Vísir - 10.07.1969, Qupperneq 1
Síldarverð þriðjungi hærra en ífyrra
59. árg. — Fimmtudagur 10. júlí 1969. — 152. tbl.
Verð á saltsíld til bátanna
verður í sumar um það bii þriðj-
ungi hærra en það var í fyrra,
eða 650 kr. á hverja uppsaltaða
tunnu í stað 472 kr. í fyrra-
sumar.
Hver uppmæld tunna (120 lítrar
eða 108 kg) er nú á 477 kr. en var
við fyrstu verðákvörðun, sem gilti
fram í september f fyrra 347 kr.
Nýja verðið gildir til 30. sept.
Veröákvörðun þessi var gerð með
atkvæði oddamanns f yfirnefnd
Verðlagsráðs, Bjarna Braga Jóns-
sonar og fulltrúa síldarseljenda,
Guðmundar Jörundssonar og
Tryggva Helgasonar, gegn atkvæði
fulltrúa síldarkaupenda, Jóns Þ.
Ámasonar og Sveins Benedikts-
sonar.
Ennfremur hefur verið ákveðið
lágmarksverð á síld, sem afhent
er utan hafnar til söltunar, ísunar
eða frystingar á þessu tímabil tii
30. sept. og skal hvert kg. seljast
á 2,80 og hver uppmæld tunna á
302,00 kr.
Einnig var ákveðið lágmarksverð
á loönu í bræðslu á Norður- og
Austurlandssvæði, 0,94 kr. hver kg.
Heimilt er að greiða 30 aurum
lægra verð fyrir loðnu, sé hún tek-
in úr veiðiskipi í flutningaskip utan
hafnar.
Hah Loftleiðir unnið Air Bahantas málið?
— Rætt um möguleika á, að Loftleiðir kaupi líka TransAvía
■ Vísir hefur fregnað, að dómur sé fallinn fyrir
undirrétti í Míamí í Bandaríkjunum í máli Loftleiða
vegna,kaupa þeirra á flugfélaginu EJA (Executive
Jet Aviation), sem á Air Bahamas. Herma fregnir,
að úrskurður hafi verið sá, að Loftleiðir megi eiga
meirihluta hlutafjár þess, en þeir munu hafa eign-
azt það nær allt.
Málið höfðaði Rickett nokkur
major, einn aðaleigandi Air
Bahamas. Taldi hann, að gefa
hefði átt fyrri hluthöfum for-
kaupsrétt að hlutabréfunum áð-
ur en þau voru boðin Loftleiðum
til kaups.
Málinu mun hafa verið áfrýj-
að til æðri dómstóls í Florida-
ríki.
Alfreð Elíasson, framkvæmda
stjóri Loftleiða, tjáði blaðinu
í morgun, að honum værj ekki
kunnugt um dóminn. Hins veg-
ar vissi hann, að málflutningur
hefði farið fram í þessu máli í
Miami.
Samkvæmt þessum fregnum
er talið, að Loftleiðir hafi unn-
ið málið í þessari lotu.
Aðspurður, hvort Loftleiðir
hefðu tekið nokkra ákvörðun
um kaup hollnezka flugfélags-
ins Trans Avia, sagði Alfreð aö
um það lægi engin ákvörðun
fyrir. Trans Avia hefur komið
við sögu í Bíafra-fluginu. Höfðu
Loftleiðir fyrst leigt nokkrar
vélar sinar Trans Avia, en síðar
eignaðist flugfélagið Flughjálp
þær vélar.
Þá hefur Trans Avia komið
við sögu Air Bahamas málsins.
Alfreð Elíasson skýrði frá
því, að frestur hafi verið veitt-
ur til 15. þessa mánaðar þeim
áhugamönnum, sem hafa hug á
að kaupa Rolls Royce flugvélar
Loftleiða. Eru þetta atvinnulaus
ir flugliðar, mest sænskir, sem
vilja eignast flugkost. — Er því
margt í deiglunni hjá Loftleið-
um um þessar mundir.
