Vísir - 11.03.1969, Síða 16

Vísir - 11.03.1969, Síða 16
Þriðjudagur 11. marz 1969. TRYG®3M®f IHPMB TO - Sái «121 Sqkjnt INNRÉTTINGAR. S'lDJMÚLA 14 - SÍUI 35646 Gerir alla ánægða Beið í þrjár vikur vegna verkfallsins 12-1400málverkum þarf að koma / aðgengilegri geymslur — Athugun gerð á húsnæði Þjóðminjasafns og Listasafns Brúarfoss er væntanlegur til Reykjavíkur þann 21. marz eftir sögulega ferð. Sem kunnugt er stöðvaðist skipið í New York vegna verkfalls hafnarverka- manna þar, og tafðist það mikið að útivistartími skipsins verður óvenju langur að þessu sinni. Brúarfoss fór héöan hinn 4. jan. í kví f Hamborg þaðan til Dublin og tók þar kjötfarm til að flytja til Bandaríkjanna. Lá hann í New York frá 1. febrúar til 15. febrúar er verkfallið leystist, en erfiðlega gekk aö losa skipið vegna skorts á vinnuafli og tók það 10 daga í viðbót. Beið útgerðin töluvert tjón af þessum sökum. Frá New York fór Brúarfoss til Norfolk til að lesta kom en hing að er hann svo væntanlegur eftir rúmlega tveggja og hálfs mánaðar útivist. ATHUGUN hefur tarið fram á því, hvaða gallar séu á húsnæði Þjóðminja safns íslands og aðstöðu Listasafns íslands í sama húsi. Var málið rætt á Alþingi í gær. Var embætti húsameistara rikisins falifL' að^ gera - þessa athugun og kom þetta m. a. í ljós: Að mjögskorti á aðhitalögn húss ins væri sem skyldi og sé orsak- anna að leita til þess enska fyrirtækis, er á sínum tíma var falið að sjá um verkið. Telur emb ættið að nauðsynlegar lagfær- ingar á hitakerfi hússins í heild séu all kostnaðarsamar. Þá var talið mikilvaagt að ganga frá þak brún hússins hið fyrsta. Allmik- ið sé af sprungum við þakbrún, er gætu verið lekar, þannig að regnvatn kæmist í gegnum þær. Lagfæring þessi sé einföld en kostnaðarsöm. Einnig þurfi að athuga breytingar á gluggum á þann veg að koma megi við tvö földu gleri. Annað, sem æskilegt væri að gera sé loftræstikerfi í húsið með ákveönu rakastigi fyrir safngripi. Um aðbúnað Listasafnsins á efri hæð hússins sé það að segja, að hann sé efckl sem skyldi. — Húsið sé ekld ráðgert fyrir lista- safn þeirrar stærðar, sem þar er, Og af sömu ástæðum eigi ver- ið séð fyrir neinu teljandi at- hafhasvæöi, svo sem nægilega geymslurými utan sýningarsala, er hlýtur að vera höfuöskilyröi fyrir Listasafn ríkisins og við aukna geymsluþörf, þrengi að sýrringarsvæði í safninu. Sjá verði fyrir nægiiegu geymslurými á aögengflegum stað utan núverandi húsnæðis safnsins meðan sjálfstætt Lista safn er ekki byggt. AHt að 12— 14 hundruð málverkum þurfi að koma þannig fyrir í aðgengi- legri geymslum. mm S"""v! || ■ÍlfllJlllll ■' z ■■ Róðstefna um verzlunarmól í dag ■ Ráðstefna um verzlunarmál verður haldin að tilhlutan Full- trúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík að Kótel Loftleiðum dagana 11. —13. marz og er þátt- taka heimil öllum áhugamönnum um verzlunarmál. er fylgja Sjálf stæðisflokknum að málum. — Meðal þeirra, sem flytja ávörp eða svara fyrirspurnum á ráð- stefnunni má nefna ráðherra Sjálfstæðisflokksins og borgar- stjórann í Reykjavík, Ólaf Björns son prófessor Sigurð Magnússon frkstj. K.l. og Björgvin Schram form. F.