Vísir - 10.09.1969, Side 2

Vísir - 10.09.1969, Side 2
V í SIR . Miðvikudagur 10. september 1969. Knattspyrnu„ferhyrningurinn // ALBERT: — Hann hefur verið virkur á æfingum landsliðsins og stappað stálinu í strákana persónulega. Sinfóniuhljómsveit Islands Orðsending til áskrifenda Sala áskriftarskírteina að 18 tónleikum hljómsveitar- innar er hafin. Áskrifendur hafa forkaupsrétt að mið- um en verða að tilkynna um endurnýjun nú þegar og sækja skírteini sín í síðasta lagi 15. september. Sala fer fram í Ríkisútvarpinu, Skúlagötu, sími 22260. Frá fræðsluskrifstofu Reykjavíkur Starf fulltrúa, er hefur umsjón með sérkennslu í skólum borgarinnar, er laust til umsóknar. Umsóknir sendist fræðsluskrifstofu Reykja- víkur Tjarnargötu 12, fyrir 24. september n.k. Fræðslustjórinn í Reykjavík. Tækniskóli Islands Undirbúningsdeildin á Akureyri getur enn tekið við fáeinum nemendum. — Námsefni hið sama og prófkröfur hinar sömu og í Reykjavík. — Kennsla hefst í byrjun október n.k. Upplýsingar veitir Jón Sigurgeirsson, skólastjóri, Akureyri. sími 11274. 7/7 sölu íhúðir Fokheld endaíbúð í steinhúsi 75 ferm. Allt sér. 2 litlar 2 herb. íbúðir í timburhúsi í gamla bænum Sérlega hentugir skilm. Eignaskipti koma til greina 30 ferm. geymsluskúr ásamt 600 ferm. eignarlóð í Skerjafirði. Sumarbústaður á Vatnsleysuströnd. Uppl. í síma'83177. Nú líður að þeim tíma, sem knattspyrnumenn hafa vana- iega kvatt sumarstarfið, lagzt í vetrarhíðið. Frá mánaðamót unum næstu hefur oftast ver- Ið lítið um átök, fyrr en síð- ustu árin, að leikið hefur ver- ið um helgar, en æfingar litl- ar sem engar. Ekki eru líkur á að svo verð: nú. íslandsmótiö er alls ekki út- kljáð og vera má aö aukaleiki þurfi til aö fá úrslit, bæði á toppnum og botninum, eins og fjallað er um á öðrum stað hér á íþróttasíðunum. Þá er bikarkeppnin enn í fullum gangi og ekki komið að aðalkeppninni. Vera má að leikið verði langt fram á veturinn, — og er það síður en svo miður. Vetrarhíðiö hefur nefnilega farið illa með knattspyrnuna okkar. Leikmenn hafa látið íþrótt sína lönd og leið og yfirleitt kórónað þetta letitímabil með því aö leggja sinn skerf til að tæma kjöt- katlana á heimilum sínum um jólin. Árangurinn? Um miðjan jan úara hafa oft sílspikaðir og þrek lausir íþróttamenn mætt til æf- inga fyrir leiki, sem þá voru aðeins 3 mánuði undan. Oftast hefur árangurinn orðið sá sami. Leikmenn hafa ekki fundið „formið“ fyrr en undir lok keppnistímabils, hafi þeir þá nokkurn tíma náð sér að fullu. Knattspyrnan hefur tekið ó- trúlegum framförum í sumar á því er enginn vafi. Liðin sýna meiri baráttuvilja, hvort heldur þaö eru féiagsliðin eða lands- liðið. Æfingarnar í vetur munu þó eflaust koma að meira gagni næsta sumar og næstu sumur, ef engin stefnubreyting verður á. Meðan mörg lið eru í eld- línunni fram eftir vetri, er ekki vafi á að þau munu eftir föng- um halda æfingum áfram, og er vel. Ástæða er að fagna því að Ríkharöur Jónsson hefur bætzt viö í hóp þeirra manna, sem mest og bezt vinna fyrir lands- liðið. Þessir fjórir menn eru öll- um hnútum kunnir og vinna vel sína störf. Ánægjulegt er að sjá helztu menn knattspyrnunnar virka í starfi sínu með liöunum, eins og Albert Guðmundsson hefur gert. Hafsteinn Guðmundsson hefur eytt miklum tíma og fyr- irhöfn í vandasömu starfi sem „einvaldur" um val á landslið- inu, Ellert Schram hefur verið drífandi fyrirliði og aldrei ver- iö betri en einmitt í sumar. Rík- harður Jónsson ætti því að verða enn ein driffjöðrin í þessu starfi. Og ekki er að efa að sterkt landslið mun verða sem vítamín sprauta á félagsliðin í landinu og knattspyrnustarfið í heild. Án efa munu flestir þeir, sem áhuga hafa á knattspymu óska þess að þessi „ferhymingur" í knattspyrnunni megi sem lengst vinna saman að bættri kpatt- spyrnu. —jbp- RIKHARÐUR: — Gjörþekkir allt sem við kemur knattspyrnunni okkar, — hér er hann í leik GEGN Helga Daníelssyni, félaga sínum. Enn um möguleikana / 7. deildinni i knattspyrnu: ÞRJÚ Á TOPPNUM - FJÖGUR Á BOTNINUM? AKURNESINGAR hafa stöð- ugt möguleika á að vinna ís- landsbikarinn í ár. Ranglega var.sagt hér í blaðinu að liðin væru aðeins þrjú, sem enn hefðu möguleika, þau eru fjögur, Keflavík, Valur Akra nes og Vestmannaeyjar. Hins vegar geta enn 5 liðánna í Í. deild fallið i 2. deild. KR með 11 stig er t. d. enn ekki fyllilega úr hættu. Bæði Akur- eyri og Fram geta komizt í 11 stig og sama er um Vestmanna- eyinga að segja. Möguleiki er því á keppni fleiri liða en tveggja um. bótninn komi til, jafnvel sá möguleiki, að KR, Fram, Akureyri og Vestmanna- eyjar verði öll með 11 stig. Þyrfti Fram bá að vinna KR, Akurevri að gera iafntefli við Vestmannaevjar og Vestmanna- evingar iafnframt aö tapa fvrir Akranesi. Þá mundu 4 lið verða með 11 stig og þurfa að keppa sín á milli um hvert þeirra á að leika gegn Breiðabliki um 1. deildar- sæti næsta sumar. Hins vegar er möguleiki á að tvö lið verði efst með 14 stig. Liðin gætu jafnvel orðið þrjú á toppnum með 14 stig. Möguleikar eru því á „Mara- þon“-Islandsmóti, því að þetta gæti þýtt allt að 9 aukaleiki í 1. deild.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.