysinu, þótt endanlegar tölur þar að lút- andj séu ekki fyrir hendi. Á Akranesi hefur þegar orðið veruleg brevting til batnaðar. Þar hafa um 200 manns verið á skrá, en í gærkvöldi var að minnsta kosti helmingur þess fólks kominn í vinnu. Gert var ráö fyrir, að enn mundi fækka talsvert á skránni. Á Snæfellsnesi er atvinnu- leysi nánast úr sögunni. Mest var atvinnuleysið í Grundarfiröi og Stykkishólmi, en þar eru nú allir bátar komnir til róðra, og atvinna hefur skapazt við fisk- vinnsluna fyrir flesta þá, sem skráðir voru atvinnulausir. I Ólafsvík og á Hellissandi er ástandið orðið gott, en þar er nú unnið af fullum krafti við fiskvinnslu. Atvinnuleysið varð aldrei tiltakanlegt á Hellissandi, þar sem trillur reru verkfallsdag ana, þegar gaf. Erfiðara er að gera sér grein fyrir því, hvaða afleiðingar lausn verkfallsins hefur hér í Reykjavík, en • í fyrradag voru hér 1286 manns á atvinnuleys- isskrá, 975 karlar og 311 konur. Margt af þessu fólki-er komið í vinnu, þótt það hafi ekki til- kynnt um það ennþá, en þess er að gæta, að fjölmargir af at- vinnuleysingjum í Reykjavík hafa starfað við aðrar atvinnu- greinar en sjáarútveginn, svo aö ekki er gott að segja fvrir um hverja þýöingu lausn verk- fallsins hefur. I

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.