Vísir - 05.06.1969, Page 13
V í SIR . Fimmtudagur 5. júní 1969.
KJALLARASIÐAN
13t
Hálfnað kjörtímabil
Eftir að kjaradcilan hafði
verið leidd til lykta og sú ó-
vissa sem hún skapaði var úr
sögunni, leið ekki langur tími
þar til pólitískt hugsandi
menn tóku að renna augun-
um fram á við til næstu þing-
kosninga árið 1971 og með
bæja- og sveitastjórnarkosn-
ingar að ári í huga.
Kjörtímabil Alþingis er nú u.
þ. b. hálfnað og flest sem bend-
ir til að ríkisstjómin muni sitja
nær óbreytt út kjörtímabilið. Al-
mennt er reiknað með að Emil
Jónsson utanrikisráðherra muni
láta af störfum á þessu ári og að
Alþýöuflokkurinn tilnefni Bene-
dikt Gröndal alþingismann eða
Birgi Finnsson forseta Samein-
aðs Alþingis 1 hans stað. Talað
hefur verið um að Gylfi Þ. Gísla-
son mennta- og viðskiptamála-
ráðh. muni vilja sameina emb-
ætti utanríkisráöherra og við-
skiptamálaráöherra í persónu
sinni og láta eftirmann Emils
Jónssonar um menntamálin. Fyr
ir dyrum standa breytingar á
utanríkisþjónustunni. Frumvarp
um nýja skipan utanríkisþjón-
ustunnar er í smíðum hjá sér-
stakri nefnd og mun það vænt-
anlega verða lagt fram á næsta
þingi. Þar mun veröa Iagt til að
skipaðir verði sérstakir við-
skiptafulltrúar í sendiráð ís-
lands. Þá munu þessar hugmynd
ir hafa haft einhver áhrif á það
að Pétur Eggerz ambassador
mun bráðlega taka við embætti
ráðuneytisstjóra í utanríkisráðu-
neytinu en hann hefur nokkra
reynslu í viðskiptamálum frá
fyrri störfum sínum.
Aðrar breytingar á ríkisstjórn
inni eru ekki fyrirsjáanlegar.
Fyrir nokkrum mánuðum var
talað um að Magnús Jónsson
fjármálaráöherra léti í ljós aö
sér væri ósárt um að hætta ráð-
herrastörfum og munu tíma-
bundnar heilsufarsástæður hafa
valdið þessu. Þessu virðist ekki
lengur til að dreifa.
Tíðari ráðherraskipti.
1 framhaldi af þessu er ef
til vill rétt að benda á að þeir
eru allmargir sem virðast þeirr-
ar skoðunar að breytingar á rík-
isstjóminni séu æskilegar. Fylg-
ismenn þessarar skoðunar eru
í báðum stjómarflokkunum. I
þessu felst ekki beint vantraust
á einstaka ráðherra. Þó eru þeir
sakaðir um að sinna ekki ýms-
um minniháttar málum, sem af
pólitískum ástæðum þarfnast úr
lausnar. En almennt er talað um
þær hættur, sem fólgnar eru í
langri setu einstakra manna á
ráðherrastóli. hættuna á stöðn-
«MdrF
I Ásmund Einarsson I
un, embættisþreytu og annað
þess háttar. Samfelldur tími ráð
herranna í þessum embættum
er mjög mismunandi. Eggert G.
Þorsteinsson sjávarútvegs- og
félagsmálaráðherra tók við emb-
ætti árið 1965 og hefur
skemmstan starfstíma ráðherr-
anna. Hinir hafa verið ráðherrar
6—10 ár. Lengst hafa þeir ráð-
herrar setið. sem ekki mundu
hætta störfum þótt breytingar
yrðu gerðar á ríkisstjórninni,
forsætisráðherrann Bjarni Bene-
diktsson og Gylfi Þ. Gíslason.
Æskilegt væri að sú venja gæti
skapazt, að ráðherraskiptj væru
tíöari án þess að í þeim felist
beinlínis vantraust á ráðherra
sem hverfa úr starfi.
Umræðurnar um ráðherrana
eru meðal þess, sem endurspegl-
ar einhvers konar ólund innan
stjórnarflokkanna. Óánægjan
var talsverð á tímabili. Hún er
í rénun um þessar mundir, en
ekki vegna þess að óánægjuefn-
in séu úr sögunni. Þess vegna er
aldrei að vita nema hún magnist
á nýjan leik. En eins og sakir
standa er staða ríkisstjómarinn-
ar sterkari en hún hefur verið
síðan í síðustu alþingiskosning-
um.
Þessi bifreið er til sýnis og sölu hjá bílaverkstæðinu
Spindli við Rauðarárstíg. Tilboð sendist augld. Vísis
fyrir 9. þ. m. merkt „Scania Vabis“.