Í.S. í:':: .: ; : Borg og bófur í vetrarskrúða Borgin er í vetrarskrúöa núna. Eirniig er kuldalegt um að litast, þegar komið er niður aö höfn. Þar liggja klakabrynjaðir bátar við bryggju. ísing hefur verið mikil á miðunum undanfarið og hafa sjómenn stundað íshögg, þegar að landi er komiö. Ekfci er annaö á myndinni að sjá en að höfnin sé lögð þunnu íslagi. — (Ljósm. Birgir Guðbjartsson.) Mestar líkur til, að mennirnir sex hafi aldrei vaknað Engar sannanir enn, að kviknað hafi i út frá kyndiklefa 9 Það eru mestar líkur til þess að mennirnir sex, sem fórust um borð í Hallveigu Fróðadótt- ur, hafi aldrei vaknað, sagði "mil Ágústsson borgardómari í viðtali við Vísi i gær, en hann tvrir sjórétti vegna slyssins. "ramburður þriggja háseta var ekinn á laugardaginn. Einn eirra var á stýrisvakt. Hann evrði aldrei neina sprengingu, "n sá aðeins skvndilega hvar níkinn reyk lagði úr vistarver- ’m háseta frammi I. Hinir hásetamir tveir, sem voru firheyrðir komust báðir naum- ega út. Annar vaknaði við reyk- inn, en hinn við köll. Var annar "eirra í lúkarnum, þar sem menn- rnir fómst. Hann kallaði til þeirra, en hafði engin tök á því að ná beim út, enda var enginn tfmi til stefnu. Við sjóréttinn hefur það komið fram, að reynt var að komast að ■mönnunum í gegnum neyðarút- gang, sem liggur úr lúkarnum aftur í netalestina. Lúgu, sem er á milli, er þó aðeins hægt að opna innan frá og tókst skipverjum ekki aö sprengja lúguna upp. Ekkert hefur komið fram, sem sannar ótvírætt, að upptök eldsins hafi verið í kyndiklefanum. Hugs- anlegur möguleiki er, að kviknað hafi í út frá .afmagni eða jafnvel tóbaki, en nokkur ölvun mun hafa verið um borð og því hugsanlegt að óvarlega hafi verið farið með eld Yfirheyrslum verður haldið á- fram í dag. Vik skipverjanna verða ýmsir, sem viöriðnir voru björgun araðgerðirnar kallaðir fyrir rétt, eins og slökkviliðsmennirnir 2 og bandaríski sjúkraliðinn en hann hef ur haldiö því fram, að ef til vill hefði mátt bjarga einhverjum af mönnunum sex, ef tekizt hefði að komast fyrr niður til þeirra. Bílar lækka um22-55þás. Ákveðið hefur verið að láta lækk I isbreytinguna með hinu hærra leyf un þess ná til allra bifreiða, sem isgjaldi og geta innflytjendur snú- tollafgreiddar hafa verið eftir geng ið sér til tollstjóraembættisins með I endurgreiðslubeiðni. Mikill hrognkelsa- hugur í Húsvíkingum 30-35 trillur að búást til grásleppuveiða Leyfisgjöld af bifreiðum lækka um þessar mundir úr 90% í 60%. Lækka gjöld af jeppabif- reiðum úr 30% í 15% og sömu- leiðis gjöld af leigubílum og kennslubifreiðum en þeir bif- reiðastjórar. sem hafa leiguakst- ur og ökukenntlu að aukastarfi skulu greiða 45% gjald við toll- afgreiðslu í stað 60%. Blaðið haföi samband viö nokk- ur bifreiðaumboð í morgun og spurðist fyrir um verðlækkun á hin um ýmsu bifreiðategundum. Var víðast hvar verið að reikna út nýja verðið á bifreiðunum, og sums staö ar fengum við aðeins ágizkaðar töl ur. Volkswagen 1200 lækkar úr 230 þús. í 208 þús og Volkswagen 1300 lúr 255 þús. í 233 þús. Þá er reikn að með að Skoda MBT lækki úr 229 þús. í rúm 200 þús. og Skoda MB Standard úr 241 þús. í nál. 215 þús. Ford Cortina lækkar úr 311 þús. í 282 þús., Bronco úr 489 þús í 453 þús. og stórir amerískir bílar, t.d. Fairlane úr 650 þús. í 595 þús. Á Húsavík er nú naumast hugs aö um annað en grásleppu. Búizt er við að 30 til 35 trillur stundi hrogn- kelsaveiðar í vor. Fyrstu netin voru lögð fyrir rauðmagann snemma í febrúar og hafa Húsvíkingar því haft nóg af honum í soðiö siðustu vikurnar. Nokkuð af aflanum hef ur verið flutt til Akureyrar. Grásleppan er að byrja að koma inn undir landsteinana núna og fá trillumar fáein stykki í net, en fullur kraftur kemst ekki á veiðina ’fyrr en upp úr miðjum mánuðin- um. Grásleppan sjálf er Iítið nýtt en hrognin hafa sem kunnugt er verið í háu verði. Hefur ekki í mörg ár verið jafn líflegt yfir hrognkelsaútgerðinni á Húsavík og í ár. Fjórir bátar róa með net frá Húsavík. tveir með línu og einn er á togveiðum. Vertíðaraflinn var að- eins 50 tonn i janúar en 167 tonn í febrúar og fer batnandi.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.