SAST I SUNDLAUG-
INNII HVERAGERÐI
Saknað 15 ára Reykjavikurpilts
• Fimmtán ára piltur, Krist-
ján Kristjánsson, Nökkva-
vogi 15 í Reykjavík, hvarf að
Umferð bönnuð um
Búrfellssvæðið
• Öll almenn umferð hefur ver-
ið bönnuð um virkjunarsvæöiö
við Búrfell og Þjórsárbrúna um ó-
ákveðinn tíma. Stafar sú ákvörðun
af jarðraski því, sem orðið hefur,
þegar vatninu er smátt og smátt
hleypt i vatnsvegina, þ.e. „stöðu-
vötnin'* mynduð austur þar, en
þær framkvæmdir hófust fyrir
nokkrum dögum
• Er þetta gert til þess að fólk
lendi ekki í vandræðum á ferð
um svæðið, en ekki hefur komiö
til neinna óhappa hingað tll. Fram
kvæmdir austur þar ganga sam-
kvæmt áætlun.
heiman frá sér í byrjun vik-
unnar.
„Það spurðist til piltsins síðast,
þar sem hann var að synda í sund
lauginni í Hveragerði í fyrradag,
og eru þessar upplýsingar taldar
nokkuð áreiðanlegar", sagöi Kristj
án Sigurðsson, rannsóknarlögreglu
maður í viðtali við Vísi í morgun.
Kristján kvaðst ekki teija að
neitt stórkostlegt væri aö í sam-
bandi við hvarf piltsins, en hann
mun hafa horfið á svipaðan máta
áður. Kristján fór að heiman frá
sér á mánui agsmorgun, og var
þá klæddur bláum gailabuxum,
köflóttri peysu og hafði sandala á
fótum.
Freysteinn ógnar Guðmundi
-r- Ákvörðun i máli Friðriks i dag
• Freysteínn Þorbergsson ógnar
nú Guðmundi Sigurjónssyni í
baráttunni um fyrsta sætið á æf-
ingaskákmótinu. í gær vann Frey-
steinn Bjöm Sigurjónsson, en
Guömundur og Bragi geröu jafn-
tefli. Biðskák varð hjá Jóhanni Þóri
og Trauista.
Ákvörðun verður tekin i dag,
hvort strika skuli Friðrik út úr
keppninnj eða telja ótefldar skákir
hans honum tapaðar.
Æfingamótinu eru settar naumar
tímaskorður, vegna þess að nokkrir
keppenda eru á förum á meistara-
mót Norðurlanda. Auk þess verður
heimsmeistaramót stúdenta um
næstu mánaðamót.
Biðskákir verða tefldar í kvöld,
og siðasta umferð er á morgun.
Nú er úti veður vott
Ekki hefur mikiö séð til sólar það sem af er júlí, og í dag er suddi
og strekkingur, sem senniiega endist a. m. k. næsta sólarhring-
inn, samkvæmt veðurspám. Ekki er pó nein lægð sjáanleg á leið
til landsins, segja veðurspámenn, og má þvf jafnvel búast við að
innan fárra daga fái borgarbúar sólskinið sitt iangþráða. — Yrði
það vel þegin sumargjöf iftir votviðrasamasta júní-mánuð um
áratuga skeið. — Myndin er dæmigerð fyrir miðborg Reykjavíkur,
þar sem konur „vopnaðar“ regnhlífum hafa sett svip á götulífið
undanfarnar vikur.
MUN BETRI LAXVEIÐI
í ÁR EN í FYRRASUMAR
• „Lax, lax, iax,“ syngur
Guðmundur Jónsson þrot-
laust þessa dagana, og virðist
söngur hans verða að áhrinis-
orðum, en laxveiði er nú 6-
venju góð um land aiit, að
því er Albert Erlingsson í
Veiðimanninum tjáði Vísi í
morgun.
Albert sagöi að laxagengd
væri alls staðar eins og bezt
yrði á kosið og mun betri en á
sama tima í fyrra. Hann sagði,
að þegar síðast fréttist hefðu
verið komnir um 600 laxar á
land úr Þverá f Borgarfirði, en
heldur minna úr Norðurá og
Laxá í Kjós, Þá sagði Albert,
að veiði hefði strax i byrjun
júlí orðiö allgóð i Laxá í Hrepp-
um og Brúará, en það væri ó-
venjulegt mjög í byrjun veiði-
tímans. Veiðiár norðanlands
hafa heldur ekki brugðizt, og
er' fiskur kominn um alla Laxá
i Aðaldal, en yfirleitt er hann
seinni til þar en annars staðar.