Klofningur í stjórnarandstöð-
unni.
Óánægja stjórnarsinna er þó
sennilega smáræði hjá þeirri
reiði, sem sýður undir í Alþýðu-
bandalaginu. Og hafi Sjálfstæð-
isflokkurinn og Alþýðuflokkur-
inn vandamál af þessu tagi, sem
umtalsverð eru, hvað á þá að
segja um þær sviptingar, sem
eiga sér stað alltaf öðru hverju
innan Framsóknarflokksins —
Stofnun nýrra stjómmálasam-
taka, Samtaka frjálslyndra, er
beinlínis afleiðing óánægjunnar
í báðum stjórnarandstöðuflokk-
unum. Alþýðubandalagið klofn-
aði eins og kunnugt er í síðustu
alþingiskosningum og hefur ekki
rétt sig við síðan. Vanmáttur
Framsóknarflokksins, ekki sízt
flokksforystunnar, hefur orðið
tilefni sviptinga og gremjuöldu
innan flokksins og augljóst að
flokkurinn getur ekki lengur ver
ið öruggur um það fylgi, sem
hann hafði í síðustu þingkosn-
ingum. Sumir efnilegustu menn
flokksins hafa hlotið pólitíska
áverka, sem geta gert út af við
þá og vonir sem bundnar voru
við formann flokksins hafa
brugðizt.
Klofningsstarfsemi gætir hins
vegar ekki hið allra minnsta I
stjómarflokkunum, þótt skoðan
ir séu skiptar um margt. Virö-
ist stundum mega heyra á máli
manna þar að þeir sem kveða
fastast að orði um óánægju sína
með eitt og annað í störfum og
stefnu stjórnarflokkanna, muni
standa hvað fastast með sínum
flokki, á úrslitastundu, í aug-
um flokksforingja er það ekki
alltaf nóg. Krafan um ■ hlýðni
flokksmanna er rík í öllum flokk
um. En þá hafa flokksforingjar
skilið illa það sem gerzt hefur
undanfarna mánuði, ef þeir láta
það hafa áhrif á afstöðu sína til
einstakra manna. Hverjum og
einum flokksleiðtoga ríður ekki
á öðm meira fram aö kosning-
um en að efla samstarf sitt við
óbreytta flokksmenn.
Árangur flokkanna a. m. k. í
næstu alþingiskosningum mun
ráðast innan frá, í flokkunum
sjálfum, í miklu ríkari mæli en
áður. Úrslit síðustu alþingis-
kosninga voru vísbending um
það.
SKOT - NAGLAR
o 1©
r “ . . ,. !! ~ SKEIFAN 3B
^wrtrf-ntiamvömrhJ. ^ S|M| 84480
„Alþjóðlegt hneyksli“
óg „glapræði“
Hann setur sig á háan hest
þessi Peter Scótt, sém leggur
heldur betur orö í belg, og talar
um hneyksH í sambandi við
virkjun Þjórsár vegna þess aö ef
til þeirrar virkjunar kæmi, væri
hiö nrikla gæsavarp í Þjórsár-
verum í hættu.
Þessi sami maður talar um að
minkaeldi hér á landi sé glap-
ræði. Auðvitað má þessi maður
sem og aðrir hafa skoðun á
málum, en hlægilegt er að máia
þessi ummæli stórum stöfum
eins bg gert hefur verið.
Það hefur verið taiað um það
jafnlengi og hugmyndina um
virkjun, að gæsavarpið við
Þjórsá yrði í hættu, ef til henn-
ar kæmi. Þessu hafa menn ekki
verið sérlega uppnæmir fyrir,
enda kannski fæstir lagt trúnað
á að nokkur hætta yrði á þvi,
að í þær framkvæmdir yrði ráð-
izt vegna varpsins. En nú þegar
þessi útlendi maður talar um
hneyksii, þá sperra menn eyru.
Flestir eru þó vafalaust sam-
máia Pétri um nauðsyn á að
friða þessi varpsvæði, að
minnsta kosti þeir sem þangað
hafa komið og litið þá ótrúlegu
sýn að virða fyrir sér varpið í
annriki. Orðalagið á skoðun
fuglafræðingsins er hins vegar
ekki viðkunnanlegt né kurteis-
legt.
Nú eftir að minkaeldi er orð-
ið að lögum hér á Iandi og fjöl-
margir aðilar undirbúa rekstur
á því sviði, kemur þessi sami
aðili fram á sjónarsviðið til að
læða því jnn hjá, almenningi,
að minkaeldi sé mikiö glapræði.
Auðvitað eru marglr a.nnmarkar
á minkaeldi, þó þeir háfi verið
gerðir aö ógnþrungnum grýlum,
þegar málin hafa veriö rædd.
Þess væri óskandi, að fslenzk
fiskimið væru ekki svo uppurin
af ágangi innlendra sem er-
lendra, að við gætum búíð aö
því einu að veiða flsk nr sjö.
En því miður er svo komið að
Islendingar eru nauðbeygðir til
að hasla sér völl á fleiri atvinnu
sviðum og þess vegna hefur
minkaeldi meðal annars komið
til sögunnar.
Auðvitað eru margir okkar
sammála þessum Peter Scott,
en eins má geta í leiðinni, að
við þættum vart kurteisir gestir
í Bretlandi, ef við væðum þar
fram á ritvöllinn til að lýsa yfir
hneykslun okkar og skoðunum
á glapræði þeirra sem við erum
að heimsækja, ef þá nokkurt
brezkt blað mundi vilja birta
hneykslunarorð okkar.
Margur íslendingur hefur að
undanförnu hneykslazt á fram-
ferði Breta aö selja vopn til
Nigeríu, svo blóðbaði þar yrði
viðhaldið sem lengst. Verður
fugladrápi okkar seint jafnað við
þá vitfirru. Einnig hefur okkur
þótt afstaða Breta löngum vera
glapræði, þegar þeir hafa staðið
á móti þvi að nauðsynlegar ráð
stafanir yrðu gerðar til vemdar
fiskistofnum, sem eru þó að-
gerðir sem eru báöum þjóðunum
til hagsbóta.
Við gætum lfka henykslazt á
því glapræði að trufla landanir
úr íslenzkum skipum, nú síðast
f Aberdeen, en slfkar truflanir
einkenna um of viðskipti þess-
ara annars ágætu viðskipta-
þjóða.
Skyldum við eiga eins greiðan
aðgang að brezkum blöðum til
að lýsa yfir skoðunum á „al-
þjóölegu hneyksli" og „glap-
ræði“, eins og Peter Scott virð-
ist eiga að íslenzkum blöðum
tfl að lýsa yfir sfnum skoðun-
um?
Þrándur í Götu.
i'ökum að okkur hvers konar mokstur
og sprengivinnu 1 húsgrunnum og ræs-
um. Leigjum it loftpressur og víbra-
rleða. — Vélaleiga Steindórs Sighvats-
lERWH sonai. Álfabrekku við Suðurlands-
oraut. sfmi 30435
Fjölhæf jarðvinnsluvél. Jafna
lóðlr, gref skurði o.fl.
Gfsll Jónsson, Akurgerði 31.
Sfmi 35199.
HREINGERNINGAR
Nýjung i teppahreinsun. — Við
þurrhreinsum gólfteppi. — Reynsla
fyrir þvi að teppin hlaupa ekki
eða lita frá sér. Erum enn með okk
ar vinsælu véla- og handhreingem
ingar, einnig gluggaþvott. — Ema
og Þorsteinn. sími 20888.
Géfúm hreint: íbúðir, stigaganga,
stofnanir. Einnig gluggahreinsun.
Menn með margra ára reynslu. —
Hörður, sími 84738.
na
CORONET
Falleg, stílhrein úrvalsframleiðsla að no.ðan. CORONET-eldhúsinnréttingar
sameina handbrögð v-þýzkra og íslenzkra fagmanria.
Höfum hin frábæru NEFF v-þýzku heimilistæki.
Einkaumboðsmenn:
HÚS OG SKIP HF.
Ármúla 5 — Simar 84415 og 84416
B
Vélhreingeming. Gólfteppa og
húsgagnahreinsun. Vanir og vand-
virkir menn. Ódýr og örugg þjón-
usta. — Þvegillinn. Sfmi 42181.
Hreingerningar. Geram hreinar
fbúðir, stigaganga, sali og stofnan
ir. Höfum ábreiður á teppi og hús
gögn. Tökum hreingemingar utan
borgarinnar. Geram föst tilboð ef
óskað er. Kvöldvinna á sama
gjaldi. — Þorsteinn, sími 14196
(áður 19154).
Hreingemingar, gluggahreinsun,
vanir menn. fljótt og vel unnið,
tökum einnig að okkur hreingern-
ingar utan borgarinnar. Bjami, —
sími 12158.
Þrif. — Hreingerningar, vél-
hreingemingar og gólfteppahreins
un. Vanir menr. og vönduð vinna
ÞRIF. Símar 82635 og 33049. —
Haukur og Bjami.
Hreingernlngar (ekki vél). Geram
hreinar fbúðir, stigaganga o. fl., höf ,
um ábreiður yfir teppi og húsgögn.
Vanir og vandvirkir menn. Sama
gjald hvaða tfma sólarhrings sem i
er. Sími 32772.